Morgunblaðið - 24.06.1995, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 39
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
STARFSMENN Prentsmiðjunnar Odda og fjölskyldur þeirra
samankomin við Oddakirkju á Rangárvöllum. Sr. Sigurður
Jónsson sóknarprestur er fyrir miðju.
Vestfirzkar
konur
Ráðstefna um
atvinnumál
kvenna á
Vestfjörðum
SNERPA er heitið á átaksverkefni
í atvinnumálum kvenna á Vest-
fjörðum, sem heldur ráðstefnu á
Isafirði í dag, 24. júní.
Verkefnið Snerpa varð til í kjöl-
far ráðstefnu um atvinnumál
kvenna sem haldin var á ísafirði
fyrir fjórum árum. Á þeirri ráð-
stefnu komust vestfirzkar konur
að þeirri niðurstöðu, að efna þyrfti
til átaks til að efla stöðu kvenna
í atvinnulífinu og þá sérstaklega
í fyrirtækjarekstri. Hefur Snerpa
nú verið starfrækt í tvö ár og
stutt konur til frumkvæðis í at-
vinnusköpun á Vestfjörðum.
Verkefninu lýkur nú í sumar.
Fyrir ráðstefnunni í dag liggur
fyrir að líta yfir farinn veg og
meta þróun mála á síðustu fjórum
árum; vega og meta þann árangur
sem náðst hefur fyrir konur í at-
vinnulífinu. Stefnt er að því að
komast að niðurstöðu um það
hvað eigi að taka við, hvernig eigi
að vinna að málefnum kvenna i
framtíðinni.
í tengslum við ráðstefnuna
verður haldin framleiðslusýning
þar sem nýjungar í vestfirzku at-
vinnulífi sem orðið hafa til fyrir
tilstilli kvenna verða kynntar.
Ráðstefnan fer fram í Stjórn-
sýsluhúsinu og hefst kl. 10 árdeg-
is.
Ferming
FERMING verður í Möðrudals-
kirkju á Fjöllum sunnudaginn 25.
júní kl. 14.
Fermd verða:
Eyrún Huld Haraldsdóttir,
Eyvindará, Egilsstöðum.
Vilmar Freyr Sævarsson,
Sólvöllum 6, Egilsstöum.
Prestur er sr. Bjarni Guðjóns-
son, Valþjófsstað.
Fj ölskylduhátí ð
á Miklatúni
NÁGRANNAR halda fjölskyldu-
hátíð á Miklatúni fyrir hverfið
umhverfis Miklatún; Hlíðar, Norð-
urmýri og Holt, sunnudaginn 25.
júní kl. 14-17.
Á hátíðinni verður margt til
gamans gert, þar verða m.a. leik-
tæki fyrir börnin, þaú geta látið
mála sig í framan^ furðufuglar
mæta á svæðið, íþróttafélagið
Valur stendur fyrir uppákomu,
Slökkviliðið sýnir björgun úr bílfl-
ökum, dansskólar úr hverfinu
sýna dans, Megas spilar og syng-
ur, harmonikkuhljómsveit spilar
o.fl. Emmess ís gefur íspinna,
hægt verður að kaupa grillaðar
pylsur og ennfremur ætla íbúarn-
ir að bjóða hver öðrum upp á
heimabakaðar kökur.
Sumarferð
Kársnessóknar
á sunnudaginn
FARIÐ verður í árlega sumarferð
Kársnessafnaðar í Kópavogi
sunnudaginn 25. júní og verður
farið frá Kópavogskirkju kl. 10 á
sunnudagsmorgunin.
Farið verður um hreppana og
söguslóðir í uppsveitum Árnes-
sýslu. Leiðsögumaður verður Jón
Böðvarsson, menntaskólakennari.
Allir íbúar sóknarinnar eru vel-
komnir í ferðina endurgjaldslaust.
Gert er ráð fyrir að fólk kaupi sér
sameiginlegt kaffi á leiðinni en
Oddi gróður-
setur í Odda
Hellu - Forráðamenn Prent-
smiðjunnar Odda stóðu nýverið
fyrir gróðursetningarferð
meðal starfsmanna sinna tii
Odda á Rangárvöllum. Alls
tóku um níutíu manns, starfs-
menn og fjölskyldur þeirra,
þátt í ferðinni, en Prentsmiðjan
Oddi sækir nafn sitt til Odda-
staðar.
