Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 6

Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ h Alþjóðaþingi frjálslyndra flokka sem haltlið var hérlendis lokið Þingið mjög þýðingármikið ALÞJÓÐAÞINGI fijálslyndra flokka lauk á Hótel Loftleiðum í Reykjavík á laugardagskvöld. Framsóknar- flokkurinn var gestgjafi þingsins, sem var það stærsta í sögu samtak- anna til þessa. Halldór Asgrímsson formaður flokksins sagði að þingið hefði verið mjög þýðingarmikið fyrir Framsóknarflokkinn og einnig ís- lensku þjóðina. „Okkur hefur tekist að ná sam- bandi víð fólk og flokka um allan heim. Og það hefur sannað fyrir okkur mikilvægi þess að ganga í Alþjóðasamtök fijálslyndra flokka á sínum tíma. Nokkir félagar í Fram- sóknarflokknum voru hikandi að taka það skref en það hefur reynst heilladrjúgt," sagði Halldór á blaða- mannafundj eftir þingið. Halldór Ásgrímsson var á þinginu kjörinn einn af varaforsetum sam- takanna. Steingrímur Hermannsson, sem áður gegndi því hlutverki, var valinn heiðursfélagi samtakanna á þinginu. Áhersla á afvopnun David Steel tók við formennsku í samtökunum á þinginu í Reykjavík. Steel, sem er 56 ára að aldri, er fyrr- verandi formaður Fijálslynda flokks- ins í Bretlandi og stofnandi Fijáls- lynda demókrataflokksins. Hann sagði í lokaræðu sinni að það yrði áfram eitt helsta hlutverk samtak- anna að grípa inn í hvar sem mann- réttindi væru fótum troðin. Þá sagð- ist hann vilja að samtökin legðu áherslu á afvopnunarmál. Hann benti á nú kynnu um 900 milljónir manna ekki að lesa eða skrifa, 80 milljónir bama fengju ekki að sækja grunn- skóla og mikið vantaði á að konur stæðu jafnvætis mönnum hvað lestr- arkunnáttu varðaði. Ef iðnríkin drægju úr útgjöldum til hermála um 4% nægði sú upphæð til að fækka ólæsum um helming, veita öllum bömum grunnskólamenntun og mennta komur til jafns við karla. Áhersla á fríverslun Aðalviðfangsefni þingsins var fátækt og atvinnuleysi. Megin- áherslur ályktunar þingsins voru að endurskoða þurfi uppbyggingu velferðarkerfisins með það fyrir augum að auka áhrif og ábyrgð einstakiingsins; að fyrrum komm- únistaríki verði að fá víðtækan stuðning við að byggja upp mark- aðshagkerfi og að ftjálslyndir sam- einist um að hrinda af stað átaki gegn fátækt með það að markmiði að koma á fijálsu markaðshagkerfi með fríverslun og að afnema póli- tískar ástæður fátæktar, svo sem borgarastyijaldir af völdum óábyrgra leiðtoga, brot gegn mann- réttindum og málfrelsi. Þá vom samþykktar ályktanir um alþjóðamál, svo sem að skora á Evr- ópusambandið að veita þeim Austur- og Mið-Evrópulöndum aðild sem upp- fylla skilyrði um lýðræði, mannrétt- indi og markaðshagkerfí. Samþykkt var ályktun þar sem mannréttinda- brot í Kína em fordæmd og ályktun þar sem friðarsamningum í Mið- Austurlöndum var fagnað. Sú álykt- un var lögð fram af fulltrúum þriggja ísraelskra flokka sóttu þingið og á einn flokkurinn aðild að ríkisstjóm- inni en hinir era í stjómarandstöðu. Á þinginu vom samþykktar að- ildammsóknir frá 21 nýjum stjórn- málaflokki, Austur-Evrópu. DAVID Steel, nýr formaður alþjóðasamtaka fijálslyndra flokka, greiðir atkvæði um ályktun alþjóðaþingsins sem Iauk í Reylga- vík á laugardag. Stórslas- aðir eftir árekstur TVEIR menn á sjötugsaldri liggja alvarlega slasaðir á gjörgæsludeild Borgarspítalans eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Suð- urlandsvegar og Breiðumarkar í Hveragerði á sunnudag. Þar rákust saman pallbíll, sem ekið var inn á Suðurlandsveg frá Breiðumörk og fólksbíll á vesturleið eftir Suður- landsvegi. Þrennt var í fólksbílnum en öku- maðurinn einn í pallbílnum. Allt fólkið hlaut meiðsli en ökumenn bílanna hlutu margháttuð alvarleg meiðsli og voru fluttir í skyndingu á Borgarspítalann í Reykjavík þar sem báðir gengust undir aðgerð. Farþegamir tveir í fólksbílnum meiddust ekki hættulega. Mennirnir tveir vom enn á gjörgæsludeild síð- degis í gær og sagðir mikið og al- varlega slasaðir. Þuríður hf. og