Morgunblaðið - 06.09.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.09.1994, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ 24 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. _ J Kopavogi, sími S7180n 'U Suzuki Vitara JLX '90, Ijósblár, 5 g., ek. 58 þ. km., upphækkaöur, 31“ dekk o.fl. V. 1.150 þús. M. Benz 200 ’86, grásans., sjálfsk., ek. 162 þ. km. uppt. vél, sóllúga, rafm. í öllu, hiti í sætum o.fl. V. 1.500 þús. MMC Lancer GLXi hlaöbakur 91, ur, sjálfsk., ek. 71 þ. km. Toppeintak. V. 990 þús. Honda Civic LSi '92, rauður, sjálfsk., ek. 18 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Toppeintak. V. 1.180 þús. Nissan Sunny SLX Sedan '94, 5 g., rk. 3 þ. km., álfelgur, spoiler o.fl. Playmouth Voyager SE EFI 7 manna '90, sjálfsk., ek. 107 þ. km. V. 1.580 þús. Nissan Sunny SLX Sedan '92, 5 g., ek. 61 þ. km. Ýmsir aukahlutir. V. 990 þús. MMC Galant GLSi hlaðbakur '91, 5 g„ ek. 54 þ. km. V. 1.250 þús. Toyota Corolla GL Liftback '93, ek. 16 þ. km„ sóllúga, álfelgur, rafm. I öllu o.fl. V. 1.390 þús. Subaru Legacy Artic 2000 station '93, sjálfsk., ek. 20 þ. km„ álfelguro.fl. V. 2.100 þús. Toyota Corolla Touring XL '91, 5 g„ ek. 86 þ. km. V. 1.080 þús. Subaru Legacy 1.8 statlon '91, 5 g„ ek. 80 þ. km. V. 1.390 þús. Sk. ód. Renault Cllo RN '93, rauður, 5 g„ ek. 24 þ. km. V. 820 þús. Ford Ranger XLT EX Cap 4 x 4 '91, blár, sjálfsk., ek. 62 þ. km„ 31“ dekk, álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.490 þús. Sk. ód. Cherokee Laredo 4.0 L '90, sjálfsk., ek. 88 þ. km„ álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.950 þús. Sk. ód. Suzuki Sidekick JLX '91, 4ra dyra, rauð- ur, 5 g„ ek. 61 þ. km„ 30" dekk, rafm. f rúðum o.fl. Fallegur jeppi. V.1.650 þús. Cherokee Laredo 4.0 L '88, blár, sjálfsk., ek. 113 þ. km„ sóllúga, álfelgur, m/spili o.fl. V. 1.550 þús. Daihatsu Charade CS '88, hvítur, 5 dyra, 4 g„ ek. 60 þ. km. Toppeintak. V. 390 þús. Daihatsu Feroza special EL-II EFi '90, 5 g„ ek. 34 þ. km„ hvítur, toppeintak. V. 1.150 þús. Fiat Uno 455 '91, 5 dyra, blár, 5 g„ ek. 33 þ. km. V. 490 þús. Ford Orion 1600 CL Sedan '87, rauður sjálfsk., ek. 100 þ. km. V. 370 þús. Honda Clvic GTi 16v '88, 5 g„ ek. 98 þ. km„ sóllúga o.fl. V. 690 þús. Honda Civic GL Sport '90, 5 g„ ek. 76 þ. km. V. 750 þús. Hyundai Pony LS '92, rauður 3ja dyra, 5 g„ ek. 30 þ. km. V. 660 þús. Sk. ód. Isuzu Rodeo LS V6, '91, grœnsans., sjálfsk., ek. 65 þ„ sóllúga, rafm. í öllu, álfelgur, útvarp+geislasp. Vandaður jeppi. V. 2.450 þús. Góð lán. M. Benz 200 '86, sjálfsk., uppt. vél, sól- lúga, hiti í sætum, rafm. í öllu. V. 1.500 þús. Sk. ód. Mazda 323 LX '90, 3ja dyra, 5 g„ ek. 59 þús. km„ álfelgur o.fl. V. 630 þús. MMC Lancer GLXi '92, rauður, sjálfsk., ek. 19 þ. km„ rafm. I rúðum, centralæs- ing. V. 1.140 þús. MMC COIt GL '90, 5 g„ ek. 80 þ. km„ V. 65 Mazda 323 F 16v Fastback, 5 dyra, 5 g„ ek. 52 þ. km„ m/öllu. V. 1.150 þús. AÐSEIMDAR GREIIMAR Flýtum okkur hægt í skólamálum NEFND sú sem menntamálaráðherra skipaði til að endur- skoða ríkjandi skóla- stefnu í grunn- og framhaldsskólum hef- ur skilað af sér og sent frá sér frumvörp til að fylgja tillögum sínum eftir. Tillögurn- ar fela í sér veigamikl- ar breytingar í skóla- kerfinu og því er mik- ilvægt að þær fái rækilega umfjöllun í samfélaginu öllu. Mér líst vel á margt í tillög- um nefndarinnar, en þar er líka margt sem orkar tvímælis. Lengra skólaár? Þær tillögur sem vakið hafa hvað hörðust andmæli snúast um lengingu skólaársins