Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 35

Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 35 FRETTIR Arnað heilla Ævintýraferð til stuðnings Sólheimum BÁTAFÓLKIÐ, Hörður Torfason og umboðsskrifstofan Rita efna föstudaginn 26. ágúst til ævintýra- ferðar til stuðnings Sólheimum í Grímsnesi í samvinnu við Styrktar- sjóð Sólheima. Ferðin hefst kl. 18 á siglingu með bátafólkinu niður Hvítá frá Brúarhlöðum að Drumboddsstöð- um. Eftir siglinguna verður haldið á Sólheima þar sem snæddur verður léttur kvöldverður. Að því búnu verða tónleikar með Herði Torfa- syni og hefjast þeir kl. 21 í íþrótta- húsi Sólheima. Þátttökukostnaður er 5.000 kr. fyrir siglingu, mat og tónleika. Allir sem að ævintýraferðinni koma gefa vinnu sína og fer ágóð- inn óskiptur til uppbyggingar starf- seminni á Sólheimum. -----♦ ♦ ♦---- Fjölskyldu- dagur í Naut- hólsvík FJÖLSKYLDUDAGUR verður haldinn í Nauthólsvík Iaugardaginn 20. ágúst á vegum Siglingaklúbbs- ins Sigluness. Kanóar, kajakar, jullur, árabátar og litlir seglbátar verða fyrir þá sem vilja sigla sjálfir og rauðglóandi grillkol verða í gangi, segir í frétta- tilkynningu. Stretsbuxur kr. 2.900 GUÐLAUG EIRIKSDOTTIR REYÐARFJARÐARKIRKJA og hið nýja safnaðarheimili. GUÐLAUG Eiríks- dóttir, fyrrverandi húsfreyja á Ormsstöð- um í Breiðdal, er 100 ára í dag. Guðlaug var yngst sex barna þeirra Sigríðar Bjarnadóttur frá Viðfirði og Eiríks Jónssonar, bónda á Hlíð í Lóni og síðar í Papey. Eiríkur tók sig upp frá föðurleifð sinni og stórbúi á Hlíð og flutt- ist út í Papey að lækn- isráði. Heilsu hans hrakaði þó þar og lézt hann eftir tveggja ára dvöl í Pa- pey. Papeyjarárin urðu fjölskyld- unni á ýmsan hátt örðug sökum heilsuleysis húsbóndans. Sigríður amma treystist ekki til þess að halda búskapnum áfram að manni sínum látnum og fjöl- skyldan sundraðist. Uppvaxtarár þeirra systkina urðu því um margt á annan veg en vænzt hafði verið. Öll komust þau til þposka og urðu hinar nýtustu manneskjur. Þótt efnunum væri ekki fyrir að fara, hlutu þau systkin góða menntun. Guð- laug stundaði nám í Verzlunarskóla Is- lands, lærði hannyrð- ir og var í leikfimis- tímum. Var m.a. val- in í stúlknaflokk, sem fyrst mun hafa sýnt fimleika (stúlkna) opinber- lega í höfuðstaðnum. Síðan forframaðist hún í kóngs- ins Kaupmannahöfn og minntist með ánægju áranna þar. Eftir heimkoinuna gekk hún að eiga Brynjólf Guðmundsson frá Þver- hamri í Breiðdal. Lengst af bjuggu þau á Ormsstöðum, en hófu bú- skap á Kambsseli í Geithellnadal. Brynjólfur lézt 1975 eftir 57 ára farsælt hjónaband. Þau eignuðust 5 börn. Guð- mundur, elztur þeirra systkina, lézt af slysförum á bezta aldri. Systurnar Sigríður, Guðný, Gyða og Guðrún vitja móður sinnar á þessum merkisdegi. Guðlaug, föðursystir mín, er einstaklega elskuleg og viðkunn- anleg kona, sem ég kynntist þó ekki fyrr en ég var orðinn rígfull- orðinn. Mér finnst mikill fengur í þeim kynnum. Það var gott og gaman að hitta Guðlaugu að máli, enda konan viðræðugóð í betra lagi, margvís og langminnug. Hún er nú farin að heilsu og dvelzt á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar þar sem vel er að henni hlúð. Ég hygg að frænka mín elsku- leg þurfi ekki að kvíða þeirri stund, er hún kemur fyrir hinn æðsta dóm að leiðarlokum. Ég sendi henni kærar kveðjur í tilefni dagsins. Eiríkur Bjarnason. Bama- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. júlí sl. í Bú- staðakirkju af sr. Pálma Matthíassyni Ragnheiður Sveinsdóttir og Gunnar Jónsson. Heimili þeirra er í Eyjabakka 15, Reykja- vík. Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. júlí sl. í Ás- kirkju af sr. Árna Bergi Sigurbjörnssyni Ragn- heiður Gunnarsdóttir og Jón Örn Sigurðsson. Heimili þeirra er á Grandavegi 5, Reykjavík. Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. júlí sl. í Bú- staðakirkju af sr. Pálma Matthíassyni Eygló Arn- þórsdóttir og Dan M. Graversen. Heimili þeirra er í Silkeborg, Danmörku. Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. júlí sl. í Frí- kirkjunni í Reykjavík af sr. Pálma Matthíassyni Svanlaug Arnarsdóttir og Pjetur Pétursson. Heimili þeirra er í Ana- polis í Bandaríkjunum. Vígsluhátíð safnaðarheim- ilis Reyðarfjarðarkirkju Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. júli sl. í Bústaða- kirkju af sr. Pálma Matthíassyni Dóra M. Gylfadóttir og Steindór Einarsson. Heimili þeirra er í Hvammsgerði 1, Reykjavík. Bama- og Qölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. júlí sl. í Hall- grímskirkju af sr. Karli Sigurbjörnssyni Margrét Friðriksdóttir og Bjarni Asmundsson. Heimili þeirra er í Háengi 4, Sel- fossi. Barna- og Qölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 10. júlí sl. í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði af sr. Einari Eyjólfssoni Jó- hanna Jónsdóttir og Guðmundur Bergmann. Heimili þeirra er í Denver, Bandaríkjunum. Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 11. júní sl. í Dóm- kirkjunni af sr. Hjalta Guðmundssyni Berglind Magnúsdóttir og Ægir Óskar Hallgrímsson. Heimili þeirra er á Bú- staðabraut 3, Vestmanna- eyjum. Ijjósm. Myndasmiðjan, Akr. BRUÐKAUP. Gefin voru saman 9. júli sl. í Akranes- kirkju af sr. Birni Jónssyni Guðrún Vignisdóttir og Jón Hákon Vilbergsson. Heimili þeirra er á Mána- braut 5, Akranesi. SAFNAÐARHEIMILI Reyðarfjarð- arkirkju verður vígt sunnudaginn 21. ágúst nk. Hátíðarguðsþjónusta verður í Reyðarfjarðarkirkju kl. 14 þar sem biskupinn yfir íslandi, herra Ólafur Skúlason, predikar. Kór Reyðar- fjarðarkirkju syngur við undirleik Ágústs Ármanns Þorlákssonar, organista, ásamt þeim Stefáni Hös- kuldssyni, flautuleikara og Öldu Ingibergsdóttur, sópransöngkonu. Sóknarpresturinn, sr. Davíð Bald- ursson, þjónar fyrir altari ásamt prófastinum, sr. Þorleifi Kjartani Kristmundssyni. Að messu lokinni verður gengið til safnaðarheimilisins og það helg- að. Síðan býður sóknarnefndin til kaffisamsætis. Þar munu m.a. koma fram Stefán Höskuldsson og faðir hans, Höskuldur Stefánsson, sem leika mun á píanó og Alda Ingibergsdóttir sem syngja mun við undirleik Ágústs Ármanns Þorláks- sonar. Einnig verður flutt ágrip af byggingarsögu heimilisins. Barna- og Qölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 9. júlí sl. í Selfoss- kirkju af sr. Sigurði Sig- urðssyni Inga Þórunn Karlsdóttir og Valdimar Einarsson. Heimili þeirra er í Kaupmannahöfn. Mikið úrval af allskonar buxum Opið á laugardögum kl. 11 - 16 ATHYGLISVERÐUR NÝR PEUGEOT 405 Nýbýlavegi 12, sími 44433. Á STÓRSÝNINGU UM HELGINA. PEUGEOT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.