Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 6

Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Árásarmálið í Kefiavík Mikið ber á milli aðila um atvik Keflavík Morgunblaðið Mikið ber á milli aðila um atvik í árásarmálinu í Keflavík sem átti sér stað aðfaranótt laugardags þar sem 35 ára maður kærði tvo tví- tuga Suðumesjamenn fyrir líkams- árás. Málið var rannsakað hjá rannsóknarlögreglunni í Keflavík í gær og þá voru teknar skýrslur af aðilum málsins. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar ber pilt- unum nokkuð saman um upphaf og endi en maðurinn heldur við sína frásögn af atvikum um að piltamir hafi lumbrað á sér án til- efnis. Samkvæmt upplýsingum lög- Morgunblaðið/Þorkell reglunnar voru mennirnir allir á skemmtistað ekki fjarri árásar- staðnum. í lýsingu piltanna kemur fram að tveir þeirra hafi farið út saman af skemmtistaðnum og þriðji pilturinn og maðurinn sam- an, en hann mun hafa kannast við skyldfólk mannsins. í frásögn pilt- anna kemur fram að þeir hafí geymt vín við bifreiðaplan þar rétt hjá og hafi þeir haldið þangað. Þar hafí maðurinn gert sig líklegan til að taka af þeim vínið og þá hafí komið til slagsmála milli elsta pilts- ins, sem er 26 ára, og mannsins. I fásögn mannsins sem kærði kemur fram að tveir piltanna hafí lumbrað á sér með hnefahöggum og spörkum algjörlega af tilefnis- lausu þar sem hann var á gangi á bílaplaninu. Piltunum ber saman um að einn þeirra hafí slegið mann- inn nokkrum sinnum í andlitið og að honum hafí verið í lófa lagið að komast undan. Þegar lögreglan kom á vettvang stóðu mennirnir saman og óskaði maðurinn eftir að honum yrði ekið heim. Lögregl- an taldi þó rétt að flytja hann í sjúkrahúsið til athugunar. Hann fékk að fara heim daginn eftir en var með glóðaraugu á báðum aug- um og marblett á enni. Pilturinn sem hefur viðurkennt að hafa sleg- ist við manninn var með áverka á hné sem var mikið bólgið. Morgunblaðið/Þorkell Sóknarprestur á Kolfreyjustað BISKUP íslands, Ólafur Skúlason, vígði séra Carlos Ferrer til prest- þjónustu í Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi á sunnudag. Einn fjögurra vígsluvotta við athöfnina var séra Yrsa Þórðardóttir, eiginkona hins nýja sóknarprests (efsttil hægri). Aðr- ir vígsluvottar voru séra Kjartan Kristmundsson, fráfarandi sóknar- prestur á Kolfreyjustað, séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir sóknar- prestur í Grindavík og séra Hjalti Guðmundsson, dómkirkjuprestur. Fremstir á myndinni eru Ólafur Skúlason og séra Carlos. Verkfallsboðun FÍH ólögmæt Eðal-Darri sigraði HUNDURINN Eðal-Darri sigraði á hundasýningu Hundaræktarfélags Is- lands sem haldin var á 25 ára afmæli félagsins 4. september sl. Eðal-Darri, sem er írskur setter, er margverðlaunaður hund- ur. Eigandi hans er Magn- ús Jónatansson, en rækt- andi er Hreiðar Karlsson. Verkfall verður boðað FÉLAGSDÓMUR úrskurðaði í gær að verkfallsboðun Félags íslenskra hljómlistarmanna vegna þeirra fé- lagsmanna sem starfa sem laus- ráðnir hljóðfæraleikarar í Þjóðleik- húsinu, væri ólögmæt. Verkfallið átti að hefjast í gær, en fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs vísaði málinu til félagsdóms og krafðist þess að boðunin væri úrskurðuð ólögmæt. Bjöm Árnason, formaður FÍH, sagði í samtali við Morgun- blaðið að verkfall yrði boðað