Morgunblaðið - 02.08.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 02.08.1995, Síða 1
56 SÍÐUR B/C/D 173. TBL. 83.ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Rússar virða vopnahléð í Tsjetsjníju Endurgjalda ekki árásir skæruliða Moskvu. Reuter. YFIRMENN rússneska herliðsins í Tsjetsjníju sögðu í gær að það myndi virða vopnahléið, sem samið var um á sunnudag, þótt að minnsta kosti níu rússneskir her- menn hefðu fallið í árásum Tsjetsj- ena frá því samkomulagið var und- irritað. Yfirmaður hetja Rússa í héraðinu og einn helsti hernaðar- leiðtogi Tsjetsjena, Aslan Mask- hadov, hvöttu í sameiginlegri yfir- lýsingu í gær skæruliða til að virða vopnahléð. í samkomulaginu, sem náðist eftir langar og erfiðar samninga- viðræður, er kveðið á um tafar- laust vopnahlé en rússneskir emb- ættismenn sögðu að hluti tsjetsj- ensku hermannanna virti það að vettugi. „Þeir eru að reyna að kom- ast inn í Grosní og fleiri staði og gera árásir frá byggðum svæðum til að knýja fram gagnárásir," sagði embættismaður yfirstjórnar rúss- neska hersins í Grosní. Formanni vikið frá Embættismaðurinn sagði að rússnesku hermennirnir hefðu fengið fyrirmæli um að svara ékki árásunum nema í ýtrustu neyð. Formaður samninganefndar Tsjetsjena, Úsman ímajev, sagði í gær að sér hefði verið vikið úr því starfi með bréfi frá Dzhokar Dúdajev, forseta héraðsins, sem hefði sakað sig um að svíkja mál- stað Tsjetsjena. Fregnir herma að Dúdajev, sem er í felum einhvers staðar í fjöllum héraðsins, hafi hafnað samkomulaginu, sem tekur ekki á erfiðustu ágreiningsefnun- um, stöðu Tsjetsjníju og hlutverki Dúdajevs í héraðinu. Hann vill að staðið verði við sjálfstæðisyfirlýs- ingu Tsjetsjníju frá árinu 1991. Reuter Hjólað gegn kj arnasprengjum POUL Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, og eigin- kona hans, Lone Dybkjær, sem er fulltrúi á þingi Evrópusambands- ins, tóku í gær þátt í hjólreiðum í Árósum á vegum danskra og nor- skra andstæðinga kjamorkutil- rauna Frakka á Kyrrahafi. Mót- mælaferðin hófst í Osló, þaðan var haldið með feiju til Jótlands og munu þátttakendur, alls um 50 manns, skiptast á þar til henni lýk- ur i París 26. ágúst. Dönsku for- sætisráðherrahjónin, sem hjóluðu 22 km, eru væntanleg til íslands um næstu helgi. ■ Franski sendiherrann/16 Atlantshafsbandalagið samþykkir að verja griðasvæðin með loftárásum Bandaríkjaþing ákveður afnám vopnasölubanns Reuter MÓÐIR í Sarajevo hleypur með slasaðan dreng sinn að bráðamót- töku Kosevo-sjúkrahússins í borginni. Fjórum flugskeytum var skotið á Sarajevo í gær. Brussel, Saraje\o, Zagreb, Washington, París. Reuter, The Daily Tclegraph. FULLTRUADEILD bandaríska þingsins samþykkti í gærkvöldi til- lögu um að Bandaríkin hætti þátttöku í vopnasölubanni Sameinuðu þjóðanna á Bosníu. Atkvæði féllu 298-128 og er meirihlutinn nægur til að hnekkja neitunarvaldi forsetans. Öldungadeildin hafði áður samþykkt samhljóða tillögu. Sendiherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) ákváðu í gær á fundi sínum að gerðar yrðu öflugar loftárás- ir ef Bosníu-Serbar réðust á eða ógnuðu þeim griðasvæðum SÞ sem enn eru í höndum múslima, þ. e. Sarajevo, Bihac, Tuzla og Gorazde. Talsmaður Bills Clintons Bandaríkjaforseta lýsti í gær yfir vonbrigðum hans með atkvæða- greiðsluna en sagði forsetann staðráðinn í að beita neitunarvaldi sínu. Takist Clinton ekki að telja þingmönnum hughvarf verður .hann að staðfesta tillöguna. Óljóst er þó hve mikil áhrif hún hefði í reynd þar sem ýmis skil- yrði eru sett