Morgunblaðið - 27.08.1995, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ •
SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1995 D 15
Starfsfólk í prentun og útgáfu áhugasamt um námsefni Prenttæknistofnunar
600 af 1.500 sóttu
námskeið í fyrra
Á SÍÐASTA ári sóttu ríflega 600
starfsmenn í prent- og útgáfuiðnaði
námskeið hjá Prenttæknistofnun.
„Það sýnir vel umfangið og áhugann
í starfsgrein sem telur varla meira
en 1.500 manns,“ segir Guðbrandur
Magnússon, framkvæmdastjóri
Prenttæknistofnunar. Meðal nýjunga
í vetrarstarfí Prenttæknistofnunar í
vetur eru námskeið um Internet og
margmiðlun. Einnig er í boði rit-
vinnslunámskeið fyrir félagsmálafólk
og námskeið um frágang ritgerða.
Leit á Internetinu
Árni Matthíasson blaðamaður er
leiðbeinandi á námskeiðinu Upplýs-
ingaleit á Alnetinu. „Þar er að finna
nánast ótæmandi upplýsingabrunn
en vandinn er að fínna þær upplýs-
ingar sem vantar hvetju sinni,“ segir
Árni sem er gjörkunnugur krákustíg-
um netsins.
Nánast óteljandi gagnabankar og
Morgunblaðið/Kristinn
TölvU"
nám á
mynd'
böndum
HAGAVÍK framleiðir og selur
fræðsluefni á myndbandsspólum.
Að sögn Karls Jóhannssonar, hjá
Hagavík, er þessi tegund fræðslu-
efnis í örri útbreiðslu; nokkur
verkalýðsfélög styrkja félagsmenn
sína til að kaupa myndbandsspólur
með námsefninu og æ fleiri fyrir-
tæki nota þessa aðferð til að þjálfa
starfsfólk sitt.
Úreltar aðferðir
„Þessar forngrísku kennsluað-
ferðir sem menn hafa verið að nota
eru löngu úreltar," segir Karl Jó-
hannsson. „Nú eru menn famir að
nota margmiðlunaraðferðir þar sem
nemandinn stjórnar hvað hann lær-
ir og á hvaða hraða hann fer yfir
námsefnið. í staðinn fyrir að fara
í námskeið á tölvuskóla hefur mað-
ur alltaf við hendina á vídeóspólu,
sem hægt er að grípa til þegar á
þarf að halda.“
Von á Windows95
Karl sagði að Hagavík hefði í
boði myndbandsspólur með byij-
enda- og framhaldsnámskeiðum á
íslensku í Windows, Word 6.0 og
Word 2.0, Excel og Internet svo
fátt eitt sé nefnt, auk þess sem
fyrirtækið liafi söluumboð fyrir
erlenda framleiðendur námefnis
um QuarkXpress, Page Maker,
Photoshop og fleiri forrit. Fljótlega
sé von á myndbandsefni um
Windows95.
Tölvunámskeið á myndbands-
spólum eru til sölu hjá helstu tölvu-
fyrirtækjum og hjá Hagavík. Nám-
skeið kostar 4.980 krónur að sögn
Karls en nokkur verkalýðsfélög
niðurgreiða námskeiðin, t.d. kosta
þau 2.250 krónur til V.R. félags-
manna.
fréttaþjónustur tengjast netinu. Á
námskeiðinu gefur Arni ráð um hvert
best sé að snúa sér og þátttakendur
fá tækifæri til að prófa sjálfír að leita
að því sem þá vanhagar um. Einníg
verður kynnt hvernig hægt er að
komast inn í umræðuhópa um ákveð-
in málefni og hvemig nota má netið
til samskipta.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað
blaðamönnum og öðram sem þurfa á
mikilli og markvissri upplýsingaöflun
að halda.
Auk Árna Matthíassonar munu
reyndir blaðamenn segja frá reynslu
sinni af notkun netsins í störfum sín-
um.
Námskeiðið stendur í 20 stundir.
Almennt þátttökugjald er 20 þúsund
krónur en niðurgreitt verð til starfs-
manna aðildarfyrirtækja er 6.000
krónur.
Auk þessa námskeiðs mun Hjörtur
Guðnason halda 20 stunda námskeið
í að búa til heimasíður á Internetinu.
Ritvinnsla fyrir
félagsmálafólk og aðra
Karl Emil Gunnarsson leiðbeinir
um notkun Word-ritvinnsluforritsins
á námskeiðinu „Ritvinnsla fyrir fé-
lagsmálafólk," sem stendur í 12
stundir og kostar 12 þúsund krónur
en 3.600 fyrir þá sem njóta niður-
greiðslu.
Námskeiðið er fyrst og fremst
ætlað fólki sem vinnur að félagsmál-
um og þarf oft að skrifa bréf og fund-
argerðir. Áhersla verður lögð á þá
eiginleika forritsins sem gera kleift
að vinan með nafnaskrár í gagna-
grannum. Lögð verður áhersla á útlit
og læsileika þannig að efnið laði til
sín lesendur.
Einnig verður fjallað um mál og
stíl. Markmið námskeiðisins er að
þátttakendur verði færir um að nota
Word-ritvinnsluforritið til að létta sér
störf.
