Morgunblaðið - 13.09.1994, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
LAIMDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
.. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
FJOLMENNT var í Undirfellsrétt í Vatnsdal á föstudag.
YNGSTA kynslóðin var ánægð í réttunum, jafnvel þó „handfang-
ið“ vantaði á margar kindurnar.
Fénu fer
fjölgandi í
Vatnsdal
og homun-
um fækkar
Blönduósi - Töluverður fjöldi
fjár og mikill fjöldi fólks var í
Undirfellsrétt í Vatnsdal á föstu-
daginn í ágætis veðri. Féð sem
réttað er í Undirfellsrétt gengur
á Grímstungu- og Haukagilsheið-
um og að sögn gangnamanna
hrepptu menn ágætis veður í
göngunum og allt gekk áfallalaust
fyrir sig.
Réttardagur er í lífi flestra sem
viðurværi sitt eiga undir sauðk-
indinni mikill hátíðisdagur. Al-
vara og gáski blandast saman í
réttum hlutföllum þannig að úr
verður þróttmikil sveitasinfónía
sem seytlar inn í sérhverja sál sem
í réttirnar kemur. Þeir sem flest
fé eiga í Undirfellsrétt eru bænd-
ur úr Þingi og Vatnsdal og eru
það jafnframt þeir bændur sem
mest hafa skorið niður fé sitt
vegna riðu á undangengnum
árum. Það er því flestum bændum
á þessu svæði gleðiefni að fénu
fer nú aftur fjölgandi og lætur
nærri að um 8.600 fullorðnar kind-
ur með lömbum hafi gengið á af-
rétti þeirra í sumar og er það um
9% fjölgun frá fyrra ári. Það vek-
ur töluverða eftirtekt að kollótta
fénu fer fjölgandi og stafar það
af því að fjárskiptaféð kemur að
töluverðum hluta af Ströndum.
Krökkunum fannst þessi þróun í
fjárræktinni ekki sú heppilegasta
með tilliti til „fjárdráttar", því það
vantaði alveg handfangið á kind-
urnar.
Vatnsdalurinn á marga vini sem
koma oft í heimsókn og láta sig
ekki vanta á réttardaginn. Meðal
þessara vina eru nokkrir kunnir
„fjárgæslumenn" og má þar nefna
fyrrum seðlabankastjóra Jóhann-
es Norðdal og núverandi fjármála-
ráðherra Friðrik Sophusson. Er
ekki að efa að þessir menn hafi
litið með velþóknun á ávöxtun
fjárins í Vatnsdalnum.
Dagana 11. - 16. september klæðist Hótel Saga skoskum búningi og hefur
fengið sér til aðstoðar valinkunnugt lið frá ströndum Skotlands.
Skoskar krásir eins Og „Haggis“ og „Roast Sirloin with Yorkshire pudding and
mustard jus“ prýða hlaðborðið í Skrúði í umsjón hins þekkta matreiðslumanns
Stephen Johnson frá veitingastaðnum The Buttery í Glasgow. Strákarnir í hljóm-
sveitinni Scotia’s Hardy Sons eru komnir í skotapilsin sín og halda uppi
stemningunni með Ijúfum skoskum tónum. Skoska ferðamálaráðið og
Flugleiðir kynna ferðamannalandið Skotland og matargestir taka þátt
í happdrætti sem dregið verður úr í lok vikunnar.
Meðal vinninga er ferð fyrir tvo til Glasgow í 3 nætur með Flugleiðum.
Verð í hádeginu er 1.370 kr„ en 2.130 kr. á kvöldin.
Borðapantanir í síma 29900.
flugleiðirJS
< Traustur hlenskur frrðafilagi' 4B.
e
-þín sagal
Dala- og Snæfellsprófastsdæmi
Vígslubiskup
sat héraðsfund
Borg í Eyja- og Miklaholts-
hreppi - Héraðsfundur Dala- og
Snæfellsprófastsdæmis var hald-
inn 4. september í Breiðabliki.
Fundurinn hófst með messu kl.
11 í Fáskrúðsbakkakirkju. Séra
Olafur Jens Sigurðsson prestur í
Nesþingum predikaði en séra Sig-
urður Sigurðsson vígslubiskup í
Skálholti þjónaði fyrir altari. Það
mun vera í fyrsta sinn sem vígslu-
biskup situr hér héraðsfund í þessu
prófastdæmi.
Prófasturinn séra Ingiberg J.
Hannesson á Hvoli í Dölum vestur
setti síðan fundinn og stjórnaði
honum. í yfirlitsræðu prófasts
kom meðal annars fram: 340
messur framkvæmdar í prófast-
dæminu, 105 börn fermd, 102
skírð, útfarir voru 31, hjónavígslur
23 og 756 teknir til altaris.
Þá minntist prófastur eftirtal-
inna sem störfuðu mikið af sinni
ævi að kirkju- og safnaðarlífi.
Þeir voru Guðbrandur Guðbjarts-
son, Ólafsvík, Jóhanna Vígfúsdótt-
ir, Hellissandi, Jökull Sigurðsson,
Vatni í Haukadal, og Siguijón
Sveinsson frá Sveinsstöðum í
Dalasýslu. Prófastur minntist
einnig á framkvæmdir sem nú
standa yfir og sumum lokið í
mörgum kirkjum í prófastsdæm-
inu.
Séra Ólafur Jens Sigurðsson var
settur í embætti við Ingjaldshóls-
kirkju á Hellissandi. Þar hefur
ekki setið prestur í 90 ár. Séra
Sigurður Sigurðsson vígslubiskup
í Skálholti flutti fróðlegt erindi um
starf og framtíð í Skálholti.
Síðan voru hin almennu störf
þessa héraðsfundar rædd, ræður
voru allnokkrar. Sú breyting er
nú að Halldór Finnson í Grundar-
firði sem verið hefur fulltrúi á
Kirkjuþingi gaf ekki kost á sér
lengur, í hans stað var Höskuldur
Goði Karlsson skólastjóri kosinn.
Róbert Jörgensen í Stykkishólmi
er fulltrúi í stjórn Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar.
Hátekjuskatt áfram
AÐALFUNDUR sjálfstæðisfé-
lagsins Óðins á Selfossi var hald-
inn fimmtudaginn 8. september sl.
Á fundinum var samþykkt að
skora á ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar að hátekjuskattur verði
áfram haldið inni við fjárlagagerð
ársins 1995, þ.e. að ný lög um
hátekjuskatt verði lögð fram. I
fréttatilkynningu kemur fram að
ályktunin var samþykkt sam-
hljóða.
Morgunblaðið/Skarphéðinn Þórisson
RÓSASTARINN við Úlfsstaði. Rósastari (Sturnus roseus) er
mjög fallegur fugl, rósrauður á bak, gump og neðanverðu, en
svartur á öðrum pörtum og á höfðinu er stór og breið svört
hetta. (Stóra fuglabók Fjölva.)
Sjaldgæfur fiækingsfugl heimsækir landið
Rósastari sást
áAusturlandi
Egilsstöðum - Rósastari sást við
Úlfsstaði í Vallahreppi á Fljótsdals-
héraði um vikutíma, síðustu daga
í ágústmánuði. Rósastari er sjald-
gæfur flækingsfugl á ísland, en
vitað er um nokkrar heimsóknir
hans áður, t.a.m. einar fimm árið
1983 og einnig hefur hann sést í
Flateyjardal á þessu sumri.
Þekktu fuglinn af bólum
Magnús Sigurðsson bóndi á Úlfs-
stöðum sagði að fuglsins hefði fyrst
orðið vart miðvikudaginn 24. ágúst
og hann hefði horfið miðvikudag
viku síðar. Magnús og Sigríður
kona hans greindu fuglinn af bók-
um og létu vita af ferðum hans.
Rósastarinn fylgdi hestum sem voru
í hólfi rétt við bæinn. Magnúsi hefði
virst sem fuglinn tæki flugur sem
settust á skítinn frá hestunum, en
þessa daga var mjög hlýtt í veðri
og mikið um flugur. Fuglinn hvarf
seint á kvöldin en birtist aftur
snemma á morgnana. Ekki er vitað
hvað um fuglinn varð, en smyrill
hafði sést við Úlfsstaði um svipað
leyti og ekki ólíklegt að rósastarinn
hefði orðið honum að bráð.
Aðalheimkynni í Litlu-Asíu
Að sögn Skarphéðins Þórissonar
líffræðings eru heimkynni rósastara
í Litlu-Asíu og í löndum umhverfis
Svartahaf. Aðalfæða hans er engi-
sprettur og er talið að skortur hafði
orðið á þeim í sumar og starinn
farið í stórum hópum á flakk og
m.a. vestur um Evrópu. í júlí sl.
barst stór hópur rósastara til Bret-
landseyja og má jafnvel telja að
þeir fuglar sem hingað bárust hafi
verið á svipaðri leið.