bæði í grunn- og framhaldsskólum og styttingu framhaldsskólans úr fjórum árum í þrjú. Þessar tvær breytingar eru nátengdar, því til þess að hægt sé að stytta framhaldsskólanám þarf að lengja skólaárið og færa hluta námsefnisins niður í grunn- skólann, en til að það sé hægt þarf einnig að lengja skólaárið þar. Þau rök sem mæla gegn þess- um hugmyndum eru margvísleg. í fyrsta lagi hefur verið bent á tekjuöflun nemenda sem skerðist um allt að þriðjung verði skólaárið lengt um einn mánuð, en heimilin yrðu þá að koma til móts við þá með auknum styrkjum. Fyrir heimili úti á landi sem kosta börn á heimavistarskóla eða í leiguher- bergi er um verulegar fjárhæðir að ræða. Tekjuöflun nemenda í þéttbýli skiptir einnig verulegu máli. í öðru lagi hefur verið bent á þau áhrif sem lenging skólaárs- ins myndi hafa á atvinnulífið, eink- um ferðaþjónustu og fiskvinnslu. í þriðja lagi hefur verið spurt hvort meiningin sé að taka upp vetrarfrí og lengri frí um páska og jól og tíðkast víða erlendis (það er ekki tillaga nefndarinnar). I fjórða lagi hefur verið bent á það sérkenni íslensks samfélags að nánast öll ungmenni kynnast vinnumarkaðn- um af eigin raun sum- ar eftir sumar sem auðvitað hefur mikið uppeldislegt gildi, sem að einhverju leyti myndi glatast við lenginu skólaársins. Þá hefur einnig verið spurt um sálarheill nemenda sem þreyja langa dimma vetur og kæmust mánuði síðar út í okkar stutta og bjarta sumar. Tökum mið af íslenskum veruleika Rök nefndarinnar eru þau að nýta eigi tímann bet- ur, bent er á vaxandi atvinnuleysi o.fl. en sú spurning vaknar hvort ekki væri nær að byija á því að lengja skóladaginn í grunnskólun- um og nýta tímann þannig betur. Skólatími yngstu barnanna er mun styttri hér á landi en tíðkast ann- ars staðar sem leiðir það m.a. af sér að við erum langt á eftir öðrum þjóðum í greinum eins og stærð- fræði og öðrum raungreinum. Það er mótsögn í því að benda á at- vinnuleysi í samfélaginu sem rök fyrir lengingu skólaársins, en að ætla um leið að senda framhalds- skólanemendur út á vinnumarkað- inn eða í framhaldsnám ári fyrr en nú tíðkast. Mér er tjáð að í Danmörku sé í gangi umræða um að lengja framhaldsskólann þar, m.a. til að hægja á straumnum út á vinnu- markaðinn og til þess að gefa nemendum kost á einu ári enn í þroska áður en lagt er út í strangt framhaldsnám. Að mínum dómi eru rök nefndarinnar fyrir leng- ingu skólaársins og styttingu framhaldsskólans lítt sannfærandi enda held ég að það sé samfélag- inu hagstæðara að halda ungu fólki lengur í skóla og skapa því nýja möguleika, fremur en að borga því atvinnuleysisbætur. Þegar við mótum menntastefnu framtíðarinnar eigum við að taka fýrst og fremst mið af íslenskum veruleika og íslenskum þörfum, ekki að festast í samanburði við Framtíðarhagsmunir samfélagsins og velferð bama og unglinga eiga að sitja í jyrirrúmi, segir Kristín Ástgeirsdóttir, þegar ákvarðanir eru teknar í skólamálum. aðrar þjóðir, þótt hann geti bæði verið gagnlegur og nauðsynlegur. Grunnskólinn og sveitarfélögin Annað stórmál er flutningur grunnskólans til sveitarfélaganna. Margir kostir fylgja því að öll umsjón skólamála sé sem næst skólunum sjálfum, að því tilskildu að tryggt sé að börn alls staðar á landinu fái þá grunnmenntun sem samfélagið krefst og að þeim sé ekki mismunað. Sveitarfélögin eru rétt að hefja umræður um þennan fyrirhugaða flutning og svo sem vænta má snýst hún einkum um peninga. Það er þó margt óljóst og margar spurningar óræddar