Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
AFMÆLI
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 39
FRÁ vinstri: Ágúst Guðmundsson, Þorgeir Pálsson, flugmála-
stjóri, Sigursteinn Stefánsson og Björn Gunnarsson.
Dregið í getraun
Flugmálastj órnar
Á FLUGDÖGUM 8.-13. ágúst sl.
kynnti Flugmálastjóm starfsemi
sína í tilefni af því að nú eru liðin
75 ár síðan flug hófst á íslandi.
Þúsundir gesta kynntust starf-
semi Flugmálastjórnar þessa ág-
ústsdaga og bauð stofnunin gestum
sínum að taka þátt í auðveldum
getraunaleik enda var svör við
þremur fjölvalsspurningum að finna
á sýningarsvæðinu. Þrenn verðlaun
voru veitt fyrir rétt svör, glæsilegar
kennslubækur fyrir einkaflugpróf á
íslensku sem Flugmálastjórn gefur
út. Á fjórða þúsund manns spreytti
sig á getrauninni.
Þeir sem fengu verðlaun vom
Ágúst Guðmundsson, Austurbrún
24, Reykjavík, Björn Gunnarsson,
Funafold 26, Reykjavík, og Sigur-
steinn Stefánsson, Reykjavík.
Flugmálastjóm þakkar þeim fjöl-
mörgu einstaklingum sem tóku þátt
í getrauninni.
■ BJÖRGUNARSVEIT Ingólfs
er nú að byrja vetrarstarfið af full-
um krafti og leitar eftir nýjum fé-
lögum í sveitina. Björgunarsveit
Ingólfs er ein af 90 björgunarsveit-
um Slysavarnafélags íslands og er
eina Reykjavíkursveitin sem sinnir
bæði sjó- og landútköllum. Björgun-
arsveitin skiptist í þijá megin-
flokka: Landflokk, sjóflokk og bíla-
flokk. Nýliðar eru þó aðeins teknir
í land- og sjóflokk, Kynningarfund-
ur vegna nýliðastarfsins verður
haldinn í kvöld kl. 20 í Gróubúð,
Grandagarði 1, Reykjavík, og er
allt ungt fólk sem náð hefur 17 ára
aldri, stelpur sem strákar, velkomið.
■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst miðvikudag-
inn 7. september. Kennt verður
frakl. 20-23 og eru kennsludagar
7., 8., 12. og 13. sept. Námskeiðið
telst vera 16 kennslustundir og
verður haldið í Fákafeni 11, 2.
hæð. Þátttaka er heimil öllum 15
ára og eldri. Námskeiðsgjald er
4.000 kr. en skuldlausir félagar í
RKÍ fá 50% afslátt.
■ HÓPÞJÁLFUN fyrir gigtar-
fólk hefst á vegum Gigtarfélags
Islands 14. september nk. í boði
verða sérstakir hópar fyrir fólk með
slitgigt, vefjagigt, iktsýki og hryg-
gikt, auk blandaðra hópa fyrir fólk
með ýmsa gigtarsjúkdóma. Einnig
verða hópar, sem fá þjálfun í sund-
laug. Skráning á námskeiðin fer
fram hjá Gigtarfélagi íslands 7.,
8. og 9. september milli kl. 13 og 15.
■ HVERFAFÉLAG Reykjnvík-
urlistans í Breiðholti heldur stofn-
fund sinn þriðjudaginn 6. september
í Menningarmiðstöðinni í Gerðu-
bergi.
ASGEIR BJARNASON
FYRIR neðan túnið í
Ásgarði er allstór stapi
sem talinn er bústaður
huldufólks. Það er
gömul þjóðtrú að
ganga á Ásgarðsstapa
eftir vissum settum
reglum gefi óskum,
bornum upp á stapan-
um, byr til farsældar.
Hvað sem þessari þjóð-
trú líður hefur starfs-
ferill afmælisbarnsins
verið farsæll og má
með sanni segja að
hann hafi verið óska-
barn sinnar sveitar. En
farsæl lífsganga hefur
verið erilsöm, því að á hans herðar
hafa lagst ótrúlega margvísleg
skyldustörf. Auk þess að vera stór-
bóndi, póst- og símstöðvarstjóri,
hreppstjóri, sýslunefndarmaður og
í framkvæmdanefndum fyrir flestar
framkvæmdir í héraðinu, var Ás-
geir þingmaður Dalamanna 1949-
1959 og þingmaður Vesturlands frá
1959-1978. Á löngum þingferli sín-
um gegndi hann ótal trúnaðarstörf-
um, var m.a. forseti Sameinaðs
þings um tíma, í Norðurlandaráði,
í stjórn Búnaðarbankans, í Rann-
sóknaráði svo ekki séu nefnd þau
fjölmörgu störf sem hann innti af
hendi fyrir bændasamtökin.
Af þessari upptalningu, sem
hvergi er tæmandi, gæti ókunnugur
gert sér í hugarlund að Ásgeir hafi
sóst eftir völdum, en svo er ekki.
Hann er einfaldlega yfirburðarmað-
ur og þess vegna þótti mönnum sem
málum væri ekki vel fyrir komið
nema Ásgeir stæði í stafni. Maður
á borð við hann er stór af sjálfum
sér og verkum sínum. Sjálfur er
hann lítillátur og hógvær, en það
sem gerir hann jafn töfrandi og
raun ber vitni er yfirvegun hans,
rósemi og kímnin sem aldrei er
langt undan. Hann er öfundsverð-
ur, ekki fyrir það að hafa safnað
auði sem mölur og ryð fær grand-
að, heldur fyrir það sem meira er
og gulli betra, góðan orðstír.