fyrir framkvæmd- inni, m.a. að stjórnvöld í Bosníu fari fram á að friðargæslulið SÞ hverfi á brott. Fyrir atkvæðagreiðsluna á Bandaríkjaþingi i gær sagði Carl Bildt, sáttasemjari Evrópusam- bandsins, að tillagan gegn sölu- banninu væri leikur að eldinum og hún gæti stefnt framtíð Bosníu í voða. „En þetta er kosningabar- átta,“ sagði Bildt. Sáttasemjarinn mun hitta ráðamenn í Washington að máli í dag en í gær ræddi hann við Jacques Chirac, forseta Frakk- lands. Viðræður ákveðnar í Genf Boutros Boutros-Ghali, fram- kvæmdastjóri SÞ, og fleiri áhrifa- menn vöruðu í gær við því að allt stefndi í stórstyijöld í ríkjum gömlu Júgóslavíu. Ráðamenn Króatíu og þjóðar- brots Krajinu-Serba náðu í gær samkomulagi um friðarviðræður í Genf og eiga þær að hefjast á morgun. Fulltrúar þjóðabrota Serba í Bosníu og Krajina sendu í gær Slobodan Milosevic Serbíu- forseta ákall um aðstoð gegn herj- um Króata, sögðust vera í nauðum staddir. Króatíski herinn hefur undanfarna daga tekið hundruð ferkílómetra af herflokkum þjóða- brotanna í sókn sem álitið er að um 10.000 hermenn, vel búnir þungavopnum, taki þátt í. Er búist við að Króatar reyni að ná höfuð- stað Krajina-Serba. Knin. Síðdegis í gær var tiltölulega kyrrt á víg- stöðvunum, að sögn heimildar- manna. Carl Bildt vill að viðskiptabanni SÞ á Serbíu-Svartfjallaland verði aflétt gegn því að Serbía sam- þykki Bosníu og þrýsti á Serba í Bosníu og Króatíu um að semja frið. Eru Bretar, Frakkar og Rúss- ar hlynntir hugmyndinni en Bandaríkjamenn og Þjóðveijar fullir efasemda. Pólland Ihuga her- þotukaup Varsjá. Reuter. ZBIGNIEW Okonski, varnarmála- ráðherra Póllands, sagði í gær að Pólverjar íhuguðu að festa kaup á 100 bandarískum F-16-herþotum. „Pólland þarf að endurnýja 220 MIG-21-þotur, sem verða orðnar úr- eltar eftir þijú ár, og fá nútímalegar þotur í þeirra stað,“ sagði Okonski að loknum fundi með Sheila Widnall, ráðherra málefna flughersins í Bandaríkjunum. Okonski sagði að auk þess að velta fyrir sér F-16 væri verið að kanna þotur frá Svíþjóð, Frakklandi og Rússlandi. Hann gaf í skyn að af- staða ríkja til aðildar Pólveija að Atlantshafsbandalaginu, NATO, kynni að ráða mikiu um valið. „Ég dreg ekki dul á að ákvörðunin verði pólitísk," sagði Okonski. ■ Óttast Rússa/17 Reuter • • Ondunargríma í hitabylgju MIKIL hitabylgja gengur nú yfir Bretlandseyjar og hefur ekki oft mælst jafn hár hiti þar á þessari öld. Yfirvöld hafa hvatt ökumenn til að skilja bifreiðar sínar eftir heima til að draga úr loftinengun þeirri, sem hitanum er samfara. Að sögn veðurfræðinga veldur hitinn því að mengunarefni stíga ekki jafn hátt til hiinins og ella. Við það leggst mengunarský yfir stór svæði og spillir lofti. Hjól- reiðainaðurinn á myndinni hefur brugðist við með því að selja á sig grimu til að sía loftið, sem hann andar að sér. ------------- Lestarslys á Jótlandi Kuupinaniialiöfii. Morguiiblaðii). FJORUTÍU og sex manns slösuðust, þar af níu alvarlega, þegar tvær lest- ir rákust saman utan við stöðina í Vejle á Jótlandi í gær. Ekkert benti til að bilun hefði orðið, en það mun taka nokkra daga áður en í ljós kem- ur hvort um mannleg mistök eða tæknibilun var að ræða. Lestin frá Herning til Vejle átti að mæta svæðalest á stöðinni í Vejle, en af einhveijum ástæðum mættust lestirnar á sama spori utan við stöð- ina og rákust þar hvor á aðra um klukkan hálffimm síðdegis. Slysið er hið síðasta í röð nokk- urra svipaðra slysa sem orðið hafa undanfarin ár í Danmörku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.