Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 39 MIIMIMINGAR VALDIMAR HALLDÓRSSON + Valdimar Halldórsson var fæddur á Akranesi 24. júlí 1966. Hann lést 21. ágúst siðast- liðinn og fór útförin fram 30. ágúst. Hver getur siglt án vinds í dag hver getur róið án .ár. Hver getur skilið við vininn sinn utan að fella tár. Ég get siglt án vinds í dag ég get róið án ár. En ekki skilið við vininn minn utan að fella tár. Þessa sænsku vísu rakst ég á þegar ég frétti af andláti eins besta vinar míns, Valdimars Halldórsson- ar. A svona sorgarstund rifjast minningarnar upp og maður grætur og verður máttlaus og hugsar af hverju? En það fást engin svör. Dauðinn er alltaf svo fjarlægur, en samt sem áður svo nálægur. Ein- hver er tilgangurinn, sem enginn veit. + Ágúst Sigurður Guðjónsson var fæddur 28. ágúst 1912 í Melkoti í Leirársveit. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 3. september síðastliðinn. Elísa- bet Þorgeirsdóttir var fædd í Bakkakoti í Skorradal. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 1. sept- ember síðastliðinn. Utför þeirra fór fram frá Akranesi 8. september sl. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Mig langar aðeins að minnast ömmu og afa, sem nú hafa kvatt þennan heim. Það eru margar minningar sem koma upp í huga minn þegar ég lít til baka. Ég minnist þess þegar ég var yngri og fór í heimsókn til þeirra upp á Skaga á sumrin, af hve mik- illi alúð þau hugsuðu um mig. Á morgnana byrjaði amma alltaf á því að kveikja á rafmagnsofninum, til þess að ég gæti hlýjað fætur mína. Hún hitaði mjólkina sem fór Skilafrest- ur vegna minningar greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Valla kynntist ég fyrir mörgum árum og var það í sportvörudeild- inni í KB og eru þaðan margar frá- bærar og ógleymanlegar minning- ar. Fótboltinn var alltaf efstur í huga Valla og var hann mjög góður knattspyrnumaður. í vinnunni okkar í Sportvöru- deildinni tippuðum við alltaf í 1X2 og kom það fyrir eitt skiptið að bæði ég og Valli fengum 12 rétta en málið var það að ég fór eftir hans röð. Stundum datt okkur í vinahópnum í hug að skreppa í bústað í Bifröst. Þar var alltaf mik- ið fjör hjá okkur félögunum. Oft höfðum við orð á því við Valla, að ef Mick Jagger sæi til hans mætti hann passa sig því Valli náði honum alveg frábærlega og var mikill aðdáandi Rolling Stones. • Eitt laugardagskvöld vorum við á rúntinum á Lödunni hans og þá datt okkur í hug að skreppa á Akra- nes, eins og oft var gert um helg- ar. En Valli treysti ekki bílnum sín- út á Cheeriosið mitt og á kvöldin setti hún sængina mína á ofninn, svo mér myndi hlýna strax. Og að fá að fara á knattspyrnyleiki með afa var meiriháttar upplifelsi. Það var yndislegt að vera hjá þeim. En nú hafa þau lokið sinni lífs- göngu og þótt erfitt sé að sætta sig við það og söknuðurinn sé mik- ill, veit ég að þeim mun liða vel þar sem þau eru. Elsku amma og afi, ég vil þakka ykkur af öllu mínu hjarta fyrir alla þá alúð og alla þá gæsku sem þið veittuð mér og fjölskyldu minni. Guð blessi ykkur. Linda, Gestur og Ásta Katrín. um, og ekki átti ég bíl. Þá hrökk upp sú hugmynd hjá Valla að taka bara bílaleigubíl og úr því varð og útá Akranes fórum við. Já, Valli minn, minningarnar eru svo margar og dýrmætar og ég vann mikið með þér, bæði í KB og mjólkursamlaginu og er ég þakklát fyrir það. Það var hægt að treysta þér fyr- ir öllu og ávallt gott að tala við þig ef eitthvað bjátaði á hjá mér. Ég hefði viljað að stundirnar yrðu fleiri og það verður skrítið að koma heim um jólin og vita það að þú sért ekki þar. Einhvern tímann hittumst við á ný og þá verður kátt á meðal okkar. Þegar þú talaðir um litlu dóttur þína, hana Dóru Kristínu, þá kom alltaf stoltur svipur á þig og það var svo gaman að fylgjast með ykkur feðginum, því hún er svo lík þér. Ég bið Guð um að leiða þig í ljós- ið og varðveita þig. Hafðu þökk fyrir allt og allt, minn kæri vinur. Ég og Kristján sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til