Morgunblaðið - 15.09.1995, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
"MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þota leigð undir áhafnaskipti á Dalborginni EA og fleiri íslenskum togurum
BERGLJÓT Snorradóttir með Rúnar Loga Rúnarsson í vagninum, Kristinn Heiðar
Jakobsson, Anna Björnsdóttir og Snorri Snorrason.
Morgunblaðið/Ásdís
KRISTINN Heiðar Jakobsson, sem er 14 ára, og vinur hans
Ingvar Hermannsson, sem er 16 ára, voru á Dalborginni.
Af Flæmska
hattinum á
skólabekk
á Dalvík
Um borð í mörgum íslenskum fískiskipum
eru bræður, feðgar eða önnur skyld-
menni. 14 ára skipverji á Dalborginni var
spurður að því er hann kom til landsins
á þriðjudagskvöld eftir sumardvöl við veið-
ar á Flæmska hattinum hvort hann ætti
skyldmenni um borð: „Já,“ sagði hann.
„Látum okkur sjá, það er skipstjórinn,
fyrsti stýrimaður, fyrsti vélstjóri, kokkur-
inn og fjórir hásetar.“ Pétur Blöndal tók
á móti þessum unga sjómanni, öðrum
skipverjum á Dalborginni, skylduliði
þeirra og fleira fólki á Keflavíkurflugvelli.
Á ÞRIÐJUDAG fóru fram
áhafnaskipti á íslenskum togur-
um sem eru að veiðum á Flæmska
hattinum. Þar eru nú sex íslensk-
ir togarar og hefur gengið þokka-
lega á þessum miðum við Ný-
fundnaland. í annað skipti í röð
var farin sú leið að leigja Boeing-
þotu Flugleiða og fljúga til St.
John’s í Kanada, þar sem áhafna-
skiptin fóru fram. Með í för voru
fjölmargir Islendingar í verslun-
arerindum, en einnig fjölskyldur
sjómanna.
Það voru útkeyrðir sjómenn af
Dalborginni og Otto Wathne NS
sem komu til landsins á þriðju-
dagskvöld eftir rúmlega tveggja
mánaða úthald. Á meðal þeirra
var 14 ára piltur að nafni Kristinn
Heiðar Jakobsson, en þetta er
annað sumarið í röð sem hann
tekur þátt í veiðum á Flæmska
hattinum með Dalborginni.
Kristinn segist vera ánægður
með sumarið og að hann hafí þén-
að ágætlega eða um 400 þúsund
krónur. Hann hafi því að minnsta
kosti efni á skólabókum í vetur,
en hann fer í 9. bekk í grunnskól-
ans á Dalvík.
Kristinn hefur samtals farið í
fjóra túra með Dalborginni. Að
þessu sinni var úthaldið rúmlega
70 dagar og unnið á sex tíma
vöktum. Hann segist samt ekki
vera neitt sérstaklega þreyttur.
Þegar hann er spurður hvort hann
hlakki til að koma aftur til Dalvík-
ur svarar hann: „Nei, ég er að
fara í skólann. Af tvennu illu er
skárra að vera á sjónum.“
Kristinn er dóttursonur Snorra
Snorrasonar sem er eigandi út-
gerðarinnar. Auk þess sem sagði
í upphafí um skyldleika Kristins
við aðra skipveija á Dalborginni
má bæta því við að móðursystir
hans, Aðalbjörg Snorradóttir, er
framkvæmdastjóri útgerðarinnar
og sér meðal annars um að skipu-
leggja leiguflugin til St. John’s.
Kristinn ætti því að vera í góðum
höndum. En hvernig þótti honum
Þyrla til bjargar
ÞYRLA frá kanadísku
strandgæslunni sótti Ævar
Smára Jóhannsson um borð
í Ottó Wathne eftir að
Ævar Smári slasaðist í
veiðiferð á Flæmska hattin-
um undir lok síðasta mán-
aðar. Bíða þurfti eftir þyrl-
unni í sextán klukkutíma
vegna þoku. Tveir menn
flugferðin? „Þetta var ágætt og
tók fljótt af,“ svarar hann.
