Morgunblaðið - 11.11.1994, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Reykjavíkurhöfn bætir
hafnaraðstöðu olíufélaga
BÆTT hafnaraðstaða fyrir olíufélögin í Örfírisey
og í Laugamesi er næsta verkefni Reykjavíkur-
hafnar. Verið er að vinna að fjárhagsáætlun
næstu ára og er lausleg kostnaðaráætlun vegna
endurbóta í Örfírisey um 400 milljónir króna,
að sögn Hannesar J. Valdimarssonar hafnar-
stjóra. Þá er verið að meta hvaða áhrif kana-
díska olíufyrirtækið Irving Oil gæti haft á fyrir-
hugaðar framkvæmdir ef svo færi að fyrirtækið
hæfí starfsemi hér á landi.
Beiðni hefur legið fyrir
Birgðastöðvar olíufélaganna eru í Örfírisey
og í Laugamesi og á hvomgum staðnum er
bryggjuaðstaða fyrir millilandaskip í olíuflutn-
ingum. Skipin leggjast við baujur og fer af-
greiðsla olíunnar um neðansjávarleiðslur í land.
Hannes sagði að aðstaðan væri að sumu leyti
ófullkomin þegar skip þyrftu að leggjast að bauju
auk þess sem leki gæti komist að neðansjávar-
leiðslu eins og gerst hefur bæði við Örfírisey og
í Laugamesi. í vondu veðri gæti þó reynst erf-
itt að leggjast að bryggju en það væri þó að
öllu jöfnu betra.
„Þessi beiðni olíufélaganna hefur legið fyrir
hjá okkur og höfum við verið að vinna að undir-
búningi, það er fjármögnun og hvenær hægt
yrði að ráðast í verkefnið," sagði hann. „For-
gangsverkefnin hafa verið uppbygging vöm-
hafnar í Sundahöfn og endurbætur í gömlu höfn-
mni."
Millilandaskip
Sagði hann að hugmyndin væri að lengja
vamargarðinn sem þegar er fyrir hendi í Örfíris-
ey og gera þar nýja bryggju fyrir millilandaskip
en aðstaða fyrir skip í strandflutningum er við
vamargarðinn. í Laugamesi við Klettasvæðið í
Sundahöfn er verið að undirbúa nýtt hafnar-
svæði og er verið að kanna hvort þar mætti
nýta hafnarbakkann fyrir olíuflutninga og al-
menna vömflutninga.
„Ég hef litið svo á að þetta sé næsta stóra
verkefnið sem Reykjavíkurhöfn ræðst í,“ sagði
Hannes. „Ég þori ekki að segja hvenær en við
erum að vinna að fjárhagsáætlun næstu ára,
þar sem þetta er framkvæmd sem tekur nokkur
ár og við þurfum að skoða fjármögnunina. Laus-
legar áætlanir eru til og við reiknum með að
bryggja með vömum og öðm í Örfírisey geti
kostað minnst 400 milljónir króna. í Sundahöfn
yrðu olíuflutningarnir hluti af öðrum flutningum
og erfiðara er að segja til um kostnaðinn.“
Morgunblaðið/Kristinn
HUGMYNDIR eru uppi um að lengja vamargarðinn við Örfirisey og gera þar bryggju fyrir millilandaskip í olíuflutningum en eins og
sjá má er þar einungis aðstaða fyrir minni olíuflutningaskip í strandferðum.
Kosnaður Rafmagnsveitu Reykjavíkur vegna vanskíla 50 milljónir á ári
Orkukostnaður 6-800 heimila
tapast vegna vanskilanna
KOSTNAÐUR Rafmagnsveitu
Reykjavíkur vegna vanskilaskulda,
sem ekki tekst að innheimta, er um
50 milljónir króna á ári og samsvar-
ar raforkunotkun 6-800 heimila í
eitt ár, að sögn Þórsteins Ragnars-
sonar, deildarstjóra viðskiptadeildar
RR. Siðustu misseri hafa vanskil
raforkunotenda, einkum heimila,
aukist að nýju eftir að innheimtu-
hlutfallið hafði batnað ár frá ári
allt frá 1985. Þórsteinn segir að
RR sé að jafnaði með innheimtu-
og lokunaraðgerðir í gangi gegn
3% notenda en um 15% notenda
draga í þijá mánuði eða iengur að
greiða útsenda reikninga.
Að sögn Þórsteins Ragnarssonar
má áætla að um það bil 0,5% af
um 4 milljarða króna ársveltu Raf-
magnsveitu Reykjavíkur sé afskrif-
að vegna vanskila. Þar sé um að
ræða um 20 milljónir króna og
ætla megi að um 30 milljónir af
þeim 100 milljónum sem öll inn-
heimta stofnunarinnar kosti, að
meðtalinni útsendingu greiðsluseðla
til allra notenda, fari í að innheimtu-
tilraunir hjá þeim 5% notenda sem
aldrei komist í skil.
í þessum hópi séu ríflega tvö
þúsund notendur, sem fái sendar
ítrekanir, viðvaranir og heimsóknir
frá innheimtumönnum áður en til
lokunar komi.
Þetta sé sá hópur sem eftir sitji
af þeim u.þ.b. 15% sem láti útsenda
reikninga bíða lengur en 3 mánuði
framyfír gjalddaga áður en greitt er.
