Morgunblaðið - 24.06.1995, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.1S / ALOJREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
: ú' ÍJl l *i; j; |
- f-'í • :i~- r - - ;
Morgunblaðið/Golli
Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, kom til landsins í gær
Getur borið skips
höfn í einni ferð
Björk
hafði
sigur
BJÖRK Guðmundsdóttir hafði
fullan sigur í máli sem höfðað
var gegn henni vegna fjögurra
laga á breiðskífunni Debut.
Tónlistar-
maðurinn
Simon
Lovejoy hélt
því fram að
hann hefði
samið lögin
með Björk og
ætti því rétt
á verulegum
fébótum,
enda hefur
platan selst i þremur milljónum
eintaka. Þegar málið kom fyrir
rétt féll hann þó frá kröfu vegna
þriggja laganna. Þegar dómari
tók málið fýrir í gær vísaði
hann því frá.
Christine C., blaðafulltrúi
útgáfu Bjarkar, One Little
Indian, sagði að Björk hefði
haft fullan sigur í málinu.
„Dómarinn vísaði málinu frá
og sagði að það hefði aldrei
átt að ná þetta langt; málatil-
búnaður Lovejoys væri
aumkvunarverður." Hún sagði
að Björk og þeir sem með henni
ynnu væru eðlilega í sjöunda
himni yfir þessum málalyktum,
en málskostnaður hennar
næmi um fimm milljónum
króna. Breska, ríkið greiðir
málskostnað Lovejoys sem er
atvinnulaus.
NÝ björgunarþyrla Landhelgis-
gæslunnar, TF-LÍF, kom til
landsins i gær. Hún er mun
stærri og öflugri en fyrri þyrlur
og getur til dæmis tekið 20
manns í sæti, auk áhafnar. Burð-
arþoli þyrlunnar hafa menn Iýst
svo, að hún geti bjargað skips-
höfn í einni ferð, en fyrri þyrlur
hafa mest borið 8 manns, auk
áhafnar.
Samningur um kaup á þyrl-
SAMNINGAR náðust fyrir hádegi í
gær í kjaradeilu starfsmanna álvers-
ins og viðsemjenda þeirra og var
verkfalli frestað til næstkomanði
fimmtudags á meðan kynning á efni
samningsins og atkvæðagreiðsla fer
fram.
Samið um 11,4% launahækkun
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra segir að samkomulagið gefi
tilefni til aukinnar bjartsýni á að
stækkun álversins verði að veru-
leika. Nú færu menn aftur á fulla
ferð í það verkefni.
Kjarasamningurinn gildir til árs-
loka 1996 og felur í sér um 11,4%
unni var undirritaður 2. júní
1994. Hún er af gerðinni Super
Puma og á að baki 350 flug-
tíma. Þyrlan kostar tæplega
launahækkanir á samningstímanum.
Laun allra starfsmanna álversins
hækka um 3,2% frá 9. júní og um
3% frá næstu áramótum. Einnig var
samið um að hveijum starfsmanni
sem verið hefur á láunaskrá 6 mán-
uði eða lengur skuli greidd 26 þús.
kr. eingreiðsla við aðra launaútborg-
un eftir samþykkt samningsins. Þá
eru gerðar umtalsverðar breytingar
á röðun í launaflokka og fá lægst
launaðir starfsmenn um 10% launa-
hækkun við þær breytingar.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSI, sagði að yfirlýs-
ing sem verkalýðsfélögin gáfu um
að þau ætluðu að koma fram sem
einn milljarð króna og er m.a.
búin fullkomnum afísingarbún-
aði, fjögurra ása sjálfstýringu,
tvöföldu björgunarspili og flug-
einn viðsemjandi væri merkilegur
áfangi og væri eitt þeirra atriða sem
greitt gætu fyrir frekara samstarfi
við erlenda fjárfesta.
Skapar fordæmi
Þórarinn sagðist telja að VSÍ
myndi í framhaldi af þessum samn-
ingj knýja á um að fleiri stéttarfélög
byndust innbyrðis samtökum á
nokkrum öðrum sviðum. Víða væru
átök milli félaga um að viðhalda til-
teknum launahlutföllum og það væri
óþolandi fyrir vinnuveitandann að
vera stöðugt undir það seldur að fá
á sig verkföll á verkföll ofan vegna
átaka um þennan launamun.
drægi hennar getur verið allt
að 830 sjómílur.
