Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 28
28 D FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ IHIWISBLW SELJEADUR ■ SÖLUUMBOÐ — Áður en fasteignasala er heimilt að bjóða eign til sölu, ber honum að hafa sérstakt söluumboð frá eiganda og skal það vera á stöðluðu formi sem dómsmálaráðuneytið staðfestir. Eigandi eignar og fasteignasali staðfesta ákvæði söluumboðsins með undirritun sinni á það. Allar breytingar á söluumboði skulu vera skrifleg- ar. í söluumboði skal eftirfar- andi koma fram: ■ TILHÖGUN SÖLU - Koma skal fram, hvort eignin sé í einkasölu eða almennri sölu, svo og hver söluþóknun sé. í maka- skiptum ber að athuga að sé eign sem er í einkasölu tekin upp í aðra eign sem er á sölu hjá öðrum fasteignasala þá skal hvor fasteignasali annast sölu þeirrar eignar sem hann hefur söluumboð fyrir. ■ AUGLÝSINGAR - Aðilar skulu semja um hvort og hvem- ig eign sé auglýst, þ.e. á venju- legan hátt í eindálki eða með sérauglýsingu. Fyrsta venjulega auglýsing í eindálki er á kostnað fasteignasalans en auglýsinga- kostnaður skal síðan greiddur mánaðarlega skv. gjaldskrá dagblaðs. 011 þjónusta fast- eignasala þ.m.t. auglýsing er virðisaukaskattsskyld. ■ GILDISTÍMI - Tilgreina skal hve lengi söluumboðið gild- ir. Umboðið er uppseigjanlegt af beggja hálfu með 30 daga fyrirvara. Sé einkaumboði breytt í almennt umboð gildir 30 daga fresturinn einnig. ■ GREIÐSLUSTAÐUR KAUPVERÐS - Algengast er að kaupandi greiði afborganir skv. kaupsamningi inn á banka- reikning seljanda og skal hann tilgreindur í söluumboði. ■ ÖFLUN GAGNA/SÖLU- YFIRLIT - Áður en eignin er boðin til sölu, verður að útbúa söluyfirlityfir hana. Seljandi - skal leggja fram upplýsingar um eignina, en í mörgum tilvik- um getur fasteignasali veitt aðstoð við útvegun þeirra skjala sem nauðsynleg eru. Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk beins útlagðs kostnaðar fast- eignasalans við útvegun skjal- anna. í þessum tilgangi þarf eftirfarandi skjöl: ■ VEÐBÓKARVOTTORÐ- Þau kostar nú 800 kr. og fást hjá sýslumannsembættum. Opnunartíminn er yfírleitt milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbókar- _ vottorði sést hvaða skuldir (veð- bönd) hvíla á eigninni og hvaða þinglýstar kvaðir eru á henni. ■ GREIÐSLUR - Hér er átt við kvittanir allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem eiga að fylgja eigninni ogþeirra, sem á að aflýsa. ■ FASTEIGNAMAT - Hér er um að ræða matsseðil, sem Fasteignamat ríkisins sendir öll- um fasteignaeigendum í upp- hafi árs og menn nota m.a. við gerð skattframtals. Fasteigna- mat ríkisins er til húsa að Borg- artúni 21, Reykjavík sími 614211. ■ FASTEIGNAGJÖLD - Sveitarfélög eða gjaldheimtur senda seðil með álagningu fast- •eignagjalda í upphafí árs oger hann yfírleitt jafnframt greiðsluseðill fyrir fyrsta gjald- daga fasteignagjalda ár hvert. Kvittanir þarf vegna greiðslu fasteignagjaldanna. ■ BRUNABÓTAMATS- VOTTORÐ - í Reykjavík fást vottorðin hjá Húsatryggingum Reykjavíkur, Skúlatúni 2, II. hæð, en annars staðar á skrif- stofu þess tryggingarfélags, sem annast brunatryggingar í viðkomandi sveitarfélagi. Vott- orðin eru ókeypis. Einnig þarf kvittanir um greiðslu bruna- tryggingar. í Reykjavík eru ið- gjöld vegna brunatrygginga innheimt með fasteignagjöldum og þar duga því kvittanir vegna þeirra. Annars staðar er um að ræða kvittanir viðkomandi tryggingafélags. ■ HÚSSJÓÐUR - Hér eru um að ræða yfírlit yfír stöðu hús- sjóðs og yfírlýsingu húsfélags