Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ
34 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
MORE
10 disklingar
kr. 1.110,-
BOÐEIND
Austurströnd 12
Sími 612061 • Fax 612081
Hún er komin
metsölubókin
IjmUBÍKU
Áhrifarík bók sem jafnvel
læknarnir nota sjálfír.
Kynningarverð
aðeins
kr. 4.950,-.
Komíd á útgáfusýningu I
Listhúsinu Laugardai.
Sérútgáfan - Simi (91) 32886
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4100 0004 4934
4507 4500 0021 1919
4507 4500 0021 6009
4507 4500 0022 0316
4543 3718 0006 3233
4548 9018 0034 2321
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Atgreiðslufóik vinsamlegast takiö ofangreind
kor( úr umferð og sendið VISA íslandi
sundurklippt.
VEHÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta korf og visa á vágesf.
Álfabakka 16-109 Reykjavík
Sími 91-671700
VZterkur og
Ll hagkvæmur
auglýsingamiðill!
______________MINNINGAR__
JÓNBORG SIG URÐARDÓTTIR
+ Jónborg Sig-
urðardóttir
fæddist á Vikings-
stöðum á Völlum í
N-Múlasýslu 28.
júni 1925. Hún lést
á heimili dóttur
sinnar 4. september
síðastliðinn. Hún
var dóttir hjónanna
Sigríðar Eiríku
Markúsdóttur og
Sigurðar Péturs-
sonar bifreiða-
stjóra. Hún fluttist
fjögurra mánaða til
Norðfjarðar með
foreldrum sinum
og ólst þar upp. Árið 1941 flyst
hún til Seyðisfjarðar með fjöl-
skyldunni. Hún var elst af sjö
systkinum þar af var ein hálf-
systir. Jónborg flytur til
Reykjavíkur árið 1943. Hinn 23.
nóvember 1946 giftist hún
Högna Einarssyni, skósmið frá
ísafirði, f. 7. júlí 1919, d. 20.
desember 1979. Foreldrar hans
voru Einar Einarsson skósmið-
ur og Svanhildur Jónsdóttir.
Börn þeirra eru fjögur: Sigurð-
ur Pétur, rafvélavirkjameistari
á Akureyri, f. 8. nóvember
1945, maki Elín Jóhannesdóttir,
þau eiga fjórar dætur og fimm
barnabörn; Einar, skósmíða-
meistari í Reykjavík, f. 27. maí
1947, maki Sigríður Guðmunds-
dóttir, þau eiga þijá syni; Sig-
rún, tannsmíðameistari Mos-
fellsbæ, f. 5. janúar 1950, maki
Jón Á. Stefánsson sölustjóri, og
eiga þau tvö börn; og Hilmar,
skósmíðameistari í Reykjavík,
f. 1. október 1957, maki Ágústa
Þórisdóttir, þau eiga tvö börn
og Hilmar á son, sem alinn er
upp hjá þeim. Útför Jónborgar
fer fram frá Bústaðakirkju í
dag.
ELSKU amma mín. Mér er mikill
harmur i hjarta við fráfall þitt.
Eg gerði mér ekki grein fyrir því,
þegar ég kom heim frá Þýskalandi
fyrir mánuði, hversu mikið veik úr
varst. Þú hlífðir mér við að vita það
í bréfunum þínum, sem þú skrifaðir
mér af spítalanum.
Hversu þakklát ég er fyrir bréfin
þín enda varst þú mér svo miklu
meira en amma. Þú varst vinkona
mín, sem ég gat sagt allt, sem mér
lá á hjarta.
Varla leið sá dagur, að ég færi
ekki í heimsókn til hennar ömmu
minnar eða hún kom í heimsókn upp
í Byggðarholt til mín og á seinni
árúm þegar hún var hætt að þurfa
að gæta mín fór ég oft og gisti hjá
henni bara til að vera nálægt henni
og tala við hana og ræddum við oft
um Spánarferðina, sem við ætluðum
að fara saman í, bara við tvær vin-
konurnar.
Það mynduðist strax
mjög sterk bönd á milli
mín og ömmu og ég
mun aldrei gleyma því
og get ég ekki full-
þakkað henni hve hún
var ólöt að eltast við
mig um allan bæ og
sækja mig á bílnum
sínum.
Henni entist ekki
aldur til að sjá litla
langömmubarnið, sem
fæðast á í næsta mán-
uði hjá bróður mínum
og unnustu hans, en
þau hlökkuðu svo mikið
til að geta sýnt henni
það. Eg held að bróðir
minn og unnusta hans gleymi því
seint hve glöð hún amma varð, þeg-
ar hún fékk að sjá sónarmynd af
ófæddu langömmubarni sínu.
Amma mín, ég get ekki hætt að
hugsa um þig, og því langar mig til
að setja nokkrar ljóðlínur á blað til
þín er mér komu í hug:
Veist þú, hvernig það er
að verna hérna án þín?
