Morgunblaðið - 06.09.1994, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
201. TBL. 82. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reynt að ná málamiðlun á mannfjöldaráðstefnu í Kaíró
Brundtland ver rétt-
inn til fóstureyðinga
Kaíró. Reuter, TThe Daily Telegraph.
HOSNI Mubarak Egyptalandsforseti og fleiri ræðumenn á ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í Kaíró um offjölgun og fátækt hvöttu í gær til þess að
málamiðlun yrði fundin í deilum um orðalag skýrslu samtakanna. Fulltrú-
ar Páfagarðs og leiðtogar heittrúaðra múslima eru andvígir því sem þeir
telja vera hvatningu til þess að fóstureyðingar verði leyfðar og jafnvel
notaðar til að sporna við offjölgun. Gro Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, var harðorð í ávarpi sínu er hún fjallaði um ásakanirnar
og sagðist alls ekki skilja hvernig hægt væri að túlka orðin „heilsugæsla
við fæðingar“ með þessum hætti.
Hópur ráðstefnugesta fagnaði
ákaft gagnrýni norska forsætisráð-
herrans en öðrum líkaði miður.
„Siðgæði verður að hræsni ef það
merkir ... að fólk sætti sig við að
mæður deyi vegna þungunar sem
þær hafa ekki óskað eftir, ólöglegar
fóstureyðingar og óvelkomin börn
sem lifa i eymd,“ sagði Brundtland.
Hún sagði alla viðurkenna að þar
sem ólöglegar fóstureyðingar væru
framkvæmdar væri lífí og heilbrigði
kvenna oft stefnt í voða. „Það
minnsta sem hægt er að gera er
að bregðast við þessum veruleika
með því að gera fóstureyðingar lög-
legar.“
Áhersla á forvarnir
Mikil áhersla er lögð á forvarnir
i skýrslunni og bent á að aukin
menntun kvenna geti skipt sköpum
í baráttu gegn offjölgun. Benazir
Bhutto, forseti Pakistans, sagði að
koma yrði í veg fyrir að almenning-
ur um allan heim liti á niðurstöður
ráðstefnunnar sem skipanir um að
fólk yrði að sætta sig við „framhjá-
hald, fóstureyðingar, kynfræðslu"
og annað sem gæti stangast á við
trú og siðareglur í löndunum.
Joaquin Navarro-Valls, fulltrúi
Páfagarðs, taldi að tillögur nokk-
urra Evrópusambandsríkja um
orðalagsbreytingar gætu nægt til
að kaþólska kirkjan léti af andstöðu
sinni við skýrsluna. Páfagarður
hefur á fyrri ráðstefnum SÞ um
mannfjöldavandann neitað að
styðja lokayfirlýsingar þar sem
mælt var með getnaðarvörnum.
Navarro-Valls vísaði því á bug að
kirkjan hefði gert bandalag við
múslima gegn fóstureyðingum.
■ Deilt um ráð við offjölgun/16
Reuter
MÚSLIMAKONUR í Karachi í Pakistan, klæddar blæjum, mót-
mæla mannfjöldaráðstefnunni sem hafin er í Kaíró. Nokkrir
leiðtogar múslimaríkja hættu við að sækja ráðstefnuna vegna
harðrar andstöðu heittrúarmúslima.
Færeyjar
Rætt við
jafnað-
armenn
Þórshöfn. Morgunblaðið.
SAMBANDSFLOKKURINN í Fær-
eyjum hóf í gær stjórnarmyndunar-
viðræður við jafnaðarmenn eftir að
slitnað hafði upp úr viðræðum hans
við Fólkaflokkinn, Kristilega fólka-
flokkinn og Miðflokkinn um helgina.
Flokkarnir fjórir höfðu undirritað
samning um stjórnarsamstarf en
viðræður þeirra sigldu í strand
vegna ágreinings um skiptingu
embætta. Sambandsflokkurinn
vonast nú til að geta myndað stjórn
með Jafnaðarflokknum, Verka-
mannafylkingunni og einum af smá-
flokkunum.
Reuter
Hrösull
siða-
meistari
Mannskæðir bar-
dagar í Tsjetsjníu
Rússar með viðbúnað til að hindra að átökin breiðist út
Moskvu. Rcuter, The Daily Telegraph.