um væntanlegar eða yfírstand- andi framkvæmdir. Formaður eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að útfylla sérstakt eyðublað Félags fasteignasala í þessu skyni. ■ AFS AL - Afsal fyrir eign þarf að liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er hægt að fá ljósrit af því hjá viðkomandi sýslu- mannsembætti og kostar það nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn- legt, því að það er eignarheim- ildin fyrir fasteigninni og þar kemur fram lýsing á henni. ■ KAUPSAMNINGUR - Ef lagt er fram ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að leggja fram ljósrit kaupsamnings. Það er því aðeins nauðsynlegt í þeim tilvik- um, að ekki hafí fengist afsal frá fyrri eiganda eða því ekki enn verið þinglýst. ■ EIGNASKIPTASAMN- INGUR - Eignaskiptasamn- ingur er nauðsynlegur, því að í honum eiga að koma fram eign- arhlutdeild í húsi og lóð og hvemig afnotum af sameign og lóð er háttað. ■ UMBOÐ - Ef eigandi ann- ast ekki sjálfur sölu eignarinn- ar, þarf umboðsmaður að leggja fram umboð, þar sem eigandi veitir honum umboð til þess fyrir sína hönd að undirrita öll skjöl vegna sölu eignarinnar. ■ YFIRLÝSINGAR - Ef sér- stakar kvaðir em á eigninni s. s. forkaupsréttur, umferðarrétt- ur, viðbyggingarréttur o. fl. þarf að leggja fram skjöl þar að lútandi. Ljósrit af slíkum skjölum fást yfírleitt hjá við- komandi fógetaembætti. ■ TEIKNINGAR - Leggja þarf fram samþykktar teikning- ar af eigninni. Hér er um að ræða svokallaðar byggingar- nefndarteikningar. Vanti þær má fá ljósrit af þeim hjá bygg- ingarfulltrúa. ■ FASTEIGNASALAR - í mörgum tilvikum mun fast- eignasalinn geta veitt aðstoð við útvegun þeirra skjala, sem að framan greinir. Fyrir þá þjón- ustu þarf þá að greiða sam- kvæmt Viðmiðunargjaldskrá Félags fasteignasala auk beins útlagðs kostnaðar fasteignasal- ans við útvegun skjalanna. KAUPEIMDUR ■ ÞINGLÝSING - Nauðsyn- legt er að þinglýsa kaupsamn- ingi strax hjá viðkomandi sýslu- mannsembætti. Það er mikil- vægt öryggisatriði. ■ GREIÐSLUR - Inna skal allar greiðslur af hendi á gjald- daga. Seljanda er heimilt að reikna dráttarvexti strax frá gjalddaga. Hér gildir ekki 15 daga greiðslufrestur. ■ LÁNAYFIRTAKA - Til- kynna ber lánveitendum um yfírtöku lána. Ef Byggingar- sjóðslán er yfírtekið, skal greiða fyrstu afborgun hjá Veðdeild Landsbanka Islands, Suður- landsbraut 24, Reykjavík og til- kynna skuldaraskipti um leið. ■ LÁNTÖKUR - Skynsam- legt er að gefa sér góðan tíma fyrir lántökur. Það getur verið tímafrekt að afla tilskilinna gagna s. s. veðbókarvottorðs, brunabótsmats og veðleyfa. ■ AFSAL - Tilkjmning um eigendaskipti frá Fasteignamati ríkisins verður að fylgja afsali, sem fer í þinglýsingu. Ef skjöl, sem þinglýsa á, hafa verið und- irrituð samkvæmt umboði, verð- ur umboðið einnig að fylgja með til þinglýsingar. Ef eign er háð ákvæðum laga um byggingars- amvinnufélög, þarf áritun bygg- ingarsamvinnufélagsins á afsal fyrir þinglýsingu þess. ■ SAMÞYKKIMAKA - Sam- þykki maka þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan býr í eigninni. ■ GALLAR - Ef leyndir gall- ar á eigninni koma í ljós eftir afhendingu, ber að tilkynna selj- anda slíkt strax. Að öðrum kosti getur kaupandi fyrirgert hugs- anlegum bótarétti sakir tómlæt- is. GJALDTAKA ■ ÞINGLÝSING - Þinglýs- ingargjald hvers þinglýst skjals er nú 1.000 kr. ■ STIMPILGJALD - Það greiðir kaupandi af kaupsamn- ingum og afsölum um leið og þau eru lögð inn til þinglýsing- ar. Ef kaupsamningi