Morgunblaðið - 07.04.1995, Side 28
28 D FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
IHIWISBLW
SELJEADUR
■ SÖLUUMBOÐ — Áður en
fasteignasala er heimilt að bjóða
eign til sölu, ber honum að hafa
sérstakt söluumboð frá eiganda
og skal það vera á stöðluðu
formi sem dómsmálaráðuneytið
staðfestir. Eigandi eignar og
fasteignasali staðfesta ákvæði
söluumboðsins með undirritun
sinni á það. Allar breytingar á
söluumboði skulu vera skrifleg-
ar. í söluumboði skal eftirfar-
andi koma fram:
■ TILHÖGUN SÖLU - Koma
skal fram, hvort eignin sé í
einkasölu eða almennri sölu, svo
og hver söluþóknun sé. í maka-
skiptum ber að athuga að sé
eign sem er í einkasölu tekin
upp í aðra eign sem er á sölu
hjá öðrum fasteignasala þá skal
hvor fasteignasali annast sölu
þeirrar eignar sem hann hefur
söluumboð fyrir.
■ AUGLÝSINGAR - Aðilar
skulu semja um hvort og hvem-
ig eign sé auglýst, þ.e. á venju-
legan hátt í eindálki eða með
sérauglýsingu. Fyrsta venjulega
auglýsing í eindálki er á kostnað
fasteignasalans en auglýsinga-
kostnaður skal síðan greiddur
mánaðarlega skv. gjaldskrá
dagblaðs. 011 þjónusta fast-
eignasala þ.m.t. auglýsing er
virðisaukaskattsskyld.
■ GILDISTÍMI - Tilgreina
skal hve lengi söluumboðið gild-
ir. Umboðið er uppseigjanlegt
af beggja hálfu með 30 daga
fyrirvara. Sé einkaumboði
breytt í almennt umboð gildir
30 daga fresturinn einnig.
■ GREIÐSLUSTAÐUR
KAUPVERÐS - Algengast er
að kaupandi greiði afborganir
skv. kaupsamningi inn á banka-
reikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
■ ÖFLUN GAGNA/SÖLU-
YFIRLIT - Áður en eignin er
boðin til sölu, verður að útbúa
söluyfirlityfir hana. Seljandi
- skal leggja fram upplýsingar
um eignina, en í mörgum tilvik-
um getur fasteignasali veitt
aðstoð við útvegun þeirra skjala
sem nauðsynleg eru. Fyrir þá
þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fast-
eignasalans við útvegun skjal-
anna. í þessum tilgangi þarf
eftirfarandi skjöl:
■ VEÐBÓKARVOTTORÐ-
Þau kostar nú 800 kr. og fást
hjá sýslumannsembættum.
Opnunartíminn er yfírleitt milli
kl. 10.00 og 15.00. Á veðbókar-
_ vottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða
þinglýstar kvaðir eru á henni.
■ GREIÐSLUR - Hér er átt
við kvittanir allra áhvílandi
lána, jafnt þeirra sem eiga að
fylgja eigninni ogþeirra, sem á
að aflýsa.
■ FASTEIGNAMAT - Hér
er um að ræða matsseðil, sem
Fasteignamat ríkisins sendir öll-
um fasteignaeigendum í upp-
hafi árs og menn nota m.a. við
gerð skattframtals. Fasteigna-
mat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími
614211.
■ FASTEIGNAGJÖLD -
Sveitarfélög eða gjaldheimtur
senda seðil með álagningu fast-
•eignagjalda í upphafí árs oger
hann yfírleitt jafnframt
greiðsluseðill fyrir fyrsta gjald-
daga fasteignagjalda ár hvert.
Kvittanir þarf vegna greiðslu
fasteignagjaldanna.
■ BRUNABÓTAMATS-
VOTTORÐ - í Reykjavík fást
vottorðin hjá Húsatryggingum
Reykjavíkur, Skúlatúni 2, II.
hæð, en annars staðar á skrif-
stofu þess tryggingarfélags,
sem annast brunatryggingar í
viðkomandi sveitarfélagi. Vott-
orðin eru ókeypis. Einnig þarf
kvittanir um greiðslu bruna-
tryggingar. í Reykjavík eru ið-
gjöld vegna brunatrygginga
innheimt með fasteignagjöldum
og þar duga því kvittanir vegna
þeirra. Annars staðar er um að
ræða kvittanir viðkomandi
tryggingafélags.
■ HÚSSJÓÐUR - Hér eru um
að ræða yfírlit yfír stöðu hús-
sjóðs og yfírlýsingu húsfélags
um væntanlegar eða yfírstand-
andi framkvæmdir. Formaður
eða gjaldkeri húsfélagsins þarf
að útfylla sérstakt eyðublað
Félags fasteignasala í þessu
skyni.