Bakkí í Hnífsdal skoða samstarf STJÓRNENDUR Þuríðar hf. í Bolungarvík og rækjuvinnslunnar Bakka hf. í Hnífsdal sendu sameiginlega inn umsókn um fyrirgreiðslu úr Vestfjarðaaðstoðinni svokölluðu. Viðræður hafa farið fram um samstarf eða sameiningu fyrirtækj- anna. Þurríður keypti í gærmorgun 25 tonn af þorski af Ósvörhf., en sem kunnugt er hafnaði Ósvör viðræðum við Þuríði um sameiningu fyrir- tækjanna fyrir helgi. Sigurður Hafberg, framkvæmdastjóri Þuríðar, sagði of snemmt að svara því hvað kæmi út úr viðræðum Bakka og Þuríðar. Vilji væri fyrir hendi hjá báðum aðilum að skoða alla möguleika á sam- starfi fyrirtækjanna, þar með talin sameining þeirra. Sigurður sagðist telja allar líkur á að umsókn Þuríðar og Bakka myndi uppfylla skilyrði reglu- gerðar um Vestfjarðaraðstoð. Fyrirtækin hugi á samstarf eða sameiningu og ísafjörður væri í viðræðum um að sameinast öðrum sveitarfélög- um. Hann sagðist gera ráð fyrir því að Bolungar- víkurbær kæmi inn I þær viðræður fyrr eða síðar. Þuríður keypti fisk af Ósvör í gær keypti Þuríður 25 tonn af þorski af Ósvör hf. Þorskurinn er úr Smugunni, en Dagrún var að koma þaðan með 125 tonn af ísfiski. Sig- urður sagði að þó að svo virtist sem ekki væri vilji til þess að sameina fyrirtækin ættu þau að geta átt viðskipti. Þau hefðu raunar átt viðskipti öðm hvoru þrátt fyrir ákveðna samskiptaerfið- leika. Hann sagði að Smuguþorskurinn hefði feng- ist á sanngjömu verði. Tengingar um Höfða- bakkabrú boðnar út VEGAGERÐ ríkisins hefur boðið út bráðabirgðatengingar vegna Höfðabakkabrúar en brúin sjálf verður líklega ekki boðin út fyrr en eftir áramót að því tilskildu að fjárveiting fáist. Vegagerðin er nú að láta skoða hvort nauðsynlegt reynist að bjóða verkið út innan Evrópska efnahagssvæðisins. Ráð- gert er að vinna við bráðabirgða- tengingamar hefjist í haust og næsta vetur. Einnig verður hafður fyrirvari á byggingu bráðabirgðatenginganna og getur Vegagerðin hafnað öllum tilboðum ef ákveðið verður að veita ekki fé til þessara framkvæmda. Rögnvaldur Jónsson yfirverkfræð- ingur hjá Vegagerðinni kveðst ekki hafa trú á því að sjálf brúin verði boðin út fyrr en ljóst verði hvort fjárveiting fáist til framkvæmd- anna. 2/s hlutar tenginganna nýtast Útboðsgögn vegna bráða- birgðatenginga, sem eiga að hleypa umferð um Höfðabakka á meðan framkvæmdum stendur, voru afhent í gær og verða tilboð opnuð eftir hálfan mánuð. Rögn- valdur segir umfang tenginganna talsvert mikið. Um tvo þriðju hluta þeirra verður hægt að nýta þegar brúin er risin. Gróf kostnaðaráætl- un vegna bráðabirgðatenging- anna hljóðar upp á um 60 milljón- ir kr. Áætlað er að framkvæmdin öll kosti nálægt 500 milljónum kr. Verði fé veitt til framkvæmdar- innar er ráðgert að henni verði lokið í október á næsta ári. ♦ ♦ ♦---- Hveragerði Stefnu- aðrein á vega- áætlun ’96 Á VEGAÁÆTLUN 1996 eru fjórt- án milljónir kr. sem nýta á til að gera stefnuaðrein á Suðurlands- vegi við afleggjarann að Hvera- gerði, en í fyrradag varð alvarlegt slys á þessum vegamótum. Steingrímur Ingvason, umdæm- isverkstjóri Vegagerðar ríkisins á Selfossi, segir að ráðgert sé að breikka veginn þarna þannig að ein akrein verði fyrir þá sem aka í beina stefnu og önnur fyrir þá sem beygja til hægri og vinstri. „Þetta myndi minnka verulega hættuna á aftanákeyrslum en hindrar þó ekki að einum bíl sé ekið í veg fyrir annan,“ segir Steingrímur. Mislæg gatnamót Steingrímur segir að til þess að koma í veg fyrir hættu á slíkum slysum kæmi vart annað til greina þarna en mislæg gatnamót. Þung umferð er um Suðurlandsveg við Hveragerði og fara um 5 þúsund bílar frá Hveragerði að Selfossi á degi hveijum að sumarlagi. Frá Þorlákshöfn að Suðurlandsvegi er sumammferðin um 400 bílar á dag. Steingrímur segir að vegaáætl- unin verði endurskoðuð í vetur en hann kveðst eiga von á því að þessi framkvæmdaliður standi óbreyttur. I ! i » ! » í I » P l » & » » i ; « I « i d -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.