Morgunblaðið - 02.06.1995, Qupperneq 24
WBsmaam
©588 55 30
Bréfsími 5885540
Einbýlishús
HAMARSTEIGUR- MOS.
Rúmg. einbhus 142fm.4svefnherb.
Parket. Ahv. 5,0 mlllj. Ver« 10,2
mlllj.
VÍÐITEIGUR - MOS.
Fallegt stórt einb. 193 fm hæð og
rls ásamt 31 fm bllsk. 5 svefnherb.
Mögul. á 2ja herb. Ib. I rlsi. Sklptl
mögul. Áhv. 4,2 mlllj. byggsj. Verð
13,6 millj.
BARRHOLT - EINB.
Vorum að fá í sölu failegt einb. 140
fm með 33 fm bílsk. 4 svefnherb.
Góð staðsetning. Verð 12,7 mlllj.
REYKJABYGGÐ - MOS.
Nýl. einb. 173 fm á tveímur hæðum
með sökklum fyrlr tvöf. bilsk. 4
svefnherbergi. Stór verönd. Skiptí
mögul. Áhv. 7,4 mlllj. Verð 11,9
mlllj.
HINGVALLASTRÆTI -
AKUREYRI
Virðulegt einbýlish. 170 fm steypt
með staðsetningu i hjarta Akur*
eyrar. Falleg lóð. Hltl I stétt. Sklpti
mögul. á elgn á Reykjavfkurevæð-
Inu.
Raðhus
ARNARTANGI - MOS.
Fallegt endaraðh. 94 fm. 3 svefn-
herb., stofa, parket. Áhv. 3,6 millj.
Taeklfærisverð 7,9 millj.
LYNGRIMI - PARHÚS
Nýtt fallegt parh. á tveim haeðum
197 fm með 20 fm bílsk. Selst
fullfrág. að utan, málað, fokh. að
innan. Áhv. húsbr. 6,3 mlllj. Verð
8,6 mlllj.
BAKKASMÁRi - KÓPAV.
Til sölu nýbyggt parhús, 180 fm,
m. 30 fm bilskúr. Seist fullb. utan,
fokh. innan. Verð 8,B mlllj.
AOALTÚN - RAÐHÚS
Nýbyggt mjög fallegt endaraðh. 183
fm með 31 fm bilsk. 4 svefnherb.
Fullb. að utan, tilb. u. trév. að inn-
an. Mögul. húsbr. 6,3 mlllj. Verð
10,8 mfllj.
STÓRITEIGUR - MOS.
Fallegt raðhús 260 fm á 3 haeöum
m. 26 fm bílsk. 3*4 svefnherb. Stór
sauna-klefi og nuddpottur. Sklptl
mögul. á dýrari elgn á Reykjavfkur-
svæðinu.
KRÓKABYGGÐ - MOS.
Fallegt endaraðh. 110 fm með milli-
loftí. 4 svefnherb. Sérsuðurgarður.
Góð staðsetn. Áhv. 6,1 millj.
byggsj. Verð 9,4 millj.
PRESTBAKKI
Fallegt raðh. 211 fm með 28 fm
bílsk. Stórar suðursv. og garður.
Hiti í stéttum. Laus strax. Verð
11,9 millj.
Sérhæðir
FÍFURIMI - SÉRH.
Stórglaesil. efri sérhæð, 100 fm. 3ja
herb. m. sérsmfð. innr. Parket. Áhv.
5,2 mlllj. Laus strax. Hagstæð kjör.
4ra-5 herb.
DÚFNAHÓLAR - 4RA
Rúmg. falleg 4ra herb. íb. 105 fm í
fjölbh. á 6. hæð. Parket. Stórar suð-
ursv. Mögul. húsbr. 5,3 mlllj. Vext-
ir 5,1%. Verð 7,5 millj. Laus strax.
MIÐBÆR - MOS.
Vorum að fá f einkasölu nýl. 3ja-4ra
herb. íb. 112 fm á 1. hæð. Áhv.
byggsj. til 40 ára 5,5 millj. Verð 8,5
millj.
LAUFENGI - 4RA
Ný glæsíl. rúmg. 4ra herb. íb. 111
fm á 2. hæð. Nýj8r innr. og tæki.
Áhv. 6 mtllj. Verð 8,2 millj.
FÍFUSEL - M/BÍLSK.
Góð 4ra herb. ib. á 1. hæð 104 fm
með bílskýli 27 fm. Góðar suðursv.
