Morgunblaðið - 24.06.1995, Side 18
18 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Burt með fíflana
úr garðinum
ÞÓ börnum finnist spennandi að
tína fífla í vönd handa mömmu eða
ömmu finnst flestum fullorðnum
afskaplega hvimleitt að hafa þessa
óboðnu gesti í grasinu hjá sér.
Lára Jónsdóttir
garðyrkjufræðing-
ur hjá Blómavali
segir að til að
sporna við miklum
fjölda fífla sé um
að gera að slá gras-
ið og þar með fíf-
lana áður en þeir
felli fræ.
„Þegar fífillinn
er orðinn að grárri
biðukollu berast fræin með vindin-
um og þannig sáir hann sér um
allan garð.“
Ef fíflamir eru þegar komnir út
um allt gras segir Lára að gamla
vistvæna ráðið dugi alltaf vel, þ.e.
að ráðast á þá með búrhníf eða
kaupa fíflajám svokallað. Járninu
er stungið niður eina 10-15 senti-
metra með rótinni og þar skorið á
hana. Þetta er síðan gert annað
slagið ásamt því að slá á meðan
fíflarnir em enn gulir.
Dugi þetta ekki er til efni sem
má úða í grasflöt. Efnið drepur
ekki einkímblöðung eins og gras
er en gengur frá
arfa, fíflum og öðru
sem fólki finnst
óæskilegt að hafa í
grasinu.
Þegar eitri er
úðað í gras þarf það
að vera þurrt og
má helst ekki rigna
fyrsta sólarhringinn
á eftir. Lára segir
að ekki éigi heldur
að úða þegar núbúið er að slá.
„Þetta dugar oftast en þarf í nokkr-
um tilfellum að endurtaka. Þessi
illgresiseyðir kann líka að drepa
blómjurtir og laufblöð á mnnum
þannig að úða þarf með varúð.“
Lára tekur fram að börn og dýr
eigi ekki að ganga á grasinu fyrstu
1-3 sólarhringana. „Eitur er alltaf
eitur og best að plokka fíflana bara
upp á gamla mátann."
Fjölskyldan saman
í ókeypis veiðiferð
VEIÐIDAGUR fjöl-
skyldunnar verður á
morgun, en að honum
standa Ferðaþjónusta
bænda, Landssamband
stangveiðifélaga og
Landssamband veiðifé-
laga, auk Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðar-
ins. Að baki veiðidags
býr sú hugmynd að fjöl-
skyldur kynnist þessari
tómstundaiðju, fari sam-
an í veiðitúr og njóti
þess eina dagstund að
renna fyrir vatnafisk í
stórbrotinni náttúru.
Ferðaþjónusta bænda
og stangveiðifélögin
bjóða ókeypis veiði á
morgun. Hægt er að
fara beint að veiðisvæð-
um, en Ferðaþjónusta
bænda mælist til þess að
fólk geri vart við sig hjá
viðkomandi veiðileyfis-
höfum, áður en byrjað er að
veiða.
Ókeypis veiði á vegum Ferða-
þjónustu bænda verður á eftir-
töldum stöðum í Meðalfells-
vatni, vötnunum í Svínadal;
Geitabergsvatni, Þórisvatni og
Eyrarvatni. Einnig í Haukadals-
vatni, Syðradalsvatni, Hnausa
tjörn, Höfðavatni, Vestmanns-
vatni, Ekkjuvatni, Urriðavatni
og Langavatni. Þá býður Ferða-
þjónusta bænda í veiði í Víkur-
flóði, Höfðabrekkuljörnum,
Heiðarvatni og Hestavatni.
í boði stangveiðifélaga verð-
ur ókeypis veiði á þessum stöð-
UNGAR dömur með afla
úr Hlíðarvatni.
um: í Elliðavatni, Hítarvatni,
Hvaleyrarvatni, Kleifarvatni,
Þingvallavatni (aðeins í landi
þjóðgarðsins), Langavatni í
Laxárdal, sem er við upptök
Mýrarkvíslar, Kringluvatni,
sem er 5 km sunnan við Langa-
vatn, í Vesturósi Héraðsvatna,
í Geitabergsvatni, Þórisstaða-
vatni, Eyrarvatni og Laxárvatni
á Asum.
Veiðisvæðin eru víðs vegar
um landið, en frekari upplýs-
inga er hægt að leita í Vötnum
og veiði og Veiðiflakkarnran-
um, upplýsingahandbók um sil-
ungsveiðisvæði um allt land.
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Emilía
Uppskrift vikunnar
Indverskur
gúllasréttur
INDVERSKIR réttir eru þekktir
fyrir að vera sterkir og eru marg-
ir sælkerar veikir fyrir þeim.
Hins vegar hefur það flækst fyr-
ir sumum sem ekki eru vanir
indverskri eldamennsku að elda
þá heima hjá sér. Þessi réttur
hefur þá kosti að einfalt er að
elda hann og það þarf ekki að
kunna mikið í eldamennsku til
þess að hann heppnist ágætlega.
í réttinum er
mikið karrý og er
ráðlegast fyrir þá
sem eru ekki van-
ir sterkum mat
að fara varlega
með kryddið.
Karrý er mis-
sterkt og fæst í
misjöfnum styrk-
leikaflokkum. í
þessari uppskrift er miðað við
indverskt karrý með miðlungs-
styrkleika. Stundum er ágætt
að blanda saman mildu og sterku
karrýi til helminga, til dæmis
hot og mild madras curry powd-
er frá Rajah.