SVEITIR hollar Dzhokhar Dúdajev,
leiðtoga Tsjetsjníu, náðu í gær á sitt
vald höfuðstöðvum stríðsherrans
Rúslans Labazanovs. Er þetta talið
mikið áfall fyrir uppreisnarmenn í
héraðinu sem njóta stuðnings rúss-
nesku stjórnarinnar. Pavel Gratsjov,
varnarmálaráðherra Rússlands,
sagði, að hersveitum í héruðum, sem
liggja að Tsjetsjníu, hefði verið skip-
að í viðbragðsstöðu til að koma í veg
fyrir, að átökin breiddust út yfír
landamærin.
Tsjetsjnía er hluti af Rússlandi
en mjög ófriðlegt hefur verið þar
síðan ráðamenn lýstu yfir sjálfstæði
1991. Gratsjov sagði, að rússnesku
hersveitirnar hefðu meðal annars
strangt eftirlit með ferðum manna
til og frá héraðinu.
Rússneskar fréttastofur segja, að
mikið mannfall hafi orðið í átökunum
um bækistöð liðsmanna Labazanovs,
bæinn Argun, sem er 15 km fyrir
austan höfuðborgina, Grozny. Rúsl-
an Labazanov er 27 ára að aldri og
hefur margsinnis komist í kast við
lögin, en nýtur mikilla vinsælda í
héraðinu. Hann er sagður Hrói Hött-
ur tsjetsjena, rænir hina ríku til að
hjálpa fátæklingum.
Moskvustjórnin hefur opinberlega
lýst yfir stuðningi við stjórnarand-
stæðinginn Umar Avturkhanov en
það þykir flækja nokkuð málin, að
Rúslan Khasbúlatov, fyrrverandi
forseti rússneska þingsins og svar-
inn fjandmaður Borís Jeltsíns for-
seta, hefur gert það einnig. Talið
er, að hann vilji nota sér ástandið í
heimahéraði sínu til að tryggja end-
urkomu sína í rússnesk stjórnmál.
JÓHANN Karl Spánarkonung-
ur, Sofía drottning og Mario
Soares, forseti Portúgals,
horfa á siðameistara sem
missti fótanna við komu þeirra
til Setubal í Portúgal í gær.
Þar var þess minnst við hátíð-
lega athöfn að 500 ár eru Iiðin
frá því Tordesillas-sáttmáli
Portúgala og Spánverja var
undirritaður. Sáttmálinn kvað
á um skiptingu nýlendusvæða
milli þjóðanna, þannig að Afr-
íka og Indland skyldu koma í
hlut Portúgala en Ameríka
yrði spænskt yfirráðasvæði, að
Brasilíu undanskilinni.
írak
Stærsta
moskan í
sögunni
Bagdad. Reutcr.
ÍRASKIR verkfræðingar, sem
starfa undir beinni stjórn
Saddams Husseins íraksfor-
seta, hafa lokið við hönnun á
mosku sem ráðgert er að reisa
í miðborg Bagdad. Þeir segja
að þetta verði stærsta moskan
í sögu múslima.
Bygging moskunnar hefst
bráðlega og undir hana verður
lagt svæði sem er 1.800 metra
langt og 700 metra breitt.
Ennfremur á að reisa átta
bænaturna og hvelfingu sem
verður 150 metra há og 180
metra breið.
Sjónvarpið í írak sýndi
myndir af Saddam Hussein að
skoða líkan af moskunni ásamt
háttsettum embættismönnum,
sem lögðu til að byggingin
yrði nefnd „Hin mikla moska
Saddams“.
70.000 manna bænasvæði
Búin verður til risastór tjörn
við moskuna og grafinn skurð-
ur til að veita vatni í hana úr
Tigris-fljóti. Gert er ráð fyrir
að 5.000 manns komist í
bænaturnana og að bæna-
svæðið, innan- og utandyra,
rúmi 70.000 manns.
Þrátt fyrir viðskiptabann á
írak hafa þarlend stjórnvöld
ráðist í miklar framkvæmdir
að undanförnu, meðal annars
reist Saddams-turninn, sem er
sagður sá stærsti í Miðaustur-
löndum, og smíðað Bagdad-
klukkuna, en hringing hennar
heyrist í fimm km fjarlægð.