Morgunblaðið - 13.09.1994, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.09.1994, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Hugsanlegar orsakír brotlendingar Boeing 737-300 þotu USAir við Pittsburgh Athyglinni beint að kný- vendunum Þotan talin hafa stungist beint til jarðar á 530 kílómetra hraða New York. Pittsburgh. Reuter. Daily Telegraph. RANNSÓKN á orsökum þess að Boeing 737-300 þota bandaríska flugfélagsins USAir fórst við Pittsburgh beinist meðal annars að knývendi á hægri hreyfli þotunnar. Tjakkar sem opna knývendana reyndust opnir er þeir fundust á slysstað. Carl Vogt fulltrúi Örygg- isstofnunar bandarískra samgöngumála (NTSB) segir þó of snemmt að segja hvað fór úrskeiðis. Fleiri hugsanlegar orsakir væru enn til athugunar og ekki væri hægt á þessu stigi að fullyrða um hvort tjakkamir hefðu opnast á flugi eða við höggið er þotan skall í jörðina. Aðstæður á slysstað benda til þess að USAir-þotan hafí stungist beint niður. Hraðamælir hennar fannst í brakinu á sunnu- dag og gefur hann til kynna að þotan hafí stungist í jörðina á 303 mílna eða 530 kílómetra hraða. Knývendar þotuhreyfla eru not- aðir til að hægja á ferð flugvélar- innar eftir lendingu. Ekki á að vera hægt að setja þá í gang fyrr en flugvélin hefur snert flugbraut- ina og afl verið dregið af hreyfl- um. Þá fyrst geta flugmennimir beitt sérstökum handföngum til að gangsetja knývendana. Fari knývendar í gang af einhveijum orsökum á flugi gæti það valdið því að flugmennimir missi stjórn á flugvélinni. Sannað þykir að það hafi gerst er Boeing 767-300 þota austurríska flugfélagsins Lauda Air fórst nokkram mínútum eftir flugtak í Bangkok á Thailandi fyrir þremur áram en þá biðu 223 manns bana. Á sunnudag höfðu fundist fjórir tjakkar af sex sem opna hreyfil- hlífar til að beina loftstraumi í öfuga átt við hreyfistefnu þotunn- ar eftir lendingu. Reyndust þrír þeirra opnir sem þykir til marks um að hlífar knývendisins hefðu opnast. Aðrar orsakir? Meðal annarra hugsanlegra or- saka slyssins beinist rannsóknin að því hvort gæsir, sem fljúga suður á bóginn frá Kanada um þessar mundir, hafi sogast inn í hreyfil og valdið þess að aflið þraut. Þær gætu hafa verið í sömu flughæð og þota USAir en áhafn- ir sex flugvéla sem lentu í Pitts- burgh um svipað leyti og slysið átti sér stað urðu ekki varar við neina fugla. Sömuleiðis bentu upp- lýsingar þeirra ekki til þess að veðurfar eða ókyrrð vegna flug- umferðar kynni að skýra óhappið að hluta. Ennfremur beindist athyglin að hliðarstýri þotunnar en það reynd- ist snúa 4-8 gráður til hægri. Vogt sagði að ekkert benti til þess að bilun í hliðarstýrinu hefði leitt til óhappsins en reynt yrði að kom- ast til botns í því hvort því hafi verið beitt fyrir eða meðan á dýf- unni stóð eða hvort það hafi hrokk- ið í þá stöðu við brotlendinguna. Bilanir hafa áður orðið í stýri- búnaði hliðarstýris í Boeing-737 þotum. Talið er að bilun af því tagi hafi leitt til þess að Boeing- 737 þota United Airlines fórst í Colorado 1991. í kjölfarið var flug- félögum ráðlagt að framfylgja sér- stakri skoðunar- og viðhaldsáætl- un fyrir hliðarstýrin á þessari þotutegund. Skoðun af því tagi var sögð hafa farið nýlega fram á USAir-þotunni. Oryggismál sögð í lagi Federico Pena samgönguráð- herra Bandaríkjanna kom USAir til varnar og sagði að öiyggismál- um hefði verið vel fyrir komið hjá félaginu. Allar athuganir og allt eftirlit flugmálayfírvalda með fé- laginu benti til þess að farið hefði verið í einu og öllu eftir settum reglum og viðhaldi og skoðunum FRÉTTAMENN fengu á sunnudag að fara inn að slysstaðnum en fengu ekki að koma nær brakinu en 100 metra. Þotan fórst á fimmtudagskvöld og benda aðstæður til þess að hún hafi stungist beint niður í skóglendi 11 kílómetra frá borginni Pittsburgh. VENDIKNYR TALIN 0RSÖK FLUGSLYSSINS Rannsókn beinist að þvf hvort hugsanleg knývending í hægri hreyfli hafi leitt til þess