Morgunblaðið - 02.08.1995, Side 29

Morgunblaðið - 02.08.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1995 29 BREF TIL BLAÐSINS Frá Hlyni Jónssyni: Hinn 19. júlí sl. birtist í Morgunblað- inu grein eftir lögmennina Jón Stein- ar Gunnlaugsson og Karl Axelsson, þar sem því er haldið fram að í fréttaflutningi hafi ómaklega verið vegið að dómara skaða- bótamáls, sem dæmt var í Hér- aðsdómi Reykja- víkur 20. júní sl. í málinu hafnaði dómarinn því að miða bætur til handa stúlkunni við meðallaun karla, þar sem rannsóknir Kjararannsókna- nefndar sýndu að tekjur kvenna væru almennt lægri en karla. Niður- staðan er í samræmi við fordæmi Hæstaréttar frá 12. janúar sl. Voru bætur stúlkunnar jafnháar og verið hefði í tilvikipilts? Hlynur Jónsson Það sem lögmennirnir telja helst athugavert við fréttaflutning af mál- inu er að þess hafi ekki verið getið, að dómarinn vegi mögulega mismun- un upp með öðrum þáttum bóta- ákvörðunar, (þ.e. að frádráttur vegna eingreiðsluhagræðis og skattfrelsis bótanna hafi verið minni en almennt tíðkast), þannig að niðurstaðan sé í raun sú að stúlkan hafi fengið jafn- háar bætur og ef um pilt hefði verið að ræða, en ekki fjórðungi lægri eins og haldið hefur verið fram. Með fullyrðingu sinni eru lög- mennirnir að segja að frádrátturinn hefði orðið meiri ef tjónþolinn hefði verið piltur (ella hefði piltur fengið hærri bætur í þessu máli), en slíkt er vitanlega ólögmæt mismunun í garð pilta. I fullyrðingunni felst einn- ig að hin formlega niðurstaða dómar- ans (um að ei sé hægt að dæma stúlk- um jafnháar örorkubætur og piltum, nema sannað sé að kynferði hafi ekki áhrif á framtíðartekjuáætlanir) hafi í raun verið til málamynda, en raunveruleg niðurstaða hafi verið þveröfug. Er hér um að ræða þungan áfellisdóm yfir vinnubrögðum dómar- ans og má segja að hér hafi lögmenn- irnir „vegið ómaklega að dómara málsins, sem ekki er í aðstöðu til að bera hönd fyrir höfuð sér.“ Það furðulegasta er að lögmennirnir virð- ast ekki telja neitt athugavert við meint vinnubrögð dómarans. Páll Þórhallsson, lögfræðingur og blaðamaður, túlkar dóminn á svipað- an hátt í miðopnugrein í Mbl. þann 13. júlí sl., þar sem hann segir: „Hugsanlega hafði réttlætiskennd dómarans áhrif á það að bæturnar sem stúlkan fékk í raun dæmdar voru ríflegar. Lækkun vegna skatt- frelsis bótanna var til dæmis lítil.“ og „Það er ekki hægt að fullyrða að drengir hefðu fengið hærri bætur en stúlkumar í þeim dómsmálum sem nefnd vom vegna þess að uppbæturn- ar virðast réttar út bakdyramegin ef svo má að orði komast.“ Orðalag Páls er þó mun varfæmara. Ofangreindar túlkanir dómsins eru vafasamar. Piltur hlyti að fá hærri bætur í sambærilegu máli, ella væru dómstólar farnir að beita mismun- andi frádráttarreglum eftir því hvort kynið ætti í hlut. Utilokað er að dóm- stólar taki þá framkvæmd upp að haga frádráttarliðum við bótaupp- gjör með- þeim hætti að stúlkur sæti lægri frádrætti en piltar vegna launamismununar í þjóðfélaginu. Slík framkvæmd myndi þverbrjóta allar jafnræðisreglur. Rétt túlkun dómsins hlýtur að vera sú, að bætur stúlkunnar séu lægri en verið hefði í tilviki pilts. HLYNUR JÓNSSON, laganemi. I mm jm A TVINNUAUGL YSiNGAR Vanur leikfimi-og eróbikkennari óskast. Upplýsingar í síma 568 5943 miðviku- dag og fimmtudag milli kl. 14 og 17. Sveinbjörg. 