Morgunblaðið - 02.08.1995, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 15
FERÐALÖG
FRÉTTIR: EVRÓPA
Ferð um eyðibyggðir
austan Eyjafjarðar
í FJÖRÐUM. Myndin tekin í Hvalvatnsfirði á lágnætti. Horft
til suðurs af fjörukambi. Lengst til vinstri er Leirdalsheiðin
upp úr Fjörðunum, þá Sveigsfjall yfir Grenivíkurtungum, vest-
an þess Trölladalur. Fjallið Darri er fyrir miðri mynd, vestan
við sér inn Þverár og Kussungsstaðadal.
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
gönguferðar um skagann austan
Eyjafjarðar 11.-16. ágúst. Er lagt
upp frá Grenivík og fyrsta dag er
gengin Látraströnd. Menn geta valið
hluta ferðar, t.d. fyrstu þrjá daga,
og lokið henni í Fjörðum eða degi
síðar á Flateyjardal. Þá má hefja
ferð í Fjörðum en næsta dag er far-
ið yfir á Flateyjardal, út í Flatey,
hvalaskoðun um Skjálfanda og farið
í Náttfaravíkur og lýkur þar ferðinni.
Skaginn austan Eyjafjarðar er nú
í eyði frá Grenivík og austur að
Björgum í Köldukinn. Fjörður fóru
í eyði 1944, Brettingsstaðir á Flat-
eyjardal 1954. Landslag á skaganum
er stórbrotið og fjölbreytilegt og
gróður víða blómlegur. Skaginn er
mest fjalllendi en dalir upp af Fjörð-
unum og á Flateyjardal er láglendi
allvítt. Leirdalsheiðin gengur sem
mikill dalur út í Fjörður en Flateyjar-
dalsheiðin annar mikill dalur norður
frá Fnjóskárdal allt út að sjó á móts
við Flatey. Jeppavegur er út þessar
heiðar.
Látraströndin var byggð frá
Grenivík út að Látrum en þaðan var
hákarlaútgerð á síðustu öld og á 18.
öld var þar skáldkonan Látra-Björg.
Austan við Gjögurinn stóð Keflavík,
afskekkt mjög og þangað verður
ekki komist nema fjallvegi. Fyrsti
siglingaskóli landsins var þar rekinn
upp úr 1860.
I Fjörðum var kirkjusókn, prest-
setur á Þönglabakka. Allar leiðir í
HGH í 5.
Vífilsgöngu
í KVÖLD, miðvikudag, heldur
Hafnargönguhópurinn áfram
að ganga upp að Vífilsfelli.
Lagt verður af stað frá anker-
inu í Hafnarhúsportinu kl. 20
og farið með rútu upp í Heið-
mörk. Val er um að heíja
gönguna við tjaldbúðirnar í
Hjalladal og ganga síðan upp
að Löngubrekkum og um
Huldukletta, Heykrók og
Stríðshraun eða byija göngu
við Huldukletta. Nesti verður
snætt í fögrum skógarlundi.
Allir eru velkomnir í ferð með
Hafnargönguhópnum.
Fjörður eru erfiðar og í 200 ár
treystu Hólabiskupar sér ekki að
vísitera þar eftir að Jón Arason kom
þar 1542.
Á Flateyjardal var búið á fimm
jörðum. Á Brettingsstöðum og Jök-
ulsá er húsum vel við haldið. Eyjan
er grösug, þar er falleg kirkja og
mörgum húsum vel við haldið því
margir búa þar yfir sumarið. Vetur-
seta hefur ekki verið síðan 1967.
UM helgina verða svokallaðir
„Tungnadagar" í Biskupstungum og
ýmislegt sem er þá kjörið að gera
sér til gamans. í Reykholti er tjald-
svæði og sundlaug. Þar er og veit-
ingahúsið Aratunga með ýmis tilboð
og Bjarnabúð og Pylsubankinn verða
opin fram á kvöld. Einnig er mark-
aðstjald í Reykholti þar sem alls
konar varningur er til sölu, kl. 13-18
laugardag og sunnudag.
Einnig verða þar ýmsar uppákom-
ur einkum fyrir krakkana, andlits-
málun, blöðrur, flugdrekakeppni,
leiktæki og hægt að fá far með
„Tungnaskrepp.“ Við Geysi er tjald-
svæði og sundlaug, söluskáli og hót-
ei. í Skálholti verða tónleikar kl. 15
Gist er í tjöldum, bílar og bátar
koma í veg fyrir hópinn í Fjörðum
og á Flateyjardal með farangur.
Náttstaðir eru á Látrum, Keflavík,
Kaðalstöðum, í Fjörðum, á Flateyj-
ardal og síðasti er Naustavík í Nátt-
faravíkum.
