Morgunblaðið - 13.09.1994, Side 52

Morgunblaðið - 13.09.1994, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR UNGLINGA Breiðablik bikar- meistari 2. flokks „Við vorum undir eftir fyrri hálfleikinn en vorum aldrei smeykir. Við fengum fullt af færum og vissum að þetta mundi ganga upp,“ sagði fyrir- liði Breiðabliks íöðrum flokki, Atli Már Daðason eftir sigur á ÍA 2:1 í bikarúrslitaleik 2. flokks á Valbjarnarvelli á sunnudag. Blikarnir sem tvívegis höfðu tap- að gegn ÍA á Islandsmótinu spiluðu betur, voru fljótari í knött- inn og náðu oft upp ágætis spili á miðjunni. Það var því heldur gegn gangi leiksins að Guðmundur K. Kristinsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir ÍA. Gunnar B. Ólafs- son jafnaði leikinn í síðari hálfleik með fallegu skoti og ívar Siguijóns- son tryggði Blikum sigur þegar hann komst innfyrir Akranesvörn- ina og sendi knöttinn framhjá traustum markverði ÍA, Árna Gaut Arasyni. „Breiðablik er kvennaveldi og bæði meistaraflokkurinn og annar flokkur eru meistarar og það var kominn tími til að við strákarnir létum hendur standa fram úr erm- um,“ sagði Atli fyrirliði. Komum á óvart „Það bjóst enginn við okkur sterkum og útkoman í sumar hefur komið á óvart þó vissulega séum við svekktir að tapa þessum leik,“ sagði Alfreð Karlsson, leikmaður ÍA. „Tveir silfurpeningar, fyrir Is- landsmót og bikarkeppni er góður árangur og við erum með ungt lið. Aðeins fjórir leikmenn eru á elsta ári og það má því búast við þessum flokki sterkum á næsta ári,“ sagði Alfreð. „Við spiluðum frekar illa í fyrri hálfleiknum en vorum samt marki yfir og mættum afslappaðir til leiks í síðari hálfleikinn. Mér fannst miðjan gefa sig, við náðum ekki að halda boltanum nógu mik- ið.“ Þess má geta að Breiðablik varð síðast bikarmeistari í 2. flokki árið 1978 en það ár er jafnframt fæðing- arár átta pilta í Kópavogsliðinu. ÍA: Árni Gautur Árason - Arnar Geir Magnússon, Viktor Einar Vikt- orsson, Unnar Valgeirsson, - Ragn- ar Már Valsson, Freyr Bjarnason, Alfreð Karlsson, Sturla Guðlaugs- son (Jón Þór Hauksson), Steinþór Ingimarsson - Guðmundur K. Krist- insson, Stefán Þ. Þórðarson. BREIÐABLIK: Gísli Þór Einars- son - Júlíus Kristjánsson, Skúli K. Þorvaldz, Kjartan Antonsson, Ey- þór Sverrisson - Grétar Már Sveins- son, Atli _M. Daðason, ívar Jónsson, Gunnar Ólafsson - Jón Stefánsson, Ivar Sigurjónsson (Kristján Kristj- ánsson). Morgunblaðið/Frosti Sigurður Haraldsson tekúr við verðlaunum Fram fyrir sigur í SV-riðli bikarkeppninnar í 3. fiokki karla. Stórsigur hjá Fram MIKIL harka og óþarfa brot einkenndu leik Fram og KR f bikar- úrslitum 3. flokks í SV-riðli sem leikinn var á sunnudag. Fram var mun betri aðilinn í leiknum og sigraði 5:1. Þrír leikmenn KR fengu að sjá rauða spjaldið. Bjarki Sverrisson skoraði eina markið í fyrri hálfleiknum fyr- ir Fram en Edilon Hreinsson jafnaði metin á annarri mínútu síðari hálf- leiksins fyrir KR. Fram svaraði í næstu sókn sinni með skallamarki Kolbeins Guðmundssonar eftir horn- spyrnu og Bjarki Sverrisson bætti þriðja markinu við. Eftir það voru KR-ingar aldrei líklegir til að jafna leikinn, þrátt fyrir ágæt upphlaup þeirra fengu Framarar bestu færin. Finnur Bjarnason skoraði fjórða markið með föstu skoti með föstu skoti úr vítateignum og Haukur Snær Hauksson það fimmta eftir að vörn KR-hafði opnast illa. Dómaratríóið var reyndar ekki öfundsvert af hlutverki sínu. Nokkur rígur virðist vera á milli liðanna og svo virðist sem sumir leikmenn hafi talið sig eiga óuppgerðar sakir við andstæðinga sína. Lítið gekk upp hjá KR-ingum og þeir létu mótlætið fara í taugarnar á sér. Egill Skúli Þórólfsson var fyrstur að fara af velli og Atli Kristjánsson sem tók við fyrirliðabandinu af Agli fór útaf skömmu síðar. Emil Jóhannesson bættist síðan í hópinn á lokamínút- unum. Ekki hefði verið ósanngjarnt að einn til tveir Framarar hefðu fengið að fara sömu leið fyrir spörk og hrindingar en hvorki Einari