dótt- ur þinnar, foreldra, systkina og fjöl- skyldu þinnar og vina þinna og biðj- um Guð að styrkja ykkur á þessari erfiðu stund. Þín frænka og vinkona, Ásta Guðrún Pálsdóttir og Kristján Jónsson, Svíþjóð. Miðvikudaginn 30. ágúst sl. var Valdimar Halldórsson, eða Valli eins og hann var oftast kallaður, jarðsunginn frá Borgarneskirkju og langar okkur að minnast hans með örfáum orðum. Valli lék knattspyrnu með öllum yngri flokkum Skallagríms enda átti íþróttin hug hans allan. Með meistaraflokki lék hann yfir 100 leiki ásamt því að þjálfa yngri flokka félagsins. Valli var mjög fjölhæfur leikmað- ur með mikið keppnisskap og fast- heldinn var hann. Til dæmis lék hann alltaf í treyju númer 7 og lék ætíð með klút um hálsinn. Hann var góður vinur innan vallar sem utan. Um leið og við þökkum Valla fyrir framlag hans og vel unnin störf fyrir félagið, þá viljum við biðja Guð að styrkja fjölskyldu hans, ástvini og vini, í þeirra sorg. Minningin um góðan dreng mun lifa. Knattspyrnudeild Skallagríms. + Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MATTHÍAS JÓHANNSSON, Hólavegi 16, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 16. september kl. 14.00. Jóna Pétursdóttir, Elisabet Matthiasdóttir, Jón Valgeirsson, Hjördis Sigurbjörg Matthiasdóttir, Einar Þór Sigurjónsson, Halidóra Sigurjóna Matthiasdóttir, Snævar Vagnsson, Matthildur Guðmunda Matthíasd., Gunnar Jónsson, Stella María Matthíasdóttir, Ásgeir Þórðarson, Braghildur Sif Matthiasdóttir, Ásgrímur Ari Jósefsson, Jóhann Örn Matthfasson, Hulda Ágústsdóttir, Pétur Matthíasson, Kristján Jóhann Matthíasson, Finndís Fjóla Birgisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUNNHILDUR DAVÍÐSDÓTTIR húsfreyja, Laugarbökkum, Ölfusi, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 16. september kl. 13.30. Guðmundur Þorvaldsson, Sigríöur Magnúsdóttir, Kristjana Guðmundsdóttir, Davíð Guðmundsson, Þorvaldur Guðmundsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Karl R. Guðmundsson, Tryggvi Bjarnason, Bryndís Arnardóttir, Erla Ingólfsdóttir, Kristján Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. ÁGÚST SIGURÐUR GUÐJÓNSSON ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi LEIFUR HARALDSSON rafverktaki, Botnahlíð 16, Seyðisfirði, verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðar- kirkju á morgun, mánudaginn 19. sept- ember, kl. 14.00. Steinunn J. Ólafsdóttir, Hulda Leifsdóttir, Stefán Jón Sigurðsson, Haraldur Leifsson, Ólafur Leifsson, Sigurbjörg Leifsdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, SAMÚEL MARÍUS FRIÐRIKSSON, Blómsturvöllum 4, Grindavik, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 16. september kl. 11.00 fyrir hádegi. Jóhanna Alfreðsdóttir, Alfreð Samúelsson, Guðni Bragason og sýstkini hins látna. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN EIRÍKSDÓTTIR, Votumýri, Skeiðahreppi, sem andaðist á heimili sínu 6. septem- ber sl., verður jarðsungin frá Ólafs- vallarkirkju laugardaginn 16. september kl. 14.00. Eiríkur Guðnason, Hallbera Eiríksdóttir, Búi Steinn Jóhannsson, Guðni Eiríksson, Helga Ásgeirsdóttir, Tryggvi Karl Eiriksson, Ágústa Tómasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, SIGURBJARGAR JÓNSDÓTTUR, Lyngholti 14E, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks á B-deild, dvalarheimilinu Hlíð. Helgi Bernharðsson, Katrín Þorvaldsdóttir, Dóra Bernharðsdóttir, Jón Bernharðsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTJÖNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Lindargötu 61, Reykjavík. Guðlaugur Már Sigmundsson, Hildigunnur Friðjónsdóttir, Árni Guðlaugsson, Guðni Hrafn Guðlaugsson, Ellert Jón Jónsson, Þórdi's Hlöðversdóttir, Hlöðver Ellertsson, Helga Guðmundsdóttir, Hrefna Hlöðversdóttir. + Þökkum innilega þeim fjölmörgu, sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, SIGURÐAR SÖRENSSONAR fyrrv. hafnsögumanns, Silfurgötu 11, Stykkishólmi. Ingibjörg Árnadóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.