Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 12

Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Tveir nýir bátar Næg vinna í Grýtu- bakkahreppi Grýtubakka -Um helgina kom annar af tveimur krókaleyfisbát- um sem smíðaðir hafa verið á síð- ustu mánuðum fyrir einstaklinga í Grýtubakkahreppi. Það er tæp- lega 6 tonn trilla, Skei 80, sem smíðuð var fyrir Þórð Ólafsson en fyrir nokkrum vikum kom einnig tæpiega 6 tonn trilla, Víkingur 800, sem Heiðar Baldvinsson á. Bátar þessir verða gerðir út á línu og væntanlega einnig á net frá Grenivík. Annar er búinn beit- ingastokk þannig að línan er beitt um leið og lagt er og mun hann landa á Hauganesi. Hinn nýtir sér hefðbundna beitingu í landi og mun landa afla sínum hjá frysti- húsi staðarins. Vantar starfsfólk Útibú Útgerðarfélags Akur- eyringa á Grenivík hefur tekið á leigu þá beitingaraðstöðu sem Kaldbakur hf. hafði og verður hún leigð þeim bátum sem leggja munu upp iínufisk hjá fyrirtækinu. Næg atvinna hefur verið hjá frystihúsi útibúsins við pökkun og snyrtingu og hefur verið auglýst eftir starfs- fólki eftir að skólafólk sneri sér til náms. Væntanlega mun fólki verða fjölgað við aðgerð á línufiski og klippingu hausa þegar lengra líður fram á haustið. Hráefni frá ÚA Hráefni til vinnslunnar á Greni- vik hefur nánast alfarið verið miðl- að frá höfðstöðvum Útgerðar- félagsins á Akureyri eftir að vinnsla hófst að nýju í frystihúsinu í sumar eftir gjaldþrot Kaldbaks. Fjölmennt í afmæli Brekku HRÍSEYINGAR fjölmenntu í 10 ára afmæli veitingahússins Brekku sem haldið var um helgina og var mikið um dýrðir í tilefni af tímamótunum. „Þetta tókst mjög vel og allir eru ánægðir," sagði Steinunn Siguijónsdóttir sem ásamt eig- inmanni sínum Smára Thorar- ensen hefur rekið veitingahúsið frá upphafi. í fyrstu tóku önnur hjón einnig þátt í rekstrinum en hin síðari ár hafa þau Smári og Steinunn rekið veitingastað- inn. Um eitt hundrað manns nutu veitinga út við á laug- ardagskvöld og um 50 manns snæddu innandyra. „Þetta voru aðallega íbúar héðan úr eynni og við erum ljómandi ánægð með viðtökurnar," sagði Stein- unn. Brekka er opin daglega yfir sumarmánuðina frá kl. 10 til 11 og er búist við að húsið verði opið fram til 1. október. Lokað er yfir veturinn en stað- arhaldarar tilbúnir að opna salinn geri gestir boð á undan Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson sér tímanlega. „Það hefur gengið vel í sumar, ferðamenn- irnir koma um leið og sólin fer að skína.“ Asparkon- ur selja plastpoka SALA á heimilispokum, sem er aðalfjáröflunarverkefni Lions- klúbbsins Aspar, stendur yfir dag- ana 6. til 13. september, en allur ágóði sölunnar rennur til líknar- mála. Klúbburinn hefur m.a. styrkt með tækjakaupum fæðingar-, svæf- ingar- og speglunardeildir FSA, Heilsugæslustöðina á Akureyri, Rannsóknarlögregluna á Akureyri og Endurhæfingardeildina á Krist- nesi en nú í ár rennur hagnaðurinn af sölunni til kaupa á sundlaug fyr- ir Endurhæfíngarstöðina á Krist- nesi. Lionskonur vænta þess að bæjarbúar taka vel á móti þeim, svo sem þeir hafa gert fram til þessa, en verð pokanna er hið sama og verið hefur undanfarin ár. -----♦ ♦ ♦--- Forstöðumaður atvinnumálaskrifstofu Níu umsóknir NÍU umsóknir bárust um stöðu for- stöðumanns atvinnumálaskrifstofu. Þeir sem sóttu um eru Ármann Sverrisson, Ásbjörn Dagbjartsson, Elín Antonsdóttir, Frímann Frí- mannsson, Guðrún Gísladóttir, Hallgrímur Guðmundsson og Svava Theodórsdóttir, en tveir umsækj- enda óskuðu nafnleyndar. Umsókn- ir voru lagðar fram til kynningar á fundi atvinnumálanefndar í fyrri viku. í málefnasamningi Framsókn- arflokks og Alþýðuflokks, sem eru í meirihluta í bæjarstjórn Akur- eyrar, er gert ráð fyrir stofnun slíkrar skrifstofu, en fram til þessa hefur verið starfandi starfsmaður hjá atvinnumálanefnd. LEIKMANNASKOLIÞJOÐKIRKJUNNAR FRÆÐÐSL UDEILD KIRKJUNNAR GUÐFRÆÐIDEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS Vetrarnámskeið Haustönn 1994 Námsefni: Þjónusta leikmannsins í kirkjunni Kennari: Halla Jónsdóttir, sagnfræðingur. Tími: Miðvikud. 