að nýju og verði það gert á næstu dögum, eða fyrir 10. september. Undrandi á úrskurði Bjöm kvaðst vera undrandi á úrskurði Félagsdóms og telji lög- menn FÍH að um breytta túlkun á lögum um stéttarfélög og vinnudeil- ur sé að ræða. Verkfallsboðunin var úrskurðuð ólögmæt á þeim forsend- um að tímabilið frá því að hún var afhent 29. ágúst síðastliðinn og þar til verkfallið átti að hefjast, 5. sept- ember, nái ekki sjö sólarhringum. I lögunum segir að ákvörðun um vinnustöðvun beri að tilkynna til tilskyldra aðila sjö sólarhringum áður en vinnustöðvun á að hefjast. Verkfallsboðun FÍH barst ríkis- sáttasemjara, samninganefnd ríkis- ins og Þjóðleikhússtjóra milli klukk- an 15.10 og 15.35 mánudaginn 29. ágúst og skyldi verkfall hefjast 5. september án nánari tímasetningar. „Þegar upphafsdagur verkfalls er tilgreindur í verkfallsboðun án þess að getið sé um klukkustund eða önnur nánari tímamörk, svo sem hér átti sér stað, verður að líta svo á að verkfallið eigi að hefíast þegar viðkomandi almanaksdagur gengur í garð án tillits til þess hve- Tilboð í Sauð- árkróksbraut Lægsta til- boð 63,71% kostnaðar- áætlunar SEX fyrirtæki bjóða í lagningu Sauðárkróksbrautar um Vesturósa og nemur lægsta til- boðið 63,71% af 23.180.000 kr. kostnaðaráætlun. Tilboðið kem- ur frá Króksverki hf. á Sauðár- króki og nemur 14.768.500 kr. Hæst býður Klæðning hf. í Garðabæ 25.400.000 kr. Aðrir eru Suðurverk hf., Hvolsvelli, 19.044.800 kr., Vinnuvélar Jóhanns Bjamason- ar, Hellu, 17.835.400 kr., Fyll- ing hf., Hólmavík, 16.366.000 kr. og Fjörður sf., Sauðárkróki 16.591.500 kr. Tvöfaldur vinningur í lóttói ENGINN miði var með allar töl- ur réttar í lottói sl. laugardag og verður fyrsti vinningur því tvöfaldur um næstu helgi. Vinn- ingstölur á laugardaginn voru 1, 5, 8, 27 og 37. Bónustalan var 21. Einn var með fjórar töl- ur réttar og bónustölu og fékk viðkomandi tæpar 370 þúsund í vinning. Vinningsmiðinn var keyptur í Fitjagrilli í Njarðvík. aðnýju nær daglegur vinnutími á að hefj- ast hjá þeim starfsmönnum sem í hlut eiga. Tímabilið frá því að verk- fallsboðun var afhent 29. ágúst uns mánudagurinn 5. september rann upp nær ekki 7 sólarhringum og er verkfallsboðun stefnda því ógild,“ segir í niðurstöðum Félags- dóms. Stefnda, Alþýðusambandi íslands fyrir hönd FIH, var gert að greiða málskostnað. í gær var haldinn samningafund- ur í deilunni en ekki miðaði í sam- komulagsátt. Skemmtíborg af bestu sort og verslunarboig í sérflokki Spennandi stóroorg og örstutt í náttúmfegurð skosku hálandanna. Innborgunarseðill 2.000 kr. V/SA AMAMIilMN. »JL 4.000 KR. FYRIR IUÓN. GILDIR TIL 31. OKTÓBER 1094. ADEINS FVRIR KORTHAFA VIRA. Fjölbreyttar kynnis- og skemmtiferðir: • Kynnisferð um Glasgow • Skosku hálöndin • Dagur í Edinborg • Pöbbarall 3 nætur frá á mann í tvíbýli á Hospitality Inn. Mikið fyrir lítið * Innifalið: Beint flug, gisting, morgunverður, akstur til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og flugvallarskattur á íslandi. Flugvallarskattur 1.110 kr. leggst á 1 Skotlandi 1. nóvember. Gildistími: 7. okt.'94 til 27. nóv.'94 /N^ÚRVAL ÚTSÝN trygging fyrir gæðnm Lágmúla 4: sími 699 300, í Hafnarfirði: sfmi 65 23 66, Keflavfk: sfmi 11353, Akureyri: sími 2 50 00, Selfossi: sfmi: 21666 - og bjd umboðsmönnum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.