Morgunblaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ EKTA SVSITABCLL Á MCLINKI Á HCTEL ÍSLANCI LAUCABDACSKVCLD iFánar, ein Vinsælastai kráarhljömsvei* landsins °9 íhljómsveitin Brimkló ásamt , i BjörgvinHalldórsson r Húsið öpnaá ítK 22. ; Verð aðeins kr. 500 hótt:i, ^land Sími 687111. Smiójuvegi 14 (rauð gata) í Kópavogi, sími: 87 70 99 * Hressileg : danstónlist Stefán Jökulsson og . Arna Þorsteinsdóttir • halda uppi galastuöifram á • nótt fóstudag og taugardag. * Stórt bardamgólf. Matur fyrir hópa. Sá stóri á aöeins 350 kr! * Enginn aðgangseyrir. % * ÍDAG BRIDS Umsjón (iuóm. Páll Arnarson Eftir þijár lotur í bikar- leik Tryggingamiðstöðvar- innar og Hjólbarðahallar- innar hafði sveit TM náð 32ja IMPa forskoti. Sem er vænleg staða þegar aðeins 10 spilum er ólokið. En leik- urinn var ekki búinn. Liðs- menn Hjólbarðahallarinnar söxuðu markvisst á forskot- ið og þegar einu spili var ólokið átti TM aðeins 4IMPa til góða. Síðasta spilið leit þannig út: Norður gefur; allir á hættu. Norður , ♦ 107654 ¥ DG32 ♦ ÁD4 ♦ 5 Vestur Austur ♦ 3 ♦ ÁG ¥ 10864 IIIIH ¥ ÁK975 ♦ G1053 111111 ♦ K987 ♦ G863 4 102 Suður 4 KD982 ¥ - ♦ 62 4 ÁKD974 Sex spaðar eru borð- leggjandi í norður, en tap- ast í suður með tígli út. Hjalti Elíasson og Oddur Hjaltason í sveit HH komu samningnum í rétta hönd, en létu geimið duga. Þeir sögðu þannig á móti Sig- tryggi Sigurðssyni og Braga Haukssyni: Vcstur Norður Austur Suður B.H. O.H. S.S. H.E. - Pass 1 hjarta 2 hjörtu* Pass 4 spaðar Altir pass * Ajn.k. 5-51 spaða og láglit Hinum megin var meira íjör í sögnum. Þar sátu Hrólfur Hjaltason og Sigurð- ur Sverrisson í NS gegn Jóni Hjaltasyni og Jóni Inga Bjömssyni: Vestur Norður Austur Suður J.H. H.H. J.I.B. S.S. - Pass 1 hjarta 2 lauf 3 hjörtu Pass Pass 4 spaðar Pass Pass 6 spaðar! Pass Dobl Pass Dobl á slemmu þjónar iðu- lega þeim tilgangi að leið- beina makker í útspilinu, en líklega hefur viðskiptasjón- armið ráðið dobli Jóns Inga í þetta sinn. Hann hreinlega trúði því ekki að slemman gæti unnist og vissi jafh- framt að hann fengi ekki fleiri tækifæri til að skora. Án doblsins hefði Jón Hjalta- son mjög sennilega spilað út tígli (ekki virðist Hrólfur ótt- ast að vömin geti tekið marga hjartaslagi), en eftir doblið taldi hann víst að mekker væri með eyðu í laufi og kom þar út. Sigurður vann því slemmuna og Tryggingamiðstöðin leikinn. Farsi 22/5 UAtíbLA CS/coolthaixt O 1992 Farcus Cartoons „AUJr íesrv sam/yktja. eá sk/jotet þessx 'ðnd, rerttö upp hfrtoi." VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Ein fögur eik... SIGURSTEINN hringdi frá Selfossi og sagði að kvæðið „Ein fögur eik hjá fossi stóð, sem féil af bergi háu,“ sé eftir Pál J. Árdal. Hann sjálfur hefur áhuga á því að fá upplýsingar um eftirfar- andi þulu, sem era sam- antvinnaðar kvenkenn- ingar og hann heldur að sé bónorðsbréf: Hrannar sunna spök spöng, spila vil ég þér söng, svo styttast mætti stund löng, stefja, vefja, ... Ef einhver getur gefið upplýsingar vinsamlega hafíð samband við Sigur- stein í síma 98-22435. Tapað/fundið Regnhlífarkerra og úr töpuðust BLÁ regnhlífarkerra tap- aðist á Reykjavíkursvæð- inu í júní sl. Einnig tapað- ist gyllt kvenúr á ljós- brúnni leðuról á Laugar- vatni í júlílok. Hafi ein- hver fundið þessa muni er hann vinsamlega beð- inn að hringja í síma 658856 eða 43468. Týnt reiðhjól DÖKKFJÓLUBLÁTT reiðhjól af gerðinni Mongoose IBOC Comp varf úr Melbænum aðfar- amótt 17. ágúst sl. Á hjólinu er fjöldi aukabún- aðar, s.s. svartur böggla- beri, svört bretti, tvær brúsafestingar og hliðar- stýri. Tjónið er tilfmnan- legt fyrir eigandann. Skiivís finnandi vinsam- lega hafi samband við Halldór í hs. 76180, vs. 624320, eða Lilju í hs. 37069. Drengjajakki tapaðist GRÆN mittisúlpa með rennilás, merkt Kristni Páli og