Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skinog
skúrir í
skákinni
ÍSLENDINGAR eru í 15. sæti á
ólympíuskákmóti 16 ára og yngri,
eftir fjórar umferðir, en Rússar eru
efstir með 13'A vinning. í gær tefldu
íslendingar við Ungveija og töpuðu
með l'/j vinningi gegn 2'/z. Matthías
Kjeld vann sína skák og Bragi Þor-
finnsson náði jafntefli.
í þriðju umferð ólympíuskákmóts-
ins, sem haldið er á Möltu, gerðu
íslendingar jafntefli við Indverja.
Bragi og Jón Viktor unnu sínar skák-
ir, en Amar Gunnarsson og Matthías
töpuðu. Eftir umferðina voru Islend-
ingar í 11. sæti, en að lokinni fjórðu
umferð færðust þeir niður um fjögur
sæti.
í fyrstu umferð Heimsmeistara-
móts skákmanna 20 ára og yngri í
Parana í Brasiiíu sigraði Helgi Áss
Grétarsson heimamanninn Cukier í
29 leikjum. í annarri umferð tapaði
Helgi hins vegar fyrir alþjóðameist-
aranum Al-Modiaki frá Quatar.
Keppendur á mótinu eru 92, 52 í
drengjafloklri og 40 í stúlknaflokki.
Tefldar verða 13 skákir.
-----» ♦♦-----
Geir Haarde
stefnirá
3. sæti
GEIR H. Haarde, þingflokksformað-
ur Sjálfstæðisflokks, hefur ákveðið
að stefna á 3. sæti lista sjálfstæðis-
manna í Reykjavík í prófkjöri flokks-
ins 28. og 29. október fyrir þingkosn-
ingar í vor.
Geir sagði að eftir auglýsingu um
framboð í Morgunblaðinu um helgina
hafí sér ekki fundist eftir neinu að
bíða. Hann hafi kallað saman hóp
stuðningsmanna sinna og tiikynnt
þeirh ákvörðun sína. Sem þingflokks-
formaður sagðist hann telja eðlilegt
að stefna á 3. sæti. Geir var í 7. sæti
á lista flokksins við síðustu Alþingis-
kosningar og Bjöm Bjamason í 3.
sæti.
Peningaþvætti
Morgunblaðið/Sverrir
30 tónleikar á djasshátíð
RÚREK djasshátíðin hófst á
sunnudag. Alls verða 30 tón-
leikar á meðan á hátíðinni
stendur, 4.-10. september.
Bandaríski tónlistar-
maðurinn David Byrne lék
fyrir fullu Háskólabíói í gær-
kvöldi. Aheyrendur tóku
Byrne og hljómsveit hans
vel, en uppselt var nokkru
fyrir tónleikana. Byrne held-
ur aðra hljómleika í Háskóla-
bíói I kvöld, en hyggst skoða
sig um hér á landi næstu
daga.
Sérstakur gestur hátíðar-
innar er Daninn Niels-Henn-
ing 0rsted Pedersen, sem nú
sækir ísland heim í níunda
sinn. Hann hefur leikið á yfír
500 hljómplötum. Með Niels-
Henning á myndinni að neð-
an er píanistinn í tríói hans,
Ole Koch Hansen.
Morgunblaðið/Þorkell
Þrjú kynferðis-
afbrot um helgina
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði
um helgina afskipti af þremur kyn-
ferðisafbrotamálum, einni nauðg-
un og tveimur nauðgunartilraun-
um.
19 ára stúlka kærði 26 ára
gamlan mann fyrir nauðgun í íbúð-
arhúsi í Breiðholti um klukkan
fimm á sunnudagsmorgun. Þar
hafði staðið yfir samkvæmi sem
maðurinn kom óboðinn í.
Konan var sofandi í einu her-
bergi íbúðarinnar og kærði mann-
inn fyrir að hafa nauðgað sér sof-
andi. Hann var handtekinn á staðn-
um og yfirheyrður á sunnudag en
hefur ekki játað sakargiftir.
