Morgunblaðið - 24.06.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 11
FRÉTTIR
Forystumenn viðsemjenda í álversdeilunni
Búið að jafna deilur
um hlut í liagræðingu
GYLFI Ingvarsson, aðaltrúnaðar-
maður starfsmanna álversins, seg-
ir að nýgerður kjarasamningur
rétti sérstaklega hlut hinna lægst
launuðu og um sé að ræða mesta
jafnlaunasamning sem í gildi sé á
íslenskum vinnumarkaði. Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSI segir að yfirlýsing verkalýðs-
félaganna um að standa sameigin-
lega að samningum og verkfalls-
boðun, ásamt því að tekist hefði
að setja endanlega niður deilur um
hlut starfsmanna í hagræðingu
fyrirtækisins, hefði lagt grunninn
að þeim launahækkunum sem í
samningnum felast og metnar eru
upp á rúm 11,4%.
„Þetta er eitt af þeim atriðum
sem á að geta greitt fyrir uppbygg-
ingu og frekara samstarfi við er-
lenda fjárfesta," segir Þórarinn um
yfírlýsingu verkalýðsfélaganna.
Hann sagði mest um vert að
tekist hefði að ná samningi án
utanaðkomandi þrýstings og setja
niður deilur sem hafí þjakað fyrir-
tækið um mánaða skeið. Hins veg-
ar sé enn of snemmt að segja
hvort hættu á lokun álversins hafí
verið bægt frá fyrr en niðurstaða
atkvæðagreiðslu um samninginn
lægi fyrir.
„Það lá fyrir frá upphafi að við
værum reiðubúnir til þess að
ganga lengra, ef það væri liður í
því að ná fram ásættanlegri niður-
stöðu um einhver þau atriði sem
fyrirtækið hefur lagt áherslu á,
meðal annars í tengslum við fyrir-
hugaða stækkun álversins.
Hér var tekist á um hugmyndir
um einn viðsemjanda, þar sem fé-
lögin sameinist með formbundnum
hætti, komi fram sem einn viðsemj-
andi og komist sameiginlega að
niðurstöðu í einni allsheijarat-
kvæðagreiðslu. Þetta tókst og fé-
lögin náðu saman um að koma
fram með loforð okkur til handa,
sem var ásættanlegt og tryggir
þetta form til aldamóta. Við teljum
þetta mjög merkilegan áfanga,“
sagði hann.
Ekki afsal á rétti einstakra
verkalýðsfélaga
Gylfí Ingvarsson, aðaltrúnaðar-
maður starfsmanna, sagðist vera
þokkalega ánægður með samning-
inn. „Við gerðum launaflokka-
breytingar sem hafa í för með sér
að lægstu launin hækka mest og
við höfum fækkað launaflokkum
verulega," sagði hann.
Gylfí sagði að þær launahækk-
anir sem samið var um, umfram
hækkanir í samningum annarra
stéttarfélaga að undanförnu, stöf-
uðu af því að starfsmenn ÍSAL
hefðu átt inni efndir fyrirtækisins
á greiðslum fyrir aukna hagræð-
ingu í rekstri og því markmiði
væri nú náð í kjarasamningnum.
Hann sagði að yfirlýsing verka-
lýðsfélaganna um sameiginlega
meðferð kjarasamninga og boðun
verkfalls fæli ekki í sér afsal félag-
anna á réttindum þeirra. „Þessi
yfirlýsing byggist á samstarfs-
samningi verkalýðsfélaganna og
er um að halda áfram því sem við
höfum gert. Við höfum alla tíð
gert sameiginlegan kjarasamning
og núna höfum við ákveðið að við-
hafa sameiginlega afgreiðslu
samninga," sagði hann.
Gylfi sagðist aðspurður vona að
nú skapaðist friður í samskiptum
starfsmanna og stjórnenda álvers-
ins á næstu árum. „Við höfum
lagt á það áherslu að tekið verði
upp annað samskiptamynstur en
verið hefur sem leiði til bættra
samskipta og ekki stendur á okkur
hvað það varðar," sagði Gylfi.
Niðurkeyrslan ekki talin hafa
valdið teljandi Ijóni
Undirbúningur undir lokun ál-
versins vegna verkfalls starfs-
manna stóð í tvær vikur en sam-
kvæmt upplýsingum Rannveigar
Rist, steypuskálastjóra ÍSAL, lítur
ekki út fyrir að niðurkeyrslan hafi
valdið fyrirtækinu teljandi tjóni.
Ekki hafa fengist upplýsingar um
hvað nýgerður kjarasamningur
mun kosta fyrirtækið í auknum
útgjöldum.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra sagði mikilvægt að tekist
hefði að afstýra lokun álversins.
Hann sagðist telja að kjarasamn-
ingurinn væri góður fyrir báða
aðila og að fyrirtækið virtist gera
vel við starfsmennina með því að
veita þeim aukna hlutdeild í hag-
ræðingu. Þá sagði hann að með
þessum samningi væri sleginn
tónn fyrir hugsanlega samnings-
gerð vegna mögulegrar stækkunar
álversins.
Finnur sagði að samkomulagið
gæfi tilefni til aukinnar bjartsýni
á að stækkun álversins yrði að
veruleika. „Það eru nokkuð miklir
möguleikar á að okkur takist að
ná samningum um stækkun. Þrátt
fyrir að fyrirtækið setji spurningar
við svona verkfallsátök, þá hefur
yfirlýsing verkalýðsfélaganna í för
með sér, að hún tryggir ákveðna
hluti og hún skapar aukið svigrúm
og betri forsendur en áður var svo
að af stækkuninni geti orðið,“
sagði hann.
