Morgunblaðið - 06.09.1994, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Nökkvavogur - 3ja
Nýkomin í sölu ein af þessum eftirsóttu og hlýlegu ris-
íbúðum. íbúðin er sérl. falleg og öll endurn. (Bílskúrsrétt-
ur). Verð 6,5 millj.
Fasteignamiðlunin Lyngvík hf.,
sfmar 889490-889499.
Glæsileg eign - frábært verð
Nýlegt steinhús. Hæð: 5 herb. íb. 136 fm og bílskúr
27 fm. Jarðhæð: Tvær sólríkar 2ja herb. íb. m.m., önn-
ur tengd hæðinni. Húsið er skammt frá sundlauginni í
Árbæjarhverfi m. glæsil. trjá- og blómagarði. Mikið
útsýni.
Almenna fasteignasalan sf.,
Laugavegi 18,
símar 21150/21370.
-
Suðurgata - Hafnarfjörður
Til sölu vandað tvíbýlishús
Steinhús byggt 1960 í næsta nágrenni við St. Jósefssp-
ítala. Á efri hæð um 120 fm falleg 4ra herbergja íbúð
með góðum suðursvölum. Bílgeymsla fylgir. Á jarðhæð
er um 60 fm 2ja herbergja íbúð. Húsið selst í einu lagi
eða hvor íbúð fyrir sig. Eignin er í ágætu ástandi.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIM ARSS0N. framkvæmdastjori
KRISTJAM KRISTJAMSS0M. loggiltur fasteignasau
Til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
40 ára húsnæðislán kr. 3,3-5,0 millj.
Nokkrar góðar 3ja herb. íb. m.a. við:
Dvergabakka á 3. hæð í suðurenda. Parket. Ágæt sameign.
Furugrund á 7. hæð í lyftuh. Útsýni. Bílageymsla.
Vallarás á 5. hæð. Lyftuhús. Parket. Útsýni. Gott verð.
Fyrir smið eða laghentan
Safamýri 6 herb. efri sérhæö 144,5 fm. Sólsvalir. Bílskúr.
Gnoðavogur, sólrfk 3ja herb. íb. á 2. hæð. Sameign endurbætt.
Ljósheimar, 3ja herb. íb. á 3. hæð í lyftuh. Sérinng. Laus strax.
Sólvallagata - langtímalán
2ja herb. góð kjíb. 57,3 fm. Langtlán.kr. 2,6 millj. Vinsæll staður.
Óvenju hagstæð eignaskipti
Stór og mjög góð 2ja herb. íb. 64,7 fm í suðurenda v. Jöklasel. Sér-
þvhús. Sólsvalir. Góð sameign. Bílskúr 26 fm (geymsla í risi). Skipti
æskil. á góðri 4ra herb. íb. ____________________________
• • •
Hraunbær - Selás - Breiðholt:
Einbhús eða raðhús m. góð-
um bílsk. óskast til kaups
AIMENNA
HSTEISNASAIAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
hÓLl
® 10090
SKIPHOLTI50B, 2. hæðt.v.
Franz Jezorski, lögg. fast.sali.
Eigum eftir aðeins tvær óseldar íbúðir í þessu sérlega
reisulega og íburðarmikla 6-íbúða húsi sem hefur að
geyma vel skipulagðar og bráðskemmtilegar 2ja, 3ja
og 4ra herb. íbúðir sem eru til sölu fullb. með öllum
innr. eða tilb. u. trév. Nú er bara að vera fljót(ur) að
velja sér íbúð áður en það verður of seint! Áhv. hús-
bréf með 5% vöxtum. Allar nánari upplýsingar og
teikningar á Hóli - líttu inn!