Rekstrarkostnaður þyrlunnar
hefur verið áætlaður um 165
milljónir króna á ári, miðað við
300 flugtíma. Þyrla Gæslunnar,
TF-SIF, hefur mest flogið um
480 tíma á ári, og miðað við það
gæti árlegur rekstrarkostnaður
TF-LÍF farið í um 190 milljónir.
í sameiginlegri yfirlýsingu tíu
verkalýðsfélaga starfsmanna álvers-
ins, sem gefin var út samhliða undir-
ritun kjarasamningsins, segir að fé-
lögin muni semja sameiginlega um
einn kjarasamning fyrir alla félaga,
viðhafa sameiginlega atkvæða-
greiðslu um heildarkjarasamning og
sameiginlega allsheijaratkvæða-
greiðslu um afstöðu starfsmanna til
verkfallsboðunar á næstu árum en
yfirlýsingin gildir til aldamóta og
framlengist síðan um þijú ár í senn
nema öll félögin séu sammála um
annað.
■ Samiðíálverinu/10-11
Björk
Guðmundsdóttir
Fjölmenni fagnaði/4
Iðnaðarráðherra um kjarasamning o g yfirlýsingu starfsmanna ÍSAL
Viðræður um stækkun
álvers aftur á fulla ferð
Ný reglugerð um 70% hámarkslánshlutfall í húsbréfakerfinu gefin út
Ekkí þörf á nýju
greiðslumati
Beinin í Straumsvík
frá því fyrir 1600
Ekki lengur
.lögreglumál
MANNABEIN sem fundust rekin á
landi í Straumsvík í lok apríl hafa
nú verið aldursgreind. Voru beinin
send til greiningar í Danmörku.
Að sögn RLR benda rannsóknir
til þess að beinin séu að minnsta
kosti frá því fyrir árið 1600, eða um
-400 ára gömul. Málið telst því ekki
lengur lögreglumál.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA, Páll
Pétursson, hefur gefið út reglugerð
sem heimilar hækkun á lánshlut-
falli í húsbréfakerfínu vegna kaupa
eða byggingar fyrstu íbúðar úr 65%
í 70%. Þeir, sem þegar hafa fengið
greiðslumat miðað við fyrri reglur,
þurfa ekki á nýju mati að halda.
Hámarkslán til nýbygginga er
um 6,5 milljónir króna og 5,4 millj-
ónir vegna kaupa á notaðri íbúð.
Sá sem ekki hefur átt íbúð eða hluta
úr íbúð síðastliðin þijú ár telst enn-
fremur vera að kaupa sína fyrstu
íbúð samkvæmt reglugerðinni.
Haukur Sigurðsson forstöðumað-
ur húsbréfadeildar Húsnæðisstofn-
unar ríkisins segir að reglugerðin
hafí tekið gildi sl. fimmtudag.
„Við erum að vona að fram-
kvæmdin gangi vel og vitum ekki
annað en að allt sé til reiðu. Þeir
sem reglugerðin gildir um geta
samið miðað við 70% hlutfallið ef
þeir hafa fengið greiðslumat upp á
65%. Menn eiga ekki að þurfa að
fara í nýtt greiðslumat ef þeir eiga
greiðslumat sem þegar er gilt. Það
verður síðan skoðað að breyttu
breytanda," segir hann.
Jón Guðmundsson formaður Fé-
lags fasteignasala segir það von-
brigði að lánshlutfall skuli ekki
hafa verið hækkað í 75%.
Fasteignasalar óánægðir
„Vonbrigðin verða mest hjá því
unga fólki sem rauk til og fékk
greiðslumat þegar félagsmálaráð-
herra gaf fyrirheit um 10% hækkun.
Við erum líka óánægðir því þessi
lítilvæga breyting kemur ekki til
með að örva markaðinn eins og við
vonuðumst til. Ég skil ekki þennan
beyg í stjómmálamönnum við að
standa við gefín fyrirheit," segir Jón.