Morgunblaðið - 24.06.1995, Page 10
10 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfirlýsing verkalýðsfélaganna
VERKALÝÐSFÉLÖG starfsmanna
álversins gáfu út svohljóðandi yfir-
lýsingu í tengslum við undirritun
kjarasamninganna við ÍSAL og VSÍ
í gær, sem er óuppsegjanleg fram
til aldamóta:
„Neðangreind verkalýðsfélög
sem eru aðilar að kjarasamningi við
íslenska álfélagið h.f. lýsa yfir eftir-
farandi:
1. Verkalýðsfélög starfsmanna
munu semja sameiginlega um einn
kjarasamning sem gildi fyrir alla
félaga þeirra er starfa hjá ISAL.
2. Verkalýðsfélögin munu við
afgreiðslu á sameiginlegum heild-
arkjarasamningi viðhafa sameigin-
lega skriflega allsherjaratkvæða-
greiðslu.
3. Verkalýðsfélögin munu við-
hafa sameiginlega skriflega alls-
herjaratkvæðagreiðslu um afstöðu
starfsmanna til verkfallsboðunar.
Yfirlýsing þessi gildir meðan
gerður er sameiginlegur heildar-
kjarasamningur við íslenska álfé-
lagið h.f., þó aldrei skemur en í
þrjú ár frá því kjarasamningur dag-
settur 23. júní 1995 rennur úr gildi.
Yfirlýsingin framlengist síðan
um þtjú ár í senn nema öll félögin
séu sammála um að breyta eða slíta
henni.
Æski eitthvert verkalýðsfé-
lag/samband að segja sig frá yfrr-
lýsingunni skal það gert með minnst
sex mánaða fyrirvara, áður en hún
fellur næst úr gildi.
Yfrrlýsing þessi tekur gildi þegar
kjarasamningur undirritaður 23.
júní 1995 hefur verið samþykktur.“
Undir yfrrlýsinguna skrifa for-
ystumenn tíu verkalýðsfélaga um
470 starfsmanna sem starfa hjá
íslenska álfélaginu hf.
FASTEIGNASALA - Ármúla 21 - Reykjavik
S: 533-4040 - Fax 588-8366
Opið í dag frá 11-14
Traust og örugg þjónusta
LAUFENGI - GRAFARV.
Rúmg. 4ra herb. íb. á 2. hæð í litlu
fjölb. Stærð 111 fm. Sérsm. innr. Áhv.
húsbr. 5,9 millj. Verð 8,4 millj. 4888.
ÆSUFELL - LAUS STRAX.
4ra-5 herb. um 108 fm endaíb. á 2.
hæð. íb. þarfnast endurn. Fallegt út-
sýni. Laus strax. Verð 6,6 millj. 4940.
5-6 herb.
ALFTAHOLAR. Vorum að fá (
sölu 5 herb. íb. á 3. hæð, efstu, ásamt
sérbyggöum bílsk. Flús nýl. standsett
utan. 4 svefnherb. Parket. Stórar suð-
ursv. Gervihnattasjónvarp. Örstutt í
skóla og flesta þjónustu. Laus fljótl.
Verð 8,7 millj. 6412.
1 MARKARVEGUR. Glæsil. 5
herb. endaíb. á 3. hæð á þessum vin-
sæla stað við Borgarspítalan. Parket
á öllum gólfum. Stærð 123,2 fm. Bílsk.
29,3 fm. Áhv. 1,4 millj. Verð 11,5
millj. 6406.
SMYRILSHÓLAR. 5 herb. íb. á
2ja herb. íbúðir
EYJABAKKI. Rúmgóð 2ja herb. í
(b. á 1. hæð. Pvhús innaf. eldhúsi.
Parket. Glæsil. útsýni. Áhv. 3 millj.
6247.
HRAFNHÓLAR - „PENT-
HOUSE“. Ib. á 8. hæð í lyftuhúsi.
Stærð 43 fm. Svalir meðfram allri íb.
Glæsil. útsýni yfir borgina. Laus strax.
Lítið áhv. Verð 3,9 millj. 4046.
ÞANGBAKKI. 2ja herb. íb. á 5.
hæð í lyftuhúsi. Stórar svalir. Þvhús á
sömu hæð. Áhv. 2,3 millj. Verð 5,5
millj. 6407.
