Morgunblaðið - 19.08.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 19
____________LISTIR__________
Glæsilegur fiðluleikur
TONLIST
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
SAMLEIKUR Á FIÐLU
OG PÍANÓ
Sigrún Eðvaldsdóttir og Selma Guð-
mundsdóttir.
ÞÓTT Sigrún Eðvaldsdóttir hafi
ekki unnið til fyrstu verðlauna í
tónlistarkeppninni í Moskvu, er hún
óumdeilanlega glæsilegur fiðluleik-
ari, skaprík með svellandi tónlist-
argáfur, mikla tækni, frábært hljóð-
færi og hrífandi framkomu. Mis-
kunnarlaus undirbúningur fyrir
keppnina í Moskvu er kannske nú
að koma fram, því henni hefur
fleygt fram að undanförnu, tónör-
yggið meira og leikur hennar allur
agaðri og voru tónleikarnir að þessu
sinni þeir bestu sem undirritaður
hefur heyrt frá hendi Sigrúnar.
Þegar um mikinn efnivið er að
ræða verður manni á að ætlast til
þeirra afreka sem ekkert fær stað-
ist og hrífur mann bjargarlaust upp
úr skónum. Hvað vantar á til að
svo megi verða? Svarið við því er
vandfundið. Japanir eru frægir fyr-
ir hárnákvæm vinnubrögð og
tækniundur. Um leið og þeir vilja
fullkomnun í hvert smáatriði eru
þeir farnir að velta því fyrir sér
hvort slík gerilsneyðing geti verið
hættuleg lífsvon verksins. Þetta er
að vísu ekki nein ný speki, en spurn-
ingin virðist alltaf vera til staðar,
en um leið og þessi hætta er fyrir
hendi hlýtur einnig að vera til and-
stæða, þ.e. að of mikið frelsi, of
mikil ónákvæmni, geti einnig yfir-
spilað lífsvonina. Kennari nokkur
sagði einu sinni við nemanda sinn,
„það sem skemmir fýrir þér er að
þú ætlar þér alltaf að vera númer
eitt“. Vitanlega er slík afstaða nem-
andans hættuleg um leið og hún
er ekki forkastanleg. Slíkur er línu-
dans listsköpunar og þessu erum
við sjálfsagt öll að velta fyrir okkur
lífið út.
Efnisskráin. Janácek, organist-
inn og hljómsveitarstjórinn, er
kannske frægastur fyrir óperur sín-
ar, utan heimalandsins a.m.k. Fiðlu-
sónatan er, að ég held, eina fiðlu-
sónata hans og sem hann umskrif-
aði nokkrum sinnum. Þótt form
sónötunnar styðjist við klassík, er
stíllinn nokkuð úr hinum og þessum
áttunum og því ekki auðvelt að
halda þáttunum saman. Þótt margt
væri glæsilega spilað, fannst mér
einnig að sumstaðar væri yfirspilað,
að látleysi hefði betur hentað heild-
inni. Kannske er það þetta sem
Sigrún þarf að hafa taumhald á,
að yfírspila ekki, þótt stundum
minni það kannske á Paganini
djöfsa og systur hans. Af slavnesku
dönsunum þrem, eftir Dvorak, í
úts. Kreislers, var sá þriðji í G-dúr
sérlega fallega spilaður, enda hélst
þar allt í skefjum. Sónatan eftir
Ravel er kannske ekki ennþá full-
mótuð. Undirritaður hefði kosið
meiri mýkt, meiri ljóðrænu, meira
legato í fyrsta þáttinn, meira glizz
og meiri blús í annan þáttinn og
síðasti þátturinn er slíkt ófyrirgef-
anlegt tækniverk að spila þarf án
nótnablaða. Aukalag, eftir rúss-
neskan höfund, lék Sigrún af brillj-
ans, og þá sprakk húsið. Leit lista-
mannsins er endalaus sjálfsgagn-
rýni, áheyrandinn bíður, þannig
heldur það áfram. Selma fylgdi Sig-
rúnu vel, en óþarflega hlédræg
fannst mér sú ágæta píanistinja.
Ragnar Björnsson
Seljum í dag með 30-40% afslætti nokkra
staka sófa með tauáklæði frá Bandaríkjunum.
■WT 00 f • •
• ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275 og 685357 S
Fimm lista-
konur sýna
saman
FIMM listakonur efna til samsýn-
ingar á Café Mílanó, Faxafeni 11.
Þetta eru þær Anna María Harðar-
dóttir, Guðrún Norðdahl, María
Másdóttir, Ragna Eyjólfsdóttir og
Ragnheiður Helga Jónsdóttir. Sýn-
ingin hefst sunnudaginn 21. ágúst
og er opin á opnunartíma kaffihús-
ins. A sýningunni er að finna verk
unnin í olíu, akrýl.olíu pastei og
vatnslitum.
Anna María útskrifaðist með
M.A. í Art Therapy frá New York
University í Bandaríkjunum árið
1990. Guðrún lauk arkitektanámi
frá Danmörku 1983. hún stundar
nú myndlistarnám í Bandaríkjun-
um. María og Ragna útskrifuðust
báðar með BFA gráðu frá Rockford
College í Bandaríkjunum árið 1986.
Ragnheiður Helga hefur stundað
myndlist og listskreytingar í mörg
ár. Listakonurnar fimm hafa allar
tekið þátt í samsýningum.
-----» » ♦-----
Kammer-
hátíðin á
Kirkjubæjar-
klaustri
HINIR árlegu kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri verða um helg-
ina og hefjast í dagf, föstudaginn
19. ágúst. Á efnisskránni verða
verk eftir innlenda og erlenda höf-
unda; Bach, Brahms, Hummel, Jón
Þórarinsson, Jórunni Viðar, Kodaly,
Mozart, Poulenc, Schnittke, Schu-
bert, Schumann, Hugo Wolf og
Þórarinn Guðmundsson.
Hljóðfæraleikararnir, sem koma
fram eru: Edda Erlendsdóttir,
píanóleikari, Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, sellóleikari, Einar Jóhannes-
son, klarinettuleikari, Einar Steen
Nökkleberg, píanóleikari, Geir Inge
Lotsberg, fiðluleikari, Helga Þórar-
insdóttir, víóluleikari og Þóra Ein-
arsdóttir, sópran.
- kjarni málsins!