■ AFS AL - Afsal fyrir eign
þarf að liggja fyrir. Ef afsalið
er glatað, er hægt að fá ljósrit
af því hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti og kostar það
nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn-
legt, því að það er eignarheim-
ildin fyrir fasteigninni og þar
kemur fram lýsing á henni.
■ KAUPSAMNINGUR - Ef
lagt er fram ljósrit afsals, er
ekki nauðsynlegt að leggja fram
ljósrit kaupsamnings. Það er því
aðeins nauðsynlegt í þeim tilvik-
um, að ekki hafí fengist afsal
frá fyrri eiganda eða því ekki
enn verið þinglýst.
■ EIGNASKIPTASAMN-
INGUR - Eignaskiptasamn-
ingur er nauðsynlegur, því að í
honum eiga að koma fram eign-
arhlutdeild í húsi og lóð og
hvemig afnotum af sameign og
lóð er háttað.
■ UMBOÐ - Ef eigandi ann-
ast ekki sjálfur sölu eignarinn-
ar, þarf umboðsmaður að leggja
fram umboð, þar sem eigandi
veitir honum umboð til þess
fyrir sína hönd að undirrita öll
skjöl vegna sölu eignarinnar.
■ YFIRLÝSINGAR - Ef sér-
stakar kvaðir em á eigninni s.
s. forkaupsréttur, umferðarrétt-
ur, viðbyggingarréttur o. fl.
þarf að leggja fram skjöl þar
að lútandi. Ljósrit af slíkum
skjölum fást yfírleitt hjá við-
komandi fógetaembætti.
■ TEIKNINGAR - Leggja
þarf fram samþykktar teikning-
ar af eigninni. Hér er um að
ræða svokallaðar byggingar-
nefndarteikningar. Vanti þær
má fá ljósrit af þeim hjá bygg-
ingarfulltrúa.
■ FASTEIGNASALAR - í
mörgum tilvikum mun fast-
eignasalinn geta veitt aðstoð við
útvegun þeirra skjala, sem að
framan greinir. Fyrir þá þjón-
ustu þarf þá að greiða sam-
kvæmt Viðmiðunargjaldskrá
Félags fasteignasala auk beins
útlagðs kostnaðar fasteignasal-
ans við útvegun skjalanna.
KAUPEIMDUR
■ ÞINGLÝSING - Nauðsyn-
legt er að þinglýsa kaupsamn-
ingi strax hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti. Það er mikil-
vægt öryggisatriði.
■ GREIÐSLUR - Inna skal
allar greiðslur af hendi á gjald-
daga. Seljanda er heimilt að
reikna dráttarvexti strax frá
gjalddaga. Hér gildir ekki 15
daga greiðslufrestur.
■ LÁNAYFIRTAKA - Til-
kynna ber lánveitendum um
yfírtöku lána. Ef Byggingar-
sjóðslán er yfírtekið, skal greiða
fyrstu afborgun hjá Veðdeild
Landsbanka Islands, Suður-
landsbraut 24, Reykjavík og til-
kynna skuldaraskipti um leið.
■ LÁNTÖKUR - Skynsam-
legt er að gefa sér góðan tíma
fyrir lántökur. Það getur verið
tímafrekt að afla tilskilinna
gagna s. s. veðbókarvottorðs,
brunabótsmats og veðleyfa.
■ AFSAL - Tilkjmning um
eigendaskipti frá Fasteignamati
ríkisins verður að fylgja afsali,
sem fer í þinglýsingu. Ef skjöl,
sem þinglýsa á, hafa verið und-
irrituð samkvæmt umboði, verð-
ur umboðið einnig að fylgja með
til þinglýsingar. Ef eign er háð
ákvæðum laga um byggingars-
amvinnufélög, þarf áritun bygg-
ingarsamvinnufélagsins á afsal
fyrir þinglýsingu þess.
■ SAMÞYKKIMAKA - Sam-
þykki maka þinglýsts eiganda
þarf fyrir sölu og veðsetningu
fasteignar, ef fjölskyldan býr í
eigninni.
■ GALLAR - Ef leyndir gall-
ar á eigninni koma í ljós eftir
afhendingu, ber að tilkynna selj-
anda slíkt strax. Að öðrum kosti
getur kaupandi fyrirgert hugs-
anlegum bótarétti sakir tómlæt-
is.
GJALDTAKA
■ ÞINGLÝSING - Þinglýs-
ingargjald hvers þinglýst skjals
er nú 1.000 kr.
