Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Hlaðborð í hádeginu alla
virka daga.
Kr. 750
W —Q istorant c—
\sjefc n>i
Suðurlandsbraut 14
sími 811844
isuzu Rotíeo
ameríHuútgáfa. árg. 1991
með öllu. Crænsanseraöur, ekinn 60 þúsund km. Geislaspilari,
sóllúga, samlæsingar, 4ra þrepa sjálfskiptíng, rafdrifnar rúður. Bill í
toppstandi. Skipti möguleg á ódýrari bíl,
góð greiöslukjör.
Uppl. vertir Amar f síma 683884 og 683886.
(J/uri aí/rr/i
Ættfræðinámskeið
& ættfræðibækur
Ættfræðiþjónustan hefur um átta ára skeið haldið ættfræðinám-
skeið fyrir almenning og um 700 manns lært þar til verka að rekja
ættir sínar og frændgarð. Ný námskeið hefjast á næstunni (15-21
klst. grunnnámskeið; einnig námskeið úti á landi og framhalds-
námskeið). Kennsla, þjálfun og leiðsögn í ættarleit, með frábærri
rannsóknaraðstöðu.
Uppl. í s. 27100 og 22275 alla daga kl. 10-17 og 20-22.
Ættfræðiþjónustan tekur að sér gerð ættartalna o.fl. verkefni. - Á
annað hundrað nýlegra og eldri ættfræði- og æviskrárrita til sölu,
m.a. Briemsætt, Knudsensætt, Járngerðar-staðaætt, Reykjaætt
af Skeiðum, Víkingslækjarætt, Thoraren-senætt, Reykjahlíðarætt,
Laxdælir, æviskrár Siglfirðinga, Önfirðingar og ölfusingar.
Magnafsláttur. Bóksöluskrá send ókeypis.
Á sama stað, í Brautarholti 4, er herbergi til leigu.
(D Ættfræðiþjónustan, sími 27100.
Bókhaldsnám, 72 KLST.
Markmiðið er að verða fær um að starfa
sjálfstætt og annast bókhaldið allt árið.
Byrjendum og óvönum bókhaldi gefst
kostur á grunnnámskeiði.
■| Námið felur m.a. /sér:
Dagbókarfærslur og uppgjör í mánaðarlok.
Launabókhald, gerð launaseðla og þeir bæði
hand- og tölvuunnir. Gengið er frá skilagreinum
m.a. um staðgreiðslu og tryggingagjald.
Útreikning skuldabréfa og tilheyrandi færslur.
Lög og reglur um bókhald og virðisauka, gerð
virðisaukaskýrslna.
Afstemmingar.
Merking fylgiskjala, gerð bókunarbeiðna.
Fjárhagsbókhald í tölvu.
Ilnnifalin er m.a. skólaútgáfa fjárhags- og viðskipta
mannabókhalds og 30% afsláttur frá verðskrá
Kerfisþróunar að 45.000 kr. Innritun er hafin.
Kennt er á nýtt Windows Stólpa fjárhagsbókhald
frá Kerfisþróun hf.
ÍDAG
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
Þessi staða kom upp á
Credit Suisse stórmótinu í
Horgen í Sviss. Artur Jus-
upov (2.655), Þýskalandi,
hafði hvítt og átti leik, en
Viktor Gavrikov (2.600),
Sviss var með svart. Hann
lék síðast 26. — Bf6-e7 sem
gaf kost á glæsilegri árás:
sjá stöðumynd
27. Hxh5! - gxh5, 28. Hgl
- Rg6, 29. Bxe6! - Kh7,
COSPER
4
i
Velkomin í skóla - sjónvarpið.
Farsi
30. Df5 - Hg8, 31. Be5 -
Kh6, 32. Bf4+ - Kh7, 33.
Dxh5+ - Kg7, 34. Bh6+
og Garrikov gafst upp því
hann er mát í næsta leik.
Líklegt er talið að Jusupov
fái fegurðarverðlaun fyrir
þessa skák.
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og-14-16
frá mánudegi til föstudags
ILL MEÐFERÐ
Á DÝRUM
ÉG FRELSAÐI fimm
krabba og einn krossfisk
úr einu fiskibúranna við
höfnina þann 22. ágúst
sl.
Þann 30. ágúst sl.
voru önnur dýr komin í
stað þeirra og aftur
sleppti ég lausum fimm
kröbbum og einum
krossfiski.
Ég reikna með að enn
önnur dýr komi í stað
þeirra sem ég gat frels-
að, en tilgangur minn
með verknaðinum er að
vekja athygli á þessari
illu meðferð á dýrunum,
þar sem þau eru með öllu
óvarin fyrir ágangi bama
og annarra sem leið eiga
um höfnina.
Þetta er að mínu mati
ekki rétta leiðin til að
kenna bömunum að bera
virðingu fyrir lifandi ver-
um. Lifandi dýr eru ekki
Ieikföng.
Corina Gericke
dýralæknir.
Gæludýr
Páfagaukur
óskast
PÁFAGAUKUR í búri
óskast. Upplýsingar í
síma 45115.
Svartur kettlingur
í óskilum
KOLSVARTUR kettling-
ur með far eftir hálshól
kom inn í hús við Klepps-
veg sl. sunnudagsmorg-
un. Þeir sem kannast við
kettlinginn hafi samband
í síma 685990.
