Morgunblaðið - 24.06.1995, Page 2
2 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Áluigi SH beinist að dóttur-
fyrirtæki Faroe Seafood
TALSVERÐAR líkur eru taldar á
að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
kaupi dótturfyrirtæki Faroe Sea-
food í Grimsby. SH hefur hins
vegar ekki áhuga á að kaupa sjálft
móðurfyrirtækið, en flest bendir
til að nýtt fyrirtæki taki við rekstri
þess eftir helgina.
Faroe Seafood, sem áður hét
Föroya Fiskasalan, á í gífurlegum
fjárhagserfíðleikum. Allt eigið fé
þess er uppurið og lánardrottnar
neita að fjármagna tapreksturinn
áfram. Fyrir stuttu var dótturfyr-
irtæki Faroe Seafood í Hirsthals
Draumur
sr. Péturs
rætist
Akureyri. Morgunblaðið.
SÉRA Pétri Þórarinssyni
sóknarpresti í Laufási við Eyja-
fjörð var afhent sérútbúin
dráttarvél síðdegis í gær, á 44.
afmælisdegi hans.
Pétur hefur lifað með sykur-
sýki frá barnæsku og hefur hún
tekið sinn toll, þann stærsta á
liðnu ári þegar taka þurfti af
báða fætur hans með stuttu
millibili.
Með dyggum stuðningi eigin-
konu sinnar, Ingibjargar Sig-
laugsdóttur, hefur Pétur þó ekki
gefist upp og um síðustu áramót
orðaði hann þann draum sinn
að eignast sérútbúna dráttarvél,
„sem fótalaus maður gæti gösl-
ast á um tún og akra,“ eins og
Gísli Sigurgeirsson, einn for-
sprakka söfnunar vegna drátt-
arvélarkaupanna, orðaði það á
hlaðinu á Laufási í gær. Á mynd-
inni sést Pétur ásamt Ingibjörgu
eiginkonu sinni og Heiðu Björk
dóttur þeirra, við nýju dráttar-
vélina.
Alls söfnuðust liðlega þrjár
milljónir og var keypt vél af
gerðinni Valmet 465, með kraft
á við 70 hross. Ekki þarf Pétur
annað en ýta á rofa til að tengja
kraftinn út í öll hjól og sömu
aðgerð þarf til að stöðva vélina,
selt. Það dugar því þó engan veg-
inn til bjargar.
Eina eign fyrirtækisins nú er
dótturfyrirtækið í Grimsby og
bendir allt til þess að það verði
einnig selt. í raun hafa lánar-
drottnar, Den Danske Bank,
Hambros Bank og Föroya Banki,
yfírtekið dótturfyrirtækið. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins snúast viðræður bankanna við
SH fyrst og fremst um sölu þess
en ekki móðurfyrirtækisins enda
mun SH ekki hafa áhuga á að
eignast það.
en til að hemla þarf að hnika
til litlum armi.
Vélin er finnsk, en auka-
búnaður, sem tók um eitt
hundrað stundir að selja í hjá
Viðgerðarþjónustunni, er
sænskur. Það er Bújöfur sem
hefur umboð fyrir þessar vélar.
Forstjóri Valmet hyggur á ferð
heim að Laufási síðar í sumar
til að fylgjast með sóknarpresti
í heyskapnum.
Faroe Seafood í Grimsby hefur
aðsetur beint á móti dótturfyrir-
tæki SH í Grimsby. Með kaupum
SH á fyrirtækinu er talið víst að
hægt verði að ná fram umtals-
verðri hagræðingu. Faroe Seafood
í Grimsby er auk þess mjög álit-
legt fyrirtæki og því vænlegur
fj árfestingarkostur.