19 ára stúlka kærði ókunnan
mann fyrir nauðgunartilraun að-
faranótt laugardags. Maðurinn
hafði veist að henni í miðbænum
en með mótspymu hafði henni tek-
ist að komast undan og hringja á
lögreglu. Árásarmaðurinn er
ófundinn. Þá kom lögregla að
þar sem rúmlega 20 ára maður
hafði ráðist að 16 ára stúlku við
bflastæði Alþingis. Stúlkan var
með áverka og skemmd föt og var
flutt á neyðarmóttöku Borgarspít-
alans en maðurinn var yfirheyrður
hjá RLR. Stúlkan hafði hins vegar
ekki lagt fram kæru vegna atburð-
arins í gærmorgun.
Jafnaðarmamiafélagið
úr Alþýðuflokknum
AÐALFUNDUR Jafnaðarmannafélags íslands samþykkti í gærkvöldi
að segja félagið úr Alþýðuflokknum. Tillagan var samþykkt með 24
atkvæðum, 11 voru á móti og einn seðill var auður.
Fundurinn samþykkti ályktun
þar sem segir: „Aðalfundur
Jafnaðarmannafélags íslands
hafnar inngönguskilyrðum Al-
þýðuflokksins og lýsir því yfir taf-
arlausri úrsögn Jafnaðarmannafé-
lags íslands úr Alþýðuflokknum.
Aðalfundur Jafnaðarmannafé-
lags íslands harmar það jafnframt
að sú staða skuli vera komin upp
að félagið sjái sig tilneytt til við-
skilnaðar við Alþýðuflokkinn, sök-
um stefnu hans og starfshátta.
Aðalfundur Jafnaðarmannafé-
lags íslands lýsir því yfir að það
muni starfa sem sjálfstætt félag,
að framgangi jafnaðarstefnunnar
og samfylkingu jafnaðarmanna.
Félagið mun á næstu vikum ákveða
á opnúm félagsfundi með hvaða
hætti það verður best gert.
Aðalfundurinn felur því mál-
efnahópum félagsins að hefja nú
þegar málefnastarf og undirbúning
að stefnumótun, sem lögð verði
fyrir þann fund.“
er ekkí talið vera alvarlegt vandamál hér á landi
Ungfrú Norðurlönd
Úrslitin
komu mér
gjörsam-
lega á óvart
„ÞEGAR TEKIÐ er þátt í
svona keppni er auðvitað
alltaf til sá möguleiki að
vinna. En
auðvitað ger-
ir enginn ráð
fyrir því og
úrslitin komu
mér gjörsam-
lega á óvart,“
sagði Birna
Bragadóttir,
nýkjörin
ungfrú Norð-
urlönd, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Keppninni var
Kunn tilvik tengjast
helst fíkniefnamálum
íslensk stjórnvöld hvött til að grípa
til harðra fyrirbyggjandi aðgerða
PENINGAÞVÆTTI hér á landi er
einna helst talið eiga sér stað í
tengslum við fíkniefnaviðskipti en
ljóst þykir að ísland er ekki mikil-
væg alþjóðleg miðstöð fyrir pen-
ingaþvætti. Enn hefur ekkert sér-
stakt peningaþvættismál komið til
rannsóknar hjá lögreglu hér á landi
þótt upplýst hafi verið um ákveðin
tilvik þar sem peningaþvætti hafi
átt sér stað í tengslum við fíkniefna-
viðskipti. íslensk stjórhvöld eru þó
hvött til að grípa til eins harðra
aðgerða og mögulegt til að koma í
veg fyrir að hér skapist jarðvegur
fyrir slíka glæpi. Þegar hafa verið
sett lög til að hindra peningaþvætti
hér á landi og frekari löggjöf er í
undirbúningi.
Sendinefnd frá FATF, sem er
starfshópur laustengdur Efnahags-
og framfarastofnum Evrópu,
OECD, var hér á landi í sumar til
að gera úttekt á íslensku skipulagi
gegn peningaþvætti. En peninga-
þvætti er hverskyns meðferð á eign-
um eða peningum sem eru til komn-
ir vegna afbrota í þeim tilgangi að
leyna ólögmætum uppruna eignr
anna eða peninganna. Talið er að
um 50 þúsund milljarðar króna, eða
50 billjónir, hafi verið þvegnir á
síðasta ári í heiminum. Þar af teng-
ist helmingurinn ólöglegum fíkni-
efnaviðskiptum en afgangurinn
annarskonar skipulagðri glæpa-
starfsemi og hryðjuverkastarfsemi.