FRAMNESVEGUR. Mjög góð
nýstandsett 2ja herb. íb. á jarðhæð í
þríb. Stærð 60 fm. Sólpallur. Áhv.
húsbr. 2,9 millj. Verð 5,3 millj. 6391.
HRAUNBÆR. Rúmg. 67 fm 2ja
herb. íb. á 1. hæð (jarðh.). Suðursv.
Hús nýl. viðg. að utan. Laus strax.
Verð aðeins 4,9 millj. 4340.
HAMRABORG. Góð 2ja herb. íb.
á 3. hæð í lyftuh. ásamt stæði í bíl-
skýli. Þvottah. á hæðinni. Lítill hús-
sjóður. Verð 5,1 millj. 6393.
VESTURGATA„PENT-
HOUSE". Nýl. 2ja herb. íb.
á 4. hæð í fjórbýlish. Glæsil. út-
sýni. Tvennar stórar svalir. íb.
er til afh. strax tilb. u. trév.
4978.
ÞÓRSGATA - RVÍK. Ein
staklíb. í kj. m. sérinng. í nýl. parh.
Góðar innr. Parket. Laus fljótl. Verð
3,5 millj. 6374.
NJÁLSGATA - RIS. Sérl.
skemmtil. innr. risíb. í eldra húsi. Sér-
inng. Tengt fyrir þvottavél á baði. Laus
strax. Áhv. byggsj. 2,5 millj. Verð 4,8
millj. 6388.
SKERJABRAUT - SELTJN.
2ja-3ja herb. íb. í þríb. Stærð 53 fm.
Sérinng. Nýtt gler og gluggar. Lítið
áhv. Verð 5,5 millj. 4177.
DÚFNAHÓLAR. Snyrtil. 2ja
herb. íb. á 1. hæð í lyftuh. Fallegt út-
sýni. Hús i góðu ástandi. Húsvörður.
Verð 4,9 millj. 6304.
3ja herb. íbúðir
LOGAFOLD M. BÍLSKÝLI.
Glæsil. innr. rúmg. 3ja herb. íb. ásamt
stæði í bílsk. Alno-innr. Suðursv.
Þvhús innaf eldhúsi. Fallegt útsýni.
Laus strax. Áhv. 2 millj. Verð 8,7
millj. 6373.
BLÖNDUHLÍÐ. Mjög góð risíb.
í fjórb. 75 fm af gólffleti. Notal. íb. á
frábærum stað. Áhv. byggsj. 2,8 millj.
Verð 6,3 millj. 6297.
MIÐLEITI. Rúmgóð 3ja herb. íb.
á 4. hæð í lyftuhúsi. Suðursv. gott
útsýni. Bílsk. Mikil sameign. Laus
strax. Verð 9,5 millj. 6286.
BUGÐUTANGI - MOS.
Rúmg. 3ja herb. kjíb. í tvíbýli. Sérinng.
Stærð 88,6 fm nettó. Skemmtil. innr.
eign. Parket. Áhv. byggsj. 3 millj.
Verð 6,6 millj. 3562.
BLIKAHÓLAR - LAUS.
Rúmg. 3ja herb. íb. á 4. hæð í lyftuh.
Glæsil. útsýni yfir borgina. Parket.
Tengt f. þvottav. á baði. Hús nýl. viðg.
og málað að utan. Laus strax. Verð
6,3 millj. 6249.
MIÐHOLT — MOS. Nýl. fullb.
3ja herb. íb. á 2. hæð í litlu fjölb.
Þvottah. innaf eldh. Laus strax. Verð
7,8 millj. 6413.
SLÉTTAHRAUN - HF. Rúmg.
3ja herb. íb. á 2. hæð. Sérl. gott fyrir-
komul. Þvottah. á sömu hæð. Ahv.
hagst. lán 3,8 millj. Verð 6,5 millj.
5065.
EFSTIHJALLI - KÓP. Snyrtil.
og vel umgengin rúmg. 3ja herb. íb. á
2. hæð. Suðursv. Glæsil. útsýni. Laus
fljótl. 6402.
VALSHÓLAR. 3ja herb. endaíb.
i litlu fjölb. Þvhús og búr innaf eldh.
Suðursv. Hús í góðu ástandi. Lítið
áhv. Verð 6,8 millj. 4208.