Fararstjórar eru Jórunn Viðar
Valgarðsdóttir og Valgarður Egils-
son.
og 17 á laugardag og kl. 15 á sunnu-
dag. Þar er veitingasala_ með köku-
hlaðborði um helgina. í Laugarási
er tjaldsvæði og verslun og dýragarð-
urinn verður opinn kl. 13-18. Garð-
yrkjustöðvarnar Engi og Akur bjóða
gestum að koma og skoða. í Úthlíð
er tjaldsvæði og sundlaug og dans-
leikur í Réttinni annaðkvöld, fimmtu-
dag, diskótek föstudag og hljóm-
sveitir laugardags- og sunnudags-
kvöld. Goifvöllurinn opinn. Hestamót
Loga verður í Hrísholti á laugardag
og sunnudag og einnig opin tölt-
keppni. Frá Drumboddsstöðum er
farið í bátsferðir niður Hvítá eftir
pöntun.
Tungnadagar í Tnngunum
Lífleg umferð á Selfossi
Selfossi.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
HÓPUR ferðamanna snæðir kvöldverð í norðursal Hótels Selfoss
með fallegt útsýni yfir Olfusá.
FLEIRI ferðamenn hafa gist á Hótel
Selfossi það sem af er þessu ári en
í fyrra. Nýtingin var mjög góð í vor
og það sem af er sumri. Heiðar Ragn-
arsson hótelstjóri segir útlitið gott í
haust og að hópar ferðamanna sem
pantað hafi verið fyrir skili sér vel.
„Þetta hefur vaxið í það að vera sjö
mánaða ferðamannatímabil úr þrem-
ur sem er afar jákvætt," sagði Heiðar.
Vor- og hausthóparnir hafa bæki-
stöð á Selfossi og dvelja á hótelinu í
4 daga, fara síðan yfir í Borgarijörð
í tvo daga og enda íslandsdvölina í
Reykjavík. Heiðar sagði greinilegt
að farþegarnir vildu dvelja á Selfossi
í nokkra daga, öll þjónusta væri fyr-
ir hendi og auðvelt að eiga frían dag
á staðnum. „Fólk er mjög rólegt með
að hafa hér bækistöð í 4 - 5 daga,
það nýtir fijálsa tímann til göngu-
ferða og á kvöldin fara margir á
rölt og eiga góða stund á kaffihúsi.
Ég er mjög ánægður með sumarið
og það sem framundan er. Þetta
hefur þróast svona smám saman og
við erum í góðu sambandi við ýmsa
sem gott er að eiga viðskipti við,“
sagði Heiðar Ragnarsson hótelstjóri.
Hann sagði einnig að nauðsynlegt
væri að bæta við herbergjum til að
auka möguleika hótelsins á að mæta
aukningunni sem blasti við og til að
gera það mögulegt að ná stærri ráð-
stefnum inn á hótelið yfir vetrartím-
ann en hann sagði mikinn áhuga
Selfossi sem ráðstefnustað.
Dýrari gisting vinsælli
Björn Lárusson hjá Getshúsum hf
sem reka tjaldstæðið á Selfossi og
gistingu í sumarhúsum, sagði umferð
ferðamanna svipaða í sumar og í
fyrra. Hann kvaðst verða meira var
við íslendinga en í fyrra og þeir
dveldu lengur en útlendingarnir. Um
nýtingu sagði hann greinilegt að
ferðafólk nýtti sér dýrari gistingu
á en áður, fengi sér frekar uppbúið rúm
en að gista í svefnpokaplássi. Björn
sagði nýtinguna hafa verið betri í
maí en í fyrra og júní og júli væru
svipaðir. Aftur á móti hefði vetrar-
nýtingin verið mjög slök. Hann
kvaðst eiga von á þokkalegri útkomu
í haust en þá væru væntanlegir hóp-
ar frá Norðurlöndunum. Hins vegar
kvaðst hann vera óhress með fyrir-
vara ferðaskrifstofa á afbókunum og
taldi þær geta séð með meiri fyrir-
vara hvort hópamir kæmu eða ekki.
Há viðmiðunarmörk í EES-reglum
um samruna fyrirtækja
Islenzk fyrirtæki
of lítil til að falla
undir reglurnar
REGLUR Evrópusambandsins, sem
gilda á Evrópska efnahagssvæðinu
og eiga að koma í veg fyrir að fyrir-
tæki nái yfirburðastöðu með sam-
runa, ná ekki yfir íslenzk fyrirtæki
vegna smæðar þeirra. I reglunum
er horft til veltu viðkomandi fyrir-
tækja á heimsmarkaði og á Evrópu-
markaðnum sem heild, en ekki
markaðshlutdeild þeirra innan hvers
ríkis fyrir sig. Reglusetning af síðar-
nefnda taginu væri undir stjórnvöld-
um hvers ríkis komin, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur lagzt gegn samein-
ingu norsku bjórverksmiðjanna
Ringsnes, sem eru í eigu Orkla, og
sænska brugghússins Pripps, sem
er í eigu Volvo-samsteypunnar.