FATF hefur skrifað skýrslu um
ástandið í aðildarlöndunum, þar á
meðal íslandi, en hún hefur ekki
verið gerð opinber. Delwyn Griff-
iths, sem var í áðumefndri sendi-
nefnd, sagði við Morgunblaðið að
skýrslan yrði rædd á fundi í næstu
viku í París.
Hætta fyrir hendi
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur rannsókn á nokkr-
um fíkniefnamálum leitt í ljós að
peningaþvætti hefur átt sér stað.
Islensk stjómvöld óttast, að fíkni-
efnamarkaðurinn hérlendis muni
stækka áður en Iangt um líður og
það hafi í för með sér víðtækari
skipulagða glæpastarfsemi en nú
þekkist. Grifflths sagði við Morgun-
blaðið, að ljóst væri að ísland væri
ekki mikilvæg peningaþvættismið-
stöð. Þó fylgdi augljóslega eitthvað
peningaþvætti fíkniefnaviðskiptum
á íslandi eins og í öðrum ríkjum.
„Það er hætta fyrir hendi í öllum
löndum með þróaðan peningamark-
að, að þar sé stundað alþjóðlegt
peningaþvætti. Og þegar lönd grípa
til harðari aðgerða gegn peninga-
þvætti en áður er hætta fyrir hendi
að þeir sem peningaþvættið stunda
þar flytji starfsemi sína til landa
sem ekki hafa bmgðist eins fljótt
við þessu vandamáli. Þvi hvetjum
við öll lönd, sem hafa þróað pen-
ingakerfí að grípa til aðgerða gegn
peningaþvætti hvort sem þau eiga
við þetta vandamál að stríða eða
ekki,“ sagði Griffíth.
Hann sagði að algengasta að-
ferðin við alþjóðlegt peningaþvætti
væri að opna bankareikninga í öðr-
um löndum í nafni erlendra gervi-
fyrirtækja sem væru aðeins fram-
hlið til að fela þá sem raunverulega
stunda peningaþvættið.
Á síðasta ári voru sett lög um
aðgerðir gegn peningaþvætti þar
sem meðal annars er gert ráð fyrir
að bankastarfsmönnum sé veitt sér-
stök þjálfun til að greina þau við-
skipti þar sem um peningaþvætti
geti verið að ræða og að greitt verði
fyrir rannsókn slíkra mála. Þá
munu íslensk stjórnvöld undirbúa
að staðfesta Vínarsamninginn svo-
nefnda sem er alþjóðlegur samning-
ur gegn fíkniefnaviðskiptum og
peningaþvætti í tengslum við þau.
sjónvarpað frá bænum Ko-
upyo í Finnlandi á laugar-
dag. Liðlega 42% áhorfenda
völdu Unni Guðnýju Gunn-
arsdóttur, hinn íslenska
keppendann, uppáhalds-
stúlkuna. Birna hefur
stundað fyrirsætustörf síðan
hún var sextán ára, m.a. í
Mílanó, Vín og Japan, og
sagðist eiginlega vera búin
að fá nóg af slíku. Hins veg-
ar kæmi til greina að stunda
fyrirsætustörf með fram-
haldsnámi erlendis. Birna,
sem varð önnur í Fegurðar-
samkeppni íslands 1994, býr
á Álftanesi og lýkur námi í
Fjölbrautaskóla Garðabæjar
næsta vetur. Birna, sem er
19 ára, sagði að dvölin í Finn-
Iandi hefði verið býsna erfið.
Unnur Guðný, 18 ára,
sagði að í keppninni hefði
hún verið spurð um framtíð-
aráform sín. „Ég sagði þeim
að ég væri að hefja nám á
ferðamálabraut og mig lang-
aði til að starfa við ferða-
þjónustu í framtíðinni. Jafn-
framt að ég hefði áhuga á
fjöhniðlafræði. Síðan sagði
ég, svona til að láta fólk
brosa aðeins, að mig langaði
til að eignast mörg börn,
fullt af hundum, verða feit
og blómleg húsmóðir," sagði
Unnur Guðný. Hún varð í
þriðja sæti í Fegurðarsam-
keppni íslands 1994.