Morgunblaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rútu
bjargað
úr Krossá
Signrður Rúnarsson, bílstjóri
hjá Austurleið, dró rútu frá
Guðmundi Jónassyni upp úr
Krossá á rútu sinni í gær. Að
sögn viðstaddra sýndi Sigurður
mikið snarræði og kjark við
björgunina.
Sigurður segir að rúturnar tvær
hafi farið hvor á eftir annarri
yfir Krossá, hans rúta á undan.
Á undan þeim hafði farið eins-
drifsbíll og allt hafi virst í lagi
með vaðið en þá hafi rútan fest.
Hann fór strax í að reyna að
ná henni upp, óð út í ána og
kom taug í rútuna.
Gerðar voru ráðstafanir til að
ná farþegunum í land ef illa
færi og hafði til þess verið kall-
að í dráttarbíl sem Austurleið á
og hefur til taks í Húsadal. Sig-
urður segir að farþegarnir hafi
þess vegna aldrei verið í neinni
verulegri hættu en þeir hafi
hins vegar verið talsvert skelk-
aðir.
Sigurður segist hafa náð rút-
unni í tveimur atrennum, fyrst
dró hann hana að landi og svo
upp á bakkann á ská. Það tókst
á rúmum 20 mínútum en á þeim
tíma hafði áin grafið undan
dekkjum rútunnar og hún var
sest niður á grindina. Sigurður
segir að Krossá sé það straum-
hörð að hún þurfi ekki langan
tíma til að grafa alveg undan
bílum sem stoppa í henni og
endar þá með því að þeir leggj-
ast á hliðina upp í strauminn.
Austurleiðir eru með áætlunar-
ferðir í Þórsmörk og nota í þær
sérútbúinn bíl sem Sigurður var
á í gær. Hann ekur inn í Þórs-
mörk á nánast hverjum degi og
lendir mjög oft í því að aðstoða
ferðalanga. Hann segist ekki
hafa tölu á því hvað hann er
búinn að draga marga bíla upp
úr ám í sumar. Það hafi þó ekki
verið upp úr Krossánni heldur
mest úr Steinsholtsá. Hún sé
Morgunblaðið/Arnar Guðmundsson
SIGURÐUR bílstjóri að koma taug í rútuna sem sat föst i Króssá.
Hagnaður ÚA 40 milljónir
fyrstu 6 mánuði ársins
Mikill ýsuafli
vegur upp
þ or sksker ðingu
HAGNAÐUR af rekstri Útgerðar-
félags Akureyringa hf. nam 40
milljónum króna á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs. Samkvæmt upp-
lýsingum frá ÚA er þessi afkoma
betri en á sama tímabili í fyrra
þegar tap á rekstrinum nam tæp-
um 70 milljónum króna. Góð af-
koma þessa árs er m.a. rakin til
þess að skip félagsins, átta að tölu,
hafi stóraukið ýsuafla sinn á milli
ára en aflinn í ár er 1.870 tonn
en var 537 tonn í fyrra. Aflinn
hefur því að mati forsvarsmanna
ÚA meira en vegið upp skerðingu
á þorskafla.
Heildartekjur félagsins námu
1.791 milljón króna en í fyrra voru
tekjur félagsins metnar upp á
1.762 milljónir króna. Að teknu
tilliti til afla af eigin skipum til
vinnslu var velta þessa árs 1.410
milljónir en var 1.437 milljónir í
fyrra.
Meiri heildarafli
Togarar ÚA lönduðu um 11.100
tonnum af fiski á þessu tímabili
en aflinn var 9.932 tonn á sama
tímabili í fyrra. Félagið ráðgerir
að fá úthlutað um 16 þúsund tonn-
um í aflaheimildum á næsta fisk-
veiðiári en það þýddi skerðingu
aflaheimilda upp á 1.800 tonn frá
árinu áður.