Hlutavelta
ÞESSIR krakkar héldu hlutaveltu nýlega á
Garðatorgi 3 og ágóðann, sem varð 3.522 krón-
ur, gáfu þær í Barnaspítalasjóð Hringsins, til
þess að fullkominn barnaspítali rísi sem fyrst.
Þau heita Sigríður Dís Guðjónsdóttir, Ari
Guðjónsson og María Ólafsdóttir.
LEIÐRÉTT
Eiginkonan ók ekki
Ranglega var sagt í
frétt í Morgunblaðinu
laugardaginn 3. septem-
ber að kvöldið áður hefði
maður orðið fyrir bíl sem
eiginkona hans ók. Upp-
lýsingar um það fékk
Morgunblaðið hjá lög-
reglu um kvöldið en síðan
kom í ljós að rétt var að
eiginkona mannsins sat í
bílnum en ók ekki.
Misritun
Þau leiðu mistök urðu
í umíjöllun blaðsins um
Iðnómálið s.l. laugardag,
að Haraldur Blöndal var
á tveimur stöðum nefndur
Halldór. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
Víkverji skrifar...
að gladdi að sjálfsögðu Vík-
veija þegar hinn reglufasti
Derrick birtist aftur á skjánum.
Mikill viðbúnaður var um hönd
hafður á heimilinu, algjör þögn var
fyrirskipuð tíu mínútum fyrir byij-
un þáttarins og bömum settar
strangar reglur um hegðun og
framkomu meðan á útsendingu
stæði. Til að fá hina þýsku stemmn-
ingu betur í blóðið fengu hinir full-
orðnu sér eitt bjórglas og það var
einmitt í því andrúmslofti sem þeim
varð hugsað til þýskra drykkjusiða.
Nú hefur Víkverja aldrei þótt bjór
neitt sérlega bragðgóður, en hins
vegar verið afskaplega hrifinn af
bjórdrykk sem einkum er drukkinn
í Norður-Þýskalandi og nefnist
Alster. Er þá blandað til helminga
bjór og Sínalkó, svo að úr verður
ferskur og bragðgóður drykkur,
sem að sjálfsögðu er ekki eins
áfengur.
En þennan drykk er ekki hægt
að útbúa sér hér heima því Olgerð
Egils Skallagrímssonar hætti að
framleiða Sínalkó fyrir nokkrum
árum. Nú spyrja menn sig líklega
hvort ekki megi nota annan gos-
drykk í staðinn, en því er til að
svara að það gengur ekki. Það gild-
ir það sama um bjór og Sínalkó og
Derrick og Klein. Hvorugur getur
án hins verið ef árangur á að nást.
Því er það spurning hvort Ölgerðin
hafí ekki verið einum of fljót á sér
þegar hún hætti framleiðslu á þess-
um ágæta drykk Sínalkó, sem
margir sakna.
xxx
Ilífi bama og unglinga verður
skólinn helsta viðmiðun daglegs
lífs næstu mánuðina, jafnt í daglegu
skóiastarfi og félagslífi. Miklu
skiptir að vel takist til, bæði í hinni
reglubundnu kennslu og tóm-
stunda- og félagsstarfí. Með skói-
unum hefjast svonefnd bekkjarsam-
kvæmi og aðrir mánnfagnaðir nem-
enda í heimahúsum. Þess eru því
miður of mörg dæmi að slík sam-
kvæmi hafi leiðst út í óskapnað. í
dæmi sem Víkveiji þekkir rötuðu
boðflennur á gleðskapinn og settu
ljótan blett á bekkjarpartíið, að
ekki sé talað um þá útreið sem teppi
og húsgögn fengu. Víkveiji þekkir
til í grunnskóla þar sem foreldrar
nemenda í efstu bekkjum hafa sæst
á reglur um heimasamkvæmi. For-
eldrar verða heima þar sem sam-
kvæmi er haldið, gleðskapurinn
skal haldinn þegar frí er í skóla
daginn eftir og skal ljúka um klukk-
an 1 eftir miðnætti, tryggt skal að
allir unglingar fái far heim. Þessar
reglur róa foreldra í sinni, þótt
unglingunum þyki þetta að sjálf-
sögðu hið versta mál!
xxx
i
Hljótt hefur verið um hljómsveit-
ina Mezzoforte frá því hú(n
kom heim úr vel heppnuðu hljóm-
leikaferðalagi til Asíu á síðasta ári.
Sveitin hefur nú tekið upp þráðinn
á ný og hélt um síðustu helgi til
Noregs þar sem hún mun halda 13
tónleika. Tónlist Mezzoforte hefur
notið mikilla vinsælda í Noregi og
tónleikar verið vel sóttir. Tryggustu
aðdáendumir þar í iandi virðast
engu hafa gleymt því uppselt er á
fyrstu tónleikana í Ósló. Sveitar-
menn eru þó við öllu búnir vegna
veiða Islendinga í Smugunni. Þann-
ig sagði Eyþór Gunnarsson hljóm-
borðsleikari á tónleikum Mezzoforte
í Tunglinu áður en haldið var utan
að innan hljómsveitarinnar hefði
skotið upp þeirri hugmynd að
kannski væri affarasælast að spila
undir hentifána frá Belize vegna
stríðsástandsins!