■ STIMPILGJALD - Það
greiðir kaupandi af kaupsamn-
ingum og afsölum um leið og
þau eru lögð inn til þinglýsing-
ar. Ef kaupsamningi er þing-
lýst, þarf ekki að greiða stimpil-
gjald af afsalinu. Stimpilgjald
kaupsamnings eða afsals er
0,4% af fasteignamati húss og
lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri
milljón.
■ SKULDABRÉF - Stimpil-
gjald skuldabréfa er 1,5% af
höfuðstóli (heildarupphæð)
bréfanna eða 1.500 kr. af hverj-
um 100.000 kr. Kaupandi greið-
ir þinglýsingar- og stimpilgjald
útgefínna skuldabréfa vegna
kaupanna, en seljandi lætur
þinglýsa bréfunum.
■ STIMPILSEKTIR - Stimp-
ilskyld skjöl,.sem ekki eru
stimpluð innan 2ja mánaða frá
útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt.
Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr-
ir hveija byrjaða viku. Sektin
fer þó aldrei yfír 50%.
■ SKIPULAGSGJALD -
Skipulagsgjald er greitt af ný-
reistum húsum. Af hverri bygg-
ingu, sem reist er, skal greiða
3 %o (þrjú pro mille) í eitt sinn
af brunabótavirðingu hverrar
húseignar. Nýbyggingtelst
hvert nýreist hús, sem virt er
til brunabóta svo og viðbygging-
ar við eldri hús, ef virðingarverð
hinnar nýju viðbyggingar nem-
ur 1/5 af verði eldra hússins.
Þetta á einnig við um endurbæt-
ur, sem hækka brunabótavirð-
ingu um 1/5.
HÚ8BYGGJEADUR
■ LÓÐAUMSÓKN - Eftir
birtingu auglýsingar um ný
byggingarsvæði geta væntan-
legir umsækjendur kynnt sér
þau hverfi og lóðir sem til út-
hlutunar eru á hveijum tíma
hjá byggingaryfírvöldum í við-
komandi bæjar- eða sveitarfé-
lögum - í Reykjavík á skrif-
stofu borgarverkfræðings,
Skúlagötu 2. Skilmálar eru þar
afhentir gegn gjaldi, ef tilbúnir
eru. Umsækjendur skulu fylla
út nákvæmlega þar til gert
eyðublað og senda aftur til við-
komandi skrifstofu. í stöku til-
felli þarf í umsókn að gera til-
lögu að húshönnuði en slíkra
sérupplýsinga er þá getið i
skipulagsskilmálum og á um-
sóknareyðublöðum.
■ LÓÐAÚTHLUTUN - Þeim
sem úthlutað er lóð, fá um það
skriflega tilkynningu, úthlutun-
arbréf og þar er þeim gefinn
kostur á að staðfesta úthlutun-
ina innan tilskilins tíma, sem
venjulega er um 1 mánuður. Þar
koma einnig fram upplýsingar
um upphæðir gjalda o.fl. Skil-
yrði þess að lóðaúthlutun taki
gildi eru að áætluð gatnagerð-
argjöld o.fl. séu greidd á réttum
tíma. Við staðfestingu lóðaút-
hlutunar fá lóðarhafar afhent
nauðsynleg gögn, svo sem
mæliblað í tvíriti, svo og hæðar-
blað í tvíriti og skal annað þeirra
fylgja leyfísumsókn til bygging-
arnefndar, auk frekari gagna
efþvíeraðskipta.
■ GJÖLD - Gatnagerðargjöld
eru mismunandi eftir bæjar- og
sveitarfélögum. Upplýsingar
um gatnagerðargjöld í
Reykjavik má fá hjá borgar-
verkfræðingi en annars staðar
hjá byggingarfulltrúa. Að auki
koma til heimæðargjöld. Þessi
gjöld ber að greiða þannig: 1/10
innan mánaðar frá úthlutun,
síðan 30% sex mánuðum eftir
úthlutun, 30% tólf mánuðum
eftir úthlutun og loks 30% átján
mánuðum eftir úthlutun.
■ FRAMKVÆMDIR - Áður
en unnt er að hefjast handa um
framkvæmdir þarf fram-
kvæmdaleyfi. I því felst bygg-
ingaleyfí og til að fá það þurfa
bygginganefndarteikningar að
vera samþykktar og stimplaðar
og eftirstöðvar gatnagerðar-
gjalds og önnur gjöld að vera
greidd. Einnig þarf að liggja
fyrir bréf um lóðarafhendingu,
sem kemúr þegar byggingar-
leyfi er fengið og nauðsynlegum
framkvæmdum sveitarfélags er
lokið, svo sem gatna- og hol-
ræsaframkvæmdum. í þriðja
lagi þarf að liggja fyrir stað-
setningarmæling bygginga á
lóð en þá þarf einnig byggingar-
leyfi að liggja fyrir, lóðaraf-
hending að hafa farið fram og