Dótturfyrirtækið tapar
Rekstur dótturfyrirtækis ÚA í
Rostock í Þýskalandi, Mecklen-
burger Hochseefischerei, hefur
gengið erfíðlega á síðasta ári sam-
kvæmt upplýsingum ÚA en tap
þess á síðasta ári nemur um 9,7
milljónum þýskra marka. Þó er
talið að ýmsir þættir í rekstri fyrir-
tækisins hafi gengið betur í ár en "
fyrri misseri.
Tvennt þarf að koma til að
mati forsvarsmanna ÚA til þess
að tryggja áframhaldandi rekstur.
Annars vegar að finna fyrirtækinu
rekstrargrundvöll og hins vegar
að endurfjármagna reksturinn sem
nemur tapinu. Eignaraðilar hafa
ásamt seljanda félagsins, Treu-
handanstalt, og fulltrúum sjó-
mannasamtaka fundað um ástand
mála og þegar hafa verið settar
fram hugmyndir um úrlausn mála.
Hvorki er þó gert ráð fyrir því að
ÚA leggi fram aukið fjármagn né
ábyrgðir.
Morgunblaðið/Júlíus
ÞESSI mynd er tekin út um gluggann á Austurleiðarútunni.
Farþegarnir voru flestir eldri borgarar frá Þýskalandi, um 35
talsins, og voru þeir talsvert skelkaðir en þó aldrei í neinni
verulegri hættu.
búin að vera leiðinleg í sumar
en Krossáin frekar góð þótt hún
sé djúp og grafin núna.
Pálmi Eyjólfsson á Hvolsvelli
var í bílnum með Sigurði. Hann
segir að Sigurður hafi sýnt mik-
ið snarræði, áræði og kjark við
að ná hinni rútunni upp úr ánni.
Sigurður sé þrælfrískur maður
og fljótur að átta sig. Fyrir
snarræði og dugnað hans hafi
þetta farið vel og það hafi ekki
mátt tæpara standa, enda sé
Krossá mikið ólíkindatól.
Greinargerð bankaeftirlits Seðlabankans vegna upplýsinga til fjölmiðla
Leggur ekki mat á upplýsinga-
gjöf greiðslukortafyrirtækja
Sverrir Hermannsson segir fjölmiðla
ekki eiga að fá neinar upplýsingar
um viðskiptavini
BANKAEFTIRLIT Seðlabanka ís-
lands hefur látið athuga meðferð
greiðslukortafyrirtækja á trúnað-
arupplýsingum og tekið saman
greinargerð í kjölfar þess. Tilefni
athugunarinnar er það að undan-
farið hafa fyrirtækin látið fjölmiðl-
um í té upplýsingar sem lúta að
notkun debetkorta í viðskiptum
korthafa erlendis. Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri Lands-
banka íslands, segir það hafa ver-
ið mistök sem eigi ekki að endur-
taka sig.
í greinargerðinni er tekið fram
að bankaeftirlitið hafi ekki eftirlit
með starfsemi greiðslukortafyrir-
tækjanna, að öðru leyti en því að
því er heimilt að afla upplýsinga
og framkvæma vettvangsathugun
hjá fyrirtækjum eða hlutdeildar-
fyrirtækjum, sem tengd eru við-
skiptabönkum eða sparisjóðum,
enda telji bankaeftirlitið það nauð-
synlegt ti! að meta fjárhagsstöðu
viðskiptabanka eða sparisjóða. Af
þeim sökum hafi athugun banka-
eftirlitsins beinst að því hvernig
farið er með trúnaðarupplýsingar
í samskiptum banka og sparisjóða
við greiðslukortafyrirtæki.