Verð á fullb. ibúðum:
2ja herb. UHIl kr. 6.970.000,-
3ja herb. 82 fm - kr. 7.850.000,-
4ra herb. 94 fm - kr. 8.20.000,-
VERÐDÆMI:
Þú kaupir 4ra herb. íb. og borgar svona:
Húsbr. m. 5% vöxtum kr. 5.330.000,-
Við undirritun kr. 6.000.000,-
Byggaðili lánar til 4ra ára kr. 1.000.000,-
Eftirst. samkv. samkomul. kr. 1.270.000,-
kr. 8.200.000,-
SKÁKÞIIVG ÍSLANDS
Aukakeppni Hannesar
Hlífars, Helga og Jó-
hanns um titilinn
SKAK
Ásgarði,
Vcstmannacyjuni
Skákþing íslands,
landsliðsflokkur,
23. ágúst—3. september
SKÁKÞINGI íslands í landsliðs-
flokki lauk í Ásgarði, Vestmanna-
eyjum, á laugardag. Hannes Hlífar
Stefánsson gerði jafntefli við Þröst
Þórhallsson, en við það náðu starfs-
bræður hans, Helgi Ólafsson og
Jóhann Hjartarson, honum. Auka-
keppni stórmeistaranna þriggja um
sæmdarheitið Skákmeistari Islands
1994 verður væntanlega tefld í
næsta mánuði. Sævar Bjamason
hafnaði í fjórða sæti, en Þröstur
Þórhallsson, Jón Garðar Viðarsson
og Guðmundur Halldórsson deildu
með sér 5.-7. sæti.
Keppni á íslandsmóti hefur sjald-
an verið eins hörð og nú, og flestar
skákir tefldar til þrautar. Það var
því eðlilegt, að lengsta skák íslands-
sögunnar væri tefld á mótinu, bið-
skákin endalausa á milli Jóns Garð-
ars Viðarssonar og Jóhanns Hjart-
arsonarvarð 183 leikir. Framkvæmd
mótsins var Eyjamönnum til mikils
sóma. Mótsstjórnin var í öruggum
höndum Siguijóns Þorkelssonar,
Sigmundar Andréssonar og Amars
Sigurmundssonar, og yfirdómari var
Ólafur Ásgrímsson. Þeir unnu verk
sitt af prýði, eins og aðrir aðstand-
endur mótsins, og er það álit kepp-
enda, að aðstæður í Vestmannaeyj-
um hafi verið með albesta móti.
Stórmeistararnir háðu harða bar-
áttu um efsta sætið, og í lokin voru
þeir jafnir. Hannes Hlífar byijaði
með jafntefli við Burden, en náði
sér fljótt á strik og var eftir það í
efsta sæti tii loka mótsins. Helgi
og Jóhann tefldu vel að vanda, en
sá síðarnefndi lenti í því erfiða hlut-
verki að sitja samtals í tæpar 18
klukkustundir yfir skákinni við Jón
Garðar, lengst af í erfiðri vörn.
Sævar stóð sig mjög vel, og lagði
m.a. Jóhann að velli í góðri skák.
Þröstur náði aldrei að blanda sér í
baráttuna um efsta sætið á mótinu.
Jón Garðar tefldi af mikilli hörku
og hefði með smáheppni getað
fengið betri útkomu. í lokin hefur
þreyta vegna biðskákarinnar marg-
umtöluðu líklega sagt til sín. Guð-
mundur byrjaði illa í mótinu, en
tefldi ótrauður áfram af hörku og
náði besta árangri sínum til þessa.
Rúnar Sigurpálsson stóð sig vel,
vann m.a. Þröst í góðri skák. Hann
var nálægt því að fá fleiri vinninga
en reynsluleysi hefur líklega komið
í veg fyrir það að þessu sinni.
Bandaríkjamaðurinn James Burden
átti einkennilegt mót. Hann byijaði
mjög vel, átti unna stöðu í jafnteflis-
skák við Hannes Hlífar í fyrstu
umferð, hafði 2'h vinning eftir 5
umferðir, en tapaði svo sex síðustu
skákunum. Magnús Pálmi, Stefán
Þór og Páll Agnar áttu undir högg
að sækja í sinni fyrstu landsliðs-
keppni, en þeir hafa öðlast dýr-
mæta reynslu, sem kemur þeim til
góða í framtíðinni. Um árangur
keppenda að öðru leyti og einstök
úrslit vísast til meðfylgjandi töflu.
Að lokum skulum við sjá skák úr
7. umferð mótsins.
