Morgunblaðið - 11.11.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.11.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 17 Aflinn fyrstu tvo mánuðina, sept. og okt., fiskvejðjárjn 1994/1995 og 1993/1994 Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Steinbítur |j^a6 Grálúða Skarkoli Úthafskarfi IJf6 Annar botnfiskur Botnfiskur alls —.-^Síld ■^pf^Loðna Úthafsrækja ^ Innfjarðarækja '^9 Humar J Hörpuskel ígulker 1| Jf <n 20.000 40.000 Afli samtals 60.000 80.000 100.000 tonn / sept.-okt. 1994 299.390 Heimild: Aflatölur Fiskistofu. Fiskveiðar á haustmánuðum Veiðar í SmugTinni bæta upp skerðingu þorskkvótans hér ÞORSKAFLI okkar á íslandsmiðum í októbermánuði varð aðeins um 9.000 tonn, sem er með allra minnsta móti um langt árabil. Hins vegar veiddu skip undir íslenzkum fána um 7.000 tonn af þorski í Barentshafi í mánuðinum og því er þorskafli íslenzkra skipa alls um 16.000 í þessum mánuði. Þá er ekki talinn afli skipa í eigu íslend- inga, sem skráð eru annars taðar. Þorskafli af Islandsmiðum í október í fyrra varð alls 13.540 tonn sam- kvæmt aflatölum Fiskistofu. Sé hins vegar litið á afiann fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins, septem- ber og október, kemur í ljós að heildarafli þetta tímabil, en þá er afli í Barentshafi ekki meðtalinn, hefur verið 155.583 tonn, sem er mun minna en sama tímabil í fyrra. Þá veiddust nærri 300.000 tonn og muna mestu að nú veiddust aðeins 7.700 tonn af loðnu, en 154.306 tonn í fyrra. Botnfiskafli dregst einnig saman, fellur úr 82.588 tonnum í 59.409. Langmestur samdrátturinn er í þorskafla, en af íslandsmiðum nú fengust aðeins 18.748 tonn á móti 33.206 í fyrra. Sé afli skipa undir íslenzkum fána úr Barentshafi hins vegar tekinn með í myndina, bæt- ast 23.300 tonn við og er heildar- þorskafli þetta tímabil nú því um 42.000 tonn. Þorskafli íslenzkra skipa í Barentshafi í fyrra var ekki svo mikill, en nú bæta veiðarnar þar upp skerðinguna heima fyrir. Mikið veitt af rækju Síldveiði hefur gengið betur í haust en í fyrra og munar þar rúm- um 20.000 tonnu. Af úthafsrækju hafa nú aflazt rúmlega 14.000 tonn, um 5.500 tonnum meira en í fyrra. Ýsan hefur einnig skilað sér betur, en afla af ufsa, karfa og grálúðu hefur dregizt saman. Síldin ofmetin? BÚIST er við, að kvóti í norsku vorgotssíldinni, norsk-íslenska síld- arstofninum, verði 513.000 tonn 1995 en á þessu ári hefur verið leyft að veiða 485.000 tonn. Fiskifræð- ingar segja nú, að hrygningarstofn- inn hafi verið ofmetinn um eina milljón tonna á síðasta ári en ACFM, ráðgjafarnefnd Alþjóðahafrann- sóknaráðsins, áætlar, að hann verði 3,8 milljónir tonna 1996. Ráðgjafarnefndin telur, að hrygningarstofn síldarinnar muni fara niður fyrir 2,5 milljónir tonna á næsta ári en fyrr á uppbyggingar- ferlinum var litið á það sem lág- mark. 1996 á hann hins vegar að vaxa mikið vegna mjög stórs ár- gangs frá 1992 og mun hann ráða miklu um stærðina fram til 1999. Árgangarnir frá 1993 og ’94 eru hins vegar litlir. Ein af ástæðunum fyrir því, að ACFM vill fara varlega í sakirnar í veiðinni er sveppasýking í síldinni. Niðurstöður norskra fiskifræðinga eru, að um 10% síldarinnar séu sjúk en rússneskir fiskifræðingar segjast hafa mælt torfur þar sem allur fisk- urinn var sýktur. Norðrrienn hafa þó nokkrar efasemdir um það. Heildarveiði af Norðursjávarsíld til neyslu er nú 440.000 tonn en ACFM leggur til, að kvótinn verði minni á næsta ári eða 276.000 tonn. Þar að auki er gert ráð fyrir 127.000 tonnum í bræðslu og 100.000 tonn- um í annarri veiði. Miðað við þetta er talið, að hrygningarstofninn verði 1,1 milljón tonn á næsta ári. ÚR VERIIMU Aðgerðir vegna vanda smábátaútgerðar Fiskveiðasjóður beð- inn að rýmka lánsreglur SJAVARUTVEGSRAÐUNEYTIÐ hefur farið fram á það við Fisk- veiðasjóð að komið verði sérstak- lega til móts við útgerðir smærri báta, þar á meðal smábáta á afla- marki sem hafa ekki haft aðgang að sjóðnum til þessa. Þetta kom fram hjá Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráðherra í umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær um vanda smábáta á afla- marki. Þorsteinn sagði gild rök fyrir því að smábátaútgerð ætti að sitja við sama borð og aðrir við ráðstafanir af þessu tagi. Matthías Bjamason þingmaður Sjálfstæðis- flokks sagði það ranglátt hvernig smábátum hefði verið haldið fyrir utan Fiskveiðasjóð og tók Þor- steinn Pálsson undir þessa skoðun Matthíasar. Gunnlaugur Stefánsson, sem hóf umræðuna, sagðist óttast að Vandi smábátanna ræddur á Alþingi •breyttar úthlutarreglur Fiskveiða- sjóðs kæmu að litlum notum þar sem eigehdur smábáta hefðu ekki lengur veð til að standa undir lán- um úr sjóðnum og þörf væri á sértækum aðgerðum stjórnvalda til að bjarga smábátaútgerð í land- inu. Gunnlaugur sagði að eigendur þessara báta stríddu nú við mjög erfiðar og alvarlegar aðstæður vegna samdráttar I þorskaflaheim- ildum. Og vegna þess að smábáta- útgerðirnar hefðu ekki aðgang að opinberum sjóðum en þyrfti þær að eiga viðskipti við bankastofnan- ir og kaupleigur með háum vöxtum og stuttum lánstíma. Nú væru bankarnir að herða innheimtuað- gerðir og gengju hart að útgerðum bátanna og eignum þeirra. Kvótakerfið hefur brugðist Gunnlaugur sagði að kvótakerf- ið hefði brugðist í þessu máli sem stjórnunartæki í fiskveiðum því það hefði ekki skilað sér í auknum fiskveiðiheimildum. Þorsteinn Pálsson sagði það rétt að skertar aflaheimildir hefðu valdið útgerð á íslandi verulegum erfiðleikum. Hins vegar væri kvótakerfið ekki orsökin því að jafn illa væri komið fyrir þorskstofninum og raun bæri vitni, heldur hefði Islendingum mistekist að framfylgja verndunar- aðgerðum. Eggert Haukdal þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði að núver- andi fiskveiðistjórnun væri sprung- in framan í feður sína og þjóðina og hefði gersamlega brugðist við verndun fiskistofnanna. 11. -19. nóvember Jotun málning Jotun lökk Litgreiningartölvan blandar draumalitinn þinn, sama hver hann er. Verðdæmi: Jotaplast 03,10L 3.987 kr. Jotaplast 07,10L 4.633 kr. HÚSASMIÐJAN Skútuvogi 16, Reykjavík Helluhrauni 16, Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.