„Okkur þótti við hæfi á 50
ára afmæli prentsmiðjunnar
1993 að koma á einhvers konar
tengingu við Oddastað ogþað
varð úr að gera það með þess-
um hætti,“ sagði Þorgeir Bald-
ursson forstjóri Prentsmiðj-
unnar Odda.
„Við fengum Pétur Jónsson
landslagsarkitekt til að teikna
hér upp nokkurs konar skrúð-
garð, þar sem gaman væri að
koma í þegar kirkjan er heim-
sótt og gæti eins nýst fyrir
staðarhaldara til að spjalla við
gesti sem koma hér í stórum
stíl og vilja fræðast um sögu
staðarins. Við erum núna að
tyrfa, útbúa göngustíga og
gróðursetja, en verkefnið er til
tveggja eða þriggja ára og er
auk fyrh*tækisins styrkt af
starfsmannafélaginu. “
Þátttakendur í ferðinni áttu
góða dagsstund saman í Odda
við gróðursetninguna, en sókn-
arpresturinn, sr. Sigurður
Jónsson, tók vel á móti þeim
með leiðsögn um kirkjuna og
staðinn. Að lokum var grillað
og farið í leiki með börnunum.
að öðru leyti er reiknað með að
hver og einn hafi með sér nesti.
Komið verður til baka um kvöld-
matarleytið.
Síðasti dagur
Kringlukastsins
í dag
KRINGLUKAST, markaðsdagur
Kringlunnar, hófst sl. fimmtudag.
Mikil aðsókn var á Kringlukast
fyrsta daginn og voru vi'ðskipta-
vinir rúmlega 18.000.
Nokkrar vörur á Kringlukastst-
ilboði eru að seljast upp og er t.d.
ein tegund af töskum sem er á
tilboði hjá Pennanum nú þegar
uppseld þó að mikið magn væri
keypt inn vegna Kringlukastsins.
Kringlukastið stendur í þrjá
daga og lýkur því í dag, laugar-
dag. í dag verða verslanir opnar
til kl. 16 en vegna þess að
Kringlukastinu er að ljúka ætla
nokkrar verslanir að hafa opið til
ki. 17 í dag.
Á Kringlukasti eru verslanir og
flest þjónustufyrirtæki í Kringl-
unni með sérstök tilboð og lögð
FRÉTTIR
er áhersla á að einungis sé boðið
upp á nýjar vörur, þannig að ekki
er um útsölu að ræða. Á þessu
Kringlukasti er t.d. hægt að gera
mjög góð kaup á fatnaði, skóm,
gjafavörum, töskum, búsáhöldum,
heimilistækjum, snyrtivörum,
skartgripum, úrum, sólgleraug-
um, viðlegubúnaði, geisladiskum,
svínakjöti, úrbeinuðum hangi-
frampörtum, heilsuvörum, viðar-
vörn, værðarvoðum og fjölmörgu
öðru. Veitingastaðirnir í Kringl-
unni eru með sértilboð í tilefni
Kringlukastsins.
Þeir sem koma á Kringlukast
geta tekið þátt í skemmtilegum
kaupleik, Stóra afslætti, sem er
vinsæll leikur og áberandi hluti
hvers Kringlukasts.
Damien Black
léikur á Café
Romance
BRETINN Damien Black leikur
og syngur á Café Romance um
helgina.
Damien hefur það að atvinnu
að ferðast um heiminn og spila á
svokölluðum píanó-börum og hef-
ur hann spilað á nokkrum bestu
píanó-börum heims, svo sem Max-
ims í Amsterdam. Hann hefur í
farteskinu yfir 1.200 lög.
Damien leikur á Café Romance
frá kl. 10-1 virka daga en til kl.
3 um helgar, einnig leikur hann
fyrir matargesti sömu daga á
Café Óperu.
■ DREGIÐ var í happdrætti
heyrnarlausra 20. júní 1995.
Vinningar féllu sem hér segir: 1.
vinningur, ferð með Flugleiðum
hf. að verðmæti 200.000 kr. kom
á miða nr. 11978, 2.-11. vinning-
ur, ferð með Flugleiðum hf., hver
vinningur að verðmæti 50.000 kr.
kom á miða nr.: 334, 2493, 3311,
4231, 5160, 8219, 9051, 11273,
13385 og 14451. 12.-18 vinning-
ur, Kolster sjónvarp frá Sjónvarp-
smiðstöðinni, hver vinningur að
verðmæti 70.000 kr. kom á miða
nr.: 494, 826, 1157, 1869, 2162,
2383, 2403, 3085, 3702, 3783,
4941, 5336, 5483, 7142, 7301,
7748, 7991, 8696, 8742, 9021,
10193, 10230, 12110, 13283,
13882,14439 og 14919. Vinninga
skal vitja á skrifstofu Félags
heyrnarlausra, Laugavegi 26,101
Reykjavík.
