Morgunblaðið - 13.09.1994, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Kosningar í tveimur sambandslöndum í austurhluta Þýskalands
Reuter
HELMUT Kohl leiðtog’i Kristilegra demókrata, horfir á Kurt Bied-
enkopf, forsætisráðherra Saxlands, sem vann sigur í kosningum á
sunnudag. Kristilegir demókratar fengu 58,1% atkvæðanna.
Reuter
JAFNAÐARMAÐURINN Manfred Stolpe, forsætisráðherra
Brandenburg, fagnar sigri ásamt Rudolf Scharping, leiðtoga Jafn-
aðarmannaflokksins. Jafnaðarmenn fengu 53,5% í kosningunum.
Frjálsir demókratar þurrk-
ast út en fylgi sósíalista eykst
Mótmælend-
ur sprengja
í Dublin
Dublin. Reuter. '
TVEIR særðust í gær í sprengingu
sem varð á lestarstöð í Dublin.
Lýstu öfgasinnaðir mótmælendur
á Norður-írlandi ábyrgð á hendur
sér og vöruðu við því að þeir hefðu
komið fleiri sprengjum fyrir í
höfuðborg írska lýðveldisins.
Sprengjunni hafði verið komið
fyrir undir sæti á Conelly-lestar-
stöðinni í miðborg Dublinar og
sprakk hún þegar lest kom inn á
stöðina. Hinir slösuðu voru ekki
sagðir alvarlega særðir.
Fyrst var varað við sprengjunni
á sjónvarpsstöð og ollu fréttir af
henni umferðaröngþveiti í mið-
borginni. Conelly-stöðin er aðal-
tengistöðin fyrir lestir til Norður-
írlands. Mótmælendurnir segjast
hafa komið fýrir sprengjum á
tveimur lestarstöðvum til viðbótar,
stjórnarskrifstofum og á Dublinar-
flugvelli.
Að sögn lögreglu eru hryðju-
verkasveitir öfgafullra mótmæl-
enda orðnar hættulegri en IRA og
hafa þeir drepið fleiri en kaþólskir
öfgamenn á síðustu árum.
Jafnaðarmenn segja úrslitin til
marks um að Helmut Kohl kanslari
sé að missa völdin í Bonn
Bonn. Reuter.
' 'Vítfí I„!/V _
““ i r-
T T-
Cmá
Jfc L'*
: .< >..<
í " •• ,Á , n . '
. - L * ..f ‘ ..
i1 - - />> tw/J Qhv
Reuter
Páfí fordæmir stríð á Balkanskaga
FRJÁLSIR demókratar þurrkuð-
ust út og Flokkur lýðræðislegs
sósíalisma, flokkur fyrrverandi
kommúnista, jók fylgi sitt veru-
lega í kosningum í tveimur sam-
bandslöndum í austurhluta
Þýskalands á sunnudag.
Þýskir jafnaðarmenn sögðu í
gær að úrslit kosninganna væru
til marks um að Helmut Kohl
kanslari væri að missa völdin í
Bonn. Kristilegir demókratar,
flokksmenn Kohls, sögðust hins
vegar ekkert hafa að óttast.
Persónulegur sigur
Jafnaðarmaðurinn Manfred
Stolpe, forsætisráðherra í Brand-
enburg, og Kristilegi demókratinn
Kurt Biedenkopf, forsætisráð-
herra Saxlands, unnu yfirburða-
sigra í kosningunum. Flestir
fréttaskýrendur túlkuðu úrslitin
sem persónulega sigra fýrir þessa
menn, frekar en vísbendingu um
stöðu flokkanna tveggja á lands-
vísu. Þeir sögðu hins vegar athygl-
isvert að fylgishrun varð hjá
Fijálsum demókrötum, sem Kohl
hefur reitt sig á til að mynda
meirihlutastjóm í Bonn.
„Þessar kosningar hafa aðeins
þá þýðingu á landsvísu að þær eru
til marks um að Helmut Kohl sé
smátt og smátt að glata sam-
starfsflokki," sagði Oskar La-
fontaine, talsmaður Jafnaðar-
mannaflokksins í efnahagsmálum.
í báðum fylkjunum voru Fijálsir
demókratar langt frá þeim 5% sem
þeir þurftu til að fá mann á þing.
Þar með hefur flokkurinn þurrkast
út í fímm fylkjakosningum, auk
kosninga til Evrópuþingsins.
Missa oddastöðu?
Þótt Fijálsir demókratar hafí
ekki haft mikið fylgi hafa þeir
lengi verið í oddaaðstöðu og tekið
þátt í myndun flestra ríkisstjóma
frá síðari heimsstyijöldinni, ann-
aðhvort með Jafnaðarmanna-
flokknum eða Kristilegum dem-
ókrötum. „Menn geta ekki lengur
haldið því fram að Fijálsir demó-
kratar tryggi meirihluta, að engin
stjóm verði mynduð án þeirra,“
viðurkenndi Burkhard Hirsch,
þingmaður flokksins.
Svo gæti farið að svarti sauður-
inn í þýskum stjómmálum, Flokk-
ur lýðræðislegs sósíalisma (PDS),
flokkur fyrrverandi kommúnista,
kæmist í oddaaðstöðu í Bonn.
Hann fékk 18,7% í Brandenburg,
var með 13,4% í kosningunum
1990, og 16,5% í Saxlandi, hafði
10,2%.
Búist við betri útkomu
Fái Fijálsir demókratar lítið
fylgi eða þurrkist út í kosningun-
um til sambandsþingsins í október
gæti Flokkur lýðræðislegs sósíal-
isma fengið nógu mörg þingsæti
til að koma í veg fyrir að Kristileg-
ir demókratar eða jafnaðarmenn
gætu myndað meirihlutastjóm.
Lothar Bisky, formaður Flokks
lýðræðislegs sósíalisma, kvaðst
ekki vera ánægður með fylgi
flokksins í Brandenburg en búast
við betri útkomu í kosningunum í
október.
JÓHANNES Páll páfi bað fyrir
friði á Balkanskaga í messu sem
haldin var úti undi beru lofti í
Zagreb, höfuðborg Króatiu á
sunnudag. Skömmu fyrir heim-
för páfa hélt hann eina bein-
skeyttustu tölu sína par sem
hann fordæmdi stríðið í Bosníu.
Þá beindi hann orðum sínum
að Serbum og Bosníu-Serbum,
sagði að þjóðir hefðu rétt á að
ganga i ríkjabandalög og að
undir sérstökum kringumstæð-
um gæti þjóð gengið úr ríkja-
sambandi og stofnað sjálfstætt
ríki. Þetta hefði gerst í Júgó-
slavíu árið 1991. Sagði hann
stríðið í lýðveldum fyrrum
Júgóslavíu ekki eiga neinn rétt
á sér.
Páfí var þreytulegur og virtist
þjáður við komuna til Zagreb.
Hann gat aðeins gengið fáein
skref án þess að styðjast við staf.
Þá var hann of veikburða til
þess að krjúpa niður og kyssa
jörð í landi gestgjafanna og var
því skál með króatískri jörð bor-
in upp að vörum hans. Þykir
greinilegt að páfí hafí ekki jafn-
að sig eftir að hann fótbrotnaði
í vetur og gestgjafí hans, Fraryö
Kuharic kardináli, staðfesti fyrr
í vikunni að páfí væri nyög veik-
ur. Fullyrða margir að Króatíu-
för páfa verði hinsta utanlands-
för hans. Á myndinni er páfa
ekið til sunnudagsmessunnar í
Zagreb.
I T S \ L \ \ H E F S T í II 1 (.