Morgunblaðið - 15.08.1995, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
JHiorgíiwWaíiitfo
Sprungur
í steypu
í hlutfallslega fáum tilvikum
virðast. sprungur vera svo víð-
ar, að vatnsfælur einar saman
dugi ekki til að þétta þær.
Þetta kemur m. a. fram í
grein eftir Rögnvald S. Gísla-
son verkfræðing. / 15 ►
íslenzkar
steinplötur
NOTKUN á íslenzku bergi til
húsagerðar hefur aukizt. I
þættinum Smiðjan ljallar
Bjarni Olafsson um steinplöt-
ur úr íslenzku bergi, en veðr-
unarþol þess hefur reynzt
meira en marmarans. / 25 ►
Ú T T E K T
Vel varin
hús
Hús byggð með steypumót-
um úr einangrunarplasti
verða nú æ algengari, en
inótin eru hlaðin upp og svo er
steypt í þau með flotsteypu. Mót-
in eru síðan ekki tekin utan af
steypunni, heldur verða þau hluti
af húsbyggingunni. Húsin eru
því vel varin að utan.
— Kostnaður við byggingu
þessara húsa er mun lægri en
hefðbundinna steinhúsa, segir
Páll Kristjánsson, framleiðslu-
stjóri Víking hf., sem framleiðir
þessi mót. Steypusparnaður er
mikill miðað við venjuleg mót,
þar sem veggimir em varðir af
mótunum og mega því vera
þynnri en ella.
Annar mikilvægur kostur við
þessa byggingaraðferð er stutt-
ur byggingartími, en ekki tekur
nema fimm vikur að hlaða 150
ferm. hús, eftir að sökkullinn er
kominn.
Að sögn Páls fæst einnig mik-
ill hitasparaaður með þessari
byggingaraðferð, en vegna ein-
angmnargildis mótanna þarf
minni hita til þess að halda hús-
unum hlýjum og viðhaldskostn-
aður verður líka minni, vegna
þess hve húsin em vel varin að
utan. Þetta er kostur, sem marg-
ir meta mikils.
Áður vom það mest einstak-
lingar, sem byggðu með þessari
aðferð, en nú eru byggingarað-
ilamir, sem byggja til þess að
selja, farnir að notfæra sér þessi
mót í sfvaxandi mæli.
Þegar hafa tugir húsa verið
byggðir á höfuðborgarsvæðinu
með þessari byggingaraðferð og
vel hefur gengið að selja þau.
Einangmnamiótin era líka far-
in að ryðja sér til rúms úti á landi.
/ 16 ►
Samdráttur einkennir
íbúðabyggingar á
hinum Norðurlöndunum
ÍBÚÐABYGGINGAR hafa verið
stöðugar hér á landi undanfarin ár
miðað við hin Norðurlöndin, en þar
hefur dregið mikið úr smíði nýrra
íbúða. Hér hafa verið byggðar rúm-
lega 6 íbúðir árlega á hverja 1.000
íbúa á síðustu árum. Svo var einnig
í fyrra, en þá voru aðeins byggðar
4 íbúðir á hverja 1.000 íbúa í Nor-
egi,2,6 íbúðir íDanmörku,2,5íbúð-
ir í Svíþjóð og 5,2 íbúðir í Finnlandi.
Samdrátturinn hefur verið mest-
ur í Finnlandi, en þar var um árabil
byggt hlufallslega meira af íbúðar-
húsnæði en á nokkru hinna N orður-
landanna. íbúðabyggingar vora
t.d. mjög miklar í Finnlandi á árinu
1990, en það ár vora byggðar þar
13,1 íbúðir á hverja 1.000 íbúa. Síð-
an hafa þær farið minnkandi ár frá
ári. Ástæðan er vafalaust sam-
dráttur í atvinnulífinu og lakari
efnahagur.
í Noregi voru íbúðabyggingar
mestar á árunum 1975 og 1976 og
sömu sögu er að segja í Danmörku,
en þar hefur verið hvað minnst
byggt af öllum Norðurlöndunum á
undanförnum áratugum. Sam-
drátturinn í Svíþjóð er líka áber-
andi, en rétt er að geta þess, aö,
húsnæðisstefnan hefur verið að
breytast þar í landi.
Áður var mest áherzla lögð á fé-
lagslegt húsnæði og stuðningur
hins opinber a mikill í því sky ni. Sér-
eignarstefnan er þó aftur að vinna
sér sess þar í landi. Líklegt er talið,
að þetta verði til þess að auka íbúð-
arbyggingar í landinu á ný.
Þó að jafnvægi hafi haldizt í
íbúðabyggingum hér á landi á und-
anfórnum áram, era þær samt mun
minni nú en þegar þær vora í há-
marki. Mestar urðu þær á árunum
1977 og 1978, en þau ár voru hér
fullgeröar liðlega 10 íbúðir á hverja
1.000 íbúa.
Fullgerðar íbúðir á Norðurlöndum
1975-1994 Á hverja 1.000 íbúa
10-2 NOREGUR
SVIÞJOÐ
9,1
Eitt fjölmennasta almenningshlutafélagið
Á INNLENDUM HLUTABRÉFAMARKAÐI
Þeir sem keyptu hlutabréf í HVÍB árið 1994 fá nú
cndurgreiAslu frá skattinum eða lækkun á tekjuskatti.
Greiðslan nemur nm 84.000 kr. fyrir hjón sem nýttu sér
fulla heimild til hlutabréfakaupa vegna skattafrádráttar. í
júlí sl. fengu hluthafar auk þess greiddan 5% arð af
nafnverði bréfanna. Á þessu ári er heimilt að nýta að
hámarki um 260.000 kr. kaup á hlutabréfum til lækkunar
á tekjuskatti fyrir hjón.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR tSl.ANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi Islands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Simi 560-8900.
FERÐ
TIL
í tilefni af því að
Hlutabréfavísitala VlB
hefur nú náð hæsta gildi
frá upphafi býður VIB
tveimur heppnum hluta-
bréfakaupendum til
New York. Nöfn þeirra
sem kaupa hlutabréf
áVÍB á tímabilinu 28. júlí - 31. desember 1995
fara í pott. Dregin verða út tvö nöfn, en
vinningurinn er ferð til New York.