Sig- urðssyni dómari né línuverðir sáu ástæðu til þess. „Ég held að annað markið hafi sett okkur út af laginu. Við spiluðum illa og getum ekki kennt dómaranum um hvernig fór,“ sagði Árni Pjeturs- son, leikmaður KR. „Þetta var góð hefnd. KR-ingar voru slakir og fóru að kenna dómar- anum um þegar illa gekk. Við lékum hins vegar mun betur en í úrslitaleik íslandsmótsins," sagði Sigurður Haraldsson, fyrirliði Fram. KA IMorðurlandsmeistari KA varð bikarmeistari í Norður- landsriðli en liðið hafði betur í tveim- ur leikjum gegn Þór. KA sigraði á heimavelli sínum 5:1 og á útivelli 3:4. Aðeins þijú lið tóku þátt í keppn- inni og spyija má hvort ekki sé kom- inn tími á að breyta bikarkeppninni í þessum flokki í landsmót eins og í 2. flokki. Lokastaða 2. flokks A-deildar KR 14 11 1 2 47:17 34 ÍA 14 9 2 3 43:22 29 UBK 14 9 1 4 40:22 28 Valur 14 8 2 4 42:29 26 Fram 14 5 2 7- 29:34 17 ÍBK 14 4 2 8 28:46 14 ÍBV 14 2 4 8 20:37 10 KA 14 1 0 13 15:57 3 Ákveðnir í að snúa leiknum séríhag Við höfum lent undir í leikjum á mótinu og vorum ákveðnir í að láta það ekki buga okkur ef sú staða kæmi upp. Þjálfarinn hressti okkur við í hálfleik og við vorum ákveðnir í að snúa leiknum okkur í hag,“ sagði Andri Sveins- son, leikmaður KR í 2. flokki eftir leikinn gegn ÍA á íslandsmótinu. Okkur hefur alltaf gengið vel þegar við höfum Halla sem þjálf- ara og þekkjum lítið annað en sig- ur. Flestir úr liðinu eru á sínu síð- asta ári og ég á ekki von á að það verði nema tveir til þrír leikmenn sem halda áfram með meistara- flokki,“ sagði Andri. Færin nýttust ekki „Við sköpuðum okkur mörg færi í síðari hálfleiknum en spiluð- um okkur oft út úr færunum. Við sóttum meira í síðari hálfleiknum og segja má að við höfum haldið þeim í vörninni eftir jöfnunar- markið en okkur vantaði að nýta færin betur. Annars mundi ég segja að við höfum spilað vel, þetta er einn af bestu leikjum okkar í sumar,“ sagði Árni Gautur Har- aldsson, markvörður ÍA. Bikarmefstari 2. flokks karla - BREIÐABLIK. Aftari röð frá vinstri: Sverrir Davíð Hauksson liðsstjóri, Anton Bjamason liðsstjóri, Magnús Blöndahl, Hreiðar Þór Jónsson, Eyþór Sverrisson, Gunnar B. Ólafsson, Kjartan Antonsson, Júlíus Kristjánsson, Jón Þ. Stefánsson, Skúli Þorvaldz, Kristján Þorvaldz þjálf- ari, Andrés Pétursson form. knattspyrnudeildar UBK. Neðri röð frá vinstri: Jón Steindór Sveinsson, Ómar Ómarsson, Kristján Kristjánsson, Gísli Heijólfsson, Atli Már Daðason fyrirliði, Gísli Þór Einarsson, Grétar Már Sveinsson, ívar Siguijónsson og ívar Jónsson. Sunna Gestsdóttir náði góðum árangri í spretthlaupum. Norræna unglingalandsliðskeppnin ífrjálsum íþróttum: Tvö Islandsmet og margir bættu sinn besta árangur TVÖ íslandsmet unglinga féllu á norræna unglingaland- skeppninni ífrjálsum íþróttum sem fram fór í bænum Hudd- inge í Svíþjóð fyrir skömmu. Sveinn Margeirsson setti met í 1500 m hlaupi með þvi'að hlaupa vegalengdina á 4:01,49 mín en hann varð engu að síð- ur í síðasta sæti. Landssveit íslendinga hljóp 4 x 100 m á 42,27 sekúndur sem er met í flokki 19-20 ára kvenna. Sveit íslands skipuðu þær Rakel Tryggvadóttir, Guðlaug Halldórs- dóttir, Sólveig Björnsdóttir og Sunna Gestsdóttir. Á mótinu var keppnisfólk frá Svíþjóð, Noregi og Finnlandi sem sendu tvo einstaklinga í hveija grein en Danir og íslendingar sendu að jafnaði einn keppenda í hverja grein. Islendingar komust fimm sinn- um á verðlaunapall. Sunna Gests- dóttir varð önnur í 100 m hlaupi á 12,18 sek. Jóhannes Marteinsson úr ÍR varð þriðji í 100 m hlaupi karla á 10,93 sekúndum og Vala Flosadóttir stökk 1,74 í hástökki sem dugði I þriðja sæti. Þremenn- ingarnir náðu sínum besta árangri frá upphafi í þessum greinum. Sunna náði öðrum verðlaunum sín- um í 200 m hlaupinu en hún kom í mark á 24,62 sekúndum. Þá fékk íslensk - dönsk hlaupasveit með þær Sunnu og Guðlaugu innan- borðs þriðju verðlaun í 4 x 400 m boðhlaupi kvenna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.