Morgunblaðið - 02.08.1995, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Frakkar fordæma „fjandsamlegar aðgerðir“ í Ástralíu
Franski sendiherr-
ann kallaður heim
París. Reuter.
FRAKKAR kölluðu sendiherra sinn
í Ástralíu heim í gær eftir að ástr-
alska stjómin hafði komið í veg fyr-
ir að franskt fyrirtæki gæti hreppt
mikilvægan viðskiptasamning. Ástr-
alir vildu þannig mótmæla fyrirhug-
uðum kjarnavopnatilraunum Frakka
á kóraleyjunni Mururoa í Suður-
Kyrrahafi.
Franska utanríkisráðuneytið
ákvað að kalla sendiherrann heim
eftir að Robert Ray, vamarmálaráð-
herra Ástralíu, kvaðst hafa meinað
franska fyrirtækinu Dassault Aviati-
on að leggja fram tilboð um sölu á
35-40 orrustuþotum fyrir sem svarar
46 milljörðum króna.
Utanríkisráðuneytið gaf út yfir-
lýsingu þar sem kvartað er yfir
ýmsum „fjandsamlegum aðgerðum"
Ástrala, sem eru meðal annars sak-
aðir um að hafa tafið póstsendingar
til franska sendiráðsins, leyft um-
hverfisvemdarsinnum að hindra að-
gang að byggingunni og tafið af-
greiðslu franskra skipa í áströlskum
höfnum.
Kornið sem
fyllti mælinn
Ástralskir embættismenn höfðu
áður sagt að litlar líkur væra á að
Dassault hreþpti samninginn. Hátt
settur franskur embættismaður
sagði hins vegar að sú ákvörðun
áströlsku stjómarinnar að hindra við-
skipti franska fyrirtækisins af póli-
tískum ástæðum hefði verið „komið
sem fyllti mælinn“.
Stjómvöld í Ástralíu og Nýja Sjá-
landi hafa ákveðið að hætta sam-
vinnu við Frakka á sviði vamarmála
vegna óánægju með kjarnavopnatil-
raunimar. Almenningur í þessum
löndum, svo og í Japan og Þýska-
landi, hefur einnig verið hvattur til
að kaupa ekki franskan varning.
Skoðanakönnun franska blaðsins Le
Parisien gefur til kynna að 60%
Frakka séu andvíg tilraununum.
Kínvetjar hafa einnig sætt gagn-
rýni vegna kjarnavopnatilrauna
sinna og Qian Qichen, utanríkisráð-
herra Kína, sagði í gær að þeir
myndu hætta tilraununum ef alþjóð-
legt samkomulag næst um algjört
bann við þeim á næsta ári.
• •
Oflugur
ÞRÍR létu lífið ogtöluverðar
skemmdir urðu á mannvirkjum
er jarðskjálfti sem mældist 7,8
stig á Richter, reið yfir í norð-
vesturhluta Chile á sunnudag.
Er þetta öflugasti jarðskjálfti
sem orðið hefur í landinu í ára-
tug. Mestar urðu skemmdirnar
í hafnarborginni Angofagasta,
um 226.000 manna borg, og flýði
fjöldi fólks inn til landsins af
ótta við að flóðbylgja skylli á
borginni í kjölfarið. Angofag-
asta er um 1.100 km norður af
höfuðborginni Santiago en ekki
er vitað til þess að neinir íslend-
ingar hafi orðið skjálftans varir
þar sem þeir eru flestir búsettir
um 3.000 km fyrir sunnan
sjálftamiðjuna.
Á myndinni kannar maður
skemmdirnar í Angofagasta á
sunnudag.
Morðá
börnum
fátíð í
Bretlandi
MORÐIN á þremur börnum í Bret-
landi hafa valdið miklum óhug og
landsmenn harma, að gömlu, góðu
og saklausu tímamir skuli vera liðn-
ir. /íeuíere-fréttastofan hefur það
hins vegar eftir bresku lögreglunni,
að þeir tímar hafi aldrei verið til og
raunar sé minna um morð á börnum
í Bretlandi nú en áður.