SKIPASUND. Mjög góð 3ja herb.
kjíb. með sérinng., stærð 72 fm. Park-
et. Fallegur garður. Laus strax. Áhv.
húsbr. 3,1 millj. Verð 6,5 millj. 6199.
SELJAVEGUR - LAUS. Góð
risíb. í steinh. ca 70 fm. Nýtt þak. Hús
í góðu ástandi að utan. Garður. Tvær
geymslur. Verð aðeins 4,9 millj. 6231.
4ra herb. íbúðir
ENGIHJALLI. Góð íb. í lyftuh.
Tvær lyftur. (b. i góðu ástandi. Tvenn-
ar svalir. Útsýni. Losun samkomul.
Verð 6,8 millj. 4682.
STÓRAGERÐI - M/BÍLSK.
Fallega innr. 4ra herb. endaíb. á 3.
hæð ásamt bílsk. Tvær saml. stofur
og 2 svefnherb. Nýl. standsett bað-
herb. Parket. Suðursv. Verð 8,3 millj.
4311.
FÍFUSEL - M/BÍLSKÝLI.
Stórhugguleg 115 fm íb. á 1. hæð
ásamt íbherb. í kj. Parket. Þvottah. [
ib. Bílskýli. Lítið áhv. Verð 8 millj.
5128.
SLÉTTUVEGUR 11 -
RVÍK - ÞJÓNUSTUÍB.
Glæsil. innr. endaíb. á 1. hæð
(jarðh.) ásamt bílskúr. Stærð íb.
116,8 fm nettó. Vandaðar innr.
Parket. Verð 11,9 millj. 6008.
ENGIHJALLI - KÓP. Glæsil.
4ra herb. endaíb. á 8. hæð í lyftuh.
Glæsil. útsýni. Parket. Nýl. standsett
baðherb. Laus strax. Áhv. byggsj. 3,4
millj. Verð 7,2 millj. 4975.
VESTURBERG. Góð4ra herb. íb.
á 4. hæð í fjölb. Glæsil. útsýni. Tengt
f. þvottav. á baði. Verð 6,8 millj. Ath.
skipti rnögul. á 3ja herb. íb. á 1. hæð
eða í lyftuh. 2361.
AUSTURBERG - M/BÍLSK.
Rúmg. 4ra herb. íb. á 4. hæð. Suður-
svalir. Parket. Bílskúr. Laus strax.
Hagstætt verð. Skipti á minni eign
mögul. Seljandi getur lánað hluta
kaupverðs til allt að 15 ára. 7011.
3. hæð í litlu fjölb. Parket. Fallegt út-
sýni. Stærð 101 fm. Verð 7,8 millj.
6292.
FRÓÐENGI. Glæsil. íb. á tveimur
hæðum 140 fm. Stæði í innb. bílskýli.
Tvennar svalir. Mikið útsýni. Laus
strax. Eign tilb. u. innr. V. aðeins 7,5
m. 4779.
Sérhæðir
GRÆNAHLÍÐ - M/BÍLSK.
Neðri sérhæð í þríb. ásamt samb.
bílsk. Stærð 143 fm bílsk. 25 fm. 4
svefnherb. Suðursv. Laus strax. Verð
11,8 millj. 4980.
RAUÐAGERÐI. Neðri sérhæð í
þríbhúsi ásamt bílsk. Stærð 223 fm.
Sérinng. Nýl. endurn. eldh., baðherb.
o.fl. Suðursv. Laus fjótl. Verð 9,8
milij. 6172.
HÁTEIGSVEGUR - RVÍK.
Rúmg. 5 herb. þakíb. mikið endurn.,
m.a. parket, nýl. eldhinnr., ofnakerfi
og lagnir. Suðursv. Útsýni yfir Mikla-
tún. Áhv. byggsj. 3,4 millj. Laus fljótl.
Verð 8,9 millj. 4918.
Raðhús - parhús
ÁSGARÐUR. Fallegt raðh. á
tveimur hæðum ásamt hálfum kj.
Stærð 119 fm + 24 fm bílsk. Gott út-
sýni. Ath. skipti á 3ja-4ra herb. íb.
mögul. Verð 10,9 millj. 4137.