14.-21. sept. kl. 20-22. Inngangsfræði Gamla testamentsins Kennari: Dr. Gunnlaugur A. Jónsson. Tími: Miðvikudag 28 sept-12 okt. kl.20-22. Inngangsfræði Nýja testamentsins Kennari: Gunnar Jóh. Gunnarsson. Tími: Miövikud.19. okt.-2. nóv. kl. 20-22. Trúfræði Kennari: Dr. Einar Sigurbjörnsson. Tími: Miðvikud. 9.-30. nóv. kl. 20-22. Vorönn 1995 Námsefni: Helgisiðir og táknmál kirkjunnar Kennari: Sr. Karl Sigurbjörnsson. Tími: Miðvikud. 11. jan.-1. feb. kl. 20-22. Kirkjusaga Kennari: Dr. Hjalti Hugason. Tími: Miðvikud. 8. feb.-1.mars kl.20-22. Siðfræði Kennari: Dr. Björn Björnsson. Tími: Miðvikud. 8.-29. mars kl. 20-22. Sálgæsla Kennari: Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Tími: Laugard. 1. apríl kl. 10-16. Haustönn 1994 Námsefni: Kvennaguðfræði Kennari: Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Tími: Mánud. 10.-31. okt. kl. 20-22. Hugmyndir um Jesú frá Nasaret í nútímanum Kennari: Dr. Sigurjón Á. Eyjólfsson. Tími: Mánud. 7.-28. nóv. k. 20-22. Styttri námskeið Vorönn 1995 Námsefni: Leiðsögn við lestur Bibiíunnar Kennari: Sr. Sigurður Pálsson. Tími: Þriðjud. 10.-31. jan. kl. 20-22. Kirkjudeíldafræði — íslenskar kirkjur og trúfélög. Kennari: Dr. Pétur Pétursson. Tími: Þriðjud. 7.-28. feb. kl. 20-22. Upplýsingar og innritun á Biskupsstofu, Suðurgötu 22, 150 Reykjavík símar 91-621500/12445. Útgefendur Árbókar Akureyrar Sitjum ekki þegjandi undir ósannindum VEGNA ummæla forráðamanna POB er birtust fimmtudaginn 1. september síðastliðinn eyrar 1993 taka eftirfarandi fram: „1. Forráðamenn POB segjast hafa bent, okkur á ófullkomna skönnun Árbókarinnar „þegar við upphaf prentvinnslu bókarinnar". Þetta er að vísu rétt en þeir láta hins vegar ógetið að í kjölfar þess- ara athugasemda voru allar mynd- ir í bókinni - hver og ein einasta - skannaðar inn á nýjan leik. Við þá vinnu gerðu forráðamenn enga athugsemd. 2. Kröfur okkar á hendur POB eru grundvallaðar á fleiri en einni ástæðu, sem allar ættu að vera stjórnendum fyrirtækisins vel ljós- ar. Vegna grófra og ítrekaðra ásakana þeirra á hendur Prent- smiðjunni Petit, er sá um umbrot Árbókarinnar og skönnun mynda, skal hér nefnd ein þessara. ástæðna. í þessu þófi um Árbókina sem staðið hefur í allt sumar, hafa TöMax opotald lnnbyggð, utanáliggjandi, PCMCIA M kr. 10.000,- ^BOÐEIND- Austurströnd 12. Sími612061.Fax612081 v___________________y í Morgunblaðinu vilja útgefendur Árbókar Akur- eigendur Petit lagt fram sannanir fyrir máli sínu, (nefnilega að hér sé ekki við skönnunina að sakast) sem að minnsta kosti í augum leik- manna eru mjög sannfærandi. Og það sem meira er, forráðamenn POB hafa heldur ekki átt nein svör við þeim. Þeir hafa einfald- lega kosið að ýta rökstuðningi eig- enda prentsmiðjunnar Petit til hliðar með þeim orðum einum að þetta væri samt skönnuninni að kenna. I lokin viljum við útgefendur Árbókar Akureyrar 1993 taka fram að þessi „fjölmiðlaleikur“ er okkur mjög á móti skapi. í um- ræðu um þetta leiðindamál höfum við reynt að gæta ítrustu varkárni og ekki verið með neinar ásakanir á opinberum vettvangi um ástæð- ur þess að Árbókinni er áfátt. Undir „hálfsannindum“ og ósann- indum verður þó ekki setið þegj- andi og það vita allir að Árbókin er prentuð í POB og því hljótum við að snúa okkur þangað með ágreiningsmál sem þetta. Ein- hveija ábyrgð hljóta þó stjórnend- ur hennar að bera á verkum sínum. Úr þessu verður þó ekki skorið hér á síðum Morgunblaðsins og munum við leita réttar okkar eftir öðrum leiðum og ekki hirða frekar um „fjölmiðlaleik“ manna er velja rök eftir geðþótta." 1 I @ i ú. i € v

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.