Morgunblaðið - 06.09.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEFl'EMBER 1994
21
LISTIR
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
Kristinn
og Björk
tilnefnd
KRISTINN Sigmundsson óperu-
söngvari og Björk Guðmundsdóttir
söngkona hafa verið tilnefnd til Tón-
listarverðlauna Norðurlandaráðs
1995. Tveir fulltrúar frá hveiju Norð-
urlandi eru tilnefndir og geta þeir
komið úr öllum greinum tónlistar.
Frá Danmörku er rokksöngvarinn
Kim Larsen tilnefndur, ásamt slag-
verksdúettnum Safri Duo. Hljóm-
sveitarstjórinn Leif Segerstam og
þjóðlagahljómsveitin Várttiná eru til-
nefnd af hálfu Finna. Frá Noregi eru
Kristinn Björk
Sigmundsson Guðmundsdóttir
Einar Steen-Nockleberg píanóleikari
og Det Norske Kammerorkester tij-
nefnd og frá Svíþjóð kórstjórinn Eric
Ericson og jazz- og þjóðlagasöngkon-
an Lena Willemark. Tónlistarverð-
laun Norðurlandaráðs nema 200.000
dönskum krónum og verða afhent á
fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík
27. febrúar til 2. mars. Úrslitin verða
kunngerð á fundi Norræna tónlist-
arráðsins í Stokkhólmi 14. nóvember.
TAKIÐ ÞÁTT I SPENNANDI SAMKEPPNI UM
FRUMLEGASTA MYNDEFNIÐ I LIT!
Við leitum að frumlegasta
myndefninu f lit. Kynniðykkur
reglurnar hjá næsta viðurkennda
söluaðila HP á íslandi og takið þátt í spennandi
samkeppni. Skilafresturertil 20. september nk.
« TftKNI- OG TÖLVUDEILD
Heimilistæki h(.
Sætúni 8 - Sími 691500
ÍM< Tæknival
ÖRTÖLVUTÆKNI
Skeifunni 17 - Sími 681665 Skeifunni 17 - Sími 687220
Islensk
myndlist
í Kína
FYRSTA íslenska myndlista-
sýningin í Kína var opnuð í
menningarmiðstöð austur Beij-
úng á föstudag.
I ávarpi við opnunina sagði
frú Wang Xiaoxian, varaforseti
Kínversku vináttustofnunarinn-
ar við erlend ríki, að þetta væri
stór stund og sýndi hveiju
menningarsamskipti gætu
áorkað. Þannig hefðu listamenn
einnar fámennustu þjóðar
heims nú gefið fjölmennustu
þjóð heims tækifæri til að kynn-
ast landi langt í norðri. Við
sama tækifæri sagði Svavar
Gestsson fyrrverandi mennta-
málaráðherra að listamenn og
menningin væru bestu sendi-
fulltrúar þjóða sinna.
September-
tónleikar í Sel-
fosskirkju
ÍTALSKI orgelleikarinn Marco
Lo Muscio frá Róm leikur á
septembertónleikum í Selfoss-
kirkju í kvöld kl. 20.30.
Marco Lo Muscio hefur hald-
ið marga tónleika og lagt rækt
við frönsk tónskáld þessarar
aldar. Asamt þeim eru þó eldri
höfundar eins og J.S Bach og
G. Frescobaldi á efnisskránni.
Aðgangur er ókeypis.
Steinar Geir-
dal 1 Jónshúsi
NÚ STENDUR yfir sýning
Steinars Geirdal á olíu- og
vatnslitamyndum í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn og er þetta
fyrsta einkasýning Steinars á
erlendri grundu.
Steinar hefur tekið þátt í
samsýningum hér heima og
haldið nokkrar einkasýningar i
Keflavík. Sýningin stendur til
20. september.
RúRek ’94
Ingólfstorg kl. 17: Karnivala
með götudjass.
Háskólabíó kl. 20.30: David
Byrne, Paul Socolow, Todd
Turkisher og Mauro Refosco.
Tunglið kl. 21: Hljómsveit
Hilmars Jenssonar og Tim
Beme.
Fógetinn kl. 22: Kvartett
Ólafs Stolzenwalds.
Hornið/Djúpið: Tríó Bjössa
Thor.
Kringlukráin: Tríó Þóris
Baldurssonar.
Kaffi Reykjavík: Skattsvik-
ararnir.
NISSAN SUNNY
sendibíll
kostar aðeins 998.000.- kr. án vsk. á götuna
( stöðugri sókn
- yg *-“?—
Þriggja ára ábyrgð
Ingvar Helgason
Sœvarhöfða 2
Sími 674000
Sunny
sendibíllinn
er lipur og
einstaklega
rúmgóður
með
vökva- og
veitistýri,
rúðuþurrkum
og hita í
afturrúðum.
’Traustir
styrktarbitar
í hurðum
veita vernd
í hliðar-
árekstri.
Ný 1600 cc
léttmálms
vél er 16 ventla
með
fjölinnsprautun
og skilar
102 hestöflum.
þægindi ökumanns
í starfi er tryggt
með stillingum
í sæti
Farmrými:
2,68 m3
Burðargeta:
585 kg.
Hurðarop að
aftan 180°
breidd: l,20m
hæð: l,12m.
BRYNJAR HONNUN / RÁÐGJÖF