HÁAGERÐI. Gott raðh. j arðh.,
hæð og ríshæð. Innb. bílsk. Hús í góðu
ástandi. Mögul. á 2 íb. Útsýni. Heildar-
stærð 214 fm. Verð 12,8 millj. 6348.
BRAUTARÁS. Pallaraðh. ca 190
fm. Góðar innr. Arinn. Góð staðsetn.
Rúmg. bílsk. Verð 13,8 millj. 5114.
LÁTRASTRÖND. Parh. á tveim-
ur hæðum ásamt innb. bílsk. ca 240
fm. Laus strax. Ekkert áhv. Verð 11,9
millj. 4656.
LINDASMÁRI - KÓP. Raðh
á tveimur hæðum m. innb. bílsk. Stærð
174 fm. Húsið afh. tilb. u. innr. og
fullfrág. að utan. Verð 10,8 mlllj. 6282.
Einbýlishús
SOGAVEGUR. Snyrtil. timburh.
sem er hæð og ris ásamt kj. Stærð
145 fm. Áhv. byggsj. 3,4 millj. Verð:
Tilboð. 6366.
GILJASEL. Vel stands. hús 254
fm, Tvöf. bílsk. Góð staðs. Ath. afh.
samkomul. Verð 14,9 millj. 4775.
SUNNUFLÖT - GBÆ. Hús
neðan við götu. Séríb. á jarðh. Tvöf.
bílsk. Fráb. staðsetn. rétt við hraunjað-
arinn. 4937.
HRAUNFLÖT VIÐ ÁLFTA-
NESVEG. Nýtt einb. á einni hæð
ásamt sérb. tvöf. bilsk. Marmari á
gólfum. Arinn. Flísal. baðherb. Bílsk.
innr. sem íb. Laust strax. 6025.
Atvinnuhúsn.
SMIÐJUVEGUR - KÓP. Iðn
aðarhúsn. á einni hæð um 240 fm.
Góðar innkeyrsludyr. Rúmlega 6 m
lofthæð. Milliloft. Bjart og gott húsn.
Verð 9,8 millj. 3683.
DAN V.S. WIIUM, HDL., LÖGG. FASTSALI - SÖLVI SÖLVASON, HDL
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI - BIRGIR GEORGSSON, SÖLUM.
Morgunblaðið/Þorkell
Samningar undirritaðir
KJARASAMNINGAR verkalýðsfélaga álversstarfsmanna og við-
semjenda voru undirritaðir laust fyrir hádegi í gær. F.v. Gylfi
Ingvarsson, aðaltrúnaðarmaður starfsmanna, Þórir Einarsson
ríkissáttasemjari Geir Gunnarsson, vararíkissáttasemjari og
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSI.
Samið í ÍSAL-deilu eftir 20 klst. fund
Samiðum
11,4% hækkun
Samkomulag náðist í álversdeilunni í gær-
morgun og var kjarasamningur undirritaður
að loknum 20 klukkustunda sáttafundi.
Samningurinn felur að öllu sam-
anlögðu í sér rúmlega 11,4%
kauphækkun á samningstím-
anum en hann gildir til 31. desember
1996. Var samningurinn undirritað-
ur með fyrirvara um samþykki fram-
kvæmdastjórnar vinnuveitenda og
félagsfunda verkalýðsfélaga. Var
verkfallsaðgerðum hjá Islenska álfé-
laginu hf. frestað um sex sólarhringa
á meðan kynning á efni samningsins
og atkvæðagreiðsla fer fram hjá
hlutaðeigandi verkalýðsfélögum. í
samkomulagi samningsaðila segir að
komi til þess að samningurinn falli
í atkvæðagreiðslu hjá einhverju fé-
laganna kemur verkfall þá á ný til
framkvæmda um hádegi fímmtudag-
inn 29. júní nk. og fella þá hlutaðeig-
andi félagsmenn niður störf á mið-
nætti aðfaranætur föstudagsins 30.
júní.
