Morgunblaðið - 13.09.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 21
ERLEIMT
ölskylila
um nóttina.'v'
Washington
jinnlsvarðínn
Hvíta húsið d \
Bústaður Bandaríkiaforseta
Brotlenti við
Hvíta húsið
Washington. Reuter.
TVEGGJA sæta flugvél af gerðinni
Cessna-150 brotlenti í fyrrinótt á
lóð Hvíta hússins í Washington
D.C. en flugumferð í nágrenni þess
er bönnuð. Flugmaður vélarinnar
beið bana.
Lögreglan treysti sér ekki í gær
að segja til um hvort um óhappa-
lendingu hefði verið að ræða eða
sjálfsmorðstilraun. Sjónarvottar
sögðust hafa séð flugvélina svífa
til jarðar með dauðan hreyfil en
vængljós kveikt. Hefði hún sveigt
við Washington-minnismerkið og
stefnt beint á Hvíta húsið.
Af verksummerkjum var ráðið
að flugvélin hefði komið niður 27
metra frá inngangi sem notaður
eru fyrir stjómarerindreka sem
koma í Hvíta húsið. Rann hún yfír
heimkeyrslu og gegnum limgerði,
rakst á gamalt magnolíutré og
staðnæmdist, að hluta til á hvolfi,
upp við suðurvegg hússins innan
við 50 metra frá skrifstofu Clint-
ons forseta.
Atvikið átti sér stað klukkan tvö
eftir miðnætti eða sex að morgni
að íslenskum tíma í gærmorgun.
Bill Clinton forseti og fjölskylda
hans var ekki í Hvíta húsinu vegna
viðgerða í forsetaíbúðinni. Dvaldist
fjölskyldan í nokkur hundruð
metra fjarlægð gestabústað emb-
ættisins, Blair-húsinu.
Flugmaðurinn var talinn vera
38 ára vörubílstjóri, Frank Eugene
Corder, frá bænum Aberdeen í
Maryland-ríki sem er næst höfuð-
borgarsvæðinu. Var það ráðið af
heilsufarsskírteini sem fannst í
flugvélinni en ekki höfðu kennsl
verið borin á líkið. Corder var áhu-
gaflugmaður og tók flugpróf fyrir
10 árum. Hann mun hafa tekið
flugvélina traustataki á Harford
County-flugvellinum sem er í 80
kílómetra fjarlægð frá Hvíta hús-
inu. Flugvélin var í eigu flugklúbbs
sem þar hefur aðsetur.
Sjónárvottar sögðust ekki hafa
heyrt neina skothríð er flugvélin
sveif til lendingar. Talið er að leyni-
skyttur hafist við á þaki Hvíta
hússins og leyniþjónustan hafi árið
1974 komið þar fyrir Stinger-loft-
Gangráður
bjargar Bót
London. Daily Telegraph.
ÞRETTÁN ára gamall kjöltu-
rakki, Bót, hefur fengið bót sinna
meina í bili eftir að gangráður úr
nýlátnum hjartasjúklingi var
græddur í hann.
Aðgerðin kostaði eiganda Bót-
ar, frú Pat Craddock í Blithbury
í Staffordskíri, 1.200 sterlings-
pund. Hún sagðist ekki myndu
hugsa sig um tvisvar þyrfti hvutti
á annarri aðgerð að halda, pening-
ar skiptu engu máli.
Frú Craddock fór með Bót til
virts dýralæknis í Coventry er hún
sýndi einkenni hjartasjúkdóms.
Greindist hún með hjartagalla og
hefði ekki lifað mörgum dögum
lengur án þess að fá gangráð.
„Tveimur dögum eftir aðgerðina
var Bót eins og sprækur hvolpur,
breytingarnar eru ótrúlegar,"
sagði frúin sem tók Bót að sér
fyrir 11 árum en þá var hún heim-
ilislaus flökkuhundur.
Smáflugyé! brotlendir
við Hvíta húsið
Lítil einshreyfils flugvél brotlenti á
suðurflöt Hvíta hússins á mánudag
Hvíta húsið
embættisins. þar sem
forsetafjölskylda
dvaldfst
brotlendir
kl. 06
vamarflaugum, eftir að hermaður
tók þyrlu traustataki á Fort Meade
herflugvellinum í Maryland og lenti
henni á Suðurflötinni við Hvíta
húsið.
Þingmenn ná
fjölmiðlum á
sitt vald á Krím
Moskvu. The Daily Telegraph. Reuter.
ÞINGMENN á Krím náðu í gær á
sitt vald útvarps- og sjónvarpsstöðv-
um og hétu því að halda fylktu liði
að þinghúsinu, en þeim hefur verið
meinaður aðgangur að því frá því
að forsetinn, Júrí Meshkov, leysti
Krímarþing upp á sunnudag og tók
sér öll völd. í útvarpsávarpi á sunnu-
dagsmorgun lýsti hann þingið óstarf-
hæft og „óverðugan fulltrúa fólks-
ins“. Þingmennirnir sögðu hins vegar
um valdarán að ræða.