Finnur sagði að samningamenn
um stækkun álversins hefðu hald-
ið nokkuð að sér höndum á meðan
kjaraviðræðurnar stóðu yfír en nú
færu menn aftur á fulla ferð í það
verkefni og héldu vinnunni áfram.
„Ég vona að þetta hafí ekki orðið
til þess að raska þeirri tímaáætlun
sem búið var að setja upp og að
við getum haldið óbreyttum
áformum,“ sagði hann.
íbúðir fyrir fólk 60 ára og eldra
Eiðismýri 30 - Seltjarnarnesi
n|i % , £
,í !, 01
■ c.1 i 1 l : q
; i 1 [•••T .i
Ibúðirnar verða til sýnis kl. 13-15 í dag,
laugardag 24. júní, og sunnudag 25. júní.
húsinu eru 2ja og 3ja herb. íbúðir. Kynnið ykkur verð og fyrirkomulag.
íbúðunum getur fylgt stæði í bílgeymslu.
Byggjendur eru Byggingafélag Gylfa og Gunnars hf. í samvinnu við
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.
Allar frekari upplýsingar gefur Ágúst ísfeld á byggingadeild
Félags eldri borgara, Borgartúni 31, sími 562 1477,
milli kl. 9 og 12 og í heimasíma 567 1454.
sjd
11ÍI1.ÍÍ9 197(1 LARUS Þ VALDIMARSSON, framkv/utosijori
UUL I ItlU UUL lu/U KRISTJAN KRISTJÁNSSON, lOGGiUUR fasiíignasaii
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
Úrvals íbúð - hagkvæm skipti
4ra herb. íbúð tæpir 100 fm í Seljahverfi. Öll eins og ný. Sér þvhús.
Góð bifreiðageymsla. Skipti möguleg á 2ja herb. íbúð.
Álfheimar - þríbýli - allt sér
Neðri hæð 5 herb. um 125 fm, sólrík. Nýtt gler. Sér þvhús við eld-
hús. Nýl. sérhitalögn. Vinsæll staður. Góð lán fylgja. Skipti mögul.
Fyrir smið eða laghentan
Stór og góð 2ja herb. íb. í reisulegu steinhúsi við Bræðraborgarstíg,
smíðaár 1976. Bráðab. innr. í eldhúsi. Þríbýli. Laus fljótl.
Suðuríbúð - öll eins og ný
3ja herb. íbúð við Súluhóla. Ágæt sameign. Mikið útsýni. 40 ára hús-
næðislán 3,3 millj. Óvenju lítil útb. Nánari uppl. á skrifst.
Á úrvalsstað við Digranesveg
Endurbyggt einbhús með 5 herb. íbúð. Ræktuð lóð 988 fm. Fráb. út-
sýni. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Hagkvæm skipti
í gamla bænum - nágrenni óskast gott skrifsthúsn. 120-150 fm í
skiptum fyrir ágætt skrifstofuhúsn. í lyftuhúsi neðarlega við Laugaveg.
Á söluskrá óskast:
Einbýlishús með 3-4 svefnherb. óskast i Mosfellsbæ. Raðhús eða
séríbúð kemur til greina.
Einbýlishús eða raðhús óskast í Seljahverfi með rúmg. bílskúr.
Húseign með 3ja-4ra herb. íbúð á hæð og lítilli ib. í risi eða kj.
Sérhæð eða raðhús í vesturborginni. Margt kemur til greina.
.Fjölmargir traustir kaupendur. Ýmiskonar eignask.
Opið ídag frá kl. 10-14.
Fjöldi eigna í skiptum.
Almenna fasteignasalan sf.
var stof uð 14. júlí 1944.
ALMENNA
FflSTEIGNASALAN
HUMVEBMBS. 552 1150-552 137»
- kjarni málsins!
Nettoc ASKO (cn» Qihm OTURBO nilfisk emide
oc CD 1— u_ > co '33 JZ Q FÖNIX AUGLÝSIR cc T3 "O xr < 0 —1
_l LU HÖFUM OPNAÐ NÝJA GLÆSILEGA DEILD MEÐ DANSKAR < m* 1— :>
< U- ELDHÚS- 0G BAÐINNRÉTTINGAR 0G FATASKÁPA. 30 TT <
o ZD —o CD Nú bjóðum víð allt sem þig vantar O —1
—J nr INNRÉTTINGAR OG RAFTÆKI < 1—
o í eldhúsið, baðherbergið, þvottahúsið og að auki fataskápa í 30
Q oc O svefnherbergið, barnaherbergið og anddyrið. £ cc -cr
o —1 LJJ 3= OPNUNAR - SÖLUSYNING cz 30 30 5
cc < KYNNINGARVERÐ Á INNRÉTTINGUM > 30
z u_ o TILBOÐSVERÐ Á RAFTÆKJUM US' cn
tr < i Velkomin í Fönix. Heitt á könnunni og ís fyrir börnin. 5
VLU Þeir sem versla fyrir kr. 10.000,- eða meira, geta tekið þátt í 23 23
o l laufléttri Fönix-getraun og unnið Nilfisk-ryksugu að verðmæti -<
LU cc kr. 31.600,- eða einhvern 5 aukavinninga. CZ m C3
CD Z \— 1— 'LU mánud. - föstud. DP!Ð 'augard-24. 6. 10-16 #^LJ| | B #V 30 cn >'
2 2 sunnud. 25. 6. 12-17 hátúni6á reykjavík sími 552 4420 m
EMIDE NILFISK ÖTURBO (öum ASKO NettO ,