Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 49
UNGLINGAR
I
!
I
;
i
i
(
i
(
HVAR ERU ÞAU OG HVAÐ ERU ÞAU AÐ GERA?
Hrafnkell Sigríðarson
kosti fyrstu tvö beltin. Þegar maður
er að klára hvíta og gula beltið er
maður að vinna með undirstöðuatriði
og það hafa margir gefist upp á
þeim. Þá er maður að læra t.d.
grunnstöður og undirstöðuhreyfing-
ar og þarf að æfa þær aftur og aft-
ur þar til maður nær þeim fullkom-
lega. í byrjendahópnum sem ég var
í voru einhverstaðar á milli tíu og
tuttugu krakkar, en það eru ekki
nema svona sex eftir, sem nenntu
að halda áfram. En eftir því sem
gráðunum fjölgar og æfingarnar
verða flóknari verður þetta stöðugt
skemmtilegra.
Er þetta íþrótt fyrir slagsmála-
hunda?
Nei, þetta er meira sjálfsvamar-
list en bardagalist. Stöðumar miðast
fyrst og fremst við að veija sig og
þeir sem hafa gaman af slagsmálum
endast yfirleitt ekki lengi í þessu.
Kennaramir ítreka það líka stöðugt
að við megum alls ekki nota þetta
í því að ráðast á aðra.
Hvað finnst þér þú fá út úr því að
stunda karate?
Skapið verður betra. Maður fær
meiri aga og betri sjálfsstjórn út úr
þessu og sleppir sér síður.
Ertu ákveðinn í að halda áfram?
Já, ég er ákveðinn í að halda
áfram upp í svarta beltið.
Hrafnkell Sigríðarson er 13
ára gamall Reykvíkingur
sem er að hefja fjórða
árið sitt í karate. Hann
er með fjólublátt belti og hefur reynt
einu sinni við brúna beltið.
Ég féll vegna þess að ég æfði mig
ekki nógu mikið undir það.
Hvernig er röðin á beltunum?
Maður byrjar með hvítt belti, síð-
an fær maður guit þá rautt, grænt,
blátt og ijólublátt. Þetta kallast
fyrsta líf. Þá kemur maður að öðm
lífi, þá er beltið fyrst brúnt með einni
svartri línu og síðan brúnt með
tveimur svörtum línum. Síðan tekur
svarta beltið við og þá er maður
orðinn meistari.
Hvað tekur langan tíma að vinna
sig í gegnum beltin?
Það getur tekið sex til sjö ár að
komast upp í svarta beltið. Ég held
að maður megi ekki taka svarta
beltið fyrr en maður er orðinn sext-
án ára. Ef maður klárar hin beltin
fyrir þann aldur þarf maður að taka
svartabeltisprófið aftur. Núna, þeg-
ar ég er komin svona hátt verð ég
að taka belti með sex mánaða fresti
og þar sem ég er svona ungur ennþá
þá tek ég bara hálft belti i einu.
Hvernig er að stunda þessa íþrótt?
Það er mjög skemmtilegt að vera
í þessu. En fyrstu þijú árin geta
verið svolítið erfið, eða að minnsta
Meiri sjálfsvarnarlist
en bardagalist
Eitthvað
skemmtilegt
og vel launað
Nafn: Lilja Erlingsdóttir.
Heima: Borgarnesi.
Aldur: 15 ára.
Skóli: Gmnnskóli Borgamess.
Sumarstarf: Ég vinn í Eðalfiski.
Helstu áhugamál: Að vera úti með vinum mínum að
skemmta mér.
Uppáhalds hljómsveit: Ég er eiginlega alæta á tón-
list, ég hlusta á flest og á enga uppáhalds hljómsveit.
Mér finnst samt danstónlist
skemmtilegust.
Uppáhalds kvikmynd: Égs. man
bara ekki eftir neinni sérstakri í
augnablikinu en mér finnast
hryllingsmyndir og gamanmynd-
ir skemmtilegastar.
Uppáhalds sjónvarpsefnið:
Ég horfi mjög lítið á sjónvarp-
ið, ég er oftast úti á kvöldin.
En ég horfi þá helst á bíó-
myndir á Stöð 2 hjá vinum
mínum.
Besta bókin: Hús andanna eftir Isabel Allende.
Hver myndir þú vilja vera ef þú værir ekki þú? Á
maður að geta svarað þessu? Einhver fræg kvikmynda-
stjama.
Hvernig er að vera unglingur í dag? Það er erfítt.
Maður þarf alltaf að ákveða hvernig maður á að vera
gagnvart vinum og kunningjum. Svo vilja fullorðnir
alltaf ráða yfir manni og halda að maður geti ekki
gert neitt sjálfur. En þetta er líka að mörgu leyti fint,
mikið félagslíf og svoleiðis.
Hverju myndir þú vilja breyta í þjóðfélaginu? Hafa
meiri atvinnu og að fólk fái að ráða meira yfir sér
sjálft. Að fólk sé sjálfstæðara og þurfi til dæmis ekki
að borga svona mikla skatta.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Fara út
á lífið með Áslaugu vinkonu minni. Þá fömm við og
hittum vini sem við eigum annars staðar en í Borgar-
nesi. Förum til dæmis að skemmta okkur á Akranesi.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að vakna
klukkan tuttugumínútur yfir sjö til að fara í vinnuna.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?
Eitthvað skemmtilegt og vel launað.
Hvað viltu ráðleggja þeim sem umgangast ungl-
inga? Að treysta þeim meira og leyfa þeim að vera
fijálsari.
Hvað viltu segja að lokum? Ég bið bara að heilsa
öllum sem ég þekki.
Qkuskóli
Islands
Meirapróf - rútupróf - leigubifreiðapróf
Námskeiö hefjast 15. september nk.
Námskeiðið kostar 95.000 kr.
og er sama verð alls staðar á landinu.
Innritun stendur yfir.
Upplýsingar í síma 683841.
Ökuskóli íslands, Dugguvogi 2, (G.G. húsið),
104 Reykjavík. Sími 91-683841.
Fyrir aðeins kr. 3.990,- Á mánuði*
Skrifstofutækni er starfsmenntunarnám fyrir þá sem
vilja auka þekkingu sína og samkeppnishæfni og búa
sig undir krefjandi störf á vinnumarkaði.
Skrifstof utækni!!
Ekki fiika lengur- opnaðu þér nýja leið íhjinulll
Starfsmenntun - fjárfesting til framtíöar
Tölvuskóli íslands
Höfðabakka 9 • Sfmi 67 14 66
*Uppftceð er miðuð við jafnar afborganir í 24 mánuði
Námsgreinar:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Windows
Ritvinnsla
Töflureiknir
Gagnagrunnur
I Verslunarreikningur