Þórsteinn sagði að þeim sem
lentu í miklum vanskilum við Raf-
magnsveitu Reykjavíkur færi nú
fjölgandi á. ný en skíl hefðu batnað
ár frá ári 1985-1993.
„Það eru sérstaklega heimilin
sem eru með verri skuldastöðu en
áður. Fyrirtækin standa í stað.
Kaupmáttur hefur rýrnað og það
er verra hljóð í fólki nú en áður í
þau 10 ár sem ég hef verið hér.
Áður gátu menn aukið við sig vinnu
eða fundið aðrar smugur en nú
reynist erfíðara að útvega þá pen-
inga sem vantar," sagði Þorsteinn.
Hann sagði að í vanskilahópnum
lenti annars vegar fólk sem yrði
fyrir tímabundnu tekjutapi vegna
samdráttar og erfiðs atvinnu-
ástands og hins vegar láglaunafólk
með þunga framfærslu, einstæðar
mæður og óreglufólk.
Forsvarsmenn RR hafa nú til
athugunar hugmyndir um upptöku
tryggingagjalds, sem nemi áætlaðri
2-3 mánaða orkunotkun og verði
krafíst af þeim sem lenda í vanskil-
um. Einnig eru uppi áform um að
koma upp fyrirframgreiðslumælum
þar sem notendur kaupi raforku af
segulspjöldum sem veiti aðgang að
ákveðnum fjölda kílóvattstunda.
Spjöldin vari notendur við þegar
um 90% orkunnar hafí verið notuð.
„Hvorttveggja úrræðið yrði fyrst
og fremst notað í viðskiptum við
fyrirtæki, sem hætta rekstri verði
þau gjaldþrota. Áhættan er þvi
meiri þar en hjá einstaklingum,“
sagði Þórsteinn og sagði gjöld af
þessu tagi tíðkast í flestum öðrum
löndum.
Þá sagði hann að í bígerð væri
að hvetja notendur til að greiða
reikninga sína með beingreiðslum
í gegnum debetkort, sem væri ódýr-
asta innheimtuaðferðin, með því að
veita afslátt sem numið gæti 7-800
krónum á ári hjá meðalheimili.
Mál dætra
Sophiu Hansen
Urskurður
29. des.
MÁL Sophiu Hansen var tekið
aftur upp í undirrétti í Istanbúl
í Tyrklandi í gær. Hæstiréttur
hafði ógilt dóm undirréttar
vegna málsmeðferðar og krafíst
þess að dómarinn kynnti sér
gögn málsins betur.
Urskurður um forræði dætra
Sophiu Hansen og Halims A1
verður kveðinn upp 29. desem-
ber. Sophia sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hún
hefði notið verndar lögreglu
inni í dómhúsinu og að henni
hefði fylgt fjöldi óeinkennis- og
einkennisklæddra lögreglu-
manna. Halim A1 kom vopnaður
í dómhúsið og var hann að sögn
Sophiu færður inn í herbergi á
1. hæð svo hægt væri að af-
vopna hann.
Segir Sophia að Halim hafí
brugðið við að sjá hana og að
lögfræðingur hans hafí brugðist
reiður við þeirri „móðgun við
skjólstæðing sinn“ að láta lög-
reglu fylgja Sophiu. Segir hún
Halim hafa sagt að lögreglu-
fylgdin væri hlægileg því ekki
væri hægt að gæta hennar allan
sólarhringinn.
Sjö bjóða
sig fram
SJÖ sjálfstæðismenn höfðu
boðið sig fram í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra í gærkvöldþ
en framboðsfrestur rann út á
miðnætti. Tveir bjóða sig fram
í 1. sætið, Vilhjálmur Egilsson
þingmaður og séra Hjálmar
Jónsson, varaþingmaður á
Sauðárkróki.
Auk þingmannsins og vara-
þingmannsins bjóða eftirtaldir
sig fram: Ágúst Sigurðsson,
bóndi á Geitaskarði í Langad-
al, sækist eftir einu af efstu
sætunum. Friðrik Hansen Guð-
mundsson, verkfræðingur i
Reykjavík, stefnir á 2.-3. sæti.
Runólfur Birgisson, forstjóri á
Siglufírði, sækist eftir 2. sæt-
inu. Sigfús Jónsson frá Söndum
í Miðfírði, framkvæmdastjóri
Ferskra afurða á Hvamms-
tanga, stefnir á 2.-4. sæti. Þóra
Sverrisdóttir, húsmóðir á
Stóru-Giljá, stefnir að kjöri í
4. sætið. Prófkjör sjálfstæðis-
manna er opið og það verður
haldið 26. nóvember.
Boeing 757
lendir á
Egilsstöðum
BOEING 757-þota Flugleiða
lenti á Egilsstaðaflugvelli í gær
á leið til Glasgow í Skotlandi.
Þetta mun vera stærsta flug-
vél, sem lent hefur á Egilsstaða-
flugvelli.
Þotan var í leiguflugfi til
Glasgow og kom með á fjórða
tug farþega frá Keflavík, en á
Egilsstöðum slógust 155 Aust-
fírðingar í förina.
Að sögn lögreglu á Egilsstöð-
um þurfti að sópa flugbrautina
mjög vandlega áður en þotan
lenti, til þess að smásteinar
soguðust ekki í hreyfla hennar.
Athygli heimamanna vakti að
þotan þurfti álíka langa flug-
braut til að hefja sig á loft og
Fokker-vélarnar, sem notaðar
eru í innanlandsflugi.