Þingmennirnir ruddust ásamt
þrjátíu kósökkum vopnuðum svipum
inn í útvarps- og sjónvarpsstöðvar í
gærmorgun og eftir stuttar viðræður
við varðmenn sem Meshkov lét gæta
stöðvanna, létu þeir síðastnefndu
undan. Hættu stöðvarnar að sjón-
og útvarpa tilskipunum Meshkovs en
sendu í staðinn út umræðuþætti sem
þingmennirnir tóku þátt í.
Verðir eru við þinghúsið og svo
virðist sem húsgögnum hafi verið
hlaðið upp við innganga þess. Fyrir
utan hafa stuðningsmenn Meshkovs,
flestir í eldri kantinum, safnast sam-
an og barið potta og pönnur til að
sýna forsetanum stuðning sinn. Að
öðru leyti var alit með kyrrum kjör-
um í höfuðborginni Simferopol. Þessi
deila þings og forseta hefur aukið á
ótta manna um að ófriður brjótist
út á Krím en meirihluti þjóðarinnar
vill minnka sambandið við Ukraínu
og þindast Rússum nánari böndym.
Árekstrar Meshkovs og þingsins
minna um margt á uppreisn Rúss-
landsþings gegn Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta í fyrrahaust. Meshkov
gætti þess því vandlega að þinghúsið
væri mannlaust er hann leysti þingið
upp og kom þar með í veg fyrir að
vopnaðir menn kæmu sér þar fyrir.
Kuchma styður Meshkov
Meshkov og þingið samþykktu í
maí drög að nýrri stjórnarskrá sem
stríddi gegn yfirráðum Úkraínu á
Krím. Harðlínumenn hafa hins vegar
gagnrýnt Meshkov harðlega og sagt
hann hafa svikist undan merkjum
með því að viðurkenna yfirráð Úkra-
ínu í júlí eftir að Leoníd Kuchma,
var kjörinn forseti Úkraínu. Reyndi
Krímarþing i síðustu viku að svipta
Meshkov völdum.
Kuchma hefur neitað að fordæma
aðgerðir Meshkovs og kallar þær
„siðaða lausn“. Er ljóst að Meshkov
treystir á aðstoð Úkraínumanna til
að hafa stjórn á þinginu. Þingmenn
fullyrtu hins vegar í gær að öryggis-
sveitir á Krím myndu ekki hlýða
skipunum forsetans.
Haustnámskeið
að hefjast.
Vinsamlegast
skráið ykkur
sem fyrst.
Sp Vaskhugi hf .
Sími 91-682 680
*
Reuter
IWWU
fssna
Snyrtivörur ollu blýeitrun
hjá forngrískum konum
London. Reuter.
KONUR í Grikklandi hinu forna
þjáðust af blýeitrun vegna þess að
þær bættu málminum í snyrtivörur.
Grískir vísindamenn segja í bréfi
til læknablaðsins Lancet að þeir
hafí fundið mikið magn blýs í púðri
sem var í gröf í suðurhluta Grikk-
lands, en talið er að hún sé frá
1350 f.Kr., á tímum Trójustríðsins.
Vísindamennirnir telja að púðrið
hafi átt að nota í snyrtivörur og
að uppgötvun þeirra sýni fram á
að notun snyrtivara hafi hafist í
Evrópu um 500 árum fyrr en talið
hefur verið.
Vitað var að grískar konur not-
uðu hvítt blýpúður til að virðast
fölari, nokkrum öldum eftir Tróju-
stríðið og breiddist notkun þess út
um hinn siðmenntaða heim. Segja
vísindamennirnir hana hafa orðið
öfgakennda, hún hafi verið álitin
hættuleg og hæðst að henni í
bundnu máli.
Abyrgðar-
leysi olli
stórslysi
STÓRSLYS varð í gær skammt
frá Quito, höfuðborg Ekvadors,
þegar strætisvagni var ekið út
af vegi og ofan í 20 metra djúpt
gil. Týndu 52 menn lífi en slysið
átti sér stað þegar ökumaðurinn
leyfði syni sínum að taka við stýr-
inu.
FAGURT LAND
HELMINGUR AF ANDVIRÐI
POKANS RENNUR TIL
LANDGRÆÐSLU OG
NÁTTÚRUVERNDAR
Þetta merki tryggir framlag
til landgræöslu, skógræktar
og annarrar
umhverfisverndar.
LANDVERND
iÖ
DESIGNSIri
I rúmunum eru hinar vönduðu amerísku Sqríng^ilf
dýnur sem kírópraktorar mæla meö. Þær eru byggðar
upp eftir MULTILASTIC PLUS kerfinu, sem tryggir jafnan
stuðning og beinan hrygg í svefni. @