Nýtt fyrirtæki stofnað
Fyrr í vikunni stofnuðu stjóm-
endur Faroe Seafood nýtt fyrir-
tæki, sem heitir 16. júní. Búist er
við að það taki yfír rekstur Faroe
Fram kom í máli Gísla að
allir sem að málinu komu voru
boðnir og búnir til verka og
kröfðust ekki endurgjalds fyr-
ir. „Pétur, dráttarvélin er þín,
örlítil viðurkenning frá sam-
ferðamönnum til þín og þinna
fyrir baráttuþrek í andbyr,
sem gefið hefur öðrum þor og
styrk við hliðstæðar aðstæð-
ur.“^
„Ég er nánast orðlaus yfir
Seafood strax eftir helgi. Rætt
hefur verið um að atvinnuþróunar-
sjóður, sem í er danskt fjármagn,
leggi 100 milljónir danskra króna
til nýja fyrirtækisins, en Morgun-
blaðinu hefur ekki tekist að fá
þetta staðfest í Færeyjum.
Stjómendur Faroe Seafood
vildu ekki tjá sig um málið og
sömu svör fengust frá landsstjóm-
inni.
Fyrirtækið hefur verið lang-
stærsta fískútflutningsfyrirtæki
Færeyja um langt skeið og annast
um 90% alls fiskútflutnings.
undirtektum við minni litlu bón,
ég ætlaðist ekki til annars en
að klambrað yrði saman búnaði
á gamla vél,“ sagði Pétur er
hann tók við vélinni. „Með til-
komu þessarar vélar hefur
draumur minn ræst, ég get
áfram stundað búskapinn,“
sagði hann, en átti von á að
geta æft sig á vélina áður en
sláttur hæfist, ekki yrði farið
að slá alveg á næstunni.
Seðlabankastjóri
um Víetnam
Góðir
mögnleikar
á samstarfi
STEINGRÍMUR Hermannsson
seðlabankastjóri telur að hvergi séu
betri möguleikar fyrir íslenskar
stofnanir og fyrirtæki að hefja þró-
unar- og viðskiptasamstarf í sjávar-
útvegi en í Víetnam. Seðlabanka-
stjóri ferðaðist til landsins í boði
sjávarútvegsráðherra Víetnams.
Hann átti fundi með helstu ráða-
mönnum þjóðarinnar, m.a. í því
skyni að kanna hvort þessar þjóðir
gætu unnið saman og átt viðskipti
á sviði sjávarútvegs.
Steingrímur segir fréttir opinberr-
ar fréttastofu Víetnams um að hann
hafí boðið fram víðtæka aðstoð ís-
lendinga til uppbyggingar sjávarút-
vegs í Víetnam orðum auknar. Hann
hafí einfaldlega bent á það í viðræð-
um að hann teldi ákaflega mikla
möguleika á samstarfí á milli íslend-
inga og Víetnama.
Vill stuðla að samstarfi
„Ég hef mikinn áhuga á að stuðla
að því að stofnað verði til samstarfs
við aðrar þjóðir á sviði sjávar-
útvegs," sagði Steingrímur í samtali
við Morgunblaðið. „Ég hef ekki
heimsótt land þar sem mér sýnast
vera meiri möguleikar til samstarfs.
Landið er tiltölulega lítið borið sam-
an við sum önnur og það er mjög
gott vinnuafl í landinu. Sjávarútveg-
ur í Víetnam þarfnast tækniupp-
byggingar frá grunni,“ sagði hann.
♦ ♦ ♦------------
Evrópumótið í brids
Norðmenn
sigraðir
Vilamoura. Morgunblaðið.
ÍSLENSKA liðið í opna flokknum á
Evrópumótinu í brids hóf í gær
göngu upp stigatöfluna með jafn-
tefli við Breta og sigri á Norðmönn-
um. Liðið er nú í 17. sæti og hækk-
aði um fimm sæti í gær. Islenska
kvennaliðið vann stórsigur á Króöt-
um, 25-3, en tapaði 10-20 fyrir
Svíum og er áfram í 6. sæti.
Israelsmenn eru efstir í opna
flokknum með 245 stig. Síðan koma
ítalir, 236,5, Bretar, 236, Hollend-
ingar, 231, Svíþjóð, 230, Pólland,
229 og Rúmenar, 216. íslendingar
eru í 17. sæti með 197.