Laus strax. Hagstætt verð. kr. 7,6
millj.
VESTURBERG - 4RA
Mjög góð 4ra herb. Ib. 100 fm á 1.
hæð. 3 svefnherb. Parket. Suðvest-
ursv. Áhv. 3 mtllj. Sklptl mögul.
RAUÐHAMRAR -
M/BÍLSKÚR
Rúmg. 4ra herb. íb. 120 fm ásamt
21 fm bílskúr. Parket. Vandaðar
Innr. Áhv. 5,6 mlllj. Verð 10,6 mlllj.
KRINGLAN - 4RA
Mjög falleg 4ra herb. íb. 105 fm á
2. hæð í litlu fjölb. Parket. Suðursv.
Góð eign.
3ja herb. ibúðir
UGLUHÓLAR M/BÍLSK.
Falleg 3ja herb. ib. 84 fm með 22
fm biisk. Stðrar suðursv. Áhv. 4
miilj. Verð 7,4 mlllj.
DVERGHOLT - MOS.
Rúmg., björt 3ja herb. íb. 91 fm á
1. hæð I tvíbýli. Sérinng. Góð stað-
setn. Verð 6,5 mlllj.
HVASSALEITI - M/BÍLSK.
Felleg rúmg. 3ja-4ra herb. íb. 90 fm
á 3. hæð m. 24 fm blisk. Nýjar innr.
og parket. Verð 7,8 mlltj.
KJARRHÓLM 1 - KÓPAV.
Mjög góð 3ja ha rb, íb. á 1. hæð
með stórum suðt rsv. Laus strax.
Verð 8,7 mltlj.
ÁLFHOLT - HAFNARF.
Ný 3ja herb. íb. 93 fm á 1. hæð.
Fullbúin. Áhv. 4,9 millj. Verð 7,5
millj. Laus strax.
ENGIHJALLI - KÓPAV.
Rúmg. 3je herb. ib. 85 fm I fjölbh.
Húsvörður. Parket. Stórar suðursv.
Áhv. 4,2 mlllj. Verð 6,5 mlllj.
LEIRUTANGI - MOS.
Falleg neðri sérh. 94 fm 3ja herb.
Parket. Sérinng. og garður. Mögul.
áhv. 4,2 millj. Verð 6,5 millj.
2ja herb. ibúðir
REYKJAVfKURV. - 2JA
Rúmg. 2ja-3ja herb. (b, 75 fm á
jarðh. Tvö svefnherb. Nýstands. ib.
Nýjar rafmagnslagnir. Sér hW.
Verð 5,2 mlllj.
FURUGRUND - 2JA
Vorum að fá I sölu rúmg. 2ja herb.
fb. 70 fm á 1. hæö m. aukaherb. I
kj. Nýetands. hús. Laus fljötl.
MIÐHOLT - MOS.
Ný rúmg. 2ja herb. íb. 71 fm á 3.
hæð I litlu fjölb. Stórar suðursv.
Áhv. 4,3 mlllj. Verð 8,8 mlllj.
AUSTURBRÚN - 2JA
Vorum að fá í einkasölu 2ja herb.
Ib. 50 fm (lyftuh. Húsvörður. Suö-
ursv. Verð 4,6 mlllj. Laus strax.
Atvinnuhúsnæði
HRAUNBERG
Til sölu á 2. hæð 300 fm salur (þar
sem Jazzballenskóli Báru var) og
einnig í risi 80 fm salur með sturtu-
klefum og snyrtingu. Hagstæð lán
og kjör. Tækifærisverð.
ÁRTÚNSHOLT
Þetta glæsilega skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði á þremur hæðum,
1100 fm, með sökklum fyrir viðbót-
arbyggingu ásamt auglýsingaskilti,
selst í hlutum eða skipti á annarri
eign.
Sumarbústaðir
ÞRASTARSKÓGUR
Fallegur sumarbústaður 45 fm I
skógi vöxnu landi. Steyptir sökklar.
Stór verönd. Rafmagn og kalt vatn.
Stór eignarlóð.
SVÍNADALUR
Fallegur sumarbústaður 50 fm við
Eyrarvatn móti Vatnaskógi. Skógi
vaxin 6000 fm lóð og góð staösetn-
ing.
