Morgunblaðið - 13.09.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 13.09.1994, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Alvarlegur ágreiningur um skólamál kominn upp í Mývatnssveit Suðursveitung- ar senda börn sín ekki í skóla Minnihluti skólanefndar óskar eftir fundi í skólanefnd þegar í stað Úr Mývatnssveit MINNIHLUTI skólanefndar Skútu- staðahrepps í Mý- vatnssveit hefur ósk- að eftir að haldinn verði fundur í skóla- nefnd þegar í stað til að ræða þá stöðu sem upp er komin í skólamálum í sveit- inni, en rúmlega 20 börn úr suðurhluta sveitarinnar sem samkvæmt ákvörð- un sveitarstjórnar eiga að sækja skólann í Reykjahlíð í vetur voru ekki send í skólann i gærmorgun. Foreldrar þeirra hyggjast ekki senda þau í skóiann næstu daga heldur, en vonast til að viðunandi lausn fínn- ist fyrir helgi. Tveir skólar hafa verið starfandi í Mývatnssveit síðustu ár, annar við Skútustaði og hinn í Reykjahlíð. Síð- asta haust var gert samkomulag um að rekið yrði skólasel á Skútustöðum næstu þijú árin, en ný sveitarstjórn ákvað síðsumars að kennsla færi fram eingöngu í Reykjahlíð en við það eru suðursveitungar ekki sáttir þar sem þeir telja að akstur þeirra barna sem lengst þurfa að sækja skólann sé óhóflega langur. Þau börn sem lengsta leið eiga í skólann þurfi þannig að fara um 95 kíló- metra !eið daglega að og frá skólan- um. „Við höfum barist fyrir því að starfrækt verði skólasel á Skútu- stöðum eins og gert var í fyrra og þá erum við einkum að hugsa um börn í 1. til 7. bekk,“ sagði Eyþór Pétursson, talsmaður suðursveit- unga og minnihlutamaður í skóla- nefnd í Skútustaðahreppi en hann segir foreldra barnanna beita neyð- arrétti í þessu máli. Heimild fékkst frá menntamálaráðuneyti á síðasta ári til að auka kennslumagn við skól- ann þannig að hægt væri að manna tvær stöður kennara í skólaselinu og var börnum í 1. til 7. bekk kennt þar en eldri nemendur stunduðu nám við Reykjahlíðarskóla. „Þetta gafst vel þannig að við fórum á stúfana aftur síðasta vor og óskuðum eftir framhaldi á þessu fyrirkomulagi við ráðuneytið. í sum- arbyrjun barst bréf frá ráðuneyti þar sem fram kom að það væri tilbúið að auka kennslumagnið aftur ef það yrði til lausnar deilunni. Þessu bréfi ráðuneytisins var stungið undir stól. Það var svo ekki fyrr en við fórum að ganga eftir afgreiðslu þess sem rokið var til og málið afgreitt í skóla- nefnd með gríðarlegu valdaofstæki, tillaga flutt af hálfu meirihlutans um að kennt yrði í einum skóla í vetur og enginn kostur gefínn á umræðum. Þetta köllum við valdn- íðslu og fyrirgang," sagði Eyþór. AKUREYRI Morgunblaðið/Guðmundur Valdimarsson Ekkert tjón er dráttarvír slitnaði í Slippstöðinni Odda Vírinn slitnaði þegar varð- skipið Týr var dregið upp EKKI hlaust tjón af þegar vír í dráttarbraut Slippstöðvarinnar- Odda slitnaði í gærmorgun en verið var að toga varðskipið Tý upp brautina þegar atvikið varð. Brynjólfur Tryggvason verkefn- isstjóri Slippstöðvarinnar-Odda sagði að ekki væri að fullu ljóst hvað olli því að vírinn slitnaði, lík- ast til leyndur galli í einum þætti af mörgum í vírnum sem var af sverustu gerð. Skipið var komið hálft í land er vírinn slitnaði og þar situr skipið þangað til slippstöðvar- menn hafa útvegað sér nýjan en Brynjólfur taldi að