Frá því ég man fyrst eftir að
hafa lagt eyrun við stjórnmálaum-
ræðu hef ég ávallt heyrt talað um
afmælisbarnið með sérstakri virð-
ingu og hlýju. Það eru ekki mörg
ár síðan ég kynntist honum per-
sónulega. Það var ekki fýrr en í
kosningabaráttu fyrir tæpum fjór-
um árum. Þá bankaði ég fyrst upp
á í Ásgarði, satt að segja örlítið
kvíðin, hvernig skyldi þessi reyndi
heiðursmaður taka á
móti konu sunnan af
Skaga, sem var að
stíga sín fyrstu spor
sem frambjóðandi til
Alþingis? Kvíðinn var
óþarfur því þau tóku
mér opnum örmum
hjónin í Ásgarði.
Kvöldstundin hjá
þeim var ljósasti
punkturinn í kosn-
ingabaráttunni. Þá og
oft síðan hef ég þegið
veislu í Ásgarði, þegið
um leið holl ráð af
vitrum vörum hús-
bænda og fróðleik frá
liðinni tíð. Ásgeir var vel undir lífs-
baráttuna búinn, sprottinn úr jarð-
vegi sem er í jafnvægi við lífíð og
tilveruna. Hann fékk hagnýta
menntun hérlendis og erlendis sem
nýttist honum vel.
Ásgeir er fæddur í Ásgarði,
Hvammssveit í Dalasýslu, 6. sept.
1914. Foreldrar hans voru Bjarni
Jensson hreppstjóri, fæddur árið
1865, dáinn árið 1942 og Salbjörg
Jónca Ásgeirsdóttir ljósmóðir, fædd
1871, dáin 1931.
Með fyrri konu sinni, Emmu
Benediktsdóttur, átti_ Ásgeir tvo
syni, Bjarna bónda í Ásgarði, hann
er kvæntur Ásdísi Erlu Olafsdóttur,
þau eiga fjögur börn og Benedikt,
prófessor í félagsvísindum, hann
vinnur hjá utanríkisráðuneytinu.
Ásgeir missti Emmu þegar dreng-
irnir voni barnungir.
Í yfir 40 ár hafa þau Ásgeir og
Ingibjörg Sigurðardóttir verið gift.
Þau eru samhent og þarf ekki að
hafa auðugt ímyndunarafl til að sjá
að án hennar hefði afmælisbarnið
ekki tekið að sér þaufjölmörgu störf
sem hann sinnti. í Ásgarð hafa
margir átt erindi. Þótt Asgeir hafi
fyrir nokkuð löngu dregið sig út
úr skarkala stjórnmálanna er mjög
gestkvæmt á hans heimili. Það er
eitthvað sérstaklega gott sem fylgir
bændahöfðingjanum Ásgeiri. Mað-
ur hefur það jafnvel á tilfinning-
unni þegar gengið er út úr húsinu
í Ásgarði að gestum fylgi farsæll
byr, eins og þjóðtrúin segir um stap-
ann góða í túninu í Ásgarði.
Kæri Ásgeir. Með þakklátum
huga sendi ég þér og fjölskyldu
þinni innilegar hamingjuóskir í til-
efni dagsins. Megi Guð og gæfan
fylgja ykkur um ókomin ár.
Ingibjörg Pálmadóttir.
bjóðast stór og smá heimilistæki
á hagstæðu verði.
UNDIRBORÐSOFN
HM 10 W
Blástursofn
5 stillingar
Grill og blástursgrill
KR. 39.700,-
GMSBm
KÆLISKÁPUR
MF. 140
Kælir: 131 lítrar
Frystir: 7 lítrar
Hæð: 85 cm
Breidd: 50 cm
Dýpt: 56 cm
KR. 29.200,-
fcfeÉfciiEmBi5ib
SKiptiborö 41000, 641919
csmsaEmims
caamiiÆflaai
Hólf og gólf, afgreiósla 641919
mmm
Almenn afgreiðsla 54411, 52870
Almenn afgreiösla 629400
Almenn afgreiösla 689400, 689403
Grænt númer 996410
KR. 14.900,-
HELLUBORÐ
IP 04 R W
4 steyptar hellur
itölsk heimilistæki
í KRINGLUNNI
A Hótel Islandi.
Frumsýning 10. sept. Miða- og
borðapantanir á Hótel islandi í
síma 687111. SÖNGSMIÐJAN
Geisladrif
Hljoðkort
frákr. 17.900,-
^BOÐEIND-
Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081
V________________/
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 r 0 2.123.558
Z. 4af5lí m 369.122
3. 4af5 60 10.612
4. 3af5 3.024 491
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.614.184.
upplýsingar:Símsvari91 -681511 lukkulína991002
E
35. Icikvika, 3-4. scpt 1994
Nr. Leikur:_______________Röð'ut:
1. Göteborg - Helsingbrg 1 - -
2. Norrköping - Örebro - X -
3. UMF.A - Luleá - X -
4. Vasalund - Sirius 1 - -
5. Elfsborg - Oddevold 1 - -
6. GAIS - Kalniar FF - - 2
7. Notts Cnty - Swindon - - 2
8. Port Vale - Luton - - 2
9. Reading - MiUwali - X -
10. Southcnd - Oldham 1 - -
11. Sunderland - Wolves - X -
12. Tranmcrc - ShelT. Utd 1 - -
13. Watford - Middiesbro - X -
IleildarvinningsupphseAin:
80 milljón krónur
13 réttir: 1.644.400 1 kr.
12 réttir: F 38.020 1 kr.
11 réttir: f 3.160 1 kr.
10 réttir: [ 770 1 kr.