Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 45 BRÉF TIL BLAÐSINS Að vera Pétur eða Páll Frá Hinríki Fjeldsted: ÉG HEF verið að hugsa um um- mæli þingmanna þessarar ríkis- stjórnar um atvinnuleysið. Flestir sem hafa tjáð sig um málið segjast sýna skilning á þessum málum. Ummæli tveggja þing- manna hafa hneykslað marga. Tillaga Péturs Blöndal frá Sjálfstæðis- flokki, þess efn- is, að atvinnu- lausir eigi að stunda námskeið og að þeir sem ekki geri það eigi á hættu að missa bæturnar, þetta sýnir okkur að Pétur, einn af okkar nýju þing- mönnum, hefur ekki hugsað málið til enda. Raunin er sú að Pétur vill setja helminginn á námskeið og Páll Pét- ursson vill senda hinn helminginn í fisk. Þannig hafa þessir tveir menn reddað atvinnuleysingu. 0 nei, herrar mínir og frúr, aldeil- is ekki! Pétur hefur ekki tekið það með í reikningin að það eru líka mæður atvinnulausar. Ef þær eiga að sækja þessi námskeið til þess að missa ekki bæturnar, þurfa þær að ráða sér barnapössun. Fyrir barnapössun þurfa þær að borga. Þannig er verið að þröngva fólki af bótum sem það á fullan rétt á. Að námskeiði loknu verður þetta fólk í sömu sporum vegna þess að atvinnuleysi minnkar ekki við það að mennta fólk, það sýna atvinnu- leysistölur háskólamenntaðra manna. Það væri betri kostur að setja átak í gang til að útvega þessu fólki vinnu. Pétur, hefur þú hug- leitt að leggja fram frumvarp á Alþingi þar sem varanleg lausn er fundin á atvinnuleysinu! Því oft veltir lítil þúfa þungu hlassi, þú getur verið þessi litla þúfa, Pétur. Mér finnst Pétur og Páll tala um atvinnulausa eins og að meginþorr- inn sé að vinna með bótum og hinn hlutinn nenni ekki að vinna! Finnst mér þetta s_ýna atvinnulausum lítils- virðingu. Eg held að þessir menn viti ekki hvernig það er að vera atvinnulaus. Og vona ég að þeir þurfi ekki að reyna það. Páll Pétursson er mjög mikið sammála síðasta ræðumanni, alla vegana var hann sammála mörgum í útvarpsþætti um vanda heimil- anna. I þessum þætti var vandi heimilanna skoðaður lítillega. Vandi heimilanna er að mínu mati að ungu fólki er ýtt út í húsnæðiskaup vegna þess að ieigumarkaðurinn er ótryggur. Ungt fólk, sem er að ijár- festa í sinni fyrstu íbúð, vinnur mikið til þess að láta enda ná sam- an. Um leið er þetta fólk hlutfalls- lega að borga mestu skattanna. Það er óhagkvæmt fyrir ungt fólk með börn að vinna bæði úti vegna þess að mikill hluti af umframvinnu þessa fólks fer í skatta. Endar ná ekki betur saman með að lengja húsnæðislánin, það verður líka að taka á útgjaldaliðum þessa fólks. Kjarabætur til fólksins í þessu landi væru bestar ef leitað yrði leiða til þess að létta á vanda heimil- anna. Ekki að bíða eftir að heimilin endi á gjörgæslu hjá bóndanum frá Höllustöðum. HINRIK FJELDSTED, sölumaður. Fargj aldahækkun SYR Frá Hildi Kjartansdóttur: ÉG ER ein af þeim sem kaus Reykjavíkurlistann og hef fylgst vel með því sem borgarstjórinn og nýi meirihlutinn hefur verið að gera. Þau eru reyndar ekki öfundsverð að taka við stjórninni með alla sjóði tóma, en það er allt annað mál. Það sem ég get ekki orða bundist yfír er hvernig fjölmiðlaumfjöllunin er oft ósanngjörn og er skemmst að minnast fargjaldahækkunar SVR og Almenningsvagna nú fyrir nokkrum dögum. Bæði fyrirtækin hækkuðu eða breyttu gjaldskrám sínum sama dag, annað þjónar Reykvíkingum en hitt íbúum sveit- arfélaganna hér í kring. Hækkunin hjá SVR er blásin upp og talað um 20-100% hækkun, en lítið um hina Pjallað. Væri ekki réttlátara að bera saman fargjöld þessara tveggja þjónustufyrirtækja? Ég veit ekki betur en fargjöldin hjá SVR séu miklu ódýrari en hjá AV. Ungling- ar borga 60 krónur fyrir staka miða hjá SVR en hjá AV kostar unglingafargjaldið 130 krónur. Það hefur líka verið talað um að vegið sé að öldruðum hjá SVR þar sem farmiðinn kostar 50 krónur fyrir aldraða sem er fjórðungur af heilu fargjaldi. En hjá AV þurfa aldraðir að borga á bilinu 65-110 krónur. Af hverju talar enginn um þessar staðreyndir? Eða þá öryrkja og þeirra fargjöld þar sem farmið- inn kostar 25 krónur hjá SVR á móti 65-110 krónum í nágranna- sveitarfélögunum. Ég held það væri sanngjarnari umfjöllun að bera saman fargjöldin og hvað í raun og veru hangir á spýtunni. HILDUR KJARTANSDÓTTIR, Tjamargötu 44. Kripalujóga Verið veikoinin a kynningardaginn okkar, laugardaginn 16. septcmber. Vetrarstarfsemin verður kynnt og boðið í jógatíina. Tímar í Kripalujóga verða kl. 7.30,9-30,11.00,13.00 og 16.00. Hugleiðslutími kl. 14.30. Bikramjóga kl. 17.15. Aðrar kynningar: Kl. 11 öldutækni, tilfinningavinna. Kl. 12 Blómarósir á besta aldri, námskeið fyrir konur 35 ára og eldri. Kvenímyndin, breytingaraldurinn o.fl. Kl. 13 Nuddkynning, ýmsar tegundir kynntar. Kl. 14 Listin að lifa í gleði og heilbrigði, námskeið fyrir þá sem vilja skoða og breyta lífsmynstrum sínum. Kl. 15 Gyðjan, nornin og leyndardómarnir, námskeið fyrir ævintýragjarnar konur sem þora að horfast í augu við sjálfa sig. Nduðsynhgt er uð vera íþœgilegum fötum i jégatímunum - skiptiklefur a' staðnum. Jógastöðin Heimsljós, Ármúla 15, 2. hæð, s. 588 4200. HASKOLABIO BORGARBÍÓ Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.