Morgunblaðið - 13.09.1994, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 13.09.1994, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 43 FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir AÐSTANDENDUR Lýðveldishlaupsins ásamt nokkrum þátttak- endum við verðlauna- og viðurkenningaafhendinguna. Lýðveldishlaupinu lokið 25 þúsund tóku þátt ingagalla, reiknivél og svuntu frá sama fyrirtæki. 1.900 manns fengu gullverðlaunamerki, 2.200 silfur- verðlaunamerki og 2.600 brons- verðlaunamerki. Margir hlupu í öll skiptin 92 einstaklingar fengu viður- kenningarskjöld en þeir tóku þátt I hlaupinu alla daga hlaupsins, alls í 99 skipti, þeirra á meðal fímm ára drengur frá Bíldudal og 87 ára gamall Hafnfirðingur. Ungmenna- félagið Pjölnir í Grafarvogi var með mesta þátttöku í hlaupinu, samtals 9.820 talsins. íþróttafélagið Höfr- ungur á Þingeyri var með mesta þátttöku í hlaupinu miðað við íbúa- fjölda, eða 13 þátttökur á hvem íbúa. Hvort félag fyrir sig fékk verðlaunabikar ásamt 100 þúsund krónum í verðlaunafé. AÐSTANDENDUR Lýðveldis- hlaupsins afhentu á fimmtudag verðlaun til einstaklinga og félaga fyrir þátttöku í hlaupinu, sem stóð yfir frá 15. maí til 21. ágúst. Til- gangur hlaupsins var að minnast lýðveldisstofnunarinnar 1944 og stuðla að hollri hreyfíngu á meðal alls almennings. Þátttakendur voru u.þ.b. 25 þúsund á 270 stöðum um land allt og alls var hlaupið 272 þúsund sinnum, sem jafngildir því að þátttakendur hafí hlaupið sam- tals um 816 þúsund km. Lýðveldishlaupið var þriggja kílómetra hlaup, skokk eða ganga og réðu þátttakendur hraða sínum. Aðalverðlaun til einstaklinga hlaut Jónína Kristjánsdóttir frá Skíðadal í Svarfaðardalshreppi, ferð fyrirtvo til Bandaríkjanna í boði íslenskra sjávarafurða hf. Fjórir fengu æf- Útför Jóhanns Péturs Sveinssonar Minningarsj óður stofnaður EIGINKONA og ættingjar Jóhanns Péturs Sveinssonar, formanns Sjálfsbjargar, landssambands fatl- aðra, hafa komið þeirri ósk á fram- færi að stofnaður verði sjóður til minningar um hann og störf hans í þágu fatlaðra. Þeim sem vilja minnast Jóhanns Péturs er því bent á að í stað blóma og kransa er tek- ið á móti fjárfrarhlögum í sjóðinn, sem verður í vörslu Sjálfsbjargar. Leggja má framlög beint inn á ávísanareikning nr. 1959 í Spari- sjóði vélstjóra í Borgartúni 18 í Reykjavík, sem stofnaður hefur verið í þessu skyni. Einnig er hægt að hringja í síma 17868 eða 29133, til að senda eftirlifandi eiginkonu hans eða ættingjum minningarkort, og tilkynna framlög. Minningarathöfn um Jóhann Pét- ur verður í Hallgrímskirkju í dag klukkan 15 en útförin verður gerð frá Reykjakirkju í Skagafirði á morgun kl. 15. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson HAUKUR Guðlaugsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar við orgel- ið í Selfosskirkju. Orgeltónleikar í Selfosskirkju 70% kjörsókn í prestskosningunum á Selfossi Séra Þórir Jökull Þorsteins- son kjörinn sóknarprestur Selfossi, Morgunblaðið. SERA Þórir Jökull Þorsteinsson vann yfirburðasigur í prestskosn- ingunum á Selfossi á laugardag, 10. september. Þórir Jökull fékk 972 atkvæði sem er tæplega 48% greiddra atkvæða í kosningunum. Alls greiddu 2.027 atkvæði sem er tæplega 70% kjörsókn. Tveir aðrir voru í kjöri, séra Haraldur M. Kristjánsson sem fékk 536 atkvæði og séra Gunnar Sigur- jónsson sem fékk 502 atkvæði. Tólf seðlar voru auðir og 5 ógildir. Kosningin var lögmæt þar sem kjör- sókn var meiri en 50%. „Aðdragandi kosninganna er fyrst og fremst eftirminnilegur tími. Eg er ekki vanur neinu þessu líku og þetta var vissulega vinna þar sem maður tók daginn snemma og var lengi að. Allt það fólk sem með mér vann gerði þetta skemmtilegt og ég er þakklátur fyrir þann áhuga sem framboð mitt fékk. Úrslitin komu mér á óvart og ég var dálít- inn tíma að átta mig á þeim en var undir það búinn að þau færu á hvern veg sem hugsast gat. Þetta eru snögg umskipti og það tekur tíma að hugsa um það sem fram- undan er. Eg vil þakka þeim séra Haraldi og séra Gunnari fyrir drengskap og prúðmennsku í þeirri glímu sem háð var og reyndar Sel- fyssingum öllum,“ sagði séra Þórir Jökull Þorsteinsson. Selfossi. Morgunblaðið. HAUKUR Guðlaugsson söngmála- stjóri þjóðkirkjunnar heldur tón- leika í kvöld, þriðjudag 13. sept- ember, klukkan 20.30. Efnisskrá tónleikanna er sett perlum orgel- bókmenntanna auk umritana sem Haukur hefur sjálfur gert fyrir orgel af Máríuversi Páls Isólfsson- ar og Siciliano úr flautusónötu J.S. Bachs. Tónleikaskráin er helguð minn- ingu um séra Sigurð Pálsson, fyrr- um vígslubiskup. „Ég hélt náið upp á séra Sigurð Pálsson, hann var svo sjálfstæður í hugsun," sagði Haukur Guðlaugsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. ...'4---------- Stofnun Sigurðar Nordals Alrilllliai^ stöðvar með hugbúnaði frá kr. 25.000,- *BOÐEIND- Austurströnd 12. Sími612061.Fax612081 k__________________/ 1 Vinníngstölur laugardaginn (14) (íí) 10. seDt 1994 (24)18$ ^(^34) Qíé) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ A HVERN VINNINGSHAFA 1. 