Hefðu bömin verið myrt í ein-
hveiju skuggahverfí hefði dauði
þeirra líklega ekki vakið jafn mikla
athygli, en allir fyllast óhug yfir því
að þau skyldu hafa verið svipt lífi
sínu við saklausan leik úti í náttúr-
unni. Samkvæmt fréttum Sky-sjón-
varpsstöðvarinnar var einn maður
til yfirheyrslu í gær.
Þegar fólk og foreldrar heyra um
svona nokkuð fýllast þeir skelfmgu,"
segir Colin Pritchard við félagsráð-
gjafardeild háskólans í
Southampton, „en sannleikurinn er
sá, að aldrei hefur verið minna um
morð á börnum í landinu en nú.
Áður voram við í þriðja sæti á eftir
Bandaríkjunum og Þýskalandi en
eram nú í sjöunda neðsta á Vestur-
löndum.“
Morðin hafa haft áhrif á sumar-
leyfi barna og unglinga um allt Bret-
land. Margir foreldrar hafa bannað
bömum sínum að fara í útilegur og
veiðiferðir og nokkuð er um, að börn
hafí verið kölluð heim úr sumardvöl
þótt þau séu þar í umsjón fullorð-
inna.
-----♦ ♦ ♦
Tamílar á Sri Lanka
Beðið um
mat og lyf
Colombo. Reuter.
SENDIMAÐUR Sri Lanka-stjórnar í
norðurhéraðinu Jaffna hefur sent
yfirvöldum áríðandí beiðni um mat-
væli og lyf til þess að tryggja megi
afkomu óbreyttra borgara sem orðið
hafa fyrir búsifjum af völdum bar-
daga sem geysa í héraðinu.
Alþjóðanefnd Rauða krossins seg-
ist ekki lengur geta veitt flutninga-
skipum stjórnvalda vernd á leið
þeirra með birgðir til héraðsins fyrr
en að fenginni tryggingu fyrir öryggi
af hálfu beggja deiluaðila.
í beiðni sendimannsins kemur
fram að rúmlega 220 þúsund fjöl-
skyldur búi við öryggisleysi sem stafi
af matvæla- og lyfjaskorti.
Reuter
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Kína á fundi
Reynt að bæta
stírð samskipti
Bandar Seri Begawan í Brúnei. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Kína,
Qian Qichen, sagði við upphaf fund-
ar síns og utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Warrens Christophers, í
Brúnei í gær að Bandaríkjamenn
yrðu að sýna í verki að heit þeirra
um bætt samskipti við Kína væru
meira en orðin tóm. Embættismaður
í Washington greindi frá því að
Christopher hefði í farteskinu bréf
frá Bill Clinton Bandaríkjaforseta
til forseta Kína. Þar kæmi fram að
Bandaríkin styddu sem fyrr aðeins
eina stjórn í Kína, þ. e. Pekingstjóm-
ina.
Qian sagði að loknum fundinum
að hann hefði verið gagnlegur en
Ijóst er að ekki náðist samkomulag
um annað en að halda áfram viðræð-
um síðar. Bandarískir embætt-
ismenn sögðu að miðað við aðstæð-
ur hefði fundurinn verið mjög róleg-
ur og vinsamlegur.
Qian falaðist eftir loforði frá
Bandaríkjamönnum um að Lee
Teng-hui, forseti Tævans, fengi ekki
að koma til Bandaríkjanna oftar.
Að sögn bandarísks embættismanns
var þetta eina áþreifanlega krafan
sem kínverski utanríkisráðherrann
lagði fram á fundinum. Christopher
hefði hins vegar engu getað lofað
og orðið að játa að af annarri heim-
sókn Lees „gæti orðið“.
Heimsókn Lees
helsti vandinn
Qian sagði fréttamönnum að
meginvandinn í samskiptum ríkj-
anna væri sú ákvörðun Bills Clint-
ons, Bandaríkjaforseta, að leyfa for-
seta Tævans að koma til Bandaríkj-
anna í júní.
För Tævansforseta gerði ráða-
menn í Peking ævareiða vegna þess
að þeim sýndist Bandaríkjamenn
vera að falla frá þeirri stefnu, sem
þeir hafa fylgt í tvo áratugi, að við-
urkenna að Kína lúti allt stjóminni
sem situr í Peking, og halda einung-
is óopinberum tengslum við Tævan,
sem Kínveijar líta á sem brott-
hlaupsfylki.