að þota USAir fórst. Fulltníi Öryggisstofnunar bandariskra samgöngumála sagöi aö tjakkar fyrir loftstreymisloku á hægri hreyfil þotunnar heföu fundist og verið í opinni stöðu. Knývendirinn veldur þvi að loftsraumur hreyfils virkar i öfuga átt við hreyfistefnu þotu og dregur því ur hraða hennar. Kraftmikið tog hægri hreyfils vegna vendiknýs gæti valdið því að þota á flugi velti til hægri og fari inn í stjómlausa spunadýfu. Kraftar sem togast á gætu síðar valdið því að fiugvélin brotnaði meðan hún er enn á lofti. Brollending flugs 427 427 : Orsakir slyssins kannaðar Stjómtæki sem rannsóknarmenn kanna: Knýyendar; Þrir tjakkar af sex á knývendi hægri hreyfils reyndust opnir. Hvað eru knývendar? Knývendar hægja á flugvél eftir lendingu. H>fiiW*6W*riMHiiiww’nwi[»!i>wii>rw<niiiiiiwpTiiii' ■ hefði í engu veri áfátt hjá félag- inu. Sagðist Pena hafa ráðgert að fara með félaginu í embættiserind- um um næstu helgi og óhappið myndi engu breyta þar um. Vantrúaður Robert Machol, sem lét af starfi tæknistjóra FAA á þessu ári, full- yrti í viðtali við ATBC-sjónvarps- stöðina að vendiknýr hefði ekki valdið því að þota USAir fórst. Vísaði hann til þess er Boeing 767-300 þota Lauda-Air fórst skömmu eftir flugtak frá Bangkok í Thailandi. „Knývendir fór í gang og gífurlegur kraftur annars hreyfilsins virkaði skyndilega í öfuga átt svo að flugvélin varð stjórnlaus með öllu.“ „Í það sinn var flugvélin í brott- flugi, klifraði fyrir nánast fullu afli. í þetta sinn er flugvélin að koma inn til lendingar á miklu minna afli. Hafi knývendir farið í gang ætti flugvélin ekki að hafa orðið stjórnlaus,“ sagði Machol. „Mig grunar að eitthvað hafi verið að flugvélinni, annað hvort smíðis- galli eða viðhaldi hafi verið ábóta- vant, einhver vélarhlutur hafi gef- ið sig, vír hafi slitnað, veila hafí komið í forritið í tölvunni, eitthvað hafi gerst sem olli því að þotan varð stjórnlaus," sagði hann. Skór septembermánaðar COnVERSE Með 25% afslætti meðan birgðir endast St. 39-46. Verðáðurkr.11.870 Nú kr. 8. v/Klapparstíg, sími 19500 ísraelar fagna friðartali Assads Tel Aviv. The Daily Tclegraph. ÍSRAELAR fögnuðu um helgina frið- arvilja Sýrlendinga, sem þeir sögðu koma fram í ræðu Assads Sýrlands- foreta á laugardag, og óskuðu þeir eftir því að hefja viðræður um friðar- samning við Sýrlendinga. Kvaðst Yitzhak Rabin, forsætisráðherra Ísraels, vona að Bandaríkjamenn myndu koma slíkum viðræðum í kring, hvort heldur er opinberum eða leynilegum. í ræðu sinni á laugardag sagði Assad að Sýrlendingar gerðu sér grein fyrir mikilvægi friðar, sem tryggði fullt brotthvarf ísraela frá Gólanhæðum. Einnig að eitthvað þurfi að koma til, svo að friður kom- ist á. „Við viljum réttlátan frið því að viljum stöðugleika á svæðinu. Slíkur friður á að færa okkur aftur land okkar," sagði Assad. Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, sagði í gær að sér virtist afstaða Assads jákvæð. „Þetta var friðaryfirlýsing. Áður heyrðum við aðeins stríðsyfirlýsíngar,“ sagði Per- es. Hann lagði þó áherslu á að deilu- atriði þjóðanna hefðu ekki verið leyst. í síðustu viku bauð Rabin Sýrlend- ingum að ísraelar myndu draga her- lið sitt að hluta á brott frá Gólanhæð- um í tveimur áföngum og meta að þremur árum liðnum hvort ganga ætti skrefið til fulis. ísraelar náðu hæðunum af Sýrlendingum árið 1967. Sýrlendingar hafa hingað til sagt að tilboð Rabins gangi ekki nógu langt. Itamar Rabinovich, sendiherra ísraels í Bandaríkjunum og aðal- samningamaður ísrela við Sýrlend- inga, sagði að ekki mætti líta fram hjá þeirri staðreynd að Sýrlendingar hefðu Iýst því yfir að þeir vildu aiger- an frið. „Assad talar ekki oft um frið og friðarviðræður. Þetta er mikil- vægt og jákvætt skref,“ sagði Rab- inovoch. Ekki eru þó allir Isreiar á sama máli og um helgina hófu átta landnemar hungurverkfall til að mótmæla tillögum Rabins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.