Sæberg Þórðarson,
löggiltur fasteigna- og skipasaii,
Háaleitisbraut 58
sími 885530
Vegna meiri fyrirspurna undanfarið
vantar allar gerðir eigna á skrá.
Bráðvantar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir á stór-
Reykjavíkursvæðinu ásamt fleiri eignum.
Góð sala.
Háaleitisbraut 58 á 2. hæð. Símanúmer 588 55 30, bréfsfmi 588 55 40.
SMIÐJAM
IMorsk byggð
Reynsla og þekking í smíði timburhúsa í Noregi
-------_---------------7-----
er eldri en Islandsbyggð, segir Bjarni Olafsson.
Það þykja góð meðmæli með timburhúsi, ef efni
til hússins hefur verið flutt inn tilsniðið frá Noregi.
TEIKNING af útsýni yfir íbúðahúsahverfi í
landi timburhúsanna, Noregi.
SKEMMTILEGT er að virða fyrir
sér byggðalög og bæi á Norðurlönd-
unum. Hvert landanna fyrir sig ber
sitt ákveðna svipmót.
Fljótt á litið virðist mér sem
stærsta hlutfall timburhúsa sé í
Noregi. Hér er ég ekki að vitna til
neinnar könnunar heldur er um eig-
in ágiskun að ræða.
Mér finnst fallegt að virða fyrir
mér norska bæi og byggðalög. Víð-
ast hvar standa húsin í halla svo
að byggðin blasir vel við augum og
fara húsin einkar vel í landslaginu
-innan um hávaxin tré í skógivöxnu
landinu.
Reynsla og þekking í byggingu
timburhúsa í Noregi er eldri en Is-
lands byggð. Timbur til húsagerðar
hefur verið flutt til íslands frá Nor-
egi alveg frá því á landnámsöld og
það þylfja góð meðmæli með timbur-
húsi ef efni til hússins hefur verið
flutt inn tilsniðið frá Noregi. Ef svo
er bendir það til þess að viðir húss-
ins séu vænir og sterkir, að húsið
sé vel viðað.
Ný timburhús
Oft er því haldið fram að það sé
okkur hollara að búa í timburhúsum
heldur en að búa í steinhúsum. Mér
er ekki kunnugt um niðurstöður
rannsókna á þessu sviði en heyrt
hefi ég þess getið að í Þýskalandi
séu stundaðar þess konar rannsókn-
ir við háskóla þar sem kennd er
byggingafræði og hönnun húsa. Því
miður get ég ekki vitnað til ákveð-
innar niðurstöðu úr þeim rannsókn-
um en hefi aðeins heyrt hjá ungum
arkitektum að talið sé hollara fyrir
okkur að búa í timburhúsum. Hér
er ég aðeins að segja frá munnmæl-
um en ekki staðreyndum.
Nokkuð hefur verið flutt inn af
tilsniðnu efni í timburhús undanfar-
in ár. Allmikil breyting hefur átt sér
stað á efnisþykkt til klæðninga
bæði innan húss og utan. Tæknileg-
ur frágangur timburhúsa er einnig
orðinn mjög frábrugðinn því sem
áður tíðkaðist.
Allmikil áhersla er nú lögð á að
loft geti leikið um veggi og þök inn
á milli laga en jafnframt eru húsin
mun vindþéttari en áður var og
miklu betur einangruð, bæði veggir
þeirra og þök og gluggar vandaðri
með 2-3 falt gler.
Styrkleiki grindaefnis er nú met-
inn öðruvísi en áður var gert. Grind-
ur húsa voru oft smíðaðar úr efni
sem var 100x100 mm eða 125x125
mm eða jafnvel 150x150 mm. Nú
eru húsagrindur smíðaðar úr efni
sem er 150x50 mm og í minni hús
svo sem litla sumarbústaði o.s.frv.
eru grindur smíðaðar úr efni 100x50
mm.
Verð og gæði
Margir þættir eru teknir með inn
í dæmið þegar efnisverð til húsa-
gerðar er reiknað út. Þegar tekin
er ákvörðun um að notað skuli helm-
ingi efnisminna timbur í húsgrind
heldur en það sem notað var fyrir
75 árum, þá er auðvitað reiknað út
hve þungt álag grindin þarf að geta
staðist. Hve sterkur er vindurinn
sem leggst á hlið hússins og hve
mikill þungi verður byggður ofan á
fyrstu hæð? Hve þungt verður þakið
eða kemur ein til tvær hæðir yfir
hina fyrstu? Það eru margir slíkir
þættir sem koma inn í reiknings-
dæmið.