2m SVARTISVANUWNN Óskum eftir að ráða fólk, eldri en 19 ára, til starfa nú þegar og einnig frá næstu mánað- armótum. Um er að ræða fullt starf í vakta- vinnu. Umsóknareyðublöð á staðnum. Svarti svanurinn. Háseta vanan netaveiðum vantar á 200 tonna neta- bát frá Grindavík sem er að hefja veiðar. Upplýsingar í síma 487-8314 eftir kl. 17. Sendill - innheimta Útgáfufyrirtæki óskar að ráða karl eða konu til innheimtu- og sendilstarfa allan daginn. Þarf að hafa bíl til umráða og geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir, er tilgreini reynslu og fyrri störf, sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 8. ágúst, merkt- ar: „Sl - 15850“. " Kaffihúsið/kaffibrennslan Súfistinn 'N'"‘ Hafnarfirði óskar eftir starfsfólki í heilar og hálfar stöður frá og með 1. september nk. Umsækjendur vinsamlegast mæti á skrif- stofu Súfistans, Strandgötu 9, Hafnarfirði, milli kl. 17 og 19 miðvikudaginn 2. ágúst eða fimmtudaginn 3. ágúst. Heiðarskóli Leirársveit Skólann vantar áhugasaman íþróttakennara fyrir næsta skólaár. Skólinn er grunnskóli hreppanna sunnan Skarðsheiðar og er staðsettur miðja vegu milli Borgarness og Akraness. Skólinn er ein- setinn og þar starfar metnaðarfullt starfsfólk. Verið er að taka í notkun nýja innisundlaug. Upplýsingar veitir Birgir, skólastjóri, í síma 433 8920 og 433 8884. Menntamála- ráðuneytið auglýsir stöðu deildarstjóra lista- og safna- deildar í menningarmálaskrifstofu ráðuneyt- ins lausa til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi. Lögfræðimenntun æskileg. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyt- inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. september nk. Sölufólk - dagvinna Dugmikið sölufólk óskast í dagvinnu við sölu á skráningum í bókina íslensk fyrirtæki 1996. Viðkomandi verður að hafa bíl til umráða. Vinna hefst í byrjun ágúst og stendur í 2-3 mánuði. Góðir tekjumöguleikar. Nánari upplýsingar gefur Hildur Kjartans- dóttir í síma 515 5631. ú FRÓDI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA Seljavegur 2, 101 Reykjavík. Vegna opnunar nýrrar verslunar í Garðabæ óskar Domino’s Pizza eftir að ráða hresst starfsfólk, 17 ára og eldri til starfa í full störf og hlutastörf sem fyrst. Nánari upplýsingar eru veittar á Grensásvegi 11 í dag og á morgun. Upplýsingar eru ekki veittar i síma. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. DOMINO'S • U) o z s E N ON Q Q. FLUGVIRKJ AFÉLAG ÍSLANDS Almennur félagsfundur FVFÍ verður haldinn í Borgartúni 22 fimmtudaginn 3. ágúst 1995 klukkan 20.00. Fundarefni: Samningarnir. Mætið vel og stundvíslega! Stjórnin. ... USÖLU Til sölu og sýnis áSogavegi 144 Lítill bátur með húsi, siglinga- Ijósum og radarvara. Góður vagn fylgir. Góð dráttarvél á skrá, ZM-357. Upplýsingar í síma 553-4256. Hörgshlíð 12 Bænastund í kvöld kl. 20.00. Halla Sigurgeirsdóttir Andlegur læknir og miðill Miðlun Komist að rót sjúkdóma. Sjálfsuppbygging: Árukort, 2 gerðir. Simi 554 3364. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bibiíulestur fellur niður í kvöld vegna Kotmóts sem hefst á fimmtudagskvöld. auglýsingar FERÐAFÉLAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 568-2533 Miðvikudagur 2. ágúst kl. 20.00 Kvöldganga út i óvissuna. Gengið um áhugavert svæði í nágrenni höfuðborgarsvæðis- ins. Verð 700 kr., frítt f. börn nrí. fullorðnum. Brottför frá BSl, austanmegin ög Mörkinni 6. SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl. 20.30 i Kristniboðssalnum. Ræðumaður: Friðrik Hilmars- son. Allir velkomnir. Fjölbreyttar ferðir um verslunarmannahelgina: 4.-6 og 7. ág. kl. 20.00: Þórs- mörk og Fimmvörðuháls 3 og 4 d. Gist í Skagfjörðsskála Langadal eða i tjöldum. Göngu- ferðir. 4.-7. ág. kl. 20.00: Landmanna- laugar - Breiðbakur - Eldgjá. Gist í Laugum. M.a. ekið á nýjar spennandi slóðir (Breiðbak) norðvestan við Langasjó, frábær útsýnisstaður. 4.-7. ág. kl. 20.00: Svínárnes - Kerlingargljúfur - Hveravellir. Ekið/gengið um Hrunamannaaf- rétt og Kjalarsvæðið. Gist í hús- um í Svínárnesi og á Hveravöll- um. Ný ferð. 5.-7. ág. kl. 08.00: Núpsstaðar- skógar. Tjaldað við skóganna. Tilkomumikið svæði vestan Skeiðarárjökuls. Spennandi sumarleyfisferðir f ágúst, m.a. eyðibyggðir á skag- anum milti Eyjafjarðar og Skjálfanda 11.-16. ágúst. Nánari upplýsingar og farmiðar á skrifst. Mörkinni 6, 568-2533, fax 568-2535. Næg tjaldstæði í Þórsmörk, bæði í Langadai, Litla- og Stóraenda. Ferðafélag islands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.