Best er að smakka sig áfram
þegar maður er enn óvanur að
elda réttinn.
Indverskur
gúllasréttur
fyrir fjóra
600 g nautagúlias
4 msk. olía
2 laukar
2 hvítlauksgeirar
2 msk. karrý
_____’Atsk, engifer__
______!4tsk. kanill__
salt og pipar eftir smekk
1 'Á msk. hveiti
5 dl vatn
2 tsk. kjötkraftur
1 msk. creamed cocanut
1 msk. sitrónusafi
f msk. púðursykur
2 msk. tómatmauk
Brúnið gúllasið á djúpri pönnu.
Takið svo af og færið uppá disk.
Steikið laukinn á
sömu pönnu þar
til að hann verður
ljósgulur. Varist
að brenna lauk-
inn. Blandið sam-
an karrýi, engi-
fer, kanil, hveiti,
salti og pipar og
setjið saman við
laukinn. Steikið
við vægan hita í litla stund, og
bætið þá kjötinu út í með vatni
og kjötkrafti. Látið sjóða í u.þ.b.
hálfan annan tíma eða þar til
kjötið verður meyrt. Gætið þess
að vatnið gufi ekki allt upp og
ágætt er að bæta einstaka sinn-
um vatni út í réttinn og hræra
í. Nú er bætt við creamed cocoan-
ut sem er leyst upp í heitu vatni,
sítrónusafanum, púðursykrinum
og tómatmaukinu og hrært vel í
og látið malla í u.þ.b. 5-10 mínút-
ur.
Þessi réttur er mjög seðjandi.
Indversk hrísgrjón eru nauðsyn-
legt meðlæti og mango chutney
mauk, en það fæst í flestum
matvörubúðum. Einnig er gott
að bera fram ferska ávexti með,
t.d. mangóávöxt eða banana.
Sumum finnst nan-brauð vera
ómissandi með indverskum mat,
sérstaklega til þess að þurrka
afgangssósuna af diskinum.
Einnig er gott að hafa smurða
brauðsneið eða snittubrauð með.
Hafið nóg af svaladrykk með
matnum.
Sölusýning
á handverki
Í TILEFNI af ráðstefnu norrænna
búvísindamanna setur Hándverk,
reynsluverkefni upp sölusýningu á
íslensku gæðahandverki í Háskóla-
bíói 26.-29. júní. Sýningin er opin
almenningi þriðjud. 27. júní kl.
10-16 og aðgangur ókeypis.
Markmið Handverks, sem er 3ja
ára reynsluverkefni, er að efia hand-
verksiðnað, stuðla að framförum í
framleiðslu handverksmuna og efl-
ingu gæðavitundar meðal hand-
verksfólks. Guðrún Hannele Hentt-
inen, verkefnisstjóri, segir að á sýn-
ingunni verði rjóminn af íslensku
handverki, m.a. verði þar ýmsir
nytjahlutir; minjagripir og skraut-
munir eftir sautján handverksmenn
víðs vegar á landinu. Munirnir eru
úr íslensku hráefni; ull, hornum,
beinum, tré, silfri, leir.
Flugnafælur
TVÆR gerðir af flugnafælum komu
nýlega á markað. Önnur gengur
fyrir rafhlöðu og er því hægt að
bera hana á sér á ferðalagi, en hinni
er stungið í rafmagnsinnstungu á
vegg og er sérstaklega ætluð í svefn-
herbergi eða aðrar vistarverur.
Fælurnar, sem eru framieiddar á
Italíu, gefa frá sér hátíðnihljóð, sem
mýflugur á varptíma þola ekki. A
umbúðum segir að það líkist hljóði
sem karlfluga gefur frá sér. „Fijóvg-
uð kvenfluga þolir hljóðið ekki og
forðar sér ef hún heyrir það.“ Stilla
má tiðni þess eftir því hve mikið er
af flugum í umhverfinu.
Hver flugnafæla kostar um 1.200
kr. og að sögn Þuríðar Ottesen, inn-
flytjanda, fást þær m.a. í lyfjaversl-
unum, veiðihúsum, fríhafnarverslun-
inni í Keflavík og í flugvélum.
-----------♦.♦ ♦-----
Hafðu lista
með í búðina
FÓLKI hættir til að kaupa allskyns
óþarfa í matvöruverslunum, sérstak-
lega ef það fer í leiðangurinn með
tóman maga.
í bandarísku blaði var nýlega ver-
ið að ráðleggja lesendum hvernig
þeir ættu að fara að því að spara
tíma og peninga þegar keypt væri
til heimilisins. Þeim var bent á að
hafa alltaf lista með sér í búðina þar
sem skráð væri það sem kaupa á
og ekki að hnika frá honum.
Þá var lesendum ráðlagt að skipta
listanum niður eftir því hvar í búð-
inni vörurnar eru.
Lögð var áhersla á að fjölskyldan
settist niður í hverri viku og gerði
áætlun yfir það sem elda ætti á
hveijum degi þá vikuna. Að því búnu
færi einhver og athugaði hvað vant-
aði. Að lokum var mælt með að fólk
léti blað hanga á ísskápnum svo það
gæti fært inn það sem klárast.
€M> SKEMMTUN FYRIR
ALLA FIÖLSR YLPUN A
0 22 - 25* júlí