Einn dag, ég veit við hittumst
einn dag saman á ný.
Ég gæfi allt fyrir að sjá þig,
bara einu sinni enn.
Svo erfítt að trúa að ég sjái þig
ei meir.
Þín elskandi dótturdóttir,
Svanhildur.
Okkur langar með örfáum orðum
að minnast elskulegrar tengdamóður
okkar, Jónborgar Sigurðardóttur, og
þakka henni margar góðar samveru-
stundir með fjölskyldum okkar í
gegnum árin. Hún var alltaf boðin
og búin að hjálpa okkur, sauma á
barnabörnin og vera okkur til halds
og trausts í amstri og önnum. Við
minnumst góðrar og myndarlegrar
konu sem vildi allt fyrir sína nánustu
gera. Alltaf var hægt að koma í
heimsókn á öllum tímum og fá mat
eða kaffi og oft fengum við að heyra
að amma Bogga ætti alltaf til ein-
hveijar góðar kökur og nammi í skál.
Við þökkum henni samfylgdina og
allt það góða sem hún kenndi okkur.
Við kveðjum hana með söknuði og
biðjum guð að blessa minningu henn-
ar.
Tengdadætur.
Kær frænka og vinkona, Jónborg
Sigurðardóttir (Bogga frænka), er
látin. Bogga var elskuleg kona, sem
öllum vildi gera gott. Eg hef ekki
þekkt greiðviknari konu. Ef eitthvað
stóð til þá var Bogga alltaf tilbúin
að hjálpa. Allt lék í höndunum henni;
ef eitthvað þurfti að sauma eða útbúa
veislu var það ekki ósjaldan sem við
leituðum til Boggu.
Við erum búnar að þekkjast síðan
ég man eftir mér. Eftir að við flutt-
umst suður var oft farið í heimsókn
til Boggu og Högna. Það var alltaf
gott að koma í heimsókn í Háagerði
og þar vantaði aldrei meðlæti með
kaffinu.
I desember 1979 lést Högni og
var hans sárt saknað af fjölskyldunni
og vinum. Bogga og Högni áttu íjög-
ur börn, Sigurð, Einar, Sigrúnu og
Hilmar, og eru þau öli gift og eru
börnin þeirra 12, svo Bogga átti 12
ömmubörn og 5 langömmubörn.
Þótti Boggu mjög vænt um öll ömmu-
börnin sín og á móti fékk hún mikla
ást frá þeim. Það var mikil hamingja
hjá Boggu þegar Svanhildur dóttur-
dóttur hennar kom heim frá Þýska-
landi 3. ágúst sl. og gat átt þennan
tíma með henni.
Elsku litla sonardóttir hennar, Sig-
rún Hilmarsdóttir, sem varð eins árs
10. september, fær ekki að njóta
umönnunar ömmu sinnar lengur, en
ég veit að amma hennar fylgist vel
með henni.
Fyrir nokkrum árum kynntist
Bogga Guðmundi Þorgrímssyni, góð-
um og elskulegum manni, og ekki
síst sýndi hann sinn innri mann í
veikindum hennar. Við Jói vottum
þér, Guðmundur, innilega samúð
okkar. Elsku Siggi frændi, börn,
tengdabörn, bamabörn, barnabarna-
börn og systur, við vottuin ykkur
innilegustu samúð og biðjum Guð að
styrkja ykkur í sorginni.
Að lokum, Bogga mín, viljum við
Jói og fjölskylda okkar þakka þér
fyrir allt. Minning elskulegrar Boggu
frænku mun lifa hjá fjölskyldu okkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ólöf Þóranna Hannesdóttir.
Jónborg vinkona mín veiktist hast-
arlega í vor og var meira og minna
á spítala eftir það, en henni auðnað-
ist að dvelja hjá Sigrúnu dóttur sinni
síðustu dagana með góðri hjálp frá
Heimahlynningu Krabbameinsfé-
lagsins.
Kynni okkar mynduðust í gegnum
sameiginlega vini okkar á Seyðis-
firði, Hlín og Óla, en þegar þau komu
í bæinn var oft slegið á létta strengi
og farið út að skemmta sér. Þá var
Högni maður Jónborgar lifandi, en
hann lést aðeins sextugur að aldri
árið 1979.
Af þessum kynnum leiddi að menn
okkar stofnuðu bílaleigu sem þeir
ráku í nokkur ár og var þá samgang-
ur svo til daglegur.
Á bjartsýni og fyrirframgróða
bílaleigunnar ákváðum við ásamt
vinahjónum okkar, Ernu og Braga,
að fara í ærlegt orlof, en það höfðum
við ekki veitt okkur fyrr, þá komin
yfir fertugt. Við fórum í páskaferð
til Mallorka og Tenerife og í heim-
leið yfirgáfum við ferðafélaga í Lond-
on, fórum heim um Kaupmannahöfn
með Gullfossi. Þessi ferð stóð í fimm
vikur og hefur yljað okkur um hjarta-
ræturnar allt til þessa dags, því svo
vel féll okkur hveiju við annað.
