Morgunblaðið - 24.06.1995, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ1995 49
I
Aleinn, særður og hundeltur verður hann að fylgja eigin eðlisávísun til að
sigrast á illræmdum morðingja sem er fast á hælum hans.
Christopher Lambert (The Highlander) og John Lone (The Shadow).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15. B.i. I6ára.
SIGOURNEY WEAVER BEN KING$LEY
★ ★★ H. K. DV 1
TILBOÐ KR. 400, KL. 3.
A ROMAN
|[ÁNDj|
1
DAUÐINN
STÚLKAN
Komdu á HEIMSKUR HEIMSKARI strax.
Þetta er einfaldlega fyndnasta mynd ársins.
Það væri heimska að biða.
Sýnd kl. 3, 5,7, 9 og 11.
jWí and
Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
SIMI 551 9000
FRUMSYNING: JÓNSMESSUNÓTT
ethan hawhe
julie ielpy
Befoke
SUNRISE
A Richard Linklater Film
Regnboginn frumsýnir rómantísku gamanmyndina Jónsmessunótt.
Aðalhlutverk: Ethan Hawke (Reality bites) og Julie Delpy
(Hvítur í triologiu Kieslowskys).
Ef þið komið og sjáið myndina Jónsmessunótt, eigið þið
kost á að vinna máltíð fyrir tvo á Boston-kjúklingum eða
ferð fyrir tvo til
i)>r \ Dússeldorf með LTU - Ferðamiðstöð
Austurlands.
Ll^Íktfl'liljipa Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
FERÐAMIÐSTOÐ
AUSTURLANDS HF
Skógarlöndum 3
Egilsstöðum
Sími 471 2000
LfiHJ
EITT SINN STRÍÐSMENN
KÚLNAHRÍÐ Á BROADWAY
Sýnd kl. S, 7, 9 og 11. B.l. 16 ÁRA.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
I
I
I
I
I
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Sambíóin forsýna
Á meðan þú svafst
FORSÝNINGAR eru nú hafnar í
Sambíóunum á gamanmyndinni
„While You Were Sleeping“ eða Á
meðan þú svafst eins og hún hefur
verið nefnd á íslensku.
Myndin er létt og skemmtileg með
rómantísku ívafi og fara Sandra
Bullock og Bill Pullman með aðal-
hlutverkin.
Myndin segir af einstæðingnum
Lucy sem er alltaf ein og notar helgi-
daga til vinnu á meðan aðrir njóta
þess að vera með vinum og ættingj-
um. Dag einn sér hún draumaprins-
inn sinn og einsetur sér í huganum
að giftast honum. Áður en yfir líkur
gerast vægast sagt ótrúlegir atburð-
ir og sú stefna sem myndin tók f
upphafi kemur henni hreint ekki í
hlaðið á endanum.
*
Efnilegnr V estur-Islendingnr
í BANDARÍSKA dagblaðinu Boston
Globe birtist fyrir skömmu grein um
William Ögmundsson, hæfileikarík-
an Vestur-Islending. Hann býr í New
Hampshire og er 18 ára að aldri.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
hann náð upp mikilli leikni í píanó-
leik, enda hefur hann stundað píanó-
nám í 13 ár. Fyrir tveimur árum,
þegar hann var aðeins 16 ára, var
hann einleikari í 21. píanókonsert
Mozarts með Sinfóníuhljómsveit
New Hampshire.
William hefur þrisvar unnið tón-
listarkeppni fyrir menntaskólanem-
endur (Granite State Auditions), auk
þess að hafa verið tónlistarstjóri í
uppfærslu Kearsarge Regional
menntaskólans á Fiðlaranum á þak-
inu.
William hefur hlotið fullan náms-
styrk til að stunda nám við háskól-
ann í New Hampshire, þar sem hann
hyggst læra frönsku og sögu. Að
auki er hann að læra íslensku og
fræðast um búddisma og hindúatrú.
„Faðir minn er íslenskur og talar
málið, svo ég fylltist áhuga. Hann
tekur upp kennslustundir á segul-
band fyrir mig. Mig dreymir um að
koma til íslands í framtíðinni," segir
William.
Hann segir ástæðuna fyrir óvenju-
legum áhugamálum sínum vera ein-
veru í æsku, en hann er einkabarn
foreldra sinna. „Þegar ég var yngri
var ég mikið einn og neyddist þess
vegna til að finna stöðugt ný áhuga-
mál. Ég las mikið um framandi hiuti
og æfði mig á píanó. Hvort tveggja
hefur fylgt mér síðan,“ segir þessi
hæfileikaríki Vestur-íslendingur,
sem hefur áunnið sér hrifningu
kennara sinna og annarra í New
Hampshire.