í kvennaflokknum leiða Frakkar
með 130 stig en síðan koma Tyrkir,
119 og Þjóðveijar, 116. íslendingar
eru í 6. sæti með 103 stig.
Ellert Borgar gengur til liðs við Jóhann G. Bergþórsson í meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði
Alþýðunokkur hyggst
ráða vali á bæjarsljóra
ENN ER ekki ljóst við hveija Al-
þýðuflokkurinn í Hafnarfírði hyggst
hefja viðræður um meirihlutasam-
starf í bæjarstjóm. Ljóst er þó að
Alþýðuflokksmenn munu ráða hver
verður næsti bæjarstjóri.
í dag verður fundur í fulltrúaráði
flokksins og að sögn Ingvars Vikt-
orssonar, oddvita Alþýðuflokks-
manna, verða málin rædd þar. I gær
boðaði flokkurinn fulltrúa Alþýðu-
bandalags og tvíklofíns Sjálfstæðis-
flokks til fundar og segir Ingvar að
einungis hafí helstu atriði verið rædd
á þeim fundum.
Taka því rólega
yfir helgi
Ljóst er að bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins eru klofnir í tvennt
og er Ellert Borgar Þorvaldsson
genginn til liðs við Jóhann G. Berg-
þórsson.
Ingvar sagði að Alþýðuflokks-
menn hygðust taka því rólega yfir
helgina. Enn væri ekki búið að kanna
alla hluti sem flokkurinn vildi fá á
hreint áður en viðræður hæfust fyr-
ir alvöru. Býst hann við að búið
verði að mynda meirihluta um næstu
helgi.
Aðspurður um hvort það hefði
einhver áhrif á val samstarfsmanna
að Jóhann G. 'Bergþórsson var í við-
ræðum við Alþýðuflokkinn um meiri-
hlutasamstarf í janúar síðastliðnum
sagði Ingvar að Jóhann væri jafn-
vænlegur kostur og aðrir.
Ingvar sagði að ekki hefði verið
rætt um hver yrði næsti bæjarstjóri.
„Það er mjög eðlilegur hlutur að við
ráðum vali bæjarstjóra," sagði hann,
„hvort sem það verður pólitískur
bæjarstjóri eða ekki.“
Sjálfstæðismenn klofnir
Magnús Gunnarsson, oddviti sjálf-
stæðismanna, sagði að hann liti svo
á að hann sjálfur og Valgerður Sig-
urðardóttir væru fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði.
„Ég hef lýst því yfír að ég vinni
ekki með Jóhanni G. Bergþórssyni
og Ellert ætlar að fylgja Jóhanni,“
segir hann. „Það þýðir það að við
Valgerður erum bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði. Ég get
ekki litið svo á að Jóhann sé bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, þó auð-
vitað sé hann kjörinn sem slíkur."
Hann kvaðst ekki álíta að þessi
staða yrði til þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn í Hafnarfírði klofnaði
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
INGVAR Viktorsson, oddviti Alþýðuflokksins í bæjarstjórn Hafn-
arQarðar, heilsar sjálfstæðismönnunum Ellerti Borgari Þorvalds-
syni og Jóhanni G. Bergþórssyni í upphafi fundar þeirra í gær.
endanlega og bjóst ekki við að stað-
an hefði áhrif á kjörfylgi flokksins.
Við erum líka
sjálfstæðismenn
Jóhann Bergþórsson sagði
ómögulegt að segja hver yrði fyrir
valinu hjá Alþýðuflokknum, en hann
mætti á fundinn í gær ásamt Ellerti
Borgari Þorvaldssyni. „Við komum
þarna sem sjálfstæðismenn," segir
hann. „Við lltum enn á okkur sem
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
engu síður en hinir.“
Hvað varðaði stöðu Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarflrði, sagði Jó-
hann: „Maður verður bara að sjá
hvernig þróun mála verður.“