er þing- lýst, þarf ekki að greiða stimpil- gjald af afsalinu. Stimpilgjald kaupsamnings eða afsals er 0,4% af fasteignamati húss og lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri milljón. ■ SKULDABRÉF - Stimpil- gjald skuldabréfa er 1,5% af höfuðstóli (heildarupphæð) bréfanna eða 1.500 kr. af hverj- um 100.000 kr. Kaupandi greið- ir þinglýsingar- og stimpilgjald útgefínna skuldabréfa vegna kaupanna, en seljandi lætur þinglýsa bréfunum. ■ STIMPILSEKTIR - Stimp- ilskyld skjöl,.sem ekki eru stimpluð innan 2ja mánaða frá útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr- ir hveija byrjaða viku. Sektin fer þó aldrei yfír 50%. ■ SKIPULAGSGJALD - Skipulagsgjald er greitt af ný- reistum húsum. Af hverri bygg- ingu, sem reist er, skal greiða 3 %o (þrjú pro mille) í eitt sinn af brunabótavirðingu hverrar húseignar. Nýbyggingtelst hvert nýreist hús, sem virt er til brunabóta svo og viðbygging- ar við eldri hús, ef virðingarverð hinnar nýju viðbyggingar nem- ur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á einnig við um endurbæt- ur, sem hækka brunabótavirð- ingu um 1/5. HÚ8BYGGJEADUR ■ LÓÐAUMSÓKN - Eftir birtingu auglýsingar um ný byggingarsvæði geta væntan- legir umsækjendur kynnt sér þau hverfi og lóðir sem til út- hlutunar eru á hveijum tíma hjá byggingaryfírvöldum í við- komandi bæjar- eða sveitarfé- lögum - í Reykjavík á skrif- stofu borgarverkfræðings, Skúlagötu 2. Skilmálar eru þar afhentir gegn gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur skulu fylla út nákvæmlega þar til gert eyðublað og senda aftur til við- komandi skrifstofu. í stöku til- felli þarf í umsókn að gera til- lögu að húshönnuði en slíkra sérupplýsinga er þá getið i skipulagsskilmálum og á um- sóknareyðublöðum. ■ LÓÐAÚTHLUTUN - Þeim sem úthlutað er lóð, fá um það skriflega tilkynningu, úthlutun- arbréf og þar er þeim gefinn kostur á að staðfesta úthlutun- ina innan tilskilins tíma, sem venjulega er um 1 mánuður. Þar koma einnig fram upplýsingar um upphæðir gjalda o.fl. Skil- yrði þess að lóðaúthlutun taki gildi eru að áætluð gatnagerð- argjöld o.fl. séu greidd á réttum tíma. Við staðfestingu lóðaút- hlutunar fá lóðarhafar afhent nauðsynleg gögn, svo sem mæliblað í tvíriti, svo og hæðar- blað í tvíriti og skal annað þeirra fylgja leyfísumsókn til bygging- arnefndar, auk frekari gagna efþvíeraðskipta. ■ GJÖLD - Gatnagerðargjöld eru mismunandi eftir bæjar- og sveitarfélögum. Upplýsingar um gatnagerðargjöld í Reykjavik má fá hjá borgar- verkfræðingi en annars staðar hjá byggingarfulltrúa. Að auki koma til heimæðargjöld. Þessi gjöld ber að greiða þannig: 1/10 innan mánaðar frá úthlutun, síðan 30% sex mánuðum eftir úthlutun, 30% tólf mánuðum eftir úthlutun og loks 30% átján mánuðum eftir úthlutun. ■ FRAMKVÆMDIR - Áður en unnt er að hefjast handa um framkvæmdir þarf fram- kvæmdaleyfi. I því felst bygg- ingaleyfí og til að fá það þurfa bygginganefndarteikningar að vera samþykktar og stimplaðar og eftirstöðvar gatnagerðar- gjalds og önnur gjöld að vera greidd. Einnig þarf að liggja fyrir bréf um lóðarafhendingu, sem kemúr þegar byggingar- leyfi er fengið og nauðsynlegum framkvæmdum sveitarfélags er lokið, svo sem gatna- og hol- ræsaframkvæmdum. í þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað- setningarmæling bygginga á lóð en þá þarf einnig byggingar- leyfi að liggja fyrir, lóðaraf- hending að hafa farið fram og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.