Qian vék sér undan því að svara
þeirri spurningu hvort forseti Kína,
Jiang Zemin, myndi koma til fundar
við Clinton án þess að Bandaríkja-
stjóm hefði fyrst heitið því að Lee
fengi ekki að heimsækja Bandaríkin
aftur.
Utanríkisráðherrann var einnig
fáorður þegar hann var inntur við-
Reuter
WARREN Christopher, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
ásamt kínverskum starfsbróð-
ur sínum, Qian Qichen, fyrir
fund þeirra í Brúnei í gær.
bragða við yfirlýsingu Christophers,
sem fyrst var gefín á mánudag og
síðan endurtekin á fréttamanna-
fundinum í gær, þess efnis að það
væri „erfítt að gera sér í hugar-
lund“ að Bandaríkjamenn myndu
boða til leiðtogafundar ef kínversk-
bandaríski andófsmaðurinn Harry
Wu yrði ekki látinn laus.
Wu var tekinn höndum í Kína 19.
júní og hefur verið ákærður fyrir
njósnastarfsemi.
Flokkur-
inn styður
Gonzalez
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Sósíalistaflokksins á Spáni
lýsti í gær yfír
stuðningi við
Felipe Gonz-
alez forsætis-
ráðherra
vegna ásak-
ana um að
hann og þrír
aðrir forystu-
menn flokks-
ins tengdust
ólöglegri
starfsemi hreyfíngar sem
barðist gegn baskneskum að-
skilnaðarsinnum. Hreyfíngin
varð 27 manns _að bana á síð-
asta áratug. Ásakanirnar á
hendur Gonzalez hafa valdið
miklu uppnámi í spænskum
stjórnmálum.
Árásir á
Tyrki í
Þýskalandi
TALIÐ er að Verkamanna-
flokkur Kúrdistans (PKK),
sem berst fyrir sjálfstæði
Kúrda í Tyrklandi, hafí staðið
fyrir íkveikju á heimili tyrk-
neskrar fjölskyldu í Bochum í
Þýskalandi í fyrrinótt. Fjöl-
skyldunni tókst að slökkva eld-
inn. Þetta er áttunda nóttin í
röð sem ráðist er á eignir
Tyrkja í Þýskalandi, aðallega
ferðaskrifstofur og félagsmið-
stöðvar.
Pílagrímar í
fylgd 25.000
hermanna
TUGÞÚSUNDIR hindúa héldu
í gær í árlega pílagrímsferð
að helli á fjöllum Kasmírs, þar
sem múslimskir aðskilnaðar-
sinnar rændu fímm vestræn-
um ferðamönnum fyrir fjórum
vikum. Meira en 25.000 vopn-
aðir hermenn fylgdu hindúun-
um vegna sprengjutilræða sem
ætlað var að fæla fólk frá því
að fara í ferðina. Hindúarnir
ganga 345 km leið að hellin-
um, sem er í 3.750 metra hæð.
Verstu flóð
á öldinni
FLÓÐ sem nú era í norð-aust-
urhluta Kína eru þau verstu
sem orðið hafa á því land-
svæði á þessari öld. Þrjú stór-
fljót hafa flætt yfír bakka sína.
Hermenn og óbreyttir borgar-
ar hafa verið kallaðir út að
styrkja varnargarða. Engar
fregnir hafa borist af mann-
tjóni eða slysum. Mikil úrkoma
hefur verið í héruðunum Lia-
oning og Jilin frá 25. júlí.
• •
Ormagna eft-
ir ástarleiki
KARLMAÐUR hefur verið
fluttur á sjúkrahús í Kúveit
vegna bakverkja og örmögn-
unar eftir að hafa haft mök
við eiginkonu sína sex sinnum
á dag eftir brúðkaup þeirra.
„Hann var fölur og kraftlaus
og gat ekki talað,“ sagði dag-
blaðið al-Watan og bætti við
að vinir mannsins hefðu borið
hann í sjúkrabílinn. Konan er
17 ára en ekki er vitað um
aldur eiginmannsins.
Gonzalez
I
i
>
i
i
i
i
l
►
i
>
>
i
t