Þegar timbur er flutt um langan
veg að byggingarstað munar miklu
í rúmtaki og þyngd einnar stoðar í
útvegg hvort stoðin er úr efni sem
er 150x150 mm eða 150x50 mm.
Fyrr á árum var útveggjaklæðning
og gólfborð unnið úr borðum sem
voru 32 mm þykk, nú er sú klæðn-
ing yfírleitt unnin úr 25 mm þykkum
borðum.
Auðvitað eru þetta ekki eins end-
ingarmikil efni og fyrrum var en
þetta er gert vegna vaxandi sam-
keppni um verð húsanna og einnig
til þess að spara skógana. Efnið er
sennilega nógu sterkt, þótt þynnra
sé, miðað við notkun húsa þeirra
sem nú eru byggð, þau eiga að geta
staðist tímans tönn a.m.k. í eitt til
tvöhundruð ár.
Annað efni
Til bygginga timburhúsa nútím-
ans er notað margvíslegt annað
efni en timbrið í grind og klæðn-
ingu.
Fyrst vil ég nefna tjöruborið tré-
tex sem algengt er að klæða með
utan á grindina. Texið er ágætt
efni sem er rakaveijandi og gefur
ágæta vindþéttingu. Með lektum er
síðan myndað loftrúm á milli tex-
platanna og ystu kápunnar. Jafn-
hliða því að klædd er ysta klæðning
eru sett vatnsbretti yfir glugga og
dyr og undir gluggana.
Ysta klæðningin, kápan er ýmist
timburklæðning eða plötur, oft er
notað blikk t.d. bárujám sem kápa
hérlendis, en sjaldan í Noregi.
Á þakið er venjulega þéttklætt
með borðum ofan á sperrumar og
síðan tjörupappi áður en plöturnar
eru lagðar yfír þakið.
Það fer eftir þakhallanum hvar
þakeinangrun er sett. Ef ekki er
ætlunin að nota risið verður hag-
kvæmast að-einangra loftið vel yfír
íbúðinni. Það sparar hita ef rýmið
í risinu verður ekki notað, að hita
það ekki upp.
Algengt er að einangra þökin
með um 200 mm þykkri einangrun
en innveggina með 150 mm ein-
angrun.
Innan við einangrunina er klædd
svonefnd rakasperra. Það er raka-
heldur dúkur sem strengdur er á
stoðir, bita og sperrur. Þar sem
mætist heitt loft innanfrá og kalt
utanfrá verður æfínlega rakamynd-
un. Því er nauðsynlegt að klæða
með listum undir inni veggjaklæðn-
ingu svo að loft geti leikið þar um.
Einnig þarf að ganga svo frá að
loftgöt séu t.d. undir gólflistum og
uppi við loft, til þess að auka loft-
strauminn.
Frágangurinni
Ef rafleiðslur og rör eru sett und-
ir inniklæðningu verður að hafa
fulla gát á að ekki komi neinsstaðar
göt á raka-vindsperruna þegar rör-
um og dósum verður komið fyrir.
Það er ekki minni vinna að klæða
og ganga frá húsi að innanverðu
heldur en að klæða það og ljúka
öllum frágangi að utanverðu. Inni-
vinnan getur verið mun meiri þegar
með er talin raflögn, hitalögn, mál-
un, skápar, snyrtitæki, eldhús og
gólf.
Þannig er það í öllum húsum sem
byggð eru, hvort heldur það er úr
timbri eða steini.
Þau eru vinaleg og falleg íbúða-
hverfín í Noregi þar sem næstum
hvert hús er byggt úr timbri.
Timburhús á íslandi
Tregða hefur verið hér á landi
varðandi byggingu timburhúsa.
Sumt fólk hefur borið ótta í brjósti
vegna eldhræðslu. Við höfum því
miður reynslu af að eldsvoðar herja
einnig á steinhús og þar hefur
stundum brunnið allt sem brunnið
gat.
Rökin fyrir því að þjóðin býr að
mestu í steinsteyptum húsum nú eru
þau að við byggjum þau úr innlendu
hráefni. Sannleikurinn er sá að við-
haldskostnaður margra húsa úr hinu
»varanlega efni« er að sliga fjöl-
margt eldra fólk. Jafnframt sækist
margt yngra fólk eftir að kaupa
gömul timburhús til íbúðar.