Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDÁGUR 11. NÓVEMBÉR 1994
MORGUNBLAÐID
91895
AUGLÝSING UM STARFSLAUN LISTAMANNA ÁRIÐ 1995
Starfslaun handa listamönnum
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til
handa listamönnum árið 1995, í samræmi við
ákvæði laga nr. 35/1991. Starfslaunin eru veitt
úr fjórum sjóðum, þ.e:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listamannalauna,
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir
kl. 16.00 mánudaginn 16. janúar 1995.
Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna"
og tilgreina þann sjóð, sem sótt er um laun til.
Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath.: Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun, veröur
umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að
hann hafi skilað stjórn listamannalauna skýrslu um
störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um lista-
mannalaun nr. 35/1991.
Reykjavík, 7. nóvember 1994.
Stjórn listamannalauna.
IDAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 9-5 frá mánudegi
til föstudags
Tapað/fundið
Hjól
tapaðist
STÓRT svart ömmuhjól
með stórum svörtum
barnastól hvarf frá
Freyjugötu aðfaranótt
fimmtudagsins. Eiganda
hjólsins er afar sárt um
barnastólinn því hann var
fenginn að láni, og er sá
eini sinnar tegundar hér á
landi. Geti einhver gefið
upplýsingar vinsamlega
hafið samband við
Guðnýju í síma 691287.
Gullarmband
tapaðist
KONA skrifaði Velvak-
anda eftirfarandi línur:
Mánudaginn 7. nóvem-
ber kom vinkona mín, sem
býr í sveit, í bæinn til að
versla og var svo óheppin
að týna gullarmbandi með
mjög fallegum steinum
með guillengjum á milli.
Hún fór m.a. í Kringluna,
í Hagkaup og fleiri versl-
anir. Ef einhver heiðarleg-
ur finnandi hefði nú þetta
14 karata gullarmband
hjá sér yrði það henni gleði
ef haft yrði samband í
síma 60260 að morgni eða
eftir klukkan 16.
Kvengleraugu
töpuðust
GLERAUGU í gylltri um-
gjörð í ljósbrúnu leður-
hulstri með smellu töpuð-
ust í Breiðhoitinu 21.
október sl. sennilega í Bíó-
höllinni. Skilvís finnandi
vinsamlega hafi samband
í síma 73570 eða 871211.
Kápa tapaðist
GULBRÚN kasmír-ullar-
kápa, tvíhneppt, sérhönn-
uð og merkt eiganda sín-
um var líklega tekin í mis-
gripum, því í hennar stað
hangir svipuð kápa með
stórri lyklakippu í vasan-
um og hattur og trefill
sem gæti trúlega passað
með henni. Kannist ein-
hver við þetta vinsamlega
hafið samband í síma
672088.
Gleraugu
töpuðust
GULLSPANGARGLER-
AUGU af nýjustu gerð á
11 ára stúlku sem voru í
gulbrúnu vönduðu hörðu
leðurhulstri, töpuðust trú-
lega í ágúst. Skilvís
fínnandi vinsamlega hafi
samband í síma 672088.
Ullarjakki
tapaðist
BRÚNN millisíður her-
raullarjakki var líklega
tekinn í misgripum á Gauk
á Stöng föstudaginn 14.
október sl. Sá sem kann-
ast við það hafi samband
í síma 10942.
Gleraugu
fundust
KVENGLERAUGU í fínni
umgjörð fundust neðar-
lega á Hverfisgötu við
strætóskýlið sl. þriðjudag.
Eigandinn má vitja þeirra
í síma 31779 á kvöldin.
Sérhannaður
trefill
KONA hafði samband við
Velvakanda því hún hafði
tapað trefli sem hún hafði
fengið að gjöf frá hönnuði
sem sérhannaði hann
handa henni af sérstöku
tilefni og er henni því afar
dýrmætur og óbætanleg-
ur. Trefillinn er afar fall-
egur og sérstakur u.þ.b.
einn og hálfur metri á
lengd, þykkur og ofinn úr
íslenskri ull með allskyns
litum og mynstrum báðum
megin. Hún fór með hann
í Naustkjallarann, setti
hann á stól, og er hún
yfirgaf staðinn voru að-
eins starfsmenn einir eftir,
en daginn eftir var verið
að halda upp á eigenda-
skipti og því mikið af fólki
þar svo ef einhver kannast
við þetta vinsamlega hafið
samband við Sif eða Önnu
Maríu í síma 20128 eða
skilið honum til Jönu á
Café Reykjavík.
Leðurjakki
tapaðist
BRÚNN glænýr leður-
jakki með rennilás tapað-
ist fyrir u.þ.b. þrem vikum
og ekki er vitað hvar. Eig-
andinn er ellefu ára gam-
all drengur sem hafði ný-
lega eignast hann og er
tapið honum sárt. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 616074.
Klói er týndur
KLÓI sem er svartur og
hvítur með skottið hvítt í
endanum hvarf frá heimili
sínu á Hólsvegi 27. októ-
ber sl. Geti einhver gefið
upplýsingar um ferðir
hans vinsamlega hafið
samband í síma 38184.
Hamstrabúr
RÚDOLF og Ásgeir
hringdu til að athuga
hvort einhver ætti
hamstrabúr handa þeim.
Vinsamlega hringið í síma
625818.
BRIDS
U m s j ó n G u rt ni. P á 11
Arnarson
BESTA spilamennskan í
þremur gröndum suðurs
leynir á sér. Vestur spilar
út tíguldrottningu, sem
sagnhafi drepur strax á ás
og fer í laufið. En hvernig?