um flutning grunnskólanna. Hvar og hvernig á mótun skólastefn- unnar að ganga fram? Hversu mikið frelsi eiga einstök sveitarfé- lög að hafa til að þróa sína skóla í samræmi við umhverfið eða nýjar hugmyndir sem kunna að vera á ferð? Hversu mikið vald eiga sveit- arfélögin að hafa í málefnum skól- anna og hvert á hlutverk ríkisins að vera? Samkvæmt tillögum nefndarinnar á ríkið að setja rammann utan um skólastarfið, það á að tryggja námsgögn og hafa eftirlit með þvi að settar kröf- ur séu uppfylltar. Hlutverk Náms- gagnastofnunar og fræðsluskrif- stofanna þarfnast athugunar og svo auðvitað það hvort einstök sveitarfélög geta boðið upp á gott skólastarf vegna fámennis. Að mínum dómi kalla þesar hugmynd- ir á frekari sameiningu sveitarfé- laga en orðin er, en víða er mikil andstaða við sameiningu m.a. Kristín Ástgeirsdóttir MÁLASKÓLII I l Danska, sænska, enska, þýska, franska, ítalska, spænska, rússneska og íslenska, I I Innritun daglega frá kl. 13-19. I l Kennsla hefst 19. september. □ Starfsmenntunarsjóðír ýmissa starfsmannafélaga greiða skólagjöid félagsmanna að fullu og Verslunarmannafélag Reykjavikur veitir sínum mönnum námsstyrk. I I Kennslan fer fram í Miðstræti 7. 26908! HALLDÓRS vegna hræðslu við að fólk missi litlu sveitaskólana og þurfi að senda böm sín langar leiðir í skóla. Vöndum vinnubrögðin Lenging skólaársins þýðir að stytta verður vinnudag kennara þar sem vinnuvika þeirra er lengri en annarra stétta til að mæta lengra sumarleyfi. Flestir kennar- ar nota hluta sumarsins til endur- menntunar og því vaknar sú spurning hvenær hún eigi að fara fram verði skólaárið lengt. Endur- menntun er grundvallaratriði í kennarastarfinu, enda nýjungar stöðugt að koma fram og afar mikilvægt að kennurum gefist kostur á að bera saman bækur sínar. Sennilega yrði að koma á einhvers konar endurmenntunar- kerfi sem færi fram að vetrinum þannig að kennarar færu þá í leyfi á meðan. Það verður að nota þetta tæki- færi til að endurskoða launakjör kennara enda vafasamt að breyt- ingarnar skili sér í betri skóla ef smánarleg kjör kennara verða ekki bætt. Mikilvægast er þó að við gefum okkur tíma til að ræða skólamálin ofan í kjölinn og að ekki verði knúnar í gegn vanhugsaðar breyt- ingar eins og svo allt of oft hefur gerst. Mér er minnisstæð sú breyt- ing sem gerð var á framhaldsskól- unum í menntamálaráðherratíð Svavars Gestssonar þegar fram- haldsskólamir voru opnaðir öllum nemendum án tillits til námsgetu, án þess að skólarnir væru á nokkr- un hátt undir það búnir. Fram- haldsskólarnir eru enn að glíma við þann vanda sem þá skapaðist og hann á sinn þátt í þeim nýju tillögum sem nú eru komnar fram. Slík vinnubrögð eru ekki til fyrir- myndar. Eitt skref í einu íslenskt skólakerfi hefur verið í fjársvelti um árabil enda þarfn- ast það útbóta. Til að þær takist og skili góðum árangri þarf skóla- kerfið aukið fjármagn um leið og við þurfum að flýta okkur hægt og skoða rækilega hvert skref sem við stígum í stað þess að efna til menningarbyltinga á nokkurra ára fresti. Það á að byija á byijun- inni, leik- og grunnskólum, fyrsta skrefið á að vera samfelldur skóla- dagur í einsetnum skólum sem um leið gefur kost á lengri skóladegi og þár með meiri og væntanlega betri menntun. Höfundur er þingkona Kvennalistans í Reykjavík. MORE fllfllÍlllllllí J < M BBS lll disklingar kr. í.llö #■' BGÐEIND Austurströnd 12 Sími 612061 • Fax 612081 MYNDGÁTUAUGLÝSING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.