Mikið verslað
Annars segist Kristinn vera orð-
inn vanur því að vera í kastljósi
fjölmiðla, því í einni verslunarmið-
stöðinni í St. John’s fyrr um kvöld-
ið, hafí fjölmiðlafólk komið og tek-
ið viðtöl og myndir af íslendingun-
um, því það hafi verið gáttað á
því hversu mikið þeir versluðu á
einum degi.
Það liggur því beint við að taka
Guðrúnu Björgvinsdóttur frá
Reykjavík tali, en hún var ein af
þeim sem flugu með leiguþotunni
til þess að versla í St. Johns. Hún
segist hafa frétt af ferðinni í gegn-
um frænku sína, sem hafi hringt
í sig og boðið sér með.
sigu niður í skipið úr þyrl-
unni og hlúðu að Ævari
Smára áður en hann var
hífður upp. Flugið frá tog-
aranum til St. John’s á
Nýfundnalandi tók hálfan
annan tíma en þar var
Ævar Smári lagður inn á
sjúkrahús en hann kom til
Islands á þriðjudag.
„Þetta margborgar sig,“ segir
Guðrún. „Ég keypti þarna buxur,
peysu, skó, ilmvötn og fleira og
fleira."
Gengur eftir efni og ástæðum
Snorri Snorrason, eigandi út-
gerðarinnar, segir að veiðin hafi
gengið eftir efnum og ástæðum:
„Það hefur ekki gengið neitt af-
skaplega vel, heldur bara eins og
við er að búast á þessum tíma.“
Hann segir að veiðin hafí daprast
heldur eftir því sem liðið hafí á
haustið, en hún sé líklega skárri
en á sama tíma í fyrra.
Dalborgin var samtals með 110
tonn í þessum síðasta túr, en taka
verður með í reikninginn að hún
varð fyrir töfum þegar hún þurfti
að gera hlé á veiðum og sigla í
ÆVAR Smári Jóhannsson
með móður sinni Ósk
Traustadóttur og litlu systur
Bóel Björk Jóhannsdóttur.
land vegna bilana. Snorri segir að
Dalborgin sé komin með samtals
250 tonn á Flæmska hattinum.
„Við stefnum á að vera þarna
eitthvað áfram,“ segir Snorri, „eða
svo lengi sem gengið getur.
Hversu lengi það verður veit ég
ekki og sennilega enginn þá nema
Guð almáttugur."
Verður hálft ár að ná sér
Ævar Smári Jóhannsson af tog-
aranum Otto Wathne frá Seyð-
isfírði var á meðal þeirra sem
komu með leiguþotunni til lands-
ins í gærkvöldi, en hann slasaðist
þegar togarinn var á veiðum í lok
ágúst síðastliðnum, eins og greint
hefur verið frá í Morgunblaðinu.
Slysið bar að með þeim hætti
að verið var að taka inn trollið
þegar krókurinn festist alveg niðri
í dekki. Ævar Smári byijaði að
losa krókinn, en sá sem hífði tók
ekki eftir því og hélt áfram að
hífa, með þeim afleiðingum að
krókurinn losnaði og skaust í fót-
inn á Ævari af miklu afli. Hann
fékk mikið sár á lærið og vöðvinn
fór í sundur að aftan.
Eftir að hafa legið um borð í
sextán tíma án verkjalyfja var
hann fluttur með björgunarþyrlu
á sjúkrahús St. John’s, þar sem
gert var að sárum hans. Það mátti
sjá á Ævari á þriðjudaginn að
hann var feginn að vera kominn
til landsins eftir þessa þolraun, en
með honum við komuna til lands-
ins voru móðir hans og systir.
„Læknar hafa sagt við mig að
fóturinn verði ekki orðinn góður
fyrr en eftir sex mánuði,“ segir
Ævar. Hann býst við að verða í
sjúkraþjálfun þennan tíma, en
hefur ekki gert upp við sig hvað
taki við að því loknu:
„Ég ætla nú að stefna að því
að fara á sjóinn sem fyrst, en það
verður bara að koma í ljós. Það
eina sem ég veit á þessu augna-
bliki er að ég fer í læknisskoðun
á fimmtudag."