(Vinningsnúmer birt án ábyrgðar)
■ VOPNFIRÐINGAFÉLAGIÐ
í Reykjavík hélt sinn árlega kaffi-
dag sunnudaginn 28. maí sl. Að
vanda kom fjöldi brottfluttra
Vopnfirðinga saman og áttu góð-
an dag í Safnaðarheimili Bústaða-
kirkju. Sunnudaginn 25. júní nk.
verður farin hin árlega gróður-
setningarferð í Heiðmörk. Félagar
í Vopnfirðingafélaginu verða í
reit félagsins í Heiðmörk kl.
13.30.
25 ára afmæli
nytj askógræktar
TUTTUGU og fímm ár verða liðin
25. júní nk. frá því fyrstu plönturnar
í skipulagðri nytjaskógrækt bænda
voru gróðursettar á íslandi. Sú gróð-
ursetning fór fram í landi Víðivalla
á Fljótsdalshéraði, í áætlun sem gerði
ráð fyrir að á 25 árum yrðu 1.500
ha lands í Fljótsdal teknir undir skóg-
rækt.
Settu marki hefur verið náð, en
þó aðeins vegna þess að í maímán-
uði 1989 samþykkti ríkisstjórn Ís-
lands „að klæða skyldi skógum allt
nýtjanlegt skógræktarland á Fljóts-
dalshéraði á næstu 40 árum“. Þetta
var upphaf Héraðsskóga, sjálfstæðs
skógræktarverkefnis um nytjaskóg-
rækt á Fljótsdalshéraði, sem tók við
af Fljótsdalsáætlun. Á ári hveiju eru
gróðursettar allt að 1.400 þúsund
tijáplötur á vegum Héraðsskóga og
síðustu 25 árin hafa því verið gróður-
settar tæpar sex milljónir tijáplantna
í nytjaskógrækt á ofanverðu Fljóts-
dalshéraði sem þekja um 2.000 ha.
lands.
Áætlun um Héraðsskóga hljóðar
upp á 40 ár og að þeim tíma loknum
verða 15 þús. ha. af Fljótsdalshéraði
vaxnir nýskógi eða sem samsvarar
100 metra breiðu skógarbelti með-
fram hringveginum. Fyrir eru á Hér-
aði 4.000 ha, af skógi í einkaeign
og skógarteigum Skógræktar ríkis-
ins.
Opinn dagur í Víðivallaskógi
I tilefni 25 ára afmælis nytjaskóg-
ræktar á bújörðum á Fljótsdalshér-
aði, og í raun á landinu öllu, verður
opinn dagur í hinum nýja Víðivalla-
skógi í Fljótsdal sunnudaginn 25.
júní frá kl. 12-16.30. Þar gefst fólki
kostur á að kynna sér flestar hliðar
nytjaskógræktar, menn munu verða
við ýmis störf í skóginum, s.s. girð-
ingarvinnu, jarðvinnslu, gróðursetn-
ingu, grisjun og viðarvinnslu. Auk
þes verða veitingar á boðstólum, gos
og pylsur fyrir börnin og vonandi
gott veður.
Að kvöldi sama dags verður efnt
til mikillar veislu í skóginum, stærstu
skógarveislu sem haldin hefur verið
á íslandi, þar sem landbúnaðarráð-
herra, skógarbændur og aðrir boðs-
gestir munu gæða sér á heilgrilluðum
fjallalömbum frá kjötvinnslunni
Snæfelli.
óðii
ossvoflsstöd<n hf
pliilfMSHlHfl I
Opið 8-19 & um helgar 9-17. Sími 564-1777
Helgartilboð
(meðan birgðir endast)
Birki 125-150 kr, 640 (áður990).
Birki 151-176 kr. 840 (áðuri.350).
Sumarblóm og margt
annað handa þér:
Fræðslurit um garða,
trjárækt og klippingar.
Verkfæri, stór og smá,
og alls kyns garðvörur.
Ef eitthvað
bjátar á í
garðinum \1 A
bjóðum við V P
1 trausta
leiðsögn og \
varnarefni \ L
F gegn illgresi % *
og mein-
dýrum. - -r-ossvo<l»«t<Win hf
Ráðgjöf, þjónusta, leiðsögn
Fossvogsstöðin, Fossvogsbletti 1, f. neðan Borgarspítala