Orkla lét í síðustu viku undan þrýst-
ingi framkvæmdastjórnarinnar og
seldi dótturfyrirtæki sitt, bjórverk-
smiðjuna Hansa í Noregi, til þess
að minnka markaðshlutdeild sína og
greiða fyrir sameiningunni.
Há viðmiðunarmörk
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins vísaði til þess í gagnrýni
sinni á fyrirhugaðan samruna, að
hin nýja samsteypa yrði markaðs-
ráðandi í Noregi og bryti í bága við
57. grein EES-samningsins. Þar seg-
ir að samfylkingar sem „skapa eða
efla yfirburðastöðu er hindrar virka
samkeppni á samningssvæðinu eða
umtalsverðum hluta þess,“ séu ós-
amrýmanlegar samningnum.
Samningsgreinin vísar til reglu-
gerðar Evrópusambandsins frá
1989, sem tók gildi árið 1990. Þar
kemur fram að samrunareglurnar
eigi aðeins við ef velta viðkomandi
fyrirtækja á heimsmarkaði sé meira
en fimm milljarðar ECU (421 millj-
arður íslenzkra króna) og velta
tveggja dótturfyrirtækja þeirra á
Evrópumarkaðnum fari yfir 250
milljónir ECU (21 milljarð íslenzkra
króna).
Samanlögð velta Esso og
Olís 14,3 milljarðar
Samruni tveggja íslenzkra fyrir-
tækja félli tæplega undir evrópsku
samkeppnisreglurnar vegna þess
hversu hátt mörkin eru sett. Þannig
var velta Flugleiða 13,5 milljarðar á
seinasta ári, velta Eimskips 8,6 millj-
arðar og Heklu hf. 3,6 milljarðar,
svo dæmi séu tekin.
Samkeppnisskoðun hefur haft til
skoðunar kaup Olíufélagsins (Esso)
á stórum hlut í Olís. Fyrirtækin
hyggja á víðtækt samstarf og sam-
anlögð markaðshlutdeild þeirra er
um 70%. Samanlögð velta þeirra var
hins vegar ekki nema 14,3 milljarðar
króna á seinasta ári, sem er miklu
minna en lágmarkið í reglugerð
ESB.
Umrædd reglugerð Evrópusam-
bandsins var á sínum tíma gagnrýnd
fyrir of há viðmiðunarmörk. I henni
eru ákvæði um endurskoðun að lokn-
um fjögurra ára gildistíma, en sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins hefur sú endurskoðun enn ekki
leitt til niðurstöðu.
Reuter
Viðræður í París
JACQUES Chirac Frakklandsfor-
seti og Carl Bildt, sáttasemjari
Evrópusambandsins í fyrrverandi
Júgóslavíu, áttu í gær saman fund
í Elysée-höllinni í París. Var meg-
inumræðuefni þeirra þróun átak-
anna í fyrrverandi Júgóslavíu og
afskipti Króata af deilunni.
Breski Verkamannaflokkurinn
Vilja höfða til
Evrópusinna
London. Reuter.
BRESKI Verkamannaflokkurinn hóf
í gær herferð um allt Bretland þar
sem lögð verður áhersla á að ná til
Evrópusinnaðra kjósenda.
Robin Cook, sem er talsmaður
Verkamannaflokksins í utanríkis-
málum, mun ferðast um Bretland
þvert og endilangt næsta mánuðinn
og eiga fundi með kaupsýslumönn-
um, verkalýðsfrömuðum og öðrum
áhrifamönnum. Hyggst hann færa
rök fyrir því að hagsmunum Breta
sé betur borgið með virkri þátttöku
í starfi Evrópusambandsins en ein-
angrun.
Á biaðamannafundi við upphaf
herferðarinnar sagði Cook að nei-
kvæð afstaða stjórnar íhaldsmanna
til Evróþu hefði grafið undan áhrif-
um Bretlands.
Hann sagði að barátta Verka-
mannafiokksins fyrir „Evrópu alþýð-
unnar“ ætti að koma almenningi til
góða varðandi atvinnusköpun, rétt-
indi launafólks, umhverfismál og frið
og öryggi í Evrópu.
íhaldsmenn hafa þegar gefið til
kynna að í næstu kosningabaráttu
muni þeir leggja mikla áherslu á að
Verkamannaflokkurinn vilji ganga
of langt í Evrópumálum.