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ K53
f 62
♦ 753
♦ DG942
Vestur
♦ D974
V D1085
♦ DG98
4 5
Austur
4 G86
¥ 974
♦ 1064
4 Á1076
Suður
4 Á102
¥ ÁKG3
♦ ÁK2
4 K83
Vestur Norður Austur Suður
- - - 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: tíguldrottning.
Lítum á hvað gerist ef
sagnhafi spilar fyrst laufi á
drottningu og síðan til baka
á kónginn. Austur dúkkar
tvívegis og nú er ekki fleiri
slagi að hafa á lauf.
Sagnhafi skiptir þá um
áætlun, fer inn í borð á
spaðakóng og svínar hjarta-
gosa.
Þegar sú svíning misheppn-
ast og hjartað feliur ekki
heldur 3-3, eru átta slagir
allt og sumt sem suður fær.
Sagnhafi getur tryggt
sér níunda slaginn á lauf
með því að byrja á kóngin-
um. Austur dúkkar og aftur
kemur lauf að blindum. En
þegar vestur fylgir ekki lit,
lætur sagnhafi lítið úr borði
og neyðir austur til að taka
slaginn. Suður á þá enn
lauf eftir heima til að reka
út ásinn.
Níu slagir og skorin sex-
hundruð í Norður/Suður
dálkinn.
Víkveiji skrifar...
PÁLL Valdimarsson vélaverk-
fræðingur hjá Verkfræðideild
Háskóla íslands hefur ritað Vík-
veija bréf vegna umfjöllunar hans
um æði torskilda fréttatilkynningu,
sem barst Morgunblaðinu fyrir
skömmu, þar sem lýst var erindi
dr. Ólafs Péturs Pálssonar, sem
haldinn var á fundi Aðgerðarann-
sóknafélags íslands. Víkveijapistill-
inn birtist hinn 4. nóvember síðast-
liðinn og var fréttatilkynningin ték-
in upp þar sem óskiljanlegt mál.
Páll telur að Víkveiji hafi með sorg-
legum hætti ráðist að verndun ís-
lenzks máls.
I bréfi sínu segir Páll Valdimars-
son: „Víkveija til hjálpar og skil-
ingsauka hef ég umskrifað fréttatil-
kynninguna á hið almenna tækni-
mál, tæknimannakínverskuna:
„Fyrirlesturinn íjallar um notkun
algóritmans „Progressive Hedging
Alórithm" við rekstraroptímeringu
á varmageymslutanki. Algóritminn
er notaður við optimeringu á
randompróblemum, þar sem rando-
mótetinu er lýst með scenaríóana-
lýsu. Algóritminn var fyrst settur
fram af Rockefeller og Wets árið
1991. Honum hefur meðal annars
verið beitt af Þorkeli Helgasyni (í
samvinnu við Stein Wallace) við
random fiskveiðistjórnunarvanda-
mál.
í fyrirlestrinum verður algóritm-
inn skýrður með einföldum dæmum
og einnig verður sýnt hvernig hægt
er áð beita honum við rekstraropti-
meringu á varnageymslutanki sem
tengdur er kolakyntu orkuveri.“
xxx
OG PÁLL Valdimarsson heldur
áfram: „Það er mjög eðlilegt
að við Víkveiji skiljum þetta ekki,
því hér er verið að íjalla um sér-
hæft viðfangsefni. Fréttatilkynn-
ingin á að vekja áhuga þeirra sem
þekkja nóg til viðfangsefnisins til
þess að geta haft gagn af fyrirlestr-
inum. Við leikmennirnir skiljum
þetta ekkert frekar en að ég og
maðurinn á götunni vitum hvað
Víkveiji á við í sínu daglega máli,
þegar hann talar um „sats“ og
„layout".
Ollum er okkur nauðsyn að geta
talað samán um það sem við störf-
um við, og hver hópur kemur sér
upp þeim orðaforða, sem nauðsyn-
legur er til að geta rætt um sitt
sérsvið. Það að búa tii íslenskan
orðaforða og nota hann þýðir ekki
að viðfangsefnin verði einfaldari.
Flókið efni er alveg jafn ólskiljan-
legt fyrir leikmanninn, hvort sem
það er á vel nýyrtri íslensku eða á
tæknimannakínversku. í því sam-
bandi má nefna samansoðinn lög-
fræðilegan texta, þrátt fyrir að
hann sé á fallegu íslensku máli er
hann óskiljanlegur leikmanninum."
xxx
PÁLI til upplýsinga má nefna,
að nokkuð er nú um liðið að
blaðamenn og aðrir í prentverki
tali um „sats“, enda alllangt síðan
tölvutæknin velti blýinu úr sessi.
Nú tala menn einfaldlega um texta
og dálka og layout er mikið til vik-
ið fyrir útlitsteikningu eða hönnun
og er það vel. En Páll lýkur bréfi
sínu og vonar að athugasemd sín
veki áhuga Víkveija á hinu raun-
verulega málverndunarviðfangsefni
dagsins í dag með því að segja: „Að
mínum dómi er mest vegið að ís-
lensku máli í hinum sérhæfða orða-
forða, hver einasta stétt, allt frá
hafnarverkamanninum til hins
fræðilega stærðfræðings, á sína
tæknikínversku, sem gengur skelfi-
lega hægt að nýyrða. Einnig er
vert að benda á að ef ekki tekst
að tryggja íslenska stafi í stöðluðum
stafatöflum tölvubúnaðar, þá verð-
ur smátt og smátt tekin upp ný
stafsetning, hvort sem okkur líkar
betur eða verr.“