Vita ekki um
reikningsstöðu
Samkvæmt upplýsingum frá
Greiðslumiðlun hf., Kreditkorti hf.
og Reiknistofu bankanna, hafa
greiðslukortafyrirtækin aðgang að
upplýsingum um færslur vegna
úttekta með debetkortum erlendis,
enda fara þau viðskipti um þeirra
tölvu- og samskiptakerfi. Þannig
hafa greiðslukortafyrirtækin að-
gang að upplýsingum um það hve-
nær og hvar debetkort er notað
erlendis, hver hin tiltekna fjárhæð
er og hver korthafinn er. Hins
vegar hafa þau engar upplýsingar
um reikninga sem liggja að baki
debetkortum og því ekki aðgang
að upplýsingum um stöðu þeirra.
Við notkun debetkorts kemur þó
fram hvort innstæða eða yfirdrátt-
arheimild er fyrir umbeðinni fjár-
hæð á reikningi eða ekki.
Greiðslukortafyrirtækin hafa
aðeins upplýsingar um heildartölur
um viðskipti debetkorthafa hér á
landi, þ.e. heildarveltu og færslu-
fiölda.
Greiðslukortafyrirtækin hafa
allar upplýsingar um stöðu og út-
tektarheimildir kreditkorta, enda
eru þau viðskipti á þeirra vegum.
Fá aðeins nauðsynlegar
upplýsingar
„Það er mat bankaeftirlitsins
að greiðslukortafyrirtækin fái,
samkvæmt framansögðu, aðeins í
hendur þær upplýsingar frá við-
skiptabönkum sparisjóðum og
Reiknistofu bankanna, sem nauð-
synlegar eru starfsemi þeirra.
Bankaeftirlitið telur jafnframt að
þær upplýsingar sem viðskipta-
bankar, sparisjóðir og Reiknistofa
bankanna láta af hendi, séu ekki
trúnaðarupplýsingar í skilningi
laga nr. 43/1993 um meðferð
þeirra af hálfu greiðslukortafyrir-
tækjanna. Þess má geta að starfs-
menn þeirra hafa undirritað yfir-
lýsingu um þagnarskyldu.
Bankaeftirlitið vill hins vegar
ekki leggja mat á þá upplýsinga-
gjöf greiðslukortafyrirtækja til
fjölmiðla sem áður er getið, enda
myndi það falla utan starfsviðs
þess, eins og áður er fram kom-
ið,“ segir í greinargerðinni.
Mistök sem eiga ekki
að endurtaka sig
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, segist gagn-
rýninn á það að fyrirtæki í eigu
bankans láti fjölmiðlum í té trún-
aðarupplýsingar, eins og gerst
hefur, og vill að tekið verði fyrir
það. „Það hafa verið gefnar aðvar-
anir um það því ekki er ætlast til
þess að upplýsingar af neinu tagi
um viðskiptavini okkar séu gefnar
fjölmiðlum. Þetta voru að mínu
viti mistök sem vonandi endurtaka
sig ekki,“ segir Sverrir.
Vörubíll fór
á hliðina
Vörubíll af gerðinni Benz fór á
hliðina eftir árekstur við steypu-
bíl á gatnamótum Hallsvegar og
Strandvegar í Grafarvogi um kl.
15.30 í gærdag. Ökumaður vöru-
bílsins var fluttur á slysadeild.
Þar fengust þær upplýsingar að
hann væri ekki mikið slasaður.
Komið upp
um brugg
HALD var lagt á röska 100
lítra af landa í fyrrakvöld í
nágrenni Blönduóss eftir að
beiðni hafði borist frá lögregl-
unni á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu um að lögreglumenn á
Norðurlandi vestra fylgdust
með ákveðnum ökutækjum er
talin voru notuð við að flytja
landa frá Siglufirði.
í fyrrakvöld sást til ferða
eflirlýsts ökutækis í nágrenni
Blönduóss. Lögreglan þar
stöðvaði bifreiðina og við skoð-
un í kerru, sem bifreiðin var
með í eftirdragi, komu í ljós
röskir 100 lítrar af landa. Önn-
ur bifreið var síðan stöðvuð í
Skagafirði á leið til Siglufjarð-
ar, siðar sama kvöld, og var
ölgerðarefni til bruggunar í bif-
reiðinni.