Morgunblaðið - 02.08.1995, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
-\
Dýraglens
VÍ7ÓN Ö6 PARDUS-\
[>}fZ HAFA ;
ELT /VU6Í /
gi
EN&Ö \ÆR£> AíP\J
0l J'ATAfAÐMTFLU6\
I UR. ERjU Mihnzl
vezsiubvmid
lák
l>-í
JPla- *
Grettir
Tommi og Jenni
Ferdinand
Ég er orðinn forfallinn marm- í sumar ætla ég að taka þátt í Hvar sem hann nú er... Hann
arakúluspilari! „RúlIuholu“-meistarakeppninni á er hinum megin við götuna.
Miklatúni í Hliðunum...
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
Um dagskrár stefnu
Ríkisútvarpsins
Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni:
RÍKISÚTVARPIÐ er almannaút-
varp og á þar af leiðandi að þjóna
sem allra flestum landsmönnum.
Það tekst ágætlega. Daglega hlusta
tæplega áttatíu þúsund manns á
hádegisfréttir Ríkisútvarpsins. Lög-
um samkvæmt er það hlutverk Rík-
isútvarpsins að bjóða upp á tvær
hljóðvarpsdagskrár sem eiga að
þjóna sem flestum og miðað við
fréttatímana, tekst útvarpinu ágæt-
lega til.
Arnþór Helgason átelur um helg-
ina í Morgunblaðinu, að ómarkviss
dagskrárstefna ríki hjá Ríkisútvarp-
inu og hann kemur með ýmsar þarf-
ar ábendingar. En ég er ósáttur við
þessi orð Amþórs um Rás eitt og
Rás tvö í lesendabréfi 30. júli:
„Óbein samkeppni ríkir nú milli rás-
anna og dagskrárgerðarmenn róa á
sömu mið.“ Arnþór er alls ekki einn
um þetta sjónarmið, en ég býst við
því að líkt og öðrum, gangi honum
illa að útskýra nánar, hvað hann
meinar. Varla vill Amþór banna
mönnum að hlusta frekar á aðra
rásina en hina. En meinar hann að
hindra skuli með öllum ráðum að
hlustendur skipti um skoðun? Að
koma eigi í veg fyrir að hlustendur
Rásar tvö fái meiri áhuga á að
hlusta á Rás eitt, eða öfugt? Já,
öðra vísi get ég ekki skilið þetta taí
um óæskilega samkeppni Rásar eitt
og Rásar tvö.
Ég er þeirrar skoðunar að báðar
hljóðvarpsrásir Ríkisútvarpsins eigi
eftir kostum að veita sínum hlust-
endum alhliða þjónustu. Ríkisút-
varpið á ekki að reikna með því að
hlustendur skipti allir sem einn á
milli Rásar eitt og Rásar tvö, eftir
því hvaða dagskrárefni sé spennandi
hveiju sinni.
Við skulum ganga út frá stað-
reyndum: Tala fréttahlustenda hjá
Ríkisútvarpinu - hljóðvarpi skiptist
því sem næst til helminga á milli
Rásar eitt og Rásar tvö. Dag hvern
hlusta um 40.000 manns á hádegis-
fréttir á Rás eitt og rétt innan við
40.000 hlusta á fréttir á Rás tvö.
Báðum þessum stóra hópum á að
veita alhliða þjónustu. Þannig er
tónlist á báðum rásum, fréttir á
báðum rásum, afþreyingarefni á
báðum rásum og fróðlegt, upplýs-
andi efni á báðum rásum. Á hinn
bóginn er tónlistin mismunandi eftir
rásum og annað efni sömuleiðis.
Enda hlustendahópamir mismun-
andi.
Helmingur fréttahlustenda Rásar
tvö hlustar á siðdegisútvarp sömu
rásar. Það er vel. Á hinn bóginn
hlustar einungis fjórðungur frétta-
hlustenda Rásar eitt á síðdegisút-
varp þeirrar rásar. Úr því þarf að
bæta.
Bestu hlustunartímar í útvarpi
era milli 7 og 9 á morgnana og 17
til 19 síðdegis. Þá eru flestir reiðu-
búnir að hlusta á útvarp, EF þeir
fínna eitthvað boðlegt. Það er skyn-
samlegt að haga dagskrá á þessum
tímum þannig, að sem flestir hlust-
endur kveiki á útvarpinu. Þessvegna
er verið að gera þessa tilraur. með
SÍÐDEGISÞATT á Rás eitt. Efni-
sval og efnistök eru - eins og Am-
þór gat sér réttilega til - sniðin að
fréttahlustendum Rásar eitt. Auð-
vitað kemur einstaka sinnum fyrir
að verið sé að fjalla um sama efni
á báðum rásum Ríkisútvarpsins. En
það gerir ekkert til, vegna þess að
aðeins örfáir útvarpshlustendur eru
sífellt að skipta á milli stöðva. Eng-
inn fjölmiðill er svo vitlaus að fjalla
aldrei um það sem aðrir hafa tekið
til urnfjöllunar. Arnþór, það er óhjá-
kvæmilegt að fjölmiðlar rói öðru
hveiju á sömu mið, allir skynsamir
skipstjórar róa þangað sem vel veið-
ist. Hjá Ríkisútvarpinu er um það
að ræða að veita tveimur stóram,
en mismunandi hlustendahópum
sem besta og fjölbreyttasta þjón-
ustu.
Miðað við hlustun, það er að segja
áhuga og undirtektir hins almenna
hlustanda, hefur Ríkisútvarpinu
tekist tiltölulega vel. En í öllum
rekstri, hvort sem er einkarekstri
eða ríkisrekstri hlýtur ætíð að gilda
þetta kjörorð: betur má ef duga skal.
JÓN ÁSGEIR SIGURÐSSON,
vinnur við Síðdegisþátt Rásar eitt og
eru þetta persónulegar skoðanir hans,
en ekki Ríkisútvarpsins.
Glæpir í
Bosníu-Hersegóvínu
Frá Amnesty International:
VEGNA yfírtöku heija Bosníu-
Serba á griðasvæði Sameinuðu
þjóðanna við Srebrenica í Bosníu-
Hersegóvínu óttast Amnesty Int-
emational um afdrif allt að 4000
karlmanna frá 16 ára aldri sem
Bosníu-Serbar handtóku við töku
Srebrenica og fluttu á knatt-
spyrnuvöll í bænum Bratupac.
Samkvæmt heimildum Amnesty
Intemational vora karlmennimir
yfirheyrðir vegna hugsanlegrar
aðildar sinnar að stríðsglæpum.
Óttast Amnesty Intemational
að þeir sæti pyndingum og illri
meðferð og að aftökur hafi átt sér
stað. Talið er að margir ef ekki
allir þeir- eru voru handteknir séu
óbreyttir borgarar. Þungar
áhyggjur Amnesty International
beinast einnig að fregnum er hafa
borist af konum sem flúðu Sre-
brenica akandi en voru numdar á
brott á leiðinni út af griðasvæðinu.
íslandsdeild Amnesty Intemat-
ional vill vekja athygli almennings
á möguleikum til að hvetja stjórn-
völd í Belgrad til aðgerða, með
því að senda þeim eftirfarandi
bréf.
Vinsamlegast sendið bréf, póst-
kort eða símbréf til eftirfarandi:
BIRO REPUBLIKE SRPSKE
Moode Pijade 8
11000 Beogfrad
Federal Republic of Yugoslavia.
Telefax: 381 11 338 876.
Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.
4
.
e
i
€
Í
i
(
Í
(.
(
I
(
(
I
i
i
i