slíkur vír hlyti að vera til einhvers staðar í landinu. MYNDIN sýnir vírinn sem slitnaði þegar taka átti varð- skipið Tý í slipp í gær. Smá tafir Fyrirhugað er að skrapa og botn- mála varðskipið og má gera ráð fyrir að verkið teíjist lítillega vegna atviksins, líklega um 1-2 daga. Þokkaleg verkefnastaða er hjá Slippstöðinni-Odda og hefur verið nóg að gera í margvíslegum smá- viðgerðarverkefnum alveg síðan í mars síðastliðnum að sögn verk- efnastjóra. Hann sagði að ekki sæist margar vikur fram í tímann, engin stórverkefni væru framundan en stöðin er um þessar mundir að ljúka nokkuð stóru verkefni við grænlenskan togara. Fundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar með riðunefndum á Eyjafjarðarsvæðinu Vemlegt áfall að riðuveiki kom upp eftir niðurskurð Grímsey Smábáta- eigendur uggandi Grímsey - Smábátaeigendur í Grímsey sátu fund með Arthúr Bogasyni, formanni landssambands smábátaeigenda, um helgina og ræddu stöðuna í smábátaútgerð- inni. Guðmundur G. Arnarson, tals- maður smábátaeigenda í Grímsey, sagði menn heldur uggandi og stað- an framundan virtist ekki sérlega björt, en á fundinum var farið ítar- lega í saumana á þeim málum. Veðráttan hér síðustu daga hefur verið einstaklega góð og gefið á sjó hvern dag. Veiðin hefur verið með besta móti. SIGURÐUR Sigurðarson dýra- læknir telur það vérulegt áfall að riðuveiki hefur komið upp á nokkr- um bæjum eftir niðurskurð og sótt- hreinsun húsa. Þetta kom fram á fundi sem Búnaðarsamband Eyja- fjarðar hélt með riðunefndum á Eyjafjarðarsvæðinu en Sigurður fjallaði þar um baráttuna gegn riðu- veiki. Ólafur G. Vagnsson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar sagði að efnt hefði verið til fundar- ins m.a. vegna riðuveikitilfellis á Ingvörum í Svarfaðardal síðasta vor en þar var fé skorið niður í kjölfarið. Láta vita um grunsamlegar kindur Greinilegt sé að ekki megi slaka neitt á í sambandi við riðuveikivarn- ir og þá sérstaklega með því að halda verslun með sauðfé milli bæja í lágmarki. Sjálfsagt er að sækja um leyfi til riðunefnda fyrir öllum fjárkauputn m.a. til þess að hafa á þeim hemil og einhverja skráningu. I fréttatilkynningu frá samband- inu eru tekin sama nokkur atriði sem brýnt er að menn hafi sérstak- lega í huga á næstu vikum, m.a. að Iáta vita um allar grunsamlegar kindur sem koma fyrir í smala- mennsku og réttum. Ef kalla þarf til dýralækni greiða Sauðfjárveiki- vamir kostnað vegna þess. Þá er bændum bent á að forðast sem kostur er að hýsa aðkomufé yfir nótt og draga úr samvistum fjár frá ólíkum bæjum svo sem hægt er og einnig að lóga fé sem kemur fyrir í fjarlægum sveitum í smala- mennsku. Sveitastjórnir eða riðu- nefndir fyrir þeirra hönd ræði sam- an og komi á reglum um förgun slíkra kinda. Ef gerð er grein fyrir þessum kindum á sláturhús og sér- stök eyðublöð útfyllt eiga að fást bætur fyrir þær. Æskilegt er að draga eins og kostur er úr flutningi fjár rétt úr rétt við fjallskil og halda þarf fjárflutningabílum sem hrein- ustum og sótthreinsa þá reglulega einkum þegar farið er á milli mis- munandi sýktra svæða. VETUR Þriöjudaga, fímmtudaga, föstudaga og sunnudaga. Verð frá kr. 3.200 fluqfélaq nordurlands Iif SÍMAR 96-12100 og 92-11353

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.