Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 56

Morgunblaðið - 13.09.1994, Page 56
140 manna sjónvarpslið á sérútbúinni flugvél frá Þýskalandi Reiknað -með 12-15 milljónum áhorfenda Keflavík. Morgunblaðið EITT HUNDRAÐ og fjörutíu manna lið á vegum þýsku sjón- varpstöðvarinnar RTL var statt hér á landi í gær til að taka upp spurningaþátt þar sem ein- göngu er fjallað um Island. Spurningaþættinum stjómar Frank Elstner sem er einn þekktasti sjónvarpsmaður í Þýskalandi. Hann verður 90 mínútna langur og er gert ráð fyrir að 12 til 15 milljónir manna munu sjá þáttinn. Til Islands kom sjónvarpsfólkið með vél frá þýska félaginu Luft- hansa sem er innréttuð sem sjónvarpsver og mun vélin vera sú fyrsta sinnar tegundar. Að sögn Arthúrs Björgvins Bollasonar, sem Frank Elstner fékk sérstaklega til að hjálpa «^við upptökur á þættinum, verð- ur hann bæði tekinn upp á Is- landi, í stúdíói í Þýskalandi og um borð í flugvélinni þar sem spurningaþátturinn hefði raun- Morgunblaðið/Bjöm Blöndal MEÐAL atriða sem tekin voru upp í Bláa lóninu í gær var kappróður á fleytum úr frauðplasti. ar hafist í 10.000 feta hæð á leið til Islands. Honum var síðan fram haldið í Bláa lóninu þar sem sigurvegari var krýndur. Að loknum tökum í Bláa lón- inu var haldið í Heiðmörk þar sem grillað var lamb og síðan skemmti þýska sjónvarpsfólkið sér í Perlunni þar sem m.a. rúss- neskir listamenn komu fram. Með í förinni var heimsmeistar- inn í 200 metra skriðsundi, Franziska van Almsick. Hún var að kynna nýja tegund af sport- bíl frá Opel sem nú var sýndur í fyrsta sinn. Einnig ætlaði hóp- urinn að heimsækja forseta ís- lands, Vigdísi Finnbogadóttur. Hækkun plastum- búða fer út í verðlag HÆKKUN sem orðið hefur á hrá- efnisverði til plastiðnaðar upp á síð- kastið mun leiða til 6-12% hækkun- ar á plastumbúðum frá Plastprenti næstkomandi fimmtudag, en fyrir- tækið er hið stærsta í plastfram- leiðslu hérlendis. Eysteinn Helga- son, framkvæmdastjóri Plastprents, sagðist telja að þessi hækkun færi áfram út í verðlagið þar sem um- búðir væru oft stór hluti í vöruverði. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hefur aukin eftir- spurn eftir hráefni til plastfram- leiðslu leitt til 30% hækkunar frá því í júlí, og spáð er enn frekari hækkunum á næstunni. Eysteinn Helgason sagði að það sem einkenn- andi væri fyrir þessa hækkun núna væri hve snöggt hún kæmi, en verð- ið hefði lengi verið mjög lágt og stöðugt. Hann sagði að hækkun hefði ekki orðið fyrr en nú á framleiðslu- vörum Plastprents þar sem til hefðu verið birgðir bæði af hráefni og til- búnum umbúðum, en nú kæmi hækkunin hins vegar til fram- kvæmda og yrði hún á bilinu 6-12% eftir því um hvaða efni væri að ræða. Svend Aage Malmberg Fiskvernd grundvall- aratriðií Smugunni SVEND AAGE Malmberg haffræð- ingur segir að eins og málum sé háttað séu veiðar íslendinga utan við 200 sjómílna landhelgismörk í Barentshafi að mörgu leyti eðlileg tilraun. Þessum veiðum verði þó að stilla í hóf og ekki megi gleyma því að fiskurinn sé veiddur á kostnað sjómanna í Norður-Noregi og Rúss- landi sem stunda heimamið. Varð- andi fískveiðar íslendinga í Barents- hafí séu fiskverndarsjónarmið .grundvallaratriði. Svend Aage bendir á að Barents- haf teljist haffræðilega til strand- hafa og sé auk þess landgrunnshaf. Hann segir að ef Barentshaf sé út- haf þá séu íslandsmið það einnig. íslendingar virðist láta lönd og leið að á þessum slóðum séu þeir að fiska úr fískistofnum sem lotið hafa stjórnun strandþjóða. Nú beitum við í okkar þágu ýmsum þeim rökum sem andstæðingar okkar í gengnum þorskastríðum notuðu. Svend Aage telur að orð sem lát- in hafí verið falla um hefðarrétt ís- lendinga til fiskveiða við Svalbarða virðist vitna um óskþyggju og sjálfs- blekkingu okkar. „íslendingar virð- ast taka sér „rétt“ með valdi til aukningar á lífsrými. Við virðumst nær því að líkjast Serbum með sína Stór-Serbíu í huga en friðsamlegri fískveiðiþjóð á 100.000 ferkílómetra eyju í úthafinu...