Morgunblaðið - 20.08.1995, Blaðsíða 22
22 B SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUA UGL YSINGAR
„Au pair“
Lúxemborg
Barngóð „au pair“ óskast til Lúxemborgar
til að gæta tveggja barna. Má ekki vera yngri
en 22 ára. Má ekki reykja. Þarf að hafa bíl-
próf. Upplýsingar í síma 554-6782.
Leikskólar
Hafnarfjarðar
Talkennari
Talkennari óskast til starfa við leikskóla Hafn-
arfjarðar í 75% starf. Um er að ræða afleys-
ingar í eitt ár, frá og með 1. október 1995.
Upplýsingar um starfið veita Hólmfríður
Árnadóttir, talkennari, í síma 555-3599 og
Sigurlaug Einarsdóttir, leikskólafulltrúi, í
síma 555-3444.
Umsóknum skal skilað á skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 4, fyrir 25. ágúst
nk., á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á
Reykjanesi
Þroskaþjálfi
eða starfsmaður með uppeldisfræðilega
menntun óskast til starfa á hæfingarstöð í
Keflavík. Um er að ræða fjölbreytt starf á
skemmtilegum vinnustað.
Upplýsingar gefur Sigríður Daníelsdóttir í
síma 421-2362.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofunum Digranesvegi 5, Kópavogi, og
Hafnargötu 90, Keflavík.
Umsóknarfrestur er til 1. september nk.
W Yinnuimðluii
Reykjavíkurborgar
Atvinnuráðgjafi
Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar óskar eftir
að ráða atvinnuráðgjafa sem alira fyrst.
Starfið felst í margvíslegri aðstoð og ráðgjöf
við fólk í atvinnuleit m.t.t. náms og starfa,
ásamt upplýsingagjöf varðandi atvinnuleit,
vinnumiðlun og atvinnuleysistryggingar. Til
greina kemur að viðkomandi taki þátt í Evr-
ópusamstarfi á vegum stofnunarinnar.
Umsækjendur skulu hafa reynslu af störfum
við starfsmannahald, atvinnuráðgjöf, náms-
ráðgjöf, kennslu eða aðra hliðstæða starfs-
reynslu, og æskilegt er að þeir hafi lokið
burtfararprófi frá viðurkenndum háskóla í
einhverri grein félagsvísinda eða lögfræði.
Sérstaklega eru áhugaverðir umsækjendur
sem hafa gott vald á enskri og þýskri eða
franskri tungu.
Umsóknir með greinargóðum upplýsingum
um menntun og fyrri störf berist fyrir 8. sept-
ember n.k. til framkvæmdastjóra Vinnumiðl-
unar Reykjavíkurborgar, sem einnig gefur
upplýsingar um starfið.
Engjateigur 11 • Sími 588 2580 • Fax 588 2587
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Matartæknar
Matartækni vantar í leikskólann Sæborg
v/Starhaga, sími 562 3664.
Einnig vantar aðstoðarfólk í eldhús í leikskól-
ann Brekkuborg v/Hlfðarhús,
sími 567 9380.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277.
Staða málfræðings
íslensk málstöð auglýsir eftir umsóknum um
stöðu sérfræðings í íslenskri málfræði.
Staðan er laus frá 15. september 1995.
Verkefni eru einkum bundin hagnýtri mál-
fræði: málfarsleg ráðgjöf og fræðsla, nýyrða-
störf, ritstjórnar- og útgáfustörf o.fl.
Til málfræðingsins eru gerðar svipaðar hæfn-
iskröfur og til lektors í íslenskri málfræði.
Æskilegt er að umsækjandi sé vanur tölvu-
vinnu. Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um fræði-
leg störf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir, svo og námsferil og störf, skulu
sendar íslenskri málstöð, Aragötu 9, 101
Reykjavík, fyrir 10. september 1995.
Nánari vitneskju veitir forstöðumaður,
sími 552 8530.
Reykjavík, 17. ágúst 1995.
ÍSLENSK MÁLSTÖÐ
- GREINASKRIF
aukavinna - blaðamennska
Vegna skipulagsbreytinga og aukinna umsvifa leitum
við að nokkrum lausráðnum starfsmönnum í blaða-
mennsku.
Við leitum að:
► Góðu og greindu fólki
sem hefur áhuga á fjölskyldumáium
■_ og á auðvelt með að tjá sig í rituðu máli.
Nánari upplýsingar aðeins veittar fiji Ábendi.
Faríð verður með allar umsóknir og fyrirspumir sem
trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum sem liggja
frammi á skrifstofu okkar fyrir 25. ágúst 1995.
a ^ <5 r^j>T
Barngóð - reyklaus
Vantar barngóða manneskju til að passa tvö
börn, 6 og 8 ára e.h. í 12-15 tíma á viku.
Upplýsingar í síma 588 4114.
Hjúkrunarfræðingar
Laus er staða deildarstjóra á vistdeild frá
1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Óskum að ráða áhugasama hjúkrunarfræð-
inga sem eru tilbúnir að taka þátt í endur-
skoðun á hjúkrunarskráningu og öðrum
spennandi verkefnum.
Sjúkraliðar
Óskum að ráða áhugasama sjúkraliða á
morgun- og kvöldvaktir. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri í síma 552-6222.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Grunnskólar
Hafnarfjarðar
Óskum að ráða í eftirtalin störf:
Lækjarskóli
1. Starfsmaður í mötuneyti nemenda,
60% starf.
2. Skólaritari, 50% starf.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri á staðn-
um eða í síma 555 0185.
Hvaleyrarskóli
Gangavörður, 100% starf.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri á staðn-
um eða í síma 565 0200.
Umsóknir umm ofangreind störf berist skóla-
skrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 4, fyrir
25. ágúst nk.
Skólafulltrúinn íHafnarfirði.
Xinn ENDURSKOÐUN
AKUREYRI HF.
Framtíðarstörf
Óskum að ráða í eftirtalin störf:
Viðskiptafræðinga eða fólk með sam-
bærilega menntun. Reynsla af vinnu við bók-
hald og reikningsskil er nauðsynleg.
Við leitum að áhuga- og samviskusömum
starfskröftum, sem vilja vinna á sviði reikn-
ingshalds, endurskoðunar og skattamála.
Starfskraft í hálfsdagsstarf kl. 13-17. í
starfinu felst m.a. símavarsla og afgreiðsla,
innsláttur á tölvu o.fl. Haldgóð þekking á
bókhaldi og tölvum nauðsynleg.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofunni.
KPMG Endurskoðun Akureyri hf.
löggiltir endurskoðendur
Endurskoðun - skattaráðgjöf
rekstrarráðgjöf - bókhald.
Glerárgötu 24,
Akureyri.
Sími: 462-6600,
fax: 461-6601.