Jónborg keyrði ekki bíl þegar
Högni lést og fann strax hversu við-
brigðin voru mikil, svo hún dreif sig
í að læra á bíl, þá 55 ára gömul og
var hún órög við að keyra eftir það.
Munaði ekkert um að fara austur á
Seyðisíjörð að heimsækja^ aldraðan
föður á æskustöðvarnar. Árið 1986
sannreyndi ég bílstjórahæfileika
hennar þegar við ákváðum fimm vin-
konur að fara með Norrænu þriggja
vikna túr til Norðurlanda. Við vorum
flórar hér í Reykjvík, en á Seyðis-
firði tók Hlín á móti okkur og bætt-
ist í hópinn. Við fórum á tveimur
bílum til Seyðisíjarðar, þar sem far-
angurinn var þvílíkur, rétt eins og
við værum allar að flytja að heiman.
Enda vöktum við hvarvetna athygli
með töskurnar og mikið hlegið að.
Við fórum í sól og sumaryl þ. 16.
júní, gistum á Akureyri hjá Sigurði
syni hennar, hinn 17. júní er kominn
kalsi í loft, þegar við komum að
Reykjahlíð er okkur sagt að Öræfin
séu að lokast vegna snjókomu. Við
hlustuðum ekkert á þetta og héldum
áfram, en þetta átti eftir að verða
okkur eftirminnilegur dagur og
reyna á öll þolrif og bílstjórahæfi-
leika, því það var bylur og ófærð og
við að ýta eða vera ýtt. En við kom-
umst til Seyðisljarðar þreyttar en
glaðar yfir því að hafa sloppið yfir.
Þessi ferð var okkur mjög skemmti-
leg og erum við oft búnar að hlæja
að „kvinnorna med de store vá-
skorna“ eins og Svíarnir kölluðu það.
Við sáum okkur í anda í næstu ferð
með bakpoka og á strigaskóm, en
sú ferð verður aldrei farin, því nú
eru tvær farnar í ferðina löngu, Jak-
obína mágkona mín og svo Jónborg
nú.
Jónborg var sérlega lifandi og
skemmtileg kona, söngvin, kunni
órgynni af vísum og orðheppin í besta
lagi og var því aldrei deyfð eða
drungi í kringum hana. Hún var með
afbrigðum myndarleg í öllu sem hún
gerði, hvort heldur var saumaskapur
eða matartilbúningur. Margar glæsi-
flíkur og veislurétti hefur hún gert
og ef eitthvað var um að vera hjá
mér, var hún óðara mætt til að
hjálpa. Hún missti mikið þegar Högni
féll frá, en hún átti börnin sín íjögur
og barnaböm, sem voru henni mjög
nákomin öll. Þegar hún var 65 ára
gáfu börnin henni afdrifaríka afmæl-
isgjöf, sem sé ferð um Evrópu með
bændum. Þar kynntist hún fyrrver-
andi bónda, miklum öðlingsmanni,
Guðmundi Þorgeirssyni frá Síðum-
úlaveggjum í Borgarfirði, nú starfs-
manni hjá Landsbanka íslands. Þau
hafa búið saman og átt góða daga
þessi íjögur ár sem hún átti ólifuð.
Nú upplifir hann aftur missi konu
úr sama sjúkdómi, krabbameini, og
hann missti fyrri konu sína úr. En
hann á góðar minningar, eins og við
öll.
Við Guðmundur þökkum vinkonu
okkar samfylgdina og sendum flöl-
skyldu hennar og Guðmundi innileg-
ar samúðarkveðjur og biðjum henni
guðs blessunar.
Ingunn Erla Stefánsdóttir.
Danska fyrirtækið THOR flutti verksmiðjur sínar til Spánar og lækkaði þannig
framleiðslukostnað, án þess að fórna gæðum. Þess vegna kosta THOR vaskarnir
miklu minna en sambærilegir vaskar frá öðrum framleiðendum! Við bjóðum nú
fjölmargar gerðir af gæðavöskum frá THOR.
Dæmi um verð:
Eitt og hálft hólf og borð. Eitt og hálft hólf án borðs.
1000 x 510 mm.
Kr. 10.950 stgr.
620 x 450 mm.
Kr. 7.750 stgr.
Tvö hólf án borðs
800 x 440 mm.
Kr. 0.750 stgr.
S)
Kringlóttur, eitt hólf.
Þvermál 490 mm.
Kr. 5.570 stgr.
Eitt hólf.
300 x 4p0 mm.
Kr. S.550 stgr.
Eitt hólf án borðs.
480 x 440 mm.
Kr. 3.950 stgr.
Eitt hólf og borð.
800 x 440 mm.
Kr. G.7SO stgr.
Eitt hólf og borð.
800 x 440 mm.
Kr. 5.750 stgr.
STÁLVjHSKAR
Besta verð á íslandi!