“ segir í greininni. ■ Veiðar íslendinga.../24 Flugleiðir skipta um kný- venda á Boeing-þotunum FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að skipta um knývenda í hreyflum allra Boeing-flugvéla sinna. Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða segir ákvörðunina ekki standa í neinu sambandi við flugslysið í Pittsburgh í síðustu viku en rannsókn beinist meðal annars að því hvort bilun í knývendi hafi valdið því að Boeing 737-300 þota USAir fórst. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Fjárgæslumenn í réttunum Blönduósi. Morgunblaðið. FJÖLMENNT var í Undirfellsrétt í Vatnsdal á föstudag. Þar komu meðal annars nokkrir kunnir „fjárgæslumenn“ og má þar nefna fyrrverandi seðlabankastjóra, Jóhannes Nordal, og núver- andi fjármálaráðherra, Friðrik Sophusson. Er ekki að efa að þessir menn hafi litið með velþóknun á ávöxtun fjárins. ■ Fénu fer fjölgandi/14 „Ákvörðun um þessar breytingar er fyrir löngu tekin og varahlutirn- ir komnir til landsins. Hér er um endurhönnun á knývendum að ræða. Það var ákveðið að ráðast í verkið við fyrsta hentugleika og sú stund er að renna upp. Þetta er að öllu leyti að frumkvæði stjómenda Flugleiða, það komu engin til mæli um þessar breytingar, hvorki frá bandarísku flugmálastjóminni né Boeing-verksmiðjunum," sagði Ein- ar Sigurðsson. Að sögn Einars verður breyting- unum á Boeing 737-400 flugvélum Flugleiða lokið fyrir jól. Breytingar á knývendum Boeing 757-200 flug- vélanna verða framkvæmdar sam- hliða skoðun á þeim eftir áramót en þar er um flóknari breytingar að ræða en á 737-þotunum. „Það er ásetningur Flugleiða að tækjabúnaður flugvéla félagsins sé jafnan sá ömggasti sem völ er á. Þessi breyting sem stendur fyrir dyrum á knývendum Boeing-þot- anna er ákveðin með það í huga. Hún er tekin í þeirri trú að þetta auki öryggi flugvélanna,“ sagði Einar Sigurðsson. Minni slysatíðni Að sögn Einars sýna mælingar að slysatíðni á Boeing 737 flugvél- um af undirgerðunum -300, -400 og -500 er mun minni en öðrum flugvélategundum eða 0,53 óhöpp á hverja milljón flugtaka. Fyrir Boeing-727 þotur er mælistuðullinn 0,87 2,67 fyrir DC-10 og 5,49 fyrir DC-8, svo nefndar séu flugvélateg- undir sem Flugleiðir hafa notað, og 2,5 fyrir Airbus A320 og A321. Til samanburðar hefur ekkert slys orðið á Boeing 757-þotum eins og Flugleiðir eiga. ■ Athyglinni beint að/20 ------*—*--*---- Ókinní í fjárhóp Sólbyrgi. Morgunblaðið. EITT lamb drapst þegar bíl var ekið inn í fjárrekstur við Ðeildar- tungu í Borgarfírði í gær. Aflífa þurfti fjögur lömb eftir áreksturinn og tvö voru í gær undir læknishendi. Jón bóndi Björnsson í Deildar- tungu var að reka fé sitt heim úr réttunum í gær þegar óhappið varð. Hann var að koma yfir blindhæðina hjá Deildartungu þegar bíll kom akandi yfir hæðina á móti hópnum. Bremsur bílsins virkuðu ekki, hann lenti inni í miðjum fjárhópnum og stöðvaði ekki fyrr en eftir nokkur hundruð metra. Sá sem reið á eftir hópnum var utan vegar og hann sakaði ekki. Bílstjórinn skildi eftir nafnspjald sitt og ók svo áfram á bremsulaus- um bílnum. Lögreglunni í Borgar- nesi var gert viðvart um för manns- ins en ekki er vitað til að hún hafi haft afskipti af honum. Nú er réttatíminn hafinn og þá verða ökumenn að taka tillit til umferðar búsmala á vegum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.