Yfirlýsing mikilvæg
vegna stækkunar
Eitt erfíðasta úrlausnarefni við-
ræðnanna var skipulag samskipta á
milli verkalýðsfélaga starfsmanna,
sem eru tíu talsins, og vinnuveit-
enda, en þeir lögðu áherslu á að fé-
lögin kæmu fram sem einn viðsemj-
andi og það yrði hluti af samkomu-
lagi aðila. Var það talið mjög þýðing-
armikið vegna væntanlegra við-
ræðna við Alusuisse-Lonza um
stækkun álversins. Verkalýðsfélögin
litu hins vegar á kröfur viðsemjend-
anna sem íhlutun í innri málefni
verkalýðshreyfíngarinnar og höfn-
uðu því að gert yrði sérstakt sam-
komulag um þetta og að
félögin afsöluðu sér lög-
bundnum rétti sínum.
Verkalýðsfélögin gerðu
með sér samstarfssamn-
ing til að koma til móts
við vinnuveitendur og er hann grund-
völlur að yfírlýsingu sem forystu-
menn allra vérkalýðsfélaganna gáfu
út sameiginlega og fylgir kjarasamn-
ingnum en þar lýsa þau m.a. yfír að
þau muni semja sameiginlega um
einn kjarasamning fyrir alla félags-
menn og viðhafa sameiginlega at-
kvæðagreiðslu um afstöðu starfs-
manna til verkfalla. Gildir yfirlýsing-
in til ársloka 1999.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er talið að ef ekki hefði
náðst niðurstaða í þessu máli hefði
dregið mjög á líkum þess að samn-
ingaviðræður gætu haldið áfram um
stækkun álversins.
Kjarasamningurinn kveður á um
3,2% hækkun launa frá 9. júní og
að frá 1. janúar 1996 skuli laun
hækka um 3% til viðbótar. Þá verður
hveijum starfsmanni sem hefur verið
á launaskrá 6 mánuði eða lengur
greidd 26 þús. kr. eingreiðsla við
aðra launaútborgun eftir samþykkt
samningsins.
Verulegar breytingar eru gerðar
á launaflokkum, sem taka gildi 15.
september næstkomandi. Er launa-
flokkum fækkað í fjóra og breytingar
gerðar á röðun í launaflokka. Lægstu
launaflokkar eru felldir niður og
verða grunnlaun á bilinu 57.702 til
72.922 kr. Þetta hefur þá þýðingu
að laun lægst launuðu starfsmanna
hækka um 10% vegna launaflokka-
breytinga til viðbótar öðrum hækk-
unum sem samningurinn kveður á
um. Aðrir starfsmenn færast færast
einnig upp launaflokka en fá minni
hækkanir.
Gert var samkomulag um að hluti
kostnaðarauka skuli tengjast lausn
á ágreiningi um hlutdeild í hagræð-
ingu, sem verkalýðsfélögin lögðu
mikla áherslu á. Náðist samkomulag
um að við regluleg grunnlaun bætist
sérstakir 178,65 kr. kaupaukar, einn
til þrír, við ákveðin skilyrði s.s við
viðgerðavinnu og vinnu vegna ker-
leka.
Þá var samið um að starfsmenn
fengju 19,5% greiðslur ofan á grunn-
laun vegna ferða til og frá vinnu,
Iaun flokksstjóra verða 15% hærri
en þeir eiga ella rétt á skv. röðun í
launaflokka og flokksstjórnar og
aðrir starfsmenn sem leysa yfirmenn
af fá 25% álag í stað 15%.
I kjarasamningnum var
einnig samið um greiðslu
sérstaks lífeyris til starfs-
manna við flýtt starfslok
sem felur í sér að allir
almennir starfsmenn
ISAL sem láta af störfum þegar
þeir eru orðnir eru 67 ára og hafa
starfað hjá fyriitækinu 10 ár eða
lengur eigi rétt á að sækja um sér-
stakan lífeyri þar til viðkomandi ná
70 ára aldri. Þá var samið úm að á
verksmiðjusvæðinu verði starfrækt-
ur sérstakur vinnustaður, Skjólgarð-
ur, fyrir þá starfsmenn ISAL sem
ekki hentar lengur að starfa á vinnu-
stað sínum vegna umhverfis eða af
öðrum ástæðum. Einnig er í samn-
ingnum að finna ítarleg ákvæði um
skipulag öryggismála á vinnustaðn-
um.
Ekki er reiknað með að atkvæða-
greiðsla um kjarasamninginn meðal
verkalýðsfélaganna hefjist fyrr en
eftir helgina.
Launaflokka-
hækkanir og
eingreiðsla