Hvítt: Páll Agnar Þórarinsson
Svart: Hannes Hlífar
Stefánsson
Drottningarindversk vörn
I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- b6, 4. g3 - Ba6, 5. b3 - d5,
6. cxd5 - exd5, 7. Bg2 - Bb4+,
8. Bd2 - Bd6, 9. 0-0 — 0-0, 10.
Rc3 — Rbd7, 11. Bg5 (Önnur leið
er hér 11. Hel - He8, 12. Rh4 -
Bb7, 13. Rf5 - Bf8, 14. Bg5 - h6
með örlítið betra tafli fyrir hvít.)
II. - He8, 12. a3?! (Hvíti stóð enn
til boða að leika 12. Hel ásamt 13.
Rh4 o.s.frv.)
12. - h6, 13. Bxf6 - Rxf6, 14. b4
- c6, 15. Rh4 - Bc4!, 16. Rf5 -
a5, 17. Hbl (Ekki verður séð að
hvítur eigi betri leik þótt hann sé
óvirkur.)
17. — axb4, 18. axb4 — b5! (Þar
með er peðið á b4 vel skorðað og
verður í framhaldi skákarinnar
skotmark svarta biskupsins og
drottningarinnar.)
19. Re3?! (Hvítur hefði betur leikið
19. Rxd6 - Dxd6, 20. Dd2, þótt
hann þurfi að tefla óvirka vörn eft-
ir 20. — Ha2, 21. Hb2 ásamt 22.
Hfbl o.s.frv.)
19. - Hxe3!, 20. fxe3 - Rg4, 21.
Hf3? (Eftir þennan leik lendir hvít-
ur í þrengingum, sem hann sleppur
ekki lifandi úr. Besta framhaldið
er 21. Dd2! — Dg5 (til greina kem-
ur 21. - De7, 22. e4! - Bxb4, 23.
exd5 — Bxc3, 24. Dxc3 — cxd5)
22. Hf3 - He8, 23. Rdl - h5 og
svartur hefur mun betri stöðu, þótt
Blöndubakki 4ra - V. 6,5 M.
Ca 103 fm íb. á 3. hæð í blokk sem er nýl. viðgerð að
utan. 12 fm herb. í kjallara fylgir. Áhv. ca 3,2 millj.
langtímalán. Kjarakaup á þessu verði.
BORGIR HF., fasteignamiðlun,
Ármúla 1, sími 882030 - fax 882033.
Fjögur frábær fyrirtæki
Óvenjuleg gjafabúð
Mjög sérstæð listræn gjafavörubúð sem selur
eingöngu handunnar listrænar vörur frá frumst-
æðum þjóðum. Eigin innflutningur. Skemmtilegt
listrænt starf. Laus strax. Aðalsölutími framund-
an. Þetta er verslun fyrir þig!
Vefnaðarvörubúð
Vel staðsett í stórum verslunarkjarna og mjög
fjölmennu íbúðarhverfi. Eigin innflutningur.
Skemmtileg vinna í góðu umhverfi. Mikið úrval
af fallegum vefnaðarvörum. Góðurtími framundan.
Hársnyrtistofa
Af sérstökum ástæðum ei til sölu nýinnréttuð
hársnyrtistofa fyrir bæði kynin. Vel staðsett
miðsvæðis í Reykjavík. Laus strax. Fjórir stólar
með pumpu. Ein þurrkusamstæða.
Austurlenskur matsölustaður
Til sölu vinsæll austurlenskur matsölustaður
með öll tæki sem þarf á slíkum stað. Velta um
1,2 millj. á mánuði. Laus strax.
Uppl. um öll fyrirtækin aðeins á skrifstofunni.
mTTTTO?T!TJ?ETiTWl
SUÐtlRVERI
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Kennsla hefst
mánudaginn 19. sept.
Byriendur og framhald
trá 4ra ára.
.../>>
Ballettskóli
Eddu ^
cheving
Skúlatúni 4
Félag íslenskra listdansara.
Innritun í síma 38360
trá kl. 15-19.
Afhending skírteina
16. og 17. sept. trá
kl. 16-18.