Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Unnusta
Prinsins
►KATJA heitir unnusta Friðriks
krónprins Dana. Hún er ljós-
myndafyrirsæta og þykir föngu-
Iega vaxin. Katja er enda oft
beðin um að silja fyrir á auglýs-
ingamyndum fyrir íþróttaföt og
vönduð undirföt. Hér sést Katja
í samfellu frá danska fjölskyldu-
fyrirtækinu Ulsö Design.
Hálfsex-
tugur faðir
►Breski
rokktón-
listarmað-
urinn Bill
Wyman,
sem nú er á
57. aldurs-
ári, er ekki
dauður úr
öllum æðum
þótt hann hafi gefist upp á
spUamennskunni með RoII-
ing Stones. Eiginkona
hans, Suzanne, ól honum
dóttur nú fyrir örfáum dög-
um og að sögn blaðafull-
trúa Wymans heilsast þeim
mæðgum vel. Fyrir á Bill
Wyman san frá fyrra
hjónabandi, en hann er 31
árs og jafngamall sljúp-
móður sinni Suzanne.
BRÆÐURNIR Andrés og Pétur í hópi ungra aðdáenda.
’li
« = | i;v i?
: m •• v) \* í..
■ /UMvVí X . ^ J
KEPPENDURNIR Guðni Sigurjónsson, Hjalti Úrsus Ámason,
Unnar Garðarsson, Pétur Guðmundsson og Andrés Guðmundsson.
Með krafta
í kögglum
FIMM kraftajötnar leiddu saman
hesta sína á íslandsmótinu í Há-
landaleikum, sem haldnir voru á
Selfossi nýverið. Andrés Guð-
mundsson bar sigur úr býtum, eftir
æsispennandi keppni við bróður
sinn, Pétur Guðmundsson, kúlu-
varpara úr KR. Hlaut Andrés 22
stig en Pétur 21 stig þegar upp var
staðið. Hálandaleikarnir rekja upp-
runa sinn til Skotlands, og koma
keppendur gjarnan fram í skotapils-
um, en Andrés hefur tvívegis sigrað
á slíkum leikum þar í landi nú í
sumar. Hálandaleikamir saman-
standa af fímm keppnisgreinum:
Steinkasti, þar sem 8 kílóa steini
er varpað eins og kúlu, 15 kílóa
lóðakasti, sem kastað er eins og
kringlu, sleggjukasti með skafti,
staurakasti, þar sem notaðir eru
18 feta og 60 kíióa staurar og svo
25 kílóa lóðakasti yfir rá. „Það er
mikið líf og fjör í þessu og áhorfend-
ur yfirleitt fjölmargir og skemmta
sér vel,“ sagði hinn nýkrýndi ís-
landsmeistari kraftajötnanna.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
HINN nýkrýndi Islandsmeist-
ari kraftajötnanna, Andrés
Guðmundsson, í staurakasti.
liiW ir ”■ H /jfjfl
Láttu sannleikann
aldrei eyðileggja
fyrir þér góða
frétt!
Michael Keaton
Glenn Close
Robert Duvall
Frumsýnd um
helgina.
► Aðeins einum manni hefur tek-
ist að ná fimmtán fegurstu og
ríkustu sýningarstúlkum heims
saman til að smella af þeim
mynd. Það er tískukóngurinn
Gianni Versace. Konur sem geta
haft um sjö hundruð þúsund
krónur á dag í laun gætu auð-
veldlega hafnað slikum tilmæl-
um, en fyrir goðið sitt Versace
láta þær sig ekki muna um að
koma saman fyrir myndatöku.
Hæla þær Versace í hástert og
segja að föt hans séu smekkleg
en samt hættulegatælandi. Ekki
verður annað séð á gullkjólum
Fimmtán
fagrar
og ríkar
þeim sem dömurnar bera að þeir
séu tælandi, en um smekkvísina
má líklega deila. Frægustu sýn-
ingarstúlkur heims samankomn-
ar. Efri röð frá vinstri: Emma
Sjoberg frá Svíþjóð, Nadja Auer-
mann frá Þýskalandi, Naomi
Campbell frá Bretlandi, Kate
Moss frá Bretlandi, Beri Smit-
hers frá Bandaríkjunum, Shalom
frá Kanada, Carla Bruni frá ítal-
íu, Olga Pantushenkova frá Rúss-
landi, Christy Turlington frá
Bandaríkjunum, Linda Evange-
lista frá Kanada, Claudia Schif-
fer frá Þýskalandi og Yasmeen
Ghouri frá Kanada. Neðri röð frá
vinstri: Amber Valletta frá
Bandaríkjunum, Trisha Helfer
frá Kanada og Helena Christian-
sen frá Danmörku.
Morgunblaðið/Halldór
Yaldi á brettinu
Fáir gleðjast eins og seglbrettakappar þegar haustlægðirnar
koma, því þeim fylgir kjörvindur fyrir seglbrettasiglingar.
Ekki alls fyrir löngu gekk einmitt ein slík lægð yfir landið
og mátti þá sjá seglbrettakappa sigla á ytri höfninni í
Reykjavík.
Valdimar Kristinsson hefur stundað seglbrettasiglingar
hér og erlendis í ellefu ár, enda núverandi Íslandsmeistari
í greininni. Valdimar sagði að hagstæðustu skilyrðin á ís-
landi fyrir seglbrettasiglingar væru á tímabilinu frá maí og
fram í október, en þess utan yrðu menn að leita út fyrir
landsteinana, þá helst til ensku strandarinnar á Grand
Kanarí, því þar væri nægur vindur að staðaldri og hitinn
um 20 gráður. Valdi taldi að um 500 bretti væru til í land-
inu, en aðeins um 50 sem stunduðu sportið að einhverju
marki og aðeins um 20 sem gætu eitthvað.