5al5 1 5.202.160 I 2. 4 af 5'1 107.048 i 3. 4al5 144 6.411 4. 3af 5 4.359 494 : Heildarvinningsupphæöþessaviku: 8.813.930 kr. M « upplýsingar:Símsvari91 -681511 lukkulína991002 36. lcikvika, 10-11. sept 1994 Nr. Leikur:________________R'óðin: 1. Göteborg - Frölunda - - 2 2. Ilelsingb. - Landskrona - - 2 3. Norrköplng - AIK 1 - - 4. Trelleborg - Degerfors - - 2 5. Örebro - Malmö FF 1 - - 6. Aston Villa - Ipswich 1 - - 7. Blackbum - Everton 1 - - 8. Liverpool - West Ham - X - 9. Man. City - C. Falace - X - 10. Newcastle - Chelsea 1 - - 11. Norwich - Arsenal - X - 12. Notth For. - ShefT. Wed 1 - - 13. QPR - Covcntry - X - Heildarvlnningsupphæðin: 83 milljón krónur | 13 réttir: 22.190.850 „„1 ^ 12 réttir: f 127.010 1 k' 11 réttir: f 9.080 1 kr. 10 réttir: 1.920 Jkr. Fyrsti áfangi Hofsstaðaskóla í Garðabæ vígður VIÐ vígslu Hofsstaðaskóla voru viðstaddir f.v.: Páll Sigurjónsson framkvæmastjóri ístaks hf., Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ, og Hilmar Ingólfsson, skólastjóri Hofsstaðaskóla. Kostnaður áætlaður 380 millj. FYRSTI áfangi nýs skólahúss Hofs- staðaskóla í Garðabæ var vígður sl. föstudag. Fyrirhugað er að skólinn verði 3.232 fermetrar að stærð auk kjallara sem nýttur verður til ann- arra þarfa en áfanginn sem vígður var fyrir helgi er 2.506 fermetrar, kennslurými á tveimur hæðum og fjölnýtisalur til samkomuhalds og íþróttakennslu. Tvenn undirgöng Hofsstaðaskóli er staðsettur á nýju skóla- og íþróttasvæði í Hofs- staðamýri en fyrirhugað er að iiefja framkvæmdir við nýtt skólahús fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ á svæðinu í haust. Þegar hefur verið gerður nýr íþróttavöllur á svæðinu og fyrirhugað er að reisa þar íþrótta- hús í framtíðinni. Alls er skóla- og íþróttasvæðið tæplega 70 þúsund fermetrar að stærð. í tengslum við byggingu Hofs- staðaskóla var ráðist í umfangsmikl- ar framkvæmdir á aðliggjandi göt- um og svæðum til að tryggja um- ferðaröryggi skólabarna sem verða á aldrinum 6-11 ára. Á Bæj- arbraut voru gerð tvenn undirgöng fyrir fótgangandi og hringtorg var sett upp á Bæjarbraut á gatnamót- um við Karlabraut til þess að draga úr umferðarhraða. Arkitektar bygg- ingarinnar voru Baldur Svavarsson og Jón Þór Haraldsson hjá teikni- stofunni Úti og inni. Áætlaður kostn- aður við byggingu skólans, frágang lóðar og búnaðarkaup er um 380 milljónir kr. Kostnaður við umferð- armannvirki á aðlægum svæðum er áætlaður um 50 milljónir kr. Fyrirlestur um almúga- bækur DR. HUBERT Seelow, prófessor við Erlangenháskóla í Þýskalandi, flytur opinberan fyrirlestur um almúgabækur í boði Stofnunar Sigurðar Nordals, miðvikudaginn 14. september, á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals. Fyrirlesturinn hefst kl. 17.15 í Norræna húsinu. Fyrirlesturinn nefndist „Volks- biicher — folkbeger - almugabæk- ur: Þýzkar metsölubækur fyrir tíma á norðurslóðum“ og verður fluttur á íslensku. Hubert Seelow er kunnur af rannsóknum sínum á íslenskum fornbókmenntum og þýðingum á íslenskum bókmenntum á þýsku. Hann vinnur nú að rannsóknum og útgáfu á þýskum almúgabókum í íslenskum þýðingum frá 17. og 18. öld og nýtur til þess Styrks Snorra Sturlusonar. (TALSKI BOLTINN 36. leikvika, 10.-11. sept 1994 \ Nr. Leikur:_______________Róðin: 1. Cagliari - MUan - X - 2. Cremonese - NapoU 1 - - 3. Foggia - Brcscia 1 - - 4. Gcnoa - Fiorenllna - X - 5. Juvcntus - Bari 1 - - 6. Lazio - Torino 1 - - 7. Padova - Parma - - 2 8. Reggiana - Sampdoria - - 2 9. Acireale - Pescara 1 - - 10. Ancona - Lecce 1 - - 11. Fid.Andria - Cesena - X - 12. Venezia - Como - - 2 13. Vcrona - Palcrmo 1 - - Heildarviiuiingsupphæöin: 8,9 milljón krónur | 13 rétlir: 135.210 1 kr. 12 réttir: 1.770 1 k' 11 réttir: j 170 j kr. 10 réttir: 0 j kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.