Karl Emil mun einnig leiðbeina um
uppsetningu ritgerða, skýrslna og
annars texta í Word-ritvinnslukerfinu
á námskeiðinu „Frágangur ritgerða
í Word.“ Það stendur einnig í 12 klst.
og kostar 12.000 (3.600) krónur.
Að auki gengst Prenttæknistofnun
fyrir fjölmörgum námskeiðum fyrir
starfsfólk í prentiðnaði. Þar á meðal
eru námskeið í lita- og ljósfræði,
notkun QuarkXPress umbrotsforrits-
ins, Photoshop-myndvinnsluforrits-
ins, svo fátt eitt sé talið.
Tölvuskóli EJS • Sími 563 30 30
Námskeið Klst Verö Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des.
Access 2.0 - Byrjendanámskeiö 12 23.700 E 14.-17. M 25.-28. E 30.-2.11 E 27.-30. M 18.-21.
EJS Launanámskeiö 12 13.000 H 25.-26. M 6.-8. M 9.-11. E 6.-8. H 24.-25. M 6.-8.
Excel 5.0 - Byrjendanámskeið 12 17.000 M 14.-17. K 4.-7. E 2.-5. M 23.-26. E 13.-16. M 4.-7. K 11.-14.
Excel 5.0 - Framhaldsnámskeiö 12 17.000 E 21.-24. E 25.-28. K 16.-19. M 6.-9. K 27.-30. M 12.-15.
Excel VBA 15 28.000 E 11.-15. M 30.-3.11 E 20.-24. M 18.-22.
Grunnur - Byrjendanámskeiö um tölvunotkun 15 18.000 M 28.-1.9. M 16.-20. E 13.-17.
Windows 3.x - Bvrjendanámskeiö 9 12.300 M 30.-1.9. M 18.-20. E 15.-17.
Project 4.0 - Byrjendanámskeiö 12 17.000 M 28.-3.10 E 30.-2.11 E 4.-7.
Visual Basic - Byrjendanámskeiö 12 28.000 E 28.-31. M 2.-5.' E 13.-16. E 4.-7.
Visual C++ - Byrjendanámskeiö 15 30.000 M 16.-20. M 20.-24.
Windows NT - Ætlað netstjórnendum 6 16.200 M 12.-13. E 9.-10. E 18.-19.
Windows 95 - Byrjendanámskeiö 9 12.300 M 14.-16. M 11.-13. E 18.-20. M 25.-27. E 9.-11. K 23.-25. M 8.-10. E 27.-29. E 13.-15.
Windows 95 - Uppfærslunámskeiö 6 8.200 M 4.-5. M 14.-15. M 5.-6. E 16.-17. E 26.-27. M 6.-7. K 20.-21. M 29.-30. E 11.-12,
Word 6.0 - Byrjendanámskeiö 15 16.000 M 21.-25. E 4.-8. K 18.-22. K 9. -13. M 30. -3.12 E 20.-24. M 11.-15.
Word 6.0 - Framhaldsnámskeiö 12 13.900 M 18.-21. M 23.-26. K 13.-16. E 11.-14.
WordPerfect 6.1 - Ðyrjendanámskeiö 15 16.000 E 25.-29. M 9.-13. M 13.-17. E 18.-22.
WordPerfect 6.1 - Framhaldsnámskelð 12 13.900 E 16.-19. M 27.-30.
M = KI. 9.00-12.00
Skýringar á tímasetningu
E = Kl. 13.00 - 16.00 K = Kl. 16.00 - 19.00 H = Helgarnámskeið 9.00 -16.00
Tölvuskóli EJS
Tölvuskóli EJS hefur nú sitt
áttunda starfsár með fjölda
áhugaverðra námskeiða í boði.
Góð aðsókn hefur verið í skólann á
síðastliðnum árum og eru
nemendur nú orðnir hátt á áttunda
þúsund. Þó nokkrar breytingar
hafa átt sér stað í töflu skólans fyrir
haustið 1995. Megináhersla er
lögð á námskeið um Windows og
önnur Microsoft forrit eins og t.d.
Word, Excel og Access. Við
viljum vekja athygli á nýjum
námskeiðum eins og námskeiði í
hinu nýja stýrikerfi Windows 95
bæði fyrir nýja notendur og þá sem
notað hafa fyrri útgáfur af
Windows og eins nýtt námskeið í
Excel 5.0 þar sem kenndir eru
Visual Basic og fjölvamöguleikar
Excel 5.0. Auk námskeiða
samkvæmt töflu er fyrirtækjum
boðið upp á sérsniðin námskeið
sem löguð eru að þörfum hvers
fyrirtækis.
Skráning á námskeið og frekari
upplýsingar um námskeið fer fram
síma 563-3000.
Leiðbeinendur
Bjarnsteinn Þórsson, þjónustusviði
Dagur Egonsson, þjónustusviði
Elísabet Halldórsd., þjónustusviði
Friðrik Ásmundss.,
hugbúnaðarsviði
Hjörleifur Kristinsson,
markaðssviði
Linda Arnardóttix, þjónustusviði
Jóhanna Margrét Guðjónsdóttir,
þjónustustjóri notendaþjónustu og
umsjónarmaður skóla
María Guðfinnsdóttir,
þjónustusviði