símanúmeri, tap- aðist úr fatahengi á Kjarvalsstöðum í sl. viku. Upplýsingar í síma 10384 eða að honum verði skilað aftur í fata- hengið á Kjarvalsstöð- um. Jakki tapaðist ELDRAUÐUR jakki úr goretexefni tapaðist á leiðinni frá sjónvarps- húsinu á Laugavegi og niður í Laugadal sl. mánudag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 46779. Myndavél tapaðist á Siglufirði SJÁLFVIRK Canon- myndavél í svartri tösku tapaðist á Siglufirði um verslunarmannahelgina. Finnandi vinsamlega hringi í síma 94-3436. Gæludýr Læða í óskilum ÞESSI læða er í óskilum. Upplýsingar í símum 672909 milli kl. 10 og 12, og í símum 658350 eða 76777. Köttur í óskilum KÖTTURINN á mynd- inni fannst á Laugavegi aðfaramótt 6. maí sl. Hann er grár og hvítur, ómerktur og ógeltur, blíður og góður. Gefi eig- andi sig ekki fram í síma 10539 eða í Kattholti, verður kötturinn gefinn einhveijum dýravinum. Víkveiji skrifar... Fátt er jafnpirrandi og þegar opinberar stofnanir eru stað- ráðnar í eiga síðasta orðið, hvað sem tautar og raular, þegar þær verða fyrir opinberri gagmýni. Fáar opinberar stofnanir gangajafnlangt í þeim efnum og Póstur og sími, sem eru með sérstakan starfsmann á fullum launum, við að reyna að bæta heldur lúna ímynd þessa ein- okunarfyrirtækis og matreiða „sinn sannleika“ ofan í almenning, með hverskyns áróðri og innrætingu. Þannig fóru skrif Víkveija nú fyrir skömmu svo fyrir bijóstið á blaða- og upplýsingafulltrúa stofnunarinn- ar, að hann sá sig knúinn til þess að rita Víkverja sérstakt bréf, þar sem hann sennilega taldi sig vera að leiðrétta rangfærslur Víkveija. xxx * Ihveiju voru svo leiðréttingamar fólgnar? Jú, Víkveiji hafði leyft sér að nefna eina gjaldtöku stofnun- arinnar geymslugjald, sem hvergi fyrirfinnst í orðaforða þeirra hjá Pósti og síma. Gjaldið sagði Vík- veiji vera 5 þúsund krónur fyrir að leggja símanúmer sitt inn hjá stofn- uninni og geyma í eitt ár. Blaðafull- trúinn bregst ókvæða við og segir ekkert slíkt gjald vera til hjá stofn- uninni. Hið rétta sé, að þeir sem ekki þurfi að nota síma sinn um hríð, eigi þess kost að leggja númer- ið inn. Fyrir þessa þjónustu greiði þeir 1.382 krónur ársfjórðungslega! Hvern telur blaðafulltrúinn að hann sé að blekkja með þessum fáránlega talnaleik? Heldur hann virkilega að lesendur Morgunblaðsins séu svo skyni skroppnir, að þeir geti ekki margfaldað 1.382 með flórum og fengið út 5.528? Víkveiji var því Pósti og síma heldur hagstæður, er hann sagði geymslugjaldið, sem vel að merkja, er ekki til hjá Pósti og síma, vera 5.000 krónur. Hvort gjaldtakan, fyrir nákvæmlega ekki neitt, upp á 5.528 krónur á ári heitir geymslugjald eða ekki, er bita munur en ekki fjár. XXX Annar samanburður á verði hjá blaðafulltrúanum var álíka mikið út í hött og ofangreint dæmi. Blaðafulltrúinn ætti að kynna sér verðlagningu á þjónustu símafyrir- tækja í Bandaríkjunum, áður en hann slengir fram stæðhæfingu um það hversu ódýr þjónusta einokun: arfyrirtækisins Pósts og síma er. í Bandaríkjunum ríkir raunveruleg samkeppni símafyrirtækja um við- skiptavinina. Þar er boðið upp á umtalsvert meiri þjónustu, fyrir umtalsvert lægra verð en hér ríkir, enda hart barist um hvern kúnna. Að þessu mættu þeir Pósts og síma- menn fara að huga og undirbúa sig fyrir raunverulega samkeppni, því ekki verður betur séð en einokunar- skjól hins opinbera á þessu sviði fari að bresta, hvenær sem er úr þessu. Víkveiji er þeirrar skoðunar að starfskröftum blaðafulltrúans, sem er jú á launum hjá Víkveija, eins og öðrum skattgreiðendum þessa lands, væri betur varið í slíka undirbúnings- og kynningarstarf- semi, en að standa í innihaldslausu orðaskaki, einungis vegna þess að einhveijir dirfast að gagnrýna óhóf- lega gjaldtöku Pósts og síma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.