Morgunblaðið - 13.09.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
VIÐSKIPTI
Bretland
Fyrsta hækkun
vaxta ífimm ár
Lundúnum. Reuter.
BRESKA stjómin hækkaði vexti seðlabankans í fyrsta sinn í fimm ár
í gær til að halda verðbólgunni niðri. Vextimir vom hækkaðir um hálft
prósentustig, í 5,75%.
Vaxtahækkuninni var yfirleitt vel
tekið á fjármálamörkuðum en sam-
tök vinnuveitenda, verkalýðsleiðtog-
ar og stjórnarandstöðuflokkar gagn-
rýndu hana, sögðu hana stefna hæg-
um efnahagsbata í hættu eða eyði-
leggja hann.
Vextir viðskiptabanka og hús-
næðislán voru einnig hækkaðir,
þannig að hækkunin kemur strax við
pyngju almennings. Fréttaskýrendur
sögðu að John Major forsætisráð-
herra tæki mikla pólitíska áhættu
með vaxtahækkuninni, nú þegar
Verkamannaflokkurinn hefur náð 30
prósentustiga forskoti á íhaldsflokk-
inn í skoðanakönnunum. Samkvæmt
einni könnuninni þorir þriðji hver
kjósandi Ihaldsflokksins ekki að við-
urkenna fyrir vinum sínum að hann
hyggist kjósa flokkinn.
Akvörðunin um vaxtahækkunina
var tekin eftir að skýrt var frá því
að vöruverð framleiðenda hefði
hækkað meira í ágúst en búist var
við, þótt smásöluverðið hefði aðeins
hækkað um 2,2% á ársgrundvelli.
„Ég er staðráðinn í að taka enga
áhættu hvað verðbólguna varðar og
þessi ákvörðun sýnir það Ijóslega."
sagði Kenneth Clarke fjármálaráð-
herra.
„Ákvörðunin kann að eyðileggja
þann hæga efnahagsbata sem við
höfum séð,“ sagði í yfirlýsingu frá
Breska verslunarráðinu (BCC) og
Breska iðnaðarsambandið (CBI) taldi
að ráðlegra hefði verið að bíða með
vaxtahækkunina.
Tony Blair, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, sagði að með vaxtahækk-
uninni hefði stjórnin í raun viður-
kennt að efnahagsstefna hennar
hefði mistekist.
Sævar Karl opnar Oliver
Sævar Karl Ólason opnaði nýja
fataverslun, Oliver, á horni Ing-
ólfstrætis og Hverfisgötu sl.
laugardag. A boðstólum verður
aðallega fatnaður frá Hugo Boss
sem ber merkið Hugo. Sævar
Karl ssagði að hér væri um að
ræða vandaðan fatnað fyrir karl-
menn sem þykja hefðbundinn
jakkaföt of formlegur klæðnað-
ur. „Eg tel að hér sé um ákveðna
nýjung að ræða á markaðnum.
Fötin eru í fijálslegum og afs-
löppuðum stíl en jafnframt í
sama gæðaflokki og annar fatn-
aður frá okkur,“ sagði Sævar
Karl sem á myndinni sést í miðið
ásamt Oliver Weistraffer, mark-
aðsstjóra hjá Hugo á miðsvæði
Þýskalands (t.v.) og syni sínum,
Atla Frey, sem er markaðssljóri
Hugo Boss í norðanverðu Þýska-
landi. Oliver verður opin frá kl.
12.-19 virka daga og kl. 11-17 á
laugardögum. Verslunarstjóri í
Oliver er Kristján Emil Jónasson.
Haustráðstefna SÍ:
Stefnur og straumar 1
upplýsingatækni
Verður haldin 16. september í Félagsheimili Kópavogs fyrir alla
sem hafa áhuga á því sem framundan er í tölvu- og
upplýsingamálum. Efni ráðstefnunnar er mikilvægt innlegg í
stefnumótun í tölvumálum.
09.00 Skráning og afhending ráðstefnugagna
09.15 Setning ráðstefnunnar Halldór Kristjánsson, formaður SÍ
09.30 Megatrends in Information Systetns Magnus Wester, ráðgjafi, Westerware AB
10.30 Kaffihlé
11.00 Megatrends in Information Systems, frh.
12.15 Hádegisveröur (innifalinn) Blandað fisk- og kjöthlaðborð
13.30 The Future - With the Eyes of IT Anne Kiihneil, ráðgjafi, Gartner Group, Scandinavia
14.45 Kaffihlé
15.15 Information Systems Today and Tomorrow Dr. Pamela Gray, ráðgjafi, the Winta Group
16.30 Ráðstcfnuslit
Ráðstefnustjóri Haukur Oddsson, varafonnaður SÍ
Fyrírlestrar verða fluttir á ensku og eru afhentir við skráningu
Þátttgj.: 11.900f.félagsmenn en 14.900fyrir aðra
Skráning eigi síðar en kl. 12:00,15. september
Skýrslutæknifélag íslands
Barónsstíg 5
Sími: 1 88 20
BINGOLOTTO-miðarnir eru komnir á sölustaði um land
allt. Á Bylgjunni er verið að velja lukkufólk í fyrsta
þáttinn. Blýantasala hjá Eymundsson er óvenju mikil. Á
Stöð 2 er allt að verða tilbúið fyrir beinu útsendinguna.
Merkingar komnar upp á sölustöðum. Ingvi Hrafn
kominn 1 réttu stellingarnar. Heklumenn eru að bóna
fyrsta vinningsbílinn. Það er búið að löggilda lukkuhjólið
Og aflýsa ættarmóti á Suðurnesjum.
Att þú eftirUð undirbúa þig?
Mundu; Stöð 2, opin dagskrá, 17. september, kl. 20:30 og
BINGÓLOTTÓ-miöi sem kostar 